Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Page 28
28 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003
DVSport
Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Pétur aftur til Hammarby
KNATTSPYRNA: Landsliðs-
maðurinn Pétur Marteinsson
skrifaði í gær undir samning
við sænska félagið Hammarby
en hann lék með félaginu við
frábæran orðstír á árunum
1996-1998.
Pétur skrifaði undir starfsloka-
samning við enska fyrstudeild-
arliðið Stoke um helgina en
hann hefur iengi viljað komast
burt frá félaginu þar sem hon-
um hefur ekki fundist hann fá
sanngjarna meðferð.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnar-
formaður Stoke, sagði í samtali
við DV Sport í gær að Pétur
hefði sjálfur haft frumkvæði að
viðræðum um starfslokasamn-
ing og að þær hefðu tekið
stuttan tíma.
„Við hefðum vissulega viljað
halda Pétri út tímabilið en
hann vildi komast burt. Ég
óska honum góðs gengis í Sví-
þjóð," sagði Gunnar Þór.
Pétur sagði í samtali við
opinbert vefsvæði Hammarby í
gær að hann hefði sterkar
tilfinningartil félagsins og að
hann hlakkaði mikið til að spila
með félaginu á nýjan leik.
AFTURTIL SVÍÞJÓÐAR: Pétur
Marteinsson erfarinn frá Stoke.
Fjárhagsleg endurskipulagning tókst
sagði hamingjusamur þjálfari íslandsmeistaranna, Willum ÞórÞórsson
„Ég leyfði mér ekki að hugsa til
þess fyrir leikinn að við gætum
orðið meistarar í kvöld," sagði
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR,
aftir leikinn í gær en það var
augljóslega þungu fargi létt af
honum enda hefur mikil pressa
verið á honum og hans liði í
sumar.
„Það hefur verið mikill stígandi
hjá okkur og má segja að fjárhags-
leg endurskipulagning hafl tekist,"
sagði Willum og glotti en undirrit-
aður skrifaði eftir fyrri leik KR og
Grindavíkur að KR-ingar hefðu
orðið fyrir knattspyrnulegu gjald-
þroti í leiknum og má með sanni
KR-LIÐIÐ í GÓÐAN HÓP
KR-ingar urðu (gær aðeins fimmta
liðið í tíu liða deild sem nær að
tryggja sér [slandmeistaratitilinn fyrir
slðustu tvær umferðirnar og
jafnframt það fyrsta I heil átta ár sem
nær því afreki. Þrjú síðustu tímabil
hafði (slandsmeistaratitillinn ekki
unnist fyrr en í sfðustu umferð. KR-
ingar hafa sjö stiga forustu á [A og
Fylki þegar aðeins sex stig eru eftir (
pottinum.
Meistarar fyrir tvær síðustu
umferðirnar:
(A1995 15. umferð
Fram 1988 15. umferð
KR2003 16. umferð
(A 1993 16. umferð
IA 1984 16, umferð
Hvenaer hafa titlarnir unnist:
15. umferö 2
16. umferð 3
17. umferð
18. umferð 15 " ooj.sport@dv.is
segja að Willum hafi tekið vel tU í
„rekstrinum" eftir þann leik.
„Það er margt sem hefur gerst
Það hefur verið mikill
stígandi og mikið ör-
yggi í liðinu.
síðan í þeim leik. Það er alltaf hægt
að tapa leikjum og mikilvægast þá
er að fara ekki úr jafnvægi. Við er-
um með mjög reynslumikinn hóp,
leikmenn sem kunna að vinna, í
bland við unga menn og það þarf
ansi mUdð tU þess að koma þessum
hóp úr jafnvægi. Mér finnst liðið
hafa spilað feikivel í síðustu leikj-
um. Það hefur verið mildll stígandi
og mikið öryggi í liðinu. Við erum
náttúrlega með frábæra leikmenn
og þeir leggja grunninn að þessum
sigri.
Það er ýmislegt hægt með góða
leikmenn en það verður að segjast
að leikmenn hafa ekki tapað áttum
og jafnvæginu en það er mjög auð-
velt í eins stuttu móti og íslands-
mótið er. Það kemur í ljós hvernig
karakter er í hverju liði þegar á móti
blæs og það verður bara að segjast
að skapgerðin í liðinu er einstök,"
sagði Willum sem segir að allir sem
að KR koma hafi staðið sig vel þeg-
ar á móti blés í upphafi móts.
„Þetta starf er nú einu sinni þess
eðlis að það er aldrei vinnufriður.
Þess vegna er mjög mikivægt fyrir
„Ég eryfir mig stoltur
og nánast orðlaus yfir
þessu öllu saman."
