Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Síða 37
Zidane hættir eftir tvö ár
KNATTSPYRNA: Knattspyrnu-
snillingurinn Zinedine Zidane
staðfesti í gaer að hann ætlaði
sér að leggja skóna á hilluna
þegar að samningur hans við
Real Madrid er á enda, eða eftir
tímabilið 2005. Franski leik-
stjórnandinn, sem verður þá 33
ára, var keyptur af Real árið
2001 fyrir upphæð sem enn
þann dag í dag er sú hæsta
sem greidd hefur verið fyrir
knattspyrnumann, eða rúmir
5,5 milljarðar króna. Margir eru
ósáttir við ákvörðun Zidane,
þar sem hann hefur sjaldan eða
aldrei leikið betur á ferlinum.
Hann segir að ekkert geti
breytt þessari ákvörðun sinni.
„Næstu tvö árin mun ég leggja
mig allan fram en síðan hætti
ég endanlega."
Grant til Lakers
KÖRFUBOLTI: Framherjinn
Horace Grant samdi í gær á ný
við sína fyrrum félaga í LA
Lakers um að spila með liðinu
næsta vetur. Grant var samn-
ingslaus eftirað hafa ekki leikið
nema fimm leiki á síðustu leik-
tíð með Orlando Magic. Grant
er hokinn af reynslu og hefur
fjórum sinnum orðið meistari
með Chicago og Lakers.
ZINEDINE ZIDANE: Mun leggja
skóna á hilluna árið 2005.
L
MIÐVIKUDAOUR 30. JÚLl2003 DVSPORT 37
„Leikmenn hafa áhyggjur"
KNATTSPYRNA: Frank
Lampard, miðjumaður Chelsea,
segir að linnulausar vangaveltur
um að nýir menn séu að koma
til félagsins séu farnar að hafa
neikvæð áhrif á núverandi leik-
mannahóp. Lampard segirað
leikmenn hafi áhyggjur af sinni
stöðu innan liðsins. „Það væri
hægt að fylla flestallar stöður
inn á vellinum með þeim leik-
mönnum sem hafa verið orðað-
ir við liðið að undanförnu. Að
sjálfsögðu hefur það áhrif á þá
leikmenn sem fyrir eru," segir
Lampard og félagi hans Jesper
Gronkjær tekur í sama streng.
„Við lesum allir blöðin og sjáum
hina og þessa vera hugsanlega
á leiðinni til liðsins. Þá er erfitt
að einbeita sér að því að spila
fótbolta."
Toppslagur Þórs og Keflavíkurí 1. deildinnií gær:
Keflavík styrk-
ir stöðu sína
0-1 Þórarinn Kristjánsson 45.
1-1 Þórður Halldórsson 63.
1- 2 Þórarinn Kristjánsson 71.
2- 2 Pétur Kristjánsson 80.
Þórsurum mistókst að tryggja
veru sína í 2. sæti 1. deildar-
innar þegar þeir gerðu 2-2
jafntefli við topplið Keflavík-
ur á Akureyri í gær. Nú verða
þeir að treysta á að Víkingur
vinni ekki sinn leik.
Leikurinn fór mjög varfærnis-
lega af stað en opnaðist hins veg-
ar til muna þegar á hann leið og
úr varð ágætis skemmtun, bæði
fyrir leikmenn sem og áhorfend-
ur. f fyrri hálfleik bar það helst til
tíðinda að Þórsarar vildu fá víta-
spyrnu þegar brotið var á Jó-
hanni Þórhallssyrii en Egill Már
dómari áleit að um leikaraskap
hefði verið að ræða og spjaldaði
dómann. Rangur dómur og Keíl-
víkingar heppnir. Rétt fyrir leik-
hlé kom svo fyrsta mark leiksins
eftir slæma varnarvinnu Þórsara.
Bæði lið byrjuðu síðari hálfleik-
inn með góðum færum, Jóhann
skaut í slá og Atli, markvörður
Þórs, varði vel frá Jónasi Sævars-
syni. Annað mark leiksins kom
aftur eftir slæma vamarvinnu, nú
hjá hinu liðinu, en gestirnir vom
aftur komnir yfir 8 mínútum síð-
ar. Aftur var Þórarinn Kristjáns-
son á ferð, nú með ömggu skoti
upp í þaknetið eftir að hafa Ieikið
á einn vamarmann Þórs.
Heimamenn jöfnuðu svo met-
in skömmu sfðar þegar Pétur
Kristjánsson fylgdi eftir auka-
spyrnu Orra Hjaltalíns sem hafn-
aði í stönginni.
