Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 3 1
Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari varar við ofmikilli bjartsýni
Landsliðsþjálfarinn Ásgeir Sig-
urvinsson sat fyrir svörum á
blaðamannafundi í höfuð-
stöðvum KSÍ í gær vegna lands-
leiksins mikilvæga gegn Þjóð-
verjum á laugardaginn. fs-
lenska liðið er í efsta sæti
fimmta riðils og getur með sigri
nánast tryggt sér annað sætið í
riðlinum og þár með þátttöku-
rétt í umspili um sæti á EM
2004. Blaðamaður DV Sports
ræddi við Ásgeir um væntingar
fyrir leikinn, stöðuna á liðinu og
pressuna á Þjóðverjum.
„Það ríkir mikil spenna fyrir
þennan leik en ég hef svarað mörg-
um spurningum um leikinn frá
Þjóðverjum og hef alltaf svarað á
sama hátt. Við erum litla liðið í
þessum leik hvað sem menn segja
og okkar mál er að dempa vænting-
arnar fyrir leikinn.
„Við fundum ekki takt-
inn í miðjuspilinu í síð-
asta leik og það háði
okkur verulega. Við
þurfum að ráða bót á
því."
Það er auðvitað eðlilegt að það sé
krafa um árangur þegar liðið er
komið svona langt en það er mitt
mat að öll þau stig sem við fáum í
síðustu tveimur leikjunum séu sig-
ur fyrir okkur. Við erum lítil þjóð
með litla sigurhefð og erum að fara
að spila gegn stórþjóð sem hefur
löngum sýnt sitt best þegar mest á
reynir,“ sagði Ásgeir.
Aðspurður sagði Ásgeir að það
væri vissulega áhyggjuefni fyrir
landsliðið hversu margir leikmenn
liðins væru ekki fastamenn í sínum
liðum svona skömmu fyrir mikil-
vægan leik og því ekki í topp-
leikæfmgu.
Viðvarandi vandamál
„Þetta hefur verið viðvarandi
vandamál hjá landsliðinu í nokkur
ár og hlutur sem við erum orðnir
vanir. Það voru sjö leikmenn af
tuttugu sem eru í hópnum sem
voru ekki að spila um helgina og
það segir sig sjálft að það er ekki
gott. Ég vona hins vegar að staðan
batni á næstunni. Jóhannes Karl er
kominn til Wolves, Pétur Marteins-
son er farinn til Hammarby og von-
andi nær Brynjar Björn að festa sig
í sessi hjá Nottingham Forest. Það
er gleðilegt að Lárus Orri skyldi
spila heilan leik um helgina og
varðandi stöðuna hjá Eiði Smára
þá hef ég trú á því að hann eigi eft-
ir að spila mikið í vetur. Það verður
mikið álag á liði Chelsea í vetur og
nóg af leikjum og ég er ekki í vafa
um að Ranieri eigi eftir að skipta
mikið um framherja.
Við munum skoða ástandið á lið-
inu þegar hópurinn kemur saman á
miðvikudaginn [innsk. blm. á
morgun] og vinna út frá því," sagði
Ásgeir.
Miðjan ekki í takti
Ásgeir viðurkenndi fúslega að
miðjuspilið hefði verið vandamál í
leiknum gegn Færeyjum.
„Við fundum ekki taktinn í
miðjuspilinu í síðasta leik og það
háði okkur verulega. Við þurfum að
ráða bót á því en hvort við gemm
„Það ætlast allir í Þýskalandi til
þess að þeir vinni þennan leik auð-
veldlega. Ef þeir gera það ekki fá
þeir óblíðar mótttökur í þýskum
fjölmiðlum. Ég held hins vegar að
þeir geri sér grein fyrir því að þó að
þessi leikur fari illa hjá þeim þá eiga
þeir alltaf tvo leiki eftir þannig að
pressan er kannski ekki eins mikil
VÆNTINGARNAR DEMPAÐAR: Asgeir
Sigurvinsson landsliðsþjálfari leggur
áherslu á að ísland sé litla liðið í
leiknum gegn Þjóðverjum á
laugardaginn.
