Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Síða 36
36 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003
DV Sport
Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Sverrir skírði eftir stóra bróður
Fer Emerson til Chelsea?
KNATTSPYRNA: Sverrir Sverris-
son, knattspyrnukappi í Fylki,
gekk í það heilaga á laugardag
um leið og hann lét skíra dreng-
inn sem honum og konu hans
fæddist fyrr í sumar. Boðsgest-
um kom það reyndar í opna
skjöldu þar sem Sverrir hafði að-
eins boðið til skírnarveislu. Og
það er ekki að spyrja að því, for-
eldrarnir stoltu létu unga piltinn
heita Eyjólf, í
höfuðið á
stóra bróður
Sverris sem á
sama tíma á
laugardag lék
kveðjuleik
sinn með
Sverrir Sverrisson. Herthu Berlin
og lauk þar með ferli sínum sem
atvinnumaður í knattspyrnu.
KNATTSPYRNA: Roma á (talíu
hafnaði í gær tilboði frá Chel-
sea í brasilíska miðvallarleik-
manninn Emerson.Tilboðið
hljóðaði upp á litla 2,2 milljarða
og segja forráðamenn Roma
ekki vanta mikinn pening upp
á til að þeir samþykki tilboðið.
Emerson sjálfur hefur látið hafa
eftir sér að hann vilji vera áfram
hjá Rómarliðinu en yfirmaður
knattspyrnumála hjá félaginu,
Franco Baldini, segir að það
skipti litlu máli ef Chelsea við-
heldur áhuganum á leikmann-
inum og hækkar fyrra tilboð
sitt. „Emerson vill vera kyrr hjá
Roma, en það er félagið sem
ákveður hver framtíð hans
verður." Þessi ummæli Baldini
þykja gefa til kynna að Emer-
son sé falur á réttu verði.
K A R L A R
LANDSBANKADEILDl
Staðan:
Fylkir 12 7 2 3 19-9 23
KR 11 6 2 3 15-13 20
Grindavík 11 6 1 4 17-17 19
Þróttur 11 6 0 5 19-16 18
FH 12 5 3 4 20-19 18
(BV 12 5 1 6 18-19 16
KA 11 4 2 5 18-17 14
ÍA 11 3 5 3 14-13 14
Valur 12 4 0 8 16-22 12
Fram 11 2 2 7 14-25 8
Markahæstu leikmenn:
BjörgólfurTakefusa, Þrótti 9
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, IBV 9
SteinarTenden, KA 7
Allan Borgvardt, FH 6
Jóhann Hreiðarsson, Val 6
Sören Hermansen, Þrótti 6
Haukur Ingl Guðnason, Fylki 5
Hreinn Hringsson, KA 5
Veigar Páll Gunnarsson, KR 5
Björn Viðar Ásbjörnsson, Fylki 4
Guðjón Heiöar Sveinsson, (A 4
Jónas Grani Garðarsson, FH 4
Sinisa Keklc, Grindavlk 4
Kristján Brooks, Fram 4
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR 3
Tommy Nielsen, FH 3
Sígurbjörn Hrelðarsson, Val 3
Úli Stefán Flóventsson, Grindav. 3
Hálfdán Gíslason.Val 3
Næstu leikir.
(A-KR f kvöld kl. 19.15
Fram-Grindavík annað kvöld kl. 19.15
KA-Þróttur annað kvöld kl. 19.15
KNATTSPYRNA
1.DEILD KVENNA
A-rlölll:
ÍLJ
RKV-lR Fjölnir—Breiðablik 2 Staðan: 4-4 2-1
Breiðabl. 2 9 8 0 1 51-10 24
Fjölnir 9 7 0 2 25-15 21
RKV 10 6 2 2 39-24 20
HK/Vík. 10 4 1 5 21-13 13
IR 10 3 1 6 31-29 10
Þrót/Hau 2 9 2 0 7 10-40 6
HSH 9 1 0 8 11-57 3
B-rlölll:
Leiknir F.-Sindri
1-3
Staðan:
Sindri 9 8 0 1 24-14 24
Höttur 10 7 0 3 29-16 21
Tindastóll 8 6 0 2 37-14 18
Fjarðarb. 8 6 0 2 25-11 18
Leift/Dalv 10 3 0 7 26-40 9
Einherji 8 1 0 7 9-26 3
Leiknir F. 9 0 0 9 12-41 0
MEÐ AUGU A KNETTINUM: Eyjamaður-
inn Hjalti Jóhannesson og Fylkismaðurinn
Sævar Þór Gíslason fylgjast vel með knett-
inum í leik liðanna í Árbænum I gær. Fylk-
ismenn tryggðu veru sína á toppnum með
sigrinum og hafa nú þriggja stiga forystu á
KR, sem á leik til góða. DV-mynd Hari
Fastir liðir eins
og venjulega
Fylkir kemst yfir og heldursíðan fengnum hlut
Hún var ekki til fjár, ferð Eyja-
manna í Árbæinn í gærkvöld.