Hjá heimamönnun vom mið-
verðir liðsins, þeir Ármann Æv-
arsson og Hlynur Birgisson,
sterkir, verr gekk liðinu að verjast
á köntunum. Jóhann var ávallt
hættulegur fram á við og Pétur
sýndi oft á tíðum lipra spretti,
sérstaklega eftir að hann fór í
framherjastöðuna um miðjan
seinni hálfleikinn. Atli Már Rún-
arsson stóð sína vakt í markinu
100%. Líkt og hjá Þórsurum
stóðu miðverðir Keflavíkurliðs-
ins sig vel, þeir Zoran Ljubicic og
Haraldur Guðmundsson. Stefán
Gíslason og Jónas Sævarsson
sýndu oft á tíðum góða spretti á
miðjunni og fram á við voru þeir
Þórarinn og Magnús Þorsteins-
son ávallt hættulegir.
Ekki öruggt
Markaskorarinn Þórarinn var
nokkuð sáttur við stigið. „Við
vildum halda hreinu og halda bil-
inu á milli liðanna í minnst 5 stig-
um," segir Þórarinn en telur úr-
vaisdeildarsætið ekki vera komið
í höfn þrátt fyrir ömgga stöðu
liðsins í deildinni. „Það er nóg
eftir, við eigum eftir leiki gegn
liðum í neðri hlutanum sem em
oft erfiðari viðureignar."
Siguróli Kristjánsson, aðstoð-
arþjálfari Þórs, var allt annað en
sáttur við úrslitin en var ánægður
með frammistöðu sinna manna.
„Þetta var góður leikur, fallegur
fótbolti og góð barátta. Við kom-
um til baka tvisvar eftir að hafa
lent undir og sýndum þannig
góðan karakter."
Maður leiksins: Þórarinn Krist-
jánsson, KefLavík. akureyri@dv.is
V
1
í kvöld fýkur skeggið
Ólafur Páll Snorrason fékk að raka sig í gær í fyrsta sinn í 3 vikur
„Skeggið fýkur strax í kvöld,"
sagði Ólafur Páll Snorrason sem
skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fylki í
Landsbankadeildinni eftir mikla
bið. Hann hafði til að mynda
brennt af vítaspyrnu fyrr í sumar og
var því mjög sáttur við að hafa náð
að skora í gær. Hann segir biðina
þó ekki hafa verið erfiða.
„Við emm á toppnum og meðan
það breytist ekki er mér sama hver
skorar mörkin. Ég veðjaði við Ólaf
Inga fyrir þrem vikum um að raka
mig ekki fyrr en ég skoraði og var
það meira til gamans gert," sagði
Ólafur.
Næstum eins og að skora
Þórhallur Dan Jóhannsson var
vitanlega ánægður með að hafa lagt
upp annað mark Fylkis fyrir Hauk
Inga. „Það em núna 4 ár liðin síðan
ég skoraði síðast þannig að þetta er
ágæt búbót."
Hann sáttur við leik sinna
manna, sér í lagi í fyrri hálfleik. „Við
hefðum þó alveg mátt gera betur í
síðari hálfleik. Við gerðum einfald-
lega það sem þurfti, í fyrri hálfleik
rúllaði boltinn vel og við sóttum
hratt á þá. Svo kom þriðja markið í
blálokin þannig að þetta var mjög
gott á heildina litið.
Þórhallur segir alla leiki mikil-
væga og engin undantekning hafi
verið á í gær. „Við emm búnir að
spila mjög vel hérna heima enda
viljum við ekki gefa neitt hér í Ár-
bænum. Ef lið ætla að taka stig af
okkur á heimavelli verða þau að
hafa mikið fyrir því."
eirikurst@dv.is
BARA A HEIMAVELLI
Aðeins miðjumenn Fylkis hafa náð
að skora utan Fylkisvallarins það
sem af er Landsbankadeildinni. Á
heimavelli hefur liðið nú unnið alla
6 heimaleiki sina með markatöl-
unni 14-2 og þar hafa sóknarmenn
liðsins skorað sín 11 mörk.
Á heimavelli:
Varnarmenn (Gunnar Þór) 2
Miðjumenn (Ólafur Ingi) 1
Sóknarmenn 11
(Haukur Ingi 5, Björn Viðar 4, Sævar
Þór 1, Ólafur Páll 1)
Á útivelli:
Varnarmenn 0
Miðjumenn 5
(Sverrir 2, Finnur 2, Arnar Þór 1)
Sóknarmenn 0
ooj.sport@dv.is
SAGAN HLIÐHOLL FYLKI
Fylkismenn eru sjötta félagið til að
vinna fyrstu 6 heimaleiki sína á
tímabili í 10 liða efstu deild og öll
hinn 5 félögin sem hafa náð þeim
frábæra árangri hafa unnið
íslandsmeistaratitilinn um haustið.
Flestir heimasigrar I röð
frá upphafi tfmablls:
9Valur(1978)
9 Fram (1988)
9 ÍBV (1998)
7 ÍA (1995)
6 ÍA (1993)
6 Fylkir (2003)
Ólelknlr heimalelkir Fylks i sumar
14. umferð: Þróttur 18. ágúst
16. umferð: (A 1. september
18. umferð: Valur 20. september
ooj.sport@dv.is
Islandsmeistari
Islandsmeistari
íslandsmeistari
(slandsmeistari
Islandsmeistari
???