Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 38
1 38 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 Viduka slapp með skrekkinn Adolf skiptir KNATTSPYRNA: Adolf Sveinsson skipti í gær úr Kefla- vík yfir í Stjörnuna sem þá vann góðan 4-0 sigur á Hauk- um. Adolf er 28 ára og hefur leikið 5 leiki með Keflavík á tímabilinu og skorað í þeim 1 mark. Hann lék síðast með Stjörnunni fyrir tveimur árum. Þá spilaði hann 15 leiki og skoraði 5 mörk. KNATTSPYRNA: Enski dómar- inn Alla Kaye, sem dæmdi æf- ingaleik Leeds og York í síðustu viku, gæti átt yfir höfði sér refs- ingu frá enska knattspyrnusam- bandinu. Kaye var gagnrýndur harðlega fyrir að reka Mark Viduka ekki af leikvelli þegar hann braut gróflega á einum leikmanna York og grýtti síðan boltanum í hann þar sem hann lá sárþjáður á vellinum. I stað þess að lyfta upp rauða spjald- inu bað dómarinn um að Viduka yrði skipt út af, en rautt spjald hefði þýtt þriggja leikja bann fýrir Viduka í upphafi ensku úr- valsdeildarinnar sem hefst eftir rúmar tvær vikur. Myndbands- upptökur eru til af atvikinu og er það sagt vera hneyksli aðViduka skuli sleppa með skrekkinn. Tap hjá U-17 KNATTSPYRNA: Bæði U-17 karla- og kvennalandslið íslands töpuðu sínum leikjum í gær. Strákarnir á Opna Norðurlanda- mótinu í Noregi þegar þeir öttu kappi við Englendinga. Leiknum lauk með 3-0 tapi. Á Ólympíu- hátíð æskunnar töpuðu stúlk- urnar naumlega fýrir Dönum, 1-0, eftir jafnan og spennandi leik. Afram í LA KÖRFUBOLTI: LA Clippers jafnaði tilboð Utah Jazz í Corey Maggette í gær og er kappinn því skyldugur að semja við Clippers. Samningurinn mun vera til 6 ára og vera 3,2 millj- arða króna virði. Clippers hélt einnig í Elton Brand á sama máta en verður nú að ákveða hvort það eigi að jafna boð Den- ver Nuggets í Andre Miller. Enn umVeron KNATTSPYRNA: Nýjustu fregn- ir af Juan Sebastian Veron herma að „ráðgjafar" hans muni halda til Lundúna í dag til að ræða möguleg félagsskipti hans frá Manchester United til Chelsea. „Fundurinn er mikilvægur," sagði umboðsmaður Verons. „Ef hann er ánægður með tilboðið semjum við um samningslok við Man. Utd." KNATTSPYRN, 1.DEILD KARLA Staðan: Keflavik 12 8 3 1 31-14 27 Þór 12 6 4 2 2-20 22 Vlkingur 11 5 5 1 14-7 20 Stjarnan 12 4 5 3 19-16 17 Njarðvlk 14 4 3 5 24-25 15 Haukar 12 4 3 5 15-19 15 HK 12 4 2 6 15-18 14 Breiðablik 12 4 1 7 12-16 13 Aftureld. 12 3 2 7 13-24 11 Leif/Dalv 11 2 2 7 16-28 8 Markahastir Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak. 13 Magnús Þorsteinsson, Keflavik 8 Zeid Yasin, Leiftri/Dalvík 7 Óskar Örn Hauksson, Njarðvlk 7 Eyþór Guðnason, Njarðvlk 6 Þórarinn Kristjánsson, Keflavlk 6 Zoran Panic, HK 6 Vilhjálmur R. Vilhjálmsson, Stjörn. 