Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 OTGÁFUFÉLA& Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson AÐALRfTSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlið 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Rltstjóm: ritstjorn@dvJs - Auglýslngar auglys- ingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Akureyrl: Hafnarstræti 94, simi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Arvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Á vélsleða yfir Grænlandsjökul - frétt bls. 4 Hugsanlegar dauða- gildrur bílkaupenda - frétt bls. 8-9 Breyttar kvenhetjur evrópskra glæpasagna DV-menning bls. 12 Samfylkingin vill lækka virðisaukaskatt á mat - Skoðun bls.14-15 Meiðsli lykilmanna fyrir Þjóðverjaleikinn - DV Sport bls. 28-29 Sá gamli skokkaði í 14 klukkutíma 92 ára gamall hollenskur skokk- ari, frá bænum Woudenberg, hvarf sporlaust í heilar fjórtán klukku- stundir um helgina eftir að hafa farið í venjubundið kvöldskokk. Maðurinn hafði lagt af stað um klukkan nítján á sunnudaginn og sagt fjölskyldunni að hann ætlaði að skokka í klukkustund. Þegar hann hafði ekki skilað sér til baka um miðnætti var lögreglan látin vita og var þá þegar hafin leit með hjálp leitarhunda og úr þyrl- um yfir nálægu skógarsvæði, en án árangurs. Það var ekki fyrr en morguninn eftir að sá gamli fannst í um 30 kflómetra fjarlægð frá heimili sínu og var hann þá enn á skokkinu og virtist við bestu heilsu. Er það enn hulin ráðgáta hvar hann eyddi nóttinni. Vetnisvagnarnir komnir SAMGÖNGUR: Tveim af þremur vetnisstrætisvögn- um sem teknir verða í notkun á leiðakerfi Strætó bs. komu til landsins í gær. Þriðji vagninn er væntan- legur til landsins á næstu dögum en í öryggisskyni var ákveðið að flytja ekki alla vagnana til landsins með sama skipi. Nýju vagnarnir eru búnir efnara- fölum í stað hefðbundinn- ar dísilvélar. Vagnarnir eru framleiddir í Daim- lerChrysler verksmiðjunum og er áætlað að 33 vetnis- vagnar verði prófaðir næstu misseri en Reykjavík er meðal fyrstu borga sem fá slíka vagna afhenta. Heimastjórnin 100 ára HEIMASTJÓRN: Forsætisráð- herra hefur ráðið Júlíus Hafstein tli að stjórna þeim viðburðum sem efnt verður til vegna 100 ára afmælis heimastjórnarinnar. Þann 1. febrúar 2004 verða liðin 100 ár frá því fyrsti ráðherrann, Hannes Hafstein, tók við völd- um, framkvæmdavaldið kom til landsins og Stjórnarráð (slands var stofnað. Almennt er talið að með heimastjórn hafi Islend- ingar náð fram einum þýðing- armesta áfranga í þjóðfrelsis- baráttu þjóðarinnar. Með Júlíusi mun starfa verkefnastjórn, skip- uð llluga Gunnarssyni, aðstoð- armanni forsætisráðherra, Birni Inga Hrafnssyni, aðstoðarmanni utanríkisráðherra, og Halldóri Árnasyni, skrifstofustjóra for- sætisráðherra. Óttast að fasteignasal- inn hafi eytt milljónum Hjón í Mosfellsbæ lögðu í gær fram kæru til lögreglu á hendur fasteignasala þar sem þess er krafist að opinber rannsókn fari fram á meðferð hans á hátt í 3 milljónum króna sem þau greiddu honum og höfðu staðið í þeirri trú að hann hefði sjálfur notað til að Ijúka greiðslu á við- bótarláni til Húsnæðisnefndar fyrir þau til íbúðalánasjóðs. Þetta er aðeins eitt af fleiri mál- um sem lögreglunni hafa borist til margs konar meðferðar vegna sama manns, 38 ára Reykvíkings, en DV greindi frá því nýlega að hann hefði verið margkærður fyrir meint mis- ferli með fé viðskiptavina sinna. Hann er fyrrverandi starfsmaður hjá Óðali