Gestirnir steinlágu fyrir Fylkis-
mönnum, 3-0, og tryggir sigur-
inn heimamönnum áframhald-
andi veru í 1. sæti úrvalsdeild-
arinnar. ÍBV er hins vegar áfram
með 16 stig og ef frammistaðan
verður svipuð og í leiknum i
gær verður liðið ekki lengi að
sogast í alvarlegan botnslag.
Leikurinn fór fjörlega af stað á
Árbæjarvellinum í gær. Bæði lið
með eldsnögga framherja sem ít-
rekað var reynt að stinga inn á og
höfðu nokkur hálffæri litið dagsins
ljós áður en fyrsta markið kom á 9.
mínútu. Þar var að verki Ólafur Páll
Snorrason - loksins, loksins - með
sitt fyrsta mark í sumar eftir fínan
undirbúning Hauks Inga.
Lið Fylkis spilaði mjög vel fram-
an af leik og það var gott flæði í leik
þess. Helgi Valur Daníelsson sýndi
frábæra takta sem hægri bakvörður
og Haukur Ingi var sífellt ógnandi
með sínum ótrúlega hraða.
Eyjamenn voru hins vegar
sprækir og fór Gunnar Heiðar Þor-
valdsson þeirra fremstur - sffellt að
pirra varnarmenn Fylkis með út-
sjónarsemina eina að vopni og er
stundum með ólíkindum hve
Gunnar Heiðar er duglegur að
skapa hættu upp úr nánast engu.
Sævar Þór Gíslason var í byrjun-
arliði Fylkis á ný og hefði hann, í
fullu formi og með sjálfstraustið í
lagi, skorað mark úr sannkölluðu
dauðafæri á 31. mínútu. Birkir
Kristinsson sá við honum eins og
hann gerði svo oft við aðra leik-
menn Fylkis í fyrri hálfleiknum.
Á 41. mínútu átti Þórhallur Dan
Jóhannsson hnitmiðaða sendingu
inn fyrir vörn ÍBV þar sem Haukur
Ingi var mættur á skeiðinu, og af-
greiddi hann knöttinn upp í sam-
skeytin fjær úr þröngu færi. Frá-
bært mark.
Eins og áður segir var fyrri hálf-
leikur opinn og skemmtilegur á að
horfa, bæði lið í sóknarhug og góð
færi á báða bóga, og ekki við öðru
að búast en fjörið myndi halda
áfram í síðari hálfleik. En það var
öðru nær.
Bjarnólfur Lárusson:
Betra liðið vann í dag
Eins og aðrir leikmenn ÍBV var
Bjamólfur Lámsson heldur nið-
urlútur í leikslok þegar DV Sport
náði tali af honum.
„Þeir spiluðu mun betur en við
í fyrri hálfleik en þó svo að við
næðum aðeins að jafna leikinn í
þeim síðari vann betra liðið í dag,
það verður að segjast alveg eins
og er.“
Bjarnólfur segir sína menn
hafa farið inn í seinni hálfleikinn
með það að leiðarljósi að vinna
hann.
