Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Blaðsíða 11
—
—
ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 11
Þrætt fyrir svelti
BURMA: Herforingja-
stjórnin í Burma vísaði
gær á bug fregnum um að
baráttukonan og friðar-
verðlaunahafi Nóbels,
Aung San Suu Kyi, væri
komin í hungurverkfali.
Frétt bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins þess efnis
varð til þess að kröfurnar
um að hún yrði látin laus
urðu enn háværari.
Stuðningsmenn Suu Kyi
gátu ekki staðfest fréttina
um hungurverkfallið.
Allt frá því Suu Kyi var
handtekin í maí síðastliðn-
um hefur herforingja-
stjórnin verið undir mikl-
um þrýstingi um að sleppa
henni en hefur skellt
skollaeyrum við til þessa.
Bannað
MÓTMÆLI: Franski bar-
áttubóndinn José Bové
greindi frá því í gær að
dómstóll hefði neitað að
gefa honum leyfi til að fara
til Cancun í Mexíkó. Þar
ætlaði Bové að taka þátt í
mótmæiaaðgerðum gegn
hnattvæðingunni í tilefni
fundar Heimsviðskipta-
stofnunarinnar.
Mikill viðbúnaður í Hong Kong í morgun:
Beðið eftir fellibyl
Skólar, fyrirtæki og fjármála-
markaðurinn í Hong Kong lok-
uðu í morgun vegna fellibyls-
ins Dujuan, öflugasta fellibyls
ársins, sem stefnir hraðbyri til
borgarinnar. Milljónir manna
hröðuðu sér sem mest þær
máttu heim á leið.
Klukkan sex í morgun að íslensk-
um tíma var fellibylurinn 240 kíló-
metra austur af Hong Kong. Vind-
hraðinn fór allt upp í 160 kílómetra
á klukkustund og storminum fylgir
úrhellisrigning.
Fellibylurinn fór yfir suðaustan-
vert Taívan í nótt og olli rafmagns-
leysi hjá um það bil hálfri milljón
heimila. Einn maður drukknaði og
að minnsta kosti eins til viðbótar
ÍOFSAVEÐRI: Fellibylurinn Dujuan gerði
íbúum Taívans lífið leitt f nótt. Hann
stefnir nú á Hong Kong.
var saknað. Þá voru tóif manns í
sjáifheldu í fjallahéruðum eyjar-
innar.
Sérfræðingar sögðu í morgun að
Hong Kong kynni að verða enn
verr úti af völdum fellibylsins þar
sem ekki er reiknað með öðru en
að hann fari beint yfir borgina.
Nokkur flugfélög aflýstu áætlun-
arferðum til Hong Kong og skipa-
eigendur voru beðnir um að sýna
aðgæslu vegna vaxandi sjávar-
gangs.
„Það er sagt að þetta sé virkilega
kröftugur fellibylur svo ég vonast
til að komast heim sem fyrst,"
sagði maður á heimleið í morgun.
Sex eða sjö fellibyljir fara nærri
Hong Kong á ári en sjaldgæft er að
þeir fari beint yfir borgina.
Allar gerðir festinga
fyrlr palla og grlndverk
ð lager
Ármúll 17, WB Reyhjavík
slmi: 533 1334 fax, 5EB 0493
w w w. i s
SamaMðásmáauglýsingm
alla áaga
Smáauglýsing
ánmyndar,pöntiillá
www.mauglysingar.is
Smáauglýsing
án mynáar, pöntuá hjá DV eða í síma
Smáauglýsing
mei myná, pöntuð hjá DV, i sima eða á
www.smaaugiysingar.is
ViÖ birtum -
það ber Irangur
500 kr.
700 kr.
950 kr.