þá sem eru næst liðinu að halda
áttum þegar reynir á. Þá á ég ekki
bara við þjálfarann heldur líka leU<-
menn, stjómarmenn og stuðnings-
menn félagsins. Ég tel að það hafi
tekist. Ég er yfir mig stoltur og nán-
ast orðlaus yfir þessu öllu saman,"
sagði WUlum að lokum. henry@dvJs
EINLÆG GLEÐi: KR-ingar fögnuðu vel og lengi í Grindavík (gær og fögnuður þeirra var einlægur.
DV-mynd E.ÓI.
Þarf að berjast til
þess að ná árangri
sagði Kristján Finnbogason, fyrírliði KR
„Mig óraði ekki fyrir þessu eins
og staðan var í júní," sagði Krist-
ján Finnbogason, markvörður og
fyrirliði KR, ánægður í leikslok.
„Það var búið að ganga mjög illa
og menn orðnir svolítið áhyggju-
fullir en við náðum að þjappa
okkur saman og klára dæmið.
Fyrri leikurinn gegn Grindavík var
það slappasta sem ég hef upplifað
frá upphafi. Eftir þann leUc fóru
menn að vinna fyrir hvor annan
og þá small þetta saman. Það þarf
að berjast til þess að ná árangri og
það gleymdist held ég bara í upp-
hafi."
Bjóst ekki við þessu
„Ég átti alls ekki von á að verða
íslandsmeistari í kvöld. Það var
svo margt ólíklegt sem þurfti að
ganga upp þannig að ég bjóst ekki
við þessu," sagði Veigar Páll
Gunnarsson sem varð að fylgjast
með félögum sínum úr stúkunni í
gær þar sem hann var í leikbanni.
„Það hefur mikið breyst undan-
farið og við erum að spila frábær-
an fótbolta þessa dagana. Við
máttum þola mikið mótlæti fram-
an af móti vegna meiðsla en þeg-
ar allir voru klárir þá smullu hlut-
irnir saman. Við ætlum okkur að
taka bikarinn lfka og nú er bara að
einbeita sér að honum."
Hafði þetta á tilfinningunni
„Ég keyrði með Jökli hingað til
Grindavíkur og ég hafði það á til-
finningunni að ef við myndum
vinna þá yrðum við meistarar.
Skaginn hefur tak á Fylki og það
gekk eftir sem ég hélt" sagði Krist-
inn Hafliðason. „Fyrri Grindavík-
urleikurinn var hryllilega vondur
en við tókum okkur saman í and-
litinu því það er síðasti tapleikur-
inn okkar. Það hefur verið mikill
stígandi og Fylkisleikurinn var
frábær og þessi kannski örlítið
síðri en ekki mikið."
Tilfinningin mjög góð
„Tilfinningin er mjög góð. Ég
átti alveg von á því að þetta myndi
enda svona því ég bjóst alveg við
því að LA myndi vinna og það var
öruggt mál að við myndum
vinna," sagði Einar Þór Daníels-
son glaður í lok leiks. henry@dvJs
BRÆÐRABROS: Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugsson fagna hér síðara marki
DV-mynd E.ÓI.
þess fyrrnefnda í gærkvöld.
KR-ingartryg
KR-ingar urðu íslandsmeistarar
í fjórða sinn á síðustu fimm ár-
um, og annað árið í röð, í gær-
kvöld þegar þeir lögðu Grinda-
vík suður með sjó, 3-1. Á sama
tíma lágu Fylkismenn fyrir
Skagamönnum og því Ijóst að
ekkert lið getur náð KR-ingum í
þeim tveim leikjum sem eftir
eru.
KR-ingar áttu hræðilegan leik
þegar þeir tóku á móti Grindvíking-
um í Frostaskjóli þann 25. júní síð-
astliðinn og þá var fátt í leik þeirra
sem benti til þess að þeir yrðu ís-
landsmeistarar í 16. umferð. En
eitthvað gerðist í herbúðum liðsins
eftir þann leik því síðan hafa þeir
leikið 9 leiki í deildinni og hafa þeir
sigrað í 7 af þeim leikjum og 2 leik-
ir hafa endað með jafntefli. Ótrú-
legur viðsnúningur hjá Vesturbæ-
ingum sem sýnir þann mikla
karakter sem er í liðinu og það var
því kannski við hæfi að þeir tryggðu
sér titilinn í Grindavík.
KR-ingar fóru rólega inn í leikinn
í gær og sá kraftur sem einkenndi
leik þeirra gegn Fylkismönnum var
ekki til staðar. Læddist að mörgum