Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 TILVERA 27
Stórsmellur úr smidju Jerrys
Bruckheimers og Disney sem
stefnír hraðbyri I nð verðn vin-
sælnstn mynd sumnrsins i USA
Sýnd kl. 4,6,8 og 10. B. i. 10 ára.
Sýnd kl. 3.50,5.50,8 og 10.10. B.i. 12 ára. Sýnd (Lúxus kl. 5,7.45 og 10.15.
STÓRMYND GRfSLA: Sýnd m. ís|. tali kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 6,7,8,9 og 10 B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5. BASIC: Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ára. ÁSTRfKUR: Sýnd m. fsl. tali kl. 3.50.
PIRATES OF THE CARRIBEAN : Sýnd kl. 5.30 og 8.15 B. i. 10 ára. SINBAD: Sýnd m. ísl. tali kl. 4 og 6 SINBAD: Sýnd m.ensku.tali kl. 8.
KRINGLAN 'CS 588 0800
ÁLFABAKKI tS 587 8900
FJOLMIÐLAVAKTIN
Sigurður Bogi Sævarsson
skrifar m fjölmiöla
Tímaritin
tapa áttum
Þar sem ég sat á læknabið-
stofu um daginn lágu í bing á
borðinu heilu árgangarnir af
gömlum tímaritum. Á forsfðum
voru stjörnur liðinna daga bros-
andi, röktu ævisögur sínar og
greindu frá helstu viðhorfum til
lífs og tilveru.
I tíu ára gömlu Mannlífi talaði
vinur minn, Sigmundur Ernir,
um ástir og trúmál, Úlfar Ey-
steinsson sagði frá persónulegu
gjaldþroti sfnu og í einhveiju
blaði var kosningasigur R-listans
vorið 1994 skilgreindur. Með-
fylgjandi þeirri umfjöllun var við-
tal við Ólaf Ragnar sem sagðist
sjá fyrir sér bandalag sömu flokka
taka við landsstjórninni að ári,
1995. Allt hefur þetta hins vegar
farið á annan veg- og tímaritaút-
gáfa í landinu raunar líka.
Til skamms tíma gegndu tíma-
rit mikilvægu hlutverki í þjóðfé-
lagsumræðu. Vissulega voru
glansviðtölin mörg og sum grát-
brosleg; en inn á milli komu líka
greinar um einstök mál sem urðu
til þess að skekja þjóðfélagið.
Áherslan var á fleira en að velta
sér upp úr persónulegum harm-
leikjum eða leika við athyglis-
sjúka einstaklinga í hópi fína og
fræga fólksins.
Ástæða þessa er meðai annars
sú að auglýsingafé fyrirtækjanna
í landinu fer nú að miklu leyti
orðið í alls konar auglýsingabæk-
linga en ekki alvörufjölmiðla sem
marga skortir bæði afl og aura til
að fjalla um mikilsverð mál - svo
sem þá búra og burgeisa sem á
fáum árum hafa eignast Island -
og stjóma að vild.
Fjör í fanqelsi
Leikstjórinn Peter Cattaneo hefur
unnið sér það helst til frægðar að leik-
ÉA
KVIKMYNDAGA6NRYNI
Sif Gunnarsdóttir
sif@dv.is
stýra hinni stórvinsælu og skemmti-
legu Fuil Monty um atvinnulausu
strákana í Sheffield sem endurheimta
karlmennsku sína með því að setja upp
strippsýningu þar sem allt er berað! í
Lucky Break eru allar aðalpersónur aft-
ur karlmenn en f þetta skiptið í umsjá
hennar hátignar drottningarinnar,
þ.e.a.s. f fangelsi fyrir misalvarleg brot
af ýmsu tagi.
Aðalmaðurinn Jimmy Hands (James
Nesbitt) situr inni fyrir algjörlega mis-
heppnað bankarán ásamt félaga sín-
um, Rudy (Lennie James). Formúlan
hér er sú sama og í Full Monty, strák-
arnir taka sig saman og performera og
læra um leið ýmislegt um lífið og tilver-
una. í stað þess að sýna hver öðmm
sína bem rassa setja þeir upp söngleik
eftir fangelsisstjórann (Plummer) um
hina miklu ensku hetju Nelson flotafor-
ingja. Að sjálfsögðu er það ekki söng-
leikjaástin sem drífúr þá áfram, hvað
þá aðdáun á flotaforingjanum sem lést
í Trafalgarormstunni forðum daga,
heldur sú staðreynd að söngleikurinn
verður settur upp í kapellu fangelsisins
en úr henni er auðveldast að flýja stað-
inn, ef svo ber undir.
Nú er ég viss um að bresk fangelsi
eru síður en svo glaðlegustu staðir ver-
aldar en það er merkilegt hvað þeim
líður bærílega innan fangelsismúr-
anna, Jimmy og félögum. Með einni
undantekningu þó, klefafélaga Jimmys,
Cliff (Timothy Spall), sem er lagður í
einelti af skítlegum fangaverði. Þar fyr-
ir utan virðist þetta hinn huggulegasti
staður svo sem, engar nauðganir, bar-
smíðar eða hnífstungur í sturtum eins
og öll amerísk fangelsi virðast vera fúll
af.
Breskir dagar í Háskólabíó
Lucky Break
irisis
Lucky Break er, liggur mér við að
segja, krúttleg mynd sem segir sæta
sögu af skrautlegum karakterum sem
öðlast aukna sjálfsvirðingu og lífsgleði
við að syngja hallærisleg lög í heima-
gerðum búningum uppi á sviði.
Húmorinn er mest áberandi í Nelson-
James Nesbitt.Timothy Spall í hlutverkum
sínum.
sýningunni, en samskipti fanga og
fangavarða em líka full kímni, þannig
að það er ómögulegt annað en að skella
upp úr hvað eftir annað. Lucky Break er
prýðilega leikin, James Nesbitt sjar-
merandi írskur, Plummer dásamlega
hástemmdur sem fangelsisstjórinn og
Olivia Williams einlæg og sæt sem
Annabel. Það sem gerir Lucky Break
síðri en „fýrirrennara" hennar, Full
Monty, er að örvæntingin sem lúrði
undir niðri húmornum í FM fyrirfinnst
varla í Lucky Break og gerir hana að
fisléttri vellíðunarmynd - en ansi vel
heppnaðri slíkri.
Leikstjóri: Peter Cattaneo. Handrit: Ronan Benn-
ett. Kvikmyndataka: Alvin Kuchler og Adam
Suschitzky.Tónlíst: Anne Dudley. Aðalleikarar:
James Nesbitt, Olivia Williams,Timothy Spall, Bill
Nighy, Lennie James og Christopher Plummer.
Þegar glóðin varð að báli
£k
KVIKMYNDAGAGNRYNI
Hilmar Karlsson
hkarl@dv.is
STJORNUGJOF DV
★ ★★★
Bloody Sunday
Sweet Sixteen ★★★tL
Nói alblnói ★★★tL
28 Days Later ★★★
Pirates of the Caribbean ★★★
Terminator 3 ★★★
Croupier ★★★
HULK ★★★
Sindbað saefari ★★i
Basic ★★
Lucy Break ★★i
Bruce Almighty ★★
Hollywood Homicide ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★★
Legally Blonde 2 ★i
Lara Croft.... ★
Það eru tvær hliðar á öllum deilu-
málum. Þetta á við um hina örlagaríku
atburði í Derry (Londonderry) 30. jan-
úar árið 1972 þegar Bretar skutu þrett-
án mótmælendur til dauða og særðu
fjórtán. Bretar segja að þeir hafi ekki
hafið skothríð fyrr en skotið var á þá og
mótmælendur segja að Bretar hafi ver-
ið einir um nota skotvopn. Aldrei hefúr
komist á hreint hvor sagan er sönn.
Breski leikstjórinn Paul Greengrass
hefur ákveðið að taka málstað Norður-
Ira trúanlegan og hefur gert magnaða
kvikmynd um þessa örlagaríku atburði
sem urðu til þess að skæruliðahernað-
ur IRA jókst til muna og varð mun
harðskeyttari en áður hafði verið. Það
er aðeins í einu atriði myndarinnar,
sem Greengrass leyfir okkur að efast.
Það er þegar aðalpersóna myndarinn-
ar, þingmaðurinn Ivan Cooper (James
Nesbitt), hittir fyrir tvo félaga í IRA sem
sitja í bíl þegar mótmælagangan er að
hefjast. Hann spyr þá hvort þeir séu
með vopn en þeir svara neitandi.
Cooper trúir þeim mátulega en lætur
þar við sitja. Greengrass beinir síðan
myndavélinni að bresku hermönnun-
um sem eru vel vopnaðir og ljóst er að
þeir eru stressaðir og flestir óvanir að
fást við æstan lýðinn. Herforinginn
(Tim Pigott-Smith) segir aðeins: „Gerið
það sem þurfa þykir.“ Fékk hann víst
síðar heiðursmerki fyrir vaska fram-
göngu.
Ivan Cooper er foringinn og sá sem
efnir til mótmælagöngunnar. Hann
hvetur sitt fólk til að vera til friðs og
vera alls ekki með neitt ofbeldi.
Greengrass nær einstaklega vel að lýsa
áhyggjum hans og örvæntingu í lokin.