fasteignasölu. Samkvæmt upplýsingum DV nýtur rannsókn á háttsemi þessa manns forgangs hjá lögreglunni í Reykjavík. Það varsvo nú, tveimur og hálfu ári síðar - / september 2003, sem hjónunum brá í brún er þeim barst óvænt greiðsluáskorun frá íbúðalánasjóði. Kærendur eru maður, sem er ör- yrki, og erlend eiginkona hans. Þau gerðu kaupsamning að íbúð í tví- býlishúsi í Mosfellsbæ í febrúar 2001 fyrir milligöngu kærða, sem er löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Þegar kom að greiðslutil- högun útborgunar áttu hjónin að greiða upp viðbótarlán Húsnæðis- nefndar eigi síðar en við afsal - um 2,7 milljónir króna. Þá upphæð millifærðu hjónin í mars 2001 - inn á reikning fast- eignasalans, enda var um það samið að hann sæi um að greiða Ibúðalánasjóði lán Húsnæðis- nefndar eins og lög gerðu ráð fyrir. Óvænt vanskilatilkynning Það var svo nú, tveimur og hálfu ári síðar - í september 2003, sem hjónunum brá í brún er þeim barst óvænt greiðsluáskorun frá íbúða- lánasjóði, rukkun vegna vanskila á framangreindu viðbótarláni sem fasteignasalinn átti að vera löngu búinn að greiða upp. Þegar farið var að kanna málið kom í ljós að hann hafði tekið við peningunum, hátt í þremur milljónum króna, en einungis haldið áfram að greiða af láninu - frá 10 til 36 þúsund krónur í hvert skipti. í ljósi þessa er þess krafist af hálfu lögreglu að hún rannsaki meðferð og ráðstöfun fasteignasal- ans á 2,7 milljónum króna sem þau höfðu treyst manninum til að greiða árið 2001. Manni þessum hefur verið vfsað úr Félagi fasteignasala. Hann er ekki lengur með starfsréttindi sem löggiltur fasteignasali samkvæmt upplýsingum DV. ottar@dv.is Eldsvoðií gömlu timburhúsií Keflavík: Bjargaði sér með því að stökkva út um þakglugga Tveir menn björguðust naum- lega úr brennandi húsi í Kefla- vík í nótt. „Nágrannarnir vöktu mig upp og sögðu mér að koma mér út því það væri kviknað í. Ég flýtti mér í fötin og ætlaði svo að drífa mig út. Það var eldur frammi á gangi þannig að ég sá að eina leiðin var út um þak- gluggann. Ég stökk út og lenti á þaki tengihúss og þaðan komst ég svo niður," sagði Lester Garden, skoskur verkamaður, sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu í nótt að þurfa að flýja brennandi heimili sitt. Kona og tvo börn, bú- sett að Íshússtíg 3, þurftu að yfirgefa heim- ili sitt og sömu sögu er að segja um heimilis- fólkið að Túngötu 22. Garden býr að fshússtíg 3a í Keflavík. Tilkynnt var um eld f hús- inu um miðnætti í nótt og komu Brunavarnir Suðumesja þegar á staðinn. Að sögn slökkviliðsstjóra var mikill reykur í húsinu og var þegar tekin ákvörðun um að senda sex reykkafara inn til að leita að ’fólki. Þá hafði Lester og annar mað- ur sem býr í húsinu komist út af eigin rammleik og heilir á húfi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en rýma þurfti tvö nærliggjandi hús. Kona og tvo börn, búsett að ís- hússtíg 3, þurftu að yfirgefa heimili sitt og sömu sögu er að segja um heimilisfólkið að Túngötu 22. Að sögn slökkviliðsstjóra var veð- ur hagstætt f nótt en á þessum slóð- um standa timburhúsin fremur þétt og því beindust störf slökkvi- liðsmanna meðal annars að því að tryggja að eldurinn bærist ekki í næstu hús. Það tókst eins og til stóð. Slökkviliðsmenn luku störfum um tvöleytið og tók rannsókn lög- reglu þá við. Upptök eldsins voru ekki kunn í morgun en rannsókn málsins heldur áfram í dag. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.