Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 FRÉTTIR 17
Berlusconi rannsakaður
Blair talar við fjölmiðla
fTALÍA: Dómsmálaráð-
herra ftalíu, Roberto
Castelli, þurfti að játa sig
sigraðan á ítalska þinginu í
gær og leyfa saksóknara
að kalla eftir gögnum um
meint svindl Silvios
Berlusconis forsætisráð-
herra. Áður hafði hann
neitað því á grundvelli
laga um friðhelgi
Berlusconis. Vantrauststil-
laga kom fram á dóms-
málaráðherrann og hótaði
einn fjögurra stjórnar-
flokka að draga sig út úr
ríkisstjórninni ef ráðherr-
ann breytti ekki afstöðu
sinni. Hann gerði það á
endanum og því má halda
áfram rannsókninni á
Berlusconi.
ÍRAKSSTRfÐHD: Tony Blair
heldur mánaðarlegan fund
með fjölmiðlamönnum í
dag og er búist við því að
hart verði sótt að honum
vegna sjálfsmorðs Davids
Kelly. Kelly framdi sem
kunnugt er sjálfsmorð eftir
að menn fór að gruna að
hann hefði verið heimild-
armaður BBC um vafasamt
framferði ríkisstjórnarinnar
í aðdraganda (raksstríðs-
ins. Talið er að Blair reyni
að beina sjónum að öðr-
um málum á borð við heil-
brigðismál og jafnvel verj-
ast spurningum um dauða
Kellys með því að segja að
rannsókn málsins sé í
gangi og því lítið hægt að
segja að svo stöddu.
Hætt við umdeilda áætlun um
að setja upp netmarkaðstorg
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið í Pentagon hefur ákveð-
ið að hætta við umdeilda áætl-
un um að setja upp netmark-
aðstorg sem ætlað var til þess
hjálpa til við spár um hugs-
anlegar hryðjuverkaárásir.
Mikill andstaða var gegn áætl-
uninni og þá sérstaklega meðal
þingmanna demókrata en þeir
gagnrýndu áætlunina harkalega
og sögðu hana í alia staði fáránlega
og hreint út sagt hlægilega.
Samkvæmt áætluninni átti að
vera hægt að veðja um hugsam-
legar hryðjuverkaárásir, ýmis átök
og morðtilræði og hafði Tom
Daschle, fyrrum leiðtogi demó-
krata í þinginu, áður líkt fram
kominni tillögu um áætlunina, við
PAUL WOLFOWITZ: Wolfowitz, aðstoðar-
varnarmálráðherra Bandarlkjanna, til-
kynnti (gær að hætt væri við að setja upp
netmarkaðstorg til þess að veðja um
hugsanleg hryðjuverk og morðtilræði.
tilraun til þess að versla með
dauðann.
„Áætlunin gæti þvert á móti
virkað sem hvati til hryðjuverka
frekar en að vinna gegn þeim,“
sagði Daschle og bætti við að þetta
slægi öll met í ábyrgðarleysi.
Ron Wyden, þingmaður demó-
krata ffá Oregon, var annar tveggja
þingmanna sem skrifúðu varnar-
málaráðneytinu bréf þar sem
eindregið var hvatt til þess að hætt
yrði við áætlunina.
„Hugmyndin um að ætla að láta
ríkið standa fyrir veðmálum um
ódæði og hryðjuverk er fáránleg.
Það er með ólíkindum að nokkur
skuli láta sér detta annað eins í
hug,“ sagði Ron.
Til sölu Oldsmobile Branada árg. 1997.
4WD Smart Track. Einstakt eintak, lýtalaus lúxusútgáfa m.
rafmagni í öllu og glæsilegri leöurinnréttingu.
Verö 1.980 þús.kr. staðgr. Ath. skipti á ódýrari.
Upplýsingar í síma 564-1245 og 699-2017.
Opnanlegir að neðan
Öryggisgler
Valin Pine viður
Stillanleg öndun
Tvöföld vatnsvörn
Þakgluggar
Alvak
Stórhöfði 33 • Sími: 577 4100
Fax: 577 4101* www.aKak.is
BONUSVIDEO
Leigm i þinu hvcrfl
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN!