Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Page 22
22 MENNING MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 Menning Leikhús ■ Bókmenntir • Myndlist • Tónlist ■ Dans Verk Andys Warhols í Fold Sýning á nokkrum verkum popplistamannsins Andys War- hols verður opnuð í Gallerí Fold við Rauðarárstíg á menn- ingarnótt í Reykjavík, þann 16. ágúst. Um er að ræða mynda- röð sem Warhol gerði af fræg- um íþróttahetjum á árunum 1977-1978 og að auki eitt stakt verk. Andy Warhol var fæddur 1928 og lést 1987. Hann var meðal þekktustu myndlistarmanna Bandaríkj- anna og vekja sýningar á verk- um hans hvarvetna athygli. Þær myndir sem verða sýndar í Gallerí Fold eru í eigu banda- rísks listaverkasafnara, Richards Weisman sem var einkavinur Warhols. Weisman mun sjálfur opnar sýninguna í Fold sem ráðgert er að standi í viku. MYNDUSTARGAGNRÝNI Aðalsteinn Ingólfsson í þeirri umræðu sem geisað hefur á síð- um dagblaðanna, einkum Morgunblaðs- ins, um nauðsyn þess að opna íslenskum listamönnum leið út á heimsmarkaðinn, virðist það hafa farið fram hjá áköfustu skríbentum að þessir listamenn kunni líka að eiga erindi við samlanda sína hér uppi á skerinu. Höfum í huga að hér vantar allt sem við á að eta: kaupendur, aðstöðu, umræður og fagþekk- ingu. Úr þeirri ávöntun má bæta með litlum til- kostnaði; síðan má ráða mann í hálft starf uppi í menntamálaráðuneyti til að annast fyrir- greiðslu í útlöndum fyrir þá myndlistarmenn sem hafa sannað sig, svo og aðkomumenn í upplýsingaleit. Gallerí Skuggi á Hverfisgötu 39 er eitt af örfá- um athvörfum ungs listafólks á höfuðborgar- svæðinu. Við kjöraðstæður væri fimm eða sex sýningarstaði þessarar stærðar að finna á svæð- iniLl.Skngga.er nii að.fjnna.samsýningii þriggja. ungra listamanna sem allir eru að fóta sig að loknu listnámi í Reykjavík, á Akureyri eða úti í heimi. Þetta em þau Jóhannes Dagsson (f. 1975), Auður Sturludóttir (f. 1975) og Ragnhild- ur Magnúsdóttir (f. 1973). Við það gera augnabliksljós- myndir tilkall til eilífðarinnar og verða að eins konar „helgi- myndum hversdagsins. Út af fyrir sig er ástæðulaust að gera þeim upp keimlík viðhorf til listsköpunar en þó eiga þau sitt hvað sammerkt. Öll eru þau lágmælt í myndlist sinni. Það sem þau hafa til málanna að leggja gera þau af hófstillingu. Á móti krefja þau áhorfendur sína um skynsamlega íhugun frem- ur en tilfinningalegt uppnám eða hugljómun. Ljósmyndir og myndir Verk þeirra allra eru gegnsæ að því leyti að þau vísa, eða vilja vísa, út fyrir sig í stað þess að beina athygli að því sem gerist á þeim myndfleti eða í því myndrými sem þau eru með undir. Og öll virðast þau vera upptekin af því hvemig við látum okkur sjást yfir raunverulegt eðli hlut- anna með því að einblfna sýknt og heilagt á þær eigindir þeirra sem henta skaphöfn og hags- munum okkar best. Ljósmyndir Jóhannesar Dagssonar í Gallerí Skugga Að vísu eru þau misjafnlega í stakk búin til að takast á við alvarlegar raunvemleikapælingar; þær útheimta töluverðan þroska og tæknilegt öryggi. Til dæmis er ljóst að Ragnhildur hefur tæplega forsendur til að mála nákvæmnis- myndir af skýjum, en með þeim vill hún m.a. fá áhorfandann til að skynja „tímann í listaverk- inu“ - ef ég skil listakonuna rétt. í staðinn bein- ist athygli okkar að hrárri meðhöndlun máln- ingarinnar í myndunum, hvemig hún beinh'nis Þessar teikningar hafa til að bera sérkennUegan þokka vinnur gegn þeim „raunvemleika" sem lista- konan virðist vera á höttunum eftir. f verkum Auðar Sturludóttur ganga hiuúrnir betur upp. Úr gömlu myndaalbúmi velur hún nokkrar ljósmyndir af handahófi og málar eftir- myndir þeirra; stillir svo saman málverkum og stækkuðum ljósmyndum. Markmið hennar er ekki að upphefja ákveðnar ljósmyndir eða augnablik úr veruleikanum heldur að sýna fram