6 * Stefán Örn Arnarson, Vlkingi 5 Valdimar Kristófersson, Stjörnunni 5 KNATTSPYRNA 2. DEILD KARLA Selfoss-FJölnlr 1-1 Jón Sveinsson - Andri Gunnar Andrésson. Staðan: Völsungur12 9 1 2 44-19 28 Fjölnir 13 8 3 2 37-18 27 Selfoss 13 7 2 4 28-17 23 KS 12 5 4 3 22-19 19 Tindastóll 12 6 1 5 22-22 19 Víðir 12 5 2 5 15-16 17 (R 12 5 1 6 22-21 16 KFS 12 4 2 6 27-33 14 Léttir 12 2 1 9 10-47 7 Sindri 12 0 3 9 16-31 3 Markahæstu leikmenn: Sævar Gunnarsson, Sindra 11 Boban Jovic, Völsungi 11 Sindri Þór Grétarsson, KFS 9 Baldur Sigurðsson, Völsungi 9 f* íl 1 41 i '■' V BBH fcIJI A-riðill: Skallagrímur-Deiglan 11-2 Staða efstu liða: Vík. Ó. 11 9 2 0 37-10 29 Númi 11 7 3 1 32-21 24 Skallagr. 12 7 2 3 38-20 23 Bf 12 5 2 5 23-27 17 Grótta 11 3 2 6 14-15 11 B-riðill: Hamar-Afríka 7-1 Staða efstu liða: LeiknirR. 10 9 1 0 50-5 28 ReynirS. 10 8 2 0 39-5 26 Árborg 10 5 2 3 36-19 17 (H 10 5 1 4 21-19 16 Freyr 10 5 0 5 18-29 15 Stjarnan átti ekki í vandræðum með slakt lið Hauka 1- 0 Bernharður Guðmundsson 23. 2- 0 Vilhjálmur Vilhjálmss., vfti 52. 3- 0 Calum Bett 78. 4- 0 Benedikt Árnason 83. Stjarnan sigraði Hauka, 4-0, á Stjörnuvellinum í gærkvöldi. Sigurinn færði Stjörnuliðið í fjórða sæti l.deildar karla á kostnað Hauka sem féllu niður í það sjötta. Allt frá upphafsmínútu leiksins var aðeins eitt lið á vellinum; Stjarnan yfirspilaði slakt lið Hauka, sem voru trúlega að ná botninum í leik sínum. Bernharður Guð- mundsson kom Stjörnunni yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Þrátt fyrir að hafa komnir ákveðnir til leiks voru Haukum all- ar bjargir bannaðar og fengu þeir snemma mark á sig úr vítaspyrnu sem var réttiiega dæmd er brotið var á Valdimar Kristóferssyni. Þor- steinn Halldórsson, þjálfari Hauka, mótmælti dómnum og fékk að líta reisupassann fyrir. Heimamenn áttu ekki í miklum vandræðum eft- ir þetta og skoruðu tvisvar, annars vegar með glæsiegu skoti Calums Betts, sem var að leika sinn fyrsta leik með liðinu og hins vegar eftir mistök Jörundar í marki Hauka. í liði Stjörnunnar áttu Bernharð- ur Guðmundsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson ágætan leik líkt og Valdimar Kristófersson. Leikmenn liðsins þurftu annars ekki að hafa mikið fyrir sigrinum en þeir stóðu þó allir fyrir sínu. Um Haukaliðið þarf aftur á móti ekki að hafa mörg orð um, leikur liðsins var slíkur; baráttan lítil en pirringurinn því meiri, jafnt innan vallar sem utan. „Við áttum von á hörkuleik þar sem Haukaliðið er baráttulið, dug- legir og vinnusamir en ég gat ekki séð það í kvöld. Við litum á þennan leik sem slíkan að það lið sem tæki öll stigin ætti einhverja von um að blanda sér í baráttuna um efstu sætin í deildinni, og við ætluðum okkur það og sýndum það f kvöld,“ sagði Valdimar Kristófersson, þjálf- ari og leikmaður Stjörnunnar, við DV-Sport að leik loknum. „Við höf- um fengið ágætan liðsstyrk og einnig eru fleirri menn farnir að stimpla sig inn í markaskorun, þannig að nú eru tveir sigurleikir í röð og vonandi höldum við því áfram," sagði Valdimar að lokum. Maður leiksins: Bemharður Guð- mundsson, Stjömunni. þaþ «í í£é9ER ... : STJÓRNUMENN A FLUGI: Stjarnan vann góðan 4-0 heimasigur á Haukum f gær. DV-mynd Hari Enqin vandræði 1- 0 Olgeir Sigurgeirsson 19. 