DVmyndÞÖK
einhverjar breytingar verður að
koma í ljós. Það verður eitthvað að
breytast, annars verðum við í stór-
um vandamálum gegn Þjóðverj-
Pressan á Þjóðverjum
Ásgeir sagði að það væri mikil
pressa á Þjóðverjum fyrir leikinn.
og hún gæti verið. Þýska liðið er
með marga frábæra leikmenn og ég
nefni sérstaklega Michael Ballack
og Sebastian Deisler. Miðjan er
þeirra sterkasti hluti þannig að það
er eins gott fyrir okkur að vera
komnir með okkar miðjuspil í lag
fyrir leikinn," sagði Ásgeir að lok-
um. oskar@dv.is
Veiðihornið
Krossá á Skarðsströnd og Búðardalsá:
Mjög góður gangur í veiðiskapnum
„Það hafa veiðst yfir 80 laxar
og það eru komnir um 200 lax-
ar í gegnum teljarann," sagði
Trausti Bjarnason, veiðivörður
við Krossá á Skarðsströnd, er
við spurðum um stöðuna á
svæðinu.
Veiðimenn gerðu góða ferð í
Krossá fyrir fáum dögum,
skömmu eftir að DV sagði að rignt
hefði á svæðinu og laxinn ruddist
inn. Er komið var að lokum seinni
dags voru veiðimenn hæstánægð-
ir, komnir með 12 laxa og ætíuðu
að hætta. Komu þeir i hús klukkan
hálftólf. Einum varð eitthvað litið
á ána og annar spurði hann hvort
hann ætíaði að renna aðeins áður
en þeir færu. „Jú, ætli það ekki,“
var svarið og bætti veiðimaðurinn
því við að hann vildi ná í einn lít-
inn til þess að hafa í matinn um
kvöldið því að sá sem þeir höfðu
náð um morguninn var í stærri
kantinum. „Þú verður þá að koma
með tvo því við hættum ekki með
13 laxa,“ sagði vinurinn og sá
áhugasami skundaði af stað, lík-
lega til þess að sleppa ódýrt við til-
tektina. Hann reyndi við lax í
næsta hyl en enginn áhugi. Ekki
var tímanum eytt á þeim stað,
heldur skundað að næsta stað fyr-
ir ofan. Þar var rennt og á innan
„Laxinn hafði maga-
gleypt maðkinn og tók
ekki langan tíma að
landa."
við mínútu var lax á. Laxinn hafði
magagleypt maðkinn og tók ekki
langan tíma að landa. Aftur var
rennt og annar tók með það sama
og var landað mjög fljótt. Nú þótti
veiðmanni vera nóg komið og
ákvað að reyna ekki í þriðja sinn
heldur skundaði upp í hús og var
mættur þar kófsveittur kl. 12.02
eða 32 mín. frá því hann lagði af
stað og var ákveðið að hér skyldi
látið staðar numið. Þessir tveir síð-
ustu voru líka minnstu Iaxarnir
með lús fram á haus, nýgengnir og
góðir í veislu um kvöldið.
Skemmtilegt er einnig að líklega
hefði verið hægt að veiða meira og
fylla kvótann, en þarna fannst
mönnum nóg komið og hættu því
mjög sáttir. Svona veiði á líka að
vera nóg fyrir flesta og engin
ástæða til þess að taka fleiri tugi
laxa bara af því að það er hægt.
Mjög góð veiði hefur einnig ver-
ið í Búðardalsá og þar eru komnir
á milli 170 og 180 laxar á land.
Veiðimaður var þar fyrir skömmu
og veiddi á stuttum tíma í sama
strengnum 8 laxa á maðkinn.
G. Bender
ÁST OG NÁTTÚRA: Feðgar á veiðum f Krossá á Skarðsströnd. Mjög góð veiði hefur ver-
ið í Krossá eftir að vatn jókst í henni og hafa um 200 laxar gengið í gegnum teljarann.
DV-mynd G.Bender
LOOP veiðivörumar eru
hannaðar og þróaðar af
veiðimönnumfyrir veiðimenn.
Þess vegna velja sifellt fleiri
sér útbúnaðfrá LOOP.
Sportlegt útlit, þcegindi og
vasarfyrir hinarýmsu þatfir
veiðimannsins eru einkenni
nýju linunnarfrá LOOP.
I rnv!ST°gVFTfíi
I sumar veróur opió sem hérsegir: mán-jim 9-19, Jos 9-20, lau 10-17, sun 11-16
Siöumúla 11 • 108 Reykjavik • S: 5 88 - 6500