Samúð okkar er algjör og þegar blóði
drifinn vígvöllurinn er yfirgefinn er
enginn efi í hugum okkar hver söku-
dólgurinn er.
Breskir bíódagar í Háskólabíói
Bloody Sunday
Þau miklu áhrif sem Bloody Sunday
hefur má að miklum hluta þakka hvemig
Greengrass kvikmyndar. Myndin er tekin
með handheldinni myndavél og síðan
klippt eins og um heimildamynd sé að
MÓTMÆU: James Nesbitt í hlutverki verka-
lýðsleiðtogans Ibans Coopers sem hvetur
mótmælendur til að beita ekki ofbeldi.
ræða. Klippingar á milli atriða eru vel
ti'masettar og Greengrass leyfir aldrei
meiri tilfinningasemi en nauðsynlegt er.
Það gerir það að verkum að reiðin gagn-
vart breska hemum er til jafns við þá
samúð sem við finnum til með írsku al-
þýðunni. Skapar þetta gott jafitvægi í
myndina sem fer hiklaust í flokk bestu
leikinna heimildamynda sem gerðar
hafa verið, þó svo að áróðurinn leyni sér
ekki.
Leikstjóri: Paul Greengrass.Handrit: Paul
Greengrass, byggt á Eyewitness Bloody Sunday
eftir Don Mullan. Kvikmyndataka: Ivan Strasbyrg.
Tónlist: Dominic Muldoon. ASalleikaran James
NesbittTim Pigott-Smith, Nicholas Farrell og
Kathy Kiera Clarke.
Lífið.eftir
vinnu
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON: Kemur fram á
minningartónleikum á Gauknum í kvöld.
GAUKUR Á STÖNG: (kvöld verða haldnir
tónleikar til minningar um Bjarka Friðriks-
son sem lést fyrir tíu árum, tæplega tví-
tugur, af völdum heilahimnubólgu.Tón-
leikarnir verða haldnir á Gauki á Stöng og
mun allur ágóði renna óskertur til rann-
sókna á heilahimnubólgu sem landlæknir
mun sjá um að úthluta. Fram koma á
tónleikunum: Maus, Botnleðja, Jan
Mayen,Tube, Reggae on lce.The Flavors,
In Bloom, Ðí Kommittments, Eyjólfur
Kristjánsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
og Davíð Þór Jónsson. Kynnir er Rúnar
Freyr Gíslason leikari. Húsið verður opnað
kl. 20.30 og tónleikarnir hefjast kl.21.30.
SALURINN: Söngvarinn Bjarni Þór Sig-
urðsson heldur tónleika í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld klukkan 20. Bjarni flytur vin-
sæl dægurlög sem öll fjalla um ástina, t.d.
lög Vilhjálms Vilhjálmssonar, Björgvins
Halldórssonar, Megasar, Stings, Spilverks-
ins og Stuðmanna. Um undirleik sjá Árni
Steingrímsson gítarleikari, Einar Sævars-
son bassaleikari, Gunnar Reynir Þor-
steinsson bassaleikari, G. Hjalti Jónsson,
sem sér um áslátt, og Jósep Gíslason pí-
anóleikari.
FYRIRLESTUR: Fyrirlestur verður haldinn í
hátíðarsal Háskóla (slands í dag kl.15.30.
Fyrirlesari er dr. Marita G. Titler og mun
fyrirlestur hennar fjalla um gagnreynda
heilbrigðisþjónustu (evidence-based
practice). Dr.Titler er vel þekkt í Banda-
ríkjunum fyrir rannsóknir sínar og skrif
um gagnreynda heilbrigðisþjónustu og
hefur víða starfað sem ráðgjafi á því sviði.
FUNDUR: Stjórn Ægisklúbbsins boðar til
félagsfundar í kvöld kl. 20.00 ÍTjald-
vagnalandi. Efni fundarins verður meðal
annars hugmyndir um vetrarstarf (spila-
kvöld, þorrablót, o.fl.), nýtt fólk í stjórn og
fleira. Að loknum fundinum hefst útsala í
Tjaldvagnalandi og útivistarverslun
Seglagerðarinnar, EveresL
TÓNLEIKAR: Hér á landi er staddur karla-
kórinn Sangerrunde Schwoich frá Týról í
Austurríki. Þetta er 24 manna kór, stofn-
aður 1892, sem einkum syngur austurrísk
og týrólsk þjóðlög. Kórinn hefur hlotið
fjölmörg verðlaun í heimalandi sínu og
vakið athygli erlendis fyrir vandaðan
flutning þjóðlagatónlistar, m.a. fýrir jóðl-
ið. Kórinn mun halda tónleika á Höfn í
Hornafirði í kvöld kl. 19.30 og á fimmtu-
daginn, 4. september, i Norræna húsinu í
Reykjavík, kl. 19.30.