2- 0 Hreiðar Bjarnason, víti 58. í 1. deild karla í knattspyrnu hafði Breiðablik sætaskipti við Aftureldingu í gærkvöld með nokkuð öruggum, 2-0, sigri á Kópavogsvelli. Hvorki Kópavogspiltar né Mos- fellingar voru á spariskónum í gærkvöld - litleysi var einkenn- andi þótt af og til sæjust sæmileg tilþrif úti á vellinum. Gestirnir voru nokkuð frískir í byrjun en fljótlega dofnaði yfn þeim. Heimamenn skoruðu hins veg- ar úr sínu fyrsta eiginlega færi og var markið af nettari gerðinni - lagleg stungusending Arna Krist- ins Gunnarssonar á Olgeir Sigur- geirsson sem kláraði málið af yfir- vegun og nákvæmni. Það sem eftir lifði af fyrri hálf- leik voru heimamenn líklegri til að bæta við en urðu hins vegar fyrir áfalli á 25. mínútu þegar Þor- steinn Sveinsson var borinn af leikvelli. Byrjun síðari hálfleiksins var nánast endurspeglun á byrjun þess fyrri - Mosfellingar frískir og nokkuð líklegir til afreka en Blikar til baka. Þeir veittu svo gestunum náðarhöggið eftir þrettán mín- útna leik í síðari hálfleik. ívar Sigurjónsson veiddi þá óvænt eitt stykki vítaspyrnu og Hreiðar Bjarnason skoraði úr henni af nokkru öryggi. Á 71. mínútu fékk síðan Gunnar Ólafs- son, leikmaður Breiðabliks, að líta rauða spjaldið, en hann hafði einmitt komið inn á í stað Þor- steins. Henning E. Jónasson, vann boltann af Gunnari og var kominn innfyrir þegar Gunnar braut á honum og fékk réttilega brottvfsun. Þennan liðsmun tókst Mosfell- ingum ekki að færa sér í nyt og það virðist ekki henta þeim sér- lega vel að leika einum fleiri - í það minnsta voru Blikarnir ekki í neinum vandræðum með þá og innbyrtu stigin þrjú. Maður leiksins: Ámi Kristinn Gunnarsson, Breiðablild. SMS Innkoma Sverris breytti öllu Lagði upp bæði mörk Njarðvíkur í 2-1 sigri á HK 0-1 Jóhann Ingi Jóhannsson 4. 1- 1 ÓskarÖrn Hauksson 47. 2- 1 Eyþór Guðnason 52. Það varð algjör viðsnúningur á leik Njarðvíkur og HK í gær- kvöld er Sverrir Þór Sverrisson kom inn á fyrir heimamenn í leikhléi. Á fyrstu 7 mínútunum lagði hann upp bæði mörk Njarðvíkur í leiknum. Það má segja að jafnræði hafl verið með liðunum í fyrri hálfleik en það var mark Jóhanns Inga Jó- hannssonar af 30 metra færi sem skildi liðin að. Bæði lið áttu sín færi en það var innkoma Sverris sem sneri taflinu við eftir hlé. Hann var allt í öllu í sóknarleik liðsins og spiluðu heimamenn mun betur fýrir vikið. HK-mönnum tókst ekki að jafna þrátt fyrir harða atlögu, sérstaklega undir lok leiks. Þeir náðu sér þó aldrei á strik eftir mörkin eftir ágætan leik í fyrri hálfleik. „Þetta var nauðsynlegur sigur í baráttunni enda höfum við lítið fengið af stigum undanfarið," sagði Sverrir Þór, kampakátur í leikslok. Maður leiksins; Sverrir Þór Sverr- isson, Njarðvík. eáj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.