Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 20
20 FÓKUS MIÐVIKUDAGUR 30. JÚU2003 -« Ifókus Umsjón: Höskuldur Daði Magnússon og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. Netföng:fokus@fokus.is, hdm@fokus.is,sigrun@fokus.is Sími: 550 5894 ■ 550 5897 www.fokus.is erjir \oru hvar? Það er ekki á hverjum degi sem Reykvíkingar geta skellt sér á sveitaball inni í miðri borg. Sú hefur þó verið raunin í sumar því á Nasa hafa verið haldin slík böll á tveggja vikna fresti og hefur það framtak fallið í mjög góðan jarð- veg. Sfðasta föstudagskvöld var það Sálin hans Jóns míns sem steig á stokk og var góð mæting eins og jaínan þegar Stefán Hilmarsson, Guðmundur Jónsson og hinar kempumar efna til dansleiks. Þarna mátti meðal annars sjá Valtý Björn Valtýsson, fþróttaf- réttamann hjá Norðurljósum, og Hans Steinar Bjarnason, útsend- ingarstjóra á Utvarpi Sögu. Þórdís Brynjólfsdóttir handboltakona tók sig einstaklega vel út að vanda og fylgdist karlpeningurinn með hverri hreyfingu hennar. Ragnar Már Gunnarsson og Drífa mega- beib voru að sama skapi glæsileg og Apple-bræðumir Bjarni Áka og Ólafur skemmtu sér hið besta. Gulli Helga, byggingameistari Norðurljósa, var með stuðborinn í hægri hendinni og Guðjón, markaðsstjóri Kók, naut sín vel. Pálmi Guðmundsson, markaðsstjóri á Stöð 2, sást rifja upp gömul spor og Þórhallur Gunnars- son nýtti sér nýfengið frelsi að þurfa ekki lengur að vakna fyrir ís- land í bítið. Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir fegurðardrottning hafði engu glatað f þokka sfnum þetta kvöld, Birgitta Haukdai, söngkona írafárs, fylgdist með keppi- nautunum og að sjálf- sögðu var Jóhann Bach- mann, eða bara Hanni hennar Birgittu, ekki mjög langt undan. Friðjón frá Eg- ils var hress, rétt eins og Guffi bílasali og Viðar Þórarinsson sem eitt sinn átti Glaumbar. Að síðustu ber svo að geta hennar Manúelu Óskar Flarðardóttur fegurðar- drottningar sem ku vera nýjasti stuðningsmaður Þróttar í knattspyrnu. Á Sóloni var Popptívímaðurinn Auðunn Blöndal í góð- um félagsskap á föstudagskvöldið. Þar var einnig útvarpsmaðurinn Siffi á FM 95,7 ásamt Robba vini sínum og fleirum. Steini í Quarashi, plötusnúður- inn Jói B og Maja Bee, fyrrver- andi Harrods-starfsmaður, voru í kveðjupartíi Allýjar, plötusnúðs á Sirkusi, á laugardagskvöldið. Þar voru líka Arna frá Eskimó, Andr- ea og Hörður Kristbjörnsson, uppsetjari á Grapevine. Á Grand Rokk var hljómsveit- in Rúnk að spila á laugardags- kvöldið. Meðal gesta voru Haukur Þórðarson úr Kanada, Tinna Ólafsdóttir, sem er víst dótt- ir Völu Matt og var í Stundinni okkar, og dagskrárgerðar- parið af Rás 2, Freyr Eyjólfsson og Hólmfríður Anna Baldursdóttir. Fyrsta heimsmeistarakeppnin í karókí var haldin á Prikinu á laugardagskvöldið og voru það fé- lagarnir Jón Mýrdal og Hemmi feiti sem stððu að þeim viðburði. Sindri Kjartansson sjónvarpsmað- ur og Heiðar Örn Kristjánsson í Botnleðju þóttu fara á kostum í keppninni eins og Steini Sharq sem tók Suspicious Minds. Elísa- bet Ólafsdóttir, Beta rokk, var að sjálfsögðu á svæðinu og þá tóku bræðumir Kristinn Gunnar úr Ensími og Jörundur plötusnúður lagið.. Eins sást til Steina í Quarashi. Önnur karókíkeppni verður á Prikinu nú á laugardagskvöldið. Hljómsveitin Rúnk er ein þeirra sem sveita sem koma fram á Innipúkanum í Iðnó á laugardaginn kemur. Á laugardag verður haldin sannkölluð innihátíð í Iðnó annað árið í röð. Hátíðin ber nafnið Innipúkinn og er að sögn Björns Kristjánsson- ar, eins skipuleggjenda hátíðarinnar, fyrir „alla þá sem vilja hafa gott stuð og nenna ekki að liggja í blautu tjaldi, ælandi úti í móa“. Þeir skemmtilegu halda sig heima Bjöm er orgelleikari hljómsveitarinnar Rúnk en hún stendur fyrir hátíðinni ásamt Dr. Gunna. Hann segist ekki gráta það að komast ekki út úr bænum um helgina. „Nei, al- deilis ekki. Ég er himinlifandi, þetta gæti ekki verið betra. Ég hef aldrei farið út úr bænum um verslunarmannahelgi, eða að minnsta kosti ekki síðan ég fór í Galtalæk, 13 ára gamall.“ Ástæðuna segir hann þó ekki vera að Galtalækur hafi valdið vonbrigðum. „Það var ágætt þar en miklu skemmti- legra árið eftir héma í bænum. Síðan þá hef ég eytt versl- unarmannahelgunum drekkandi í góðra vina hópi. Það er eins og skemmtilegasta fólkið verði eftir í bænum, þeir minna skemmtilegu fara eitthvað annað.“ Ætla að crilla ef veður leyfir í fyrra var uppselt á Innipúkann og komust færri að en vildu. Bjöm segir samt ekki hafa komið til greina að flytja hátíðina f stærra húsnæði. „Okkur fannst þetta mjög pass- leg stærð og það er erfitt að finna stærra húsnæði sem er líka þægilegt." Iðnó verður opið eins og það leggur sig á laugardag. „Það verður hægt að sitja uppi á annarri og þriðju hæð og ef veð- ur leyfir ætlum við að grilla. Annars verða seldar léttar veit- ingar og það er öllum leyfilegt að rápa inn og út að vild.“ Verður ricninc á þjóðhátíð Þrír plötusnúðar koma ffam á hátíðinni: DJ Talnapúki, DJ Ostur og DJ Bibbi. Auk þeirra spila hljómsveitimar Lovers, Hudson Wayne, Innvortis, Mugison, Rúnk, Dr. Gunni, Botnleðja og Trabant, auk Egils Sæbjömssonar. Bjöm segist vona að veðurspáin gangi eftir og að veðrið verði best á höfuðborgarsvæðinu. „Það verður alla vega rign- ing á þjóðhátíð, það er alltaf hægt að bóka það.“ En ef einhver myndi neyða þig til þess að fara á útihátfð: Hvert myndirðu fara? „Úff, ég veit það ekki. Ætli ég myndi ekki fara aftur í Galtalæk, ég hef góða reynslu af því.“ Forsala aðgöngumiða á Innipúkann hefst f dag, miðviku- dag, f 12 tónum á Skólavörðustíg. .j&vmrwláMfí fi®raLMfW*nttesS mp Tfíkfi MtiBVNA Að kyssa grænmetisætu er eins og að sleikja öskubakka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.