„Eftir að þeir yfirspiluðu okkur
í fýrri hálfleik var ekki um annað
að velja. Það er samt mjög erfitt
að koma hingað og ætía að ná að
skora tvö mörk,“ sagði Bjarnólf-
ur. eirikurstdpdv.is
Skelfilegt
Fylkismenn byrjuðu seinni hálf-
leikinn reyndar ágætlega og
pressuðu á öftustu línu ÍBV fýrstu
mínúturnar. En skömmu síðar tók
leikurinn á sig allt aðra mynd sem
átti eftir að viðhaldast allt fram á
síðustu sekúndu. Við tók einhver
daprasti síðari hálfleikur sem sést
hefur í sumar þar sem 22 meðal-
jónar vom í tuðmsparki við miðju-
hringinn. Andleysið var við völd á
vígstöðvum beggja - Fylkismenn
sáttir við orðinn hlut og Eyjamenn
komnir með hugann við þjóðhátíð.
„Við tók einhver
daprasti síðari hálfleik-
ur sem sést hefur í sum-
ar þar sem 22 meðal-
jónar voru í tuðrusparki
við miðjuhringinn."
Hvomgt iiðið reyndi að sækja af
einhverju viti, og var það kannski
ögn skiljanlegra af hálfu Fylkis-
manna. En að sjá lið sem er tveim-
ur mörkum undir ekki einu sinni
pressa á varnarmenn Fylkis þegar
þeir em með boltann er stórfúrðu-
legt. Það var engu líkara en gestirn-
ir væm að bíða eftir að flautað yrði
til leiksloka. Þegar andvörpin vom
farin að heyrast í áhorfendastúkun-
um sýndi Björn Viðar Ásbjörnsson
reyndar að það væri lífsmark inni á
vellinum þegar hann skoraði þriðja
markið á sfðustu sekúndu leiksins.
Það er erfitt að taka einhverja
leikmenn sérstaklega út og fjalla
um á jákvæðan hátt. Hjá IBV var
Birkir yfirburðamaður en aðrir
virkuðu ýmist áhugalausir eða bara
■
'
.
:í- :■
úti á þekju. Hjá Fylki var Helgi Val-
ur frábær í fyrri hálfleik en týndist í
þeim síðari, vörnin var traust og
Haukur Ingi hætti aldrei að hlaupa
og skilaði sínu einnig í síðari hálf-
leik - einn af þeim örfáu.
vignirts>dv.is
Fylkir-ÍBV
3-0 (2-0)
Fylkisvöllur
29. júlí 2003 - 12. umferö
1- 0 Ólafur Páll Snorrason (9., með skoti úr markteig eftir fyrirgjöf Hauks Inga).
2- 0 Haukur Ingl Guönason (38., meö skoti innan teigs eftir langa sendingu Þórhalls Dan).
3- 0 BJöm Viðar Ásbjömsson (90., renndi boltanum í markið eftir undirbúning Theódórs).
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson.........3
Helgi Valur Daníelsson....3
Hrafnkell Helgason .......4
Kjartan Antonsson.........3
Þórhallur Dan Jóhannsson .4
Ólafur Ingi Skúlason .....3
Flnnur Kolbeinsson........3
(69., Arnar Þór Úlfarsson ... 3)
Sverrir Sverrisson........3
Sævar Þór Gíslason .......2
(63., Theódór Óskarsson ... 2)
Haukur Ingi Guðnason......4
(82., Björn Viðar Ásbjörnss.. -)
Ólafur Páll Snorrason ....3
Samtals 13 menn..........40
Gul spjöld:
Fylkir: Arnar Þór.
IBV: Atli, lan.
Rauð spjöld:
Engin.
Skot (á mark);
14 (9)-17 (4)
Hom:
11-7
Aukaspymun
11-12
Rangstöðun
0-1
Varln skot
ÍBV (4-4-2)
Birkir Kristinsson ........4
Unnar Hólm Ólafsson........1
(46., lan Jeffs .........1)
Tom Betts..................2
Tryggvi Bjarnason .........3
Hjalti Jóhannesson ........1
Bjarni Geir Viðarsson......2
Bjarnólfur Lárusson........3
Andri Ólafsson ............3
(76., Pétur Runólfsson...-)
Atli Jóhannsson ...........2
Steingrímur Jóhannesson .. 2
(63., Ingi Sigurðsson ....3)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 3
Samtals 13 menn...........30
■ ; ♦ ' *
Dómari: Jóhannes Valgeirsson (4). Áhorfendur. 1481. Kjartan 4 - Birklr 6. II Gi B eði leiks:
Maður leiksins hjá DV Sporti: Haukur Ingi Guðnas., 1 zylki