Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Page 24
24 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið • Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824-550 5810
Robbie í báðum hlutverkum
ÖÐLINGSPOPPARI: Robbie
Williams mun fara fyrir stórum
hópi tónlistar- og tískufólks á
samkomu sem haldin verður í
Royal Albert Hall í Lundúnum
þann 18. október til að afla fjár
í sérstakan góðgerðasjóð Kalla
prins af Wales.
Meðal þeirra sem koma fram á
samkomunni ásamt Robbie
eru þau Victoría krydd
Beckham, sir Elton John, Bryan
Ferry og David Bowie.
Hollywood-skutlan Liz Hurley
mun stýra samkomunni, sem
gengur undir nafninu Fashion
Rocks, en þar munu átján af
heimsins þekktustu
tískuhúsum leggjast á eitt með
poppstjörnum og öðru glam-
úrliði.
Að sögn skipuleggjenda sam-
komunnar verður tísku- og
söng fléttað saman og lofa þeir
því að Robbie bregði sér í bæði
hlutverkin en ekki er vitað
hvort Kryddpían fyrrverandi
sýnir eða syngur.
Legally Blonde 2 frumsýnd í dag:
Lögfræði-
Ijóskan
snýr aftur
fdag veröur frumsýnd í Regnbogan-
um, Smárabíói, Borgarbíói Akureyri
og iaugarásbíói myndin Legally
Blonde 2. Eins og nafnið gefur til
kynna er þar á ferð framhald kvik-
myndarinnar Legally Blonde sem sló í
gegnfyrirtveimurárum.
f fyrri myndinni leikur Reese
Witherspoon ljóskuna Elle Woods
sem er sparkað af kærastanum en
ákveður að elta hann í lögfræðinám
til Harvard í því skyni að ná aftur
ástum hans. Þar kemst hún að því
að lögfræðin á mun betur við hana
en nokkum hefði gmnað.
Þegar Legally Blonde 2 hefst er
Það er ekki heiglum hent
að átta sig á því hvernig
heimur stjórnmálanna
virkar, sérstaklega ef
maður stingur í stúf, í
bleikum kjól innan um
alla grásprengdu jakka-
lakkana.
Woods útskrifuð úr Harvard og
orðin ungur og upprennandi lög-
fræðingur og undirbýr nú brúð-
kaup sitt og draumaprinsins. En
þegar hún kemst að því að einn
viðskiptavinur lögfræðistofunnar
hennar hyggst nota fjölskyldumeð-
limi hundsins hennar sem til-
raunadýr berst hún fyrir rétti þeirra
og missir samstundis vinnuna.
Woods er miður sín en það er ekki
hægt að buga óbilandi bjartsýni
hennar; hún skellir sér til
Washington og tekur málin í sínar
vel snyrtu hendur.
Það er ekki heiglum hent að átta
sig á þvf hvernig heimur stjórnmál-
anna virkar, sérstaklega ef maður
stingur í stúf, í bleikum kjól innan
um alla grásprengdu jakkalakkana.
En með ákveðni og gáfum í senn
tekst Elle Woods að láta finna vel
fyrir sér í kerfinu og tala máii
hundsins síns og fjölskyldu hans.
Leikur og framleiðir
Reese Witherspoon skaust upp á
stjörnuhimininn með frammistöðu
sinni í fyrri myndinni sem varð
gríðarlega vinsæl þegar hún kom í
kvikmyndahús árið 2001. Mátti því
vel búast við að ekki yrði langt í að
framhaldsmynd kæmi í bíó. En það
er ekki nóg með að Witherspoon
hafi leikið aðalhlutverkið í nýju
myndinni heldur átti hún líka þátt í
framleiðslu hennar þannig að leik-
konan vann frá upphafi að gerð
framhaldsmyndarinnar.
„Hún elskar skóna sína,
neglurnar og hárið. En
hún hefur líka mikinn
metnað, orku og
gáfur."
Witherspoon hefur sagt að þeir
eiginleikar sem henni líki hvað best
í fari Elle Woods séu að þessi lög-
lærða ljóska njóti þess svo vel að
vera kona. „Hún elskar skóna sína,
neglumar og hárið. En hún hefur
líka mikinn metnað, orku og gáfur.
Fólk skildi hvemig persónan var
hugsuð og því var það verkefni okk-
ar nú að finna handa henni um-
hverfi þar sem reyndi jafnvel enn
meira á hana en í fyrri myndinni."
Óþekktur leikstjóri
Framleiðendur myndarinnar
fengu tiltölulega óþekktan leik-
stjóra, Charles Herman-Wurmfeld,
til að leikstýra myndinni en hann
hefur áður leikstýrt myndunum
Kissing Jessica Stein og Fanci’s
Persuasion, auk þess að leikstýra
sjónvarpsefni. Athyglisvert verður
að sjá hvernig honum tekst til við
að koma skutlunni ljóshærðu á
hvíta tjaldið.
Helstu leikarar em svo Reese
Witherspoon, eins og áður segir, en
hún fékk m.a. tilnefningu til
Golden Globe verðlauna sem besta
leikkona í aðalhlutverki fyrir fyrri
myndina. Hin vel þekkta leikkona,
Sally Field, er einnig í leikarahópn-
um en hún hefur tvisvar unnið til
óskarsverðlauna. Aðrir leikarar em
síður þekktir 'en meðal þeirra em
Regina King, Jennifer Coolidge,
Bmce McGill og Bob Newhart.
Unglingahrollvekjan WrongTurn:
Háskaferð í
óbyggðirnar
f HÆTTU: Emmanuelle Chriqui leikur Carly
sem lendir í ógöngum þegar hún verður
illa innraettum veiðimönnum að bráð.
í dag verður frumsýnd í Há-
. skólabíói og Sambíóunum ung-
lingahryllingsmyndin Wrong
Turn sem er frá sömu framleið-
endum og gerðu I Know What
You Did Last Summer og Res-
ident Evil.
Wrong Turn er gerð í anda hryll-
ingsmynda áttunda áratugarins og
fjallar um Chris (Desmond Harr-
ington) sem þarf að mæta í at-
vinnuviðtal í bænum Raleigh. Slys
á veginum tefur hann hins vegar
umtalsvert. Þá skellir sér inn á
fáfarinn vegarslóða í þeirri von að
komast í tæka tíð í viðtalið.
Það gengur hins vegar ekki betur en
svo að Chris keyrir á jeppa fimm ung-
menna sem stendur bilaður á vegin-