á það hvemig eðlisþættir og andrúmsloft ljós- mynda breytast þegar þær hafa verið yfirfærðar á striga, fyrst og fremst vegna tímans sem fer í yfirfærsluna og verður órjúfanlegur hluti af henni. Við það gera augnabliksljósmyndir tilkall til eilífðarinnar og verða að eins konar „helgi- myndum hversdagsins". Þetta tekst Auði sem sagt að gefa til kynna, ekki síst vegna þess að hún hefur gott vald á raunsæismálverkinu. Listrænt hugarhvarfl Jóhannes Dagsson er meira ólíkindatól en þær stöllur, en um leið er meira um að vera í fjölbreyttum verkum hans. í stómm dráttum vinnur hann þó út frá því sem „er“ og rekur á fjörur hans: úrklippum af bosmamiklum feg- urðardísum („Calender"), ýmiss konar tækni- teikningum úr leiðarvísum eða kennslubókum og loks úr ýmsum persónulegum föggum sín- um og pappírum: fatnaði, uppsöfnuðum kvitt- unum, útkrotuðum pappírsrifrildum o.fl. Af- greiðsla hans á því síðastnefnda hefur á sér yfir- bragð evrópsks nýraunsæis á sjöunda áratugn- um, uppsaihaðra og innrammaðra hversdags- hluta þeirra Spoerris, Armans og fleiri spá- manna. í tilbrigðum hans um tækniteikningar örlar á háðslegri tvíræðni Picabias, nema hvað þessar teikningar hafa til að bera sérkennilegan þokka - elegans. Sama er uppi á teningnum í „popplegum" myndum hans af bijóstgóðu konunum. Sem sagt, á þessu stigi blasir ekld við á hvaða leið Jóhannes er. En það er verulega gaman að fylgjast með því hvemig hann ber sig að í list- rænu hugarhvarfli sínu. f öllu sem hann tekur sér fyrir hendur er ævinlega að finna eitthvað sem heldur áhorfandanum fongnum. ai Teflum saman tveimurtímum - segir Magnús Geir, leikstjóri Sumaróperunnar Æfingar á óperunni Krýning Poppeu standa sem hæst, enda á að frumsýna 15. ágúst. DV lelt inn í Borgarleikhúsið ígær. Krýning Poppeu er eftir Claudio Monteverdi og rekur sögu Nerós Rómar- keisara og ástkonu hans, Poppeu. Þar eru svik, morð, ástir, hatur og örlög - sem sagt allt sem prýða má eina góða óperu, að sögn leikstjórans, Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Upphafleg sýning á Krýningu Poppeu var í Feneyjum árið 1643 og hún var fyrsta óper- an sem hafði sögulegar persónur í aðalhlut- verki. En hefur hún aldrei verið flutt hér á íslandi áður? „Nei, ekki í heild sinni en samt er hún ein af perlum óperubókmennt- anna," svarar Magnús Geir. Hann segir sýn- ingu Sumaróperunnar færða til nútíma- horfs f útliti og stílbrögðum. „Þetta verður ekki stíf uppfærsla þar sem öllum siðaregl- um barrokktfmans er fylgt út í gegn. Við erum að tefla saman tveimur tfmum - nú- tíminn kallast á við sögusvið óperunnar, Rómaveldi á fyrstu öld eftir Krist. Sumar- óperan lagði upp með það markmið að vera óhrædd við að leika sér með formið, fara ekki endilega beinustu leiðina heldur tala til nútíma-áheyrenda og ég get fullyrt að sýningin er sjónræn og leikandi." Þrettán söngvarar fara með samtals 17 hlutverk í Krýningu Poppeu. Þar af eru sex aðalsöngvarar og stærstu hlutverk eru í höndum Hrólfs Sæmundssonar, sem leikur Neró, og Valgerðar Guðnadóttur, sem fer með hlutverk Poppeu. Sex manna sveit sér svo um hljóðfæraleik á sembal, lútu og strokliljóðfæri og hljómsveitarstjóri er hinn breski Edward Jones. „Það er mikið í þetta lagt og byggt á þeim grunni sem lagður var í fyrra, þegar við sýndum Dídó og Eneas við góðan orðstír," segir Magnús Geir og tekur fram að Hrólfur Sæmundsson sé forsprakkinn að Sumaróp- erunni. „Hrólfur kom þessu á koppinn og ÆFING: Eitt af leiðarljósum Sumaróperunnar er að kynna skærustu söngstjörnur ungu kynslóöarinnar. DV-mynd E.ÓI. hreif hóp listafólks með sér," segirhann. í fyrra var uppselt á allar sýningar Sumaróperunnar og nú er miðasalan hafin bæði í Borgarleikhúsinu og 12 tónum á Skólavörðustíg. gun@dv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.