Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 SKOÐUN 15 Frjálslyndir vilja eitt kjördæmi og jöfnun atkvæðisréttar Frjálslyndi flokkurinn vill að skipuð verði nefnd allra þing- flokka til að endurskoða kjör- dæmaskipan. Nefndin skal hafa að markmiði að jafna atkvæðis- rétt landsmanna þar sem landið verði eitt kjördæmi. Frjálslyndi flokkurinn mun taka þátt í að legga fram fjölmörg mál á Alþingi í haust. Þar á meðal eru frumvörp um niðurfellingu lög- gæslukostnaðar vegna útihátíða, um lækkun virðisaukaskatts af hljóðbókum til samræmis við vsk. af bókum. Þá gera Frjálslyndir ráð fyrir að leggja fram frumvarp um viðurkenningu táknmáls sem móð- urmáls heyrnarlausra. Þess má geta að varaþingmaður flokksins og einn flutningsmanna er Sigurlín Margrét Sigurðardóttir sem sjálf er heyrnarlaus. Meðal annarra mála flokksins má nefna þingsályktunartillögu um að tekinn verði upp sérstakur skatt- afsláttur handa börnum. Afsláttur- inn fylgi hveiju barni til 16 ára ald- urs. Gert er ráð fyrir að fjármálaráð- herra leggi fram frumvarp um mál- ið við upphaf haustþings 2004 með það að markmiði að ný lög taki gildi í upphafi árs 2005. Margvísleg önnur mála eru á lista Frjálslynda flokksins auk endur- fluttra mála frá fyrra þingi í sam- starfi við aðra flokka. Frjálslyndir vilja að tekinn verði upp sérstakur skattafsláttur handa börnum. Þar má nefna frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum sem flutt verður af Guðjóni A. Kristjáns- syni, Drífu Hjartardóttur, Þuríði Backman og Guðrúnu Ögmunds- dóttur. Frumvarpið gengur út á að gera löglegt til framleiðslu og einkanota á heimilum manna, léttvín (matar- vín) þar sem kunnátta í gerð slíkra vína er þegar fyrir hendi á mörgum heimilum í landinu. Með samþykkt frumvarpsins yrði lögum breytt á þann veg að fjölmargir þegnar landsins yrðu ekki lögbrjótar við slíka iðju eins og nú er. hkr@dv.is Vinstri-grænir vilja banna umskurð og kaup á kynlífsþjónustu Fjölmörg mál eru á lista VG í vetur, svo sem frumvarp um bann við umskurð á kynfærum kvenna og frumvarp um bann við kaupum á kynlífsþjónustu. Þingflokkar hafa verið að taka saman helstu stefnumál sín í vetur og þannig kynnti þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs stefnumál sín síðdegis í gær. Þar kom fram að í upphafi þings mun þingflokkur Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs leggja fram fjölmörg þingmál, frumvörp, tillögur til þingsályktun- ar og fyrirspumir. Þingmál VG munu sem fyrr taka mið af grunn- þáttum í stefnu flokksins, s.s. vel- ferðarmálum, kvenfrelsi, umhverf- ismálum og náttúmvernd, byggða- málum og sjálfstæðri utanríkis- stefnu. Gjaldfrjáls leikskóli Eftirtalin þingmál VG em meðal þeirra sem lögð verða fram á næstu dögum: Tillaga til þingsályktunar um samstarfsverkefni ríkis og sveitarfé- laga um gjaldfrjálsan leikskóla. Skipuð verði nefnd sem fái það verkefni að undirbúa og annast viðræður við sveitarfélögin um sameiginlegt átak þeirra og ríkisins um að gera leikskóladvöl gjald- frjálsa í áföngum. Þá verður lagt fram þingmál sem felur f sér að heimildir viðskipta- banka og sparisjóða til að fjárfesta og eiga í atvinnufyrirtækjum verði takmarkaðar og að skilið verði á milli viðskiptabanka og fjárfesting- arbanka með skýrari hætti en nú er. Tillaga til þingsályktun- ar um samstarfsverk- efni ríkis og sveitarfé- laga um gjaldfrjálsan leikskóla. Þá gerir VG ráð fýrir að leggja fram tillögur til þingsályktunar um vexti og verðtryggingu lána, um úttekt á GATS-samningnum og breytinga á honum, um að tannvemd verði hluti ungbamavemdar og skólaheilsu- gæslu og nái til allra 3, 6 og 9 ára barna, svo og 12 og 15 ára unglinga án greiðslu. Fjölmörg önnur mál em boðuð af þingmönnum VG. Einnig hefur verið boðað að lögð verði fram sameiginleg beiðni þing- flokka VG og Frjálslynda flokksins um skýrslu um undirbúning og framkvæmd sfðustu alþingiskosn- inga. Sem kunnugt er vantaði Frjáls- lynda flokkinn aðeins örfá atkvæði til að ná inn fimmta þingmanni sín- um og hefur ffamkvæmd kosning- anna verið harðlega gagnrýnd af þeirra hálfu, sem og af Vinstrihreyf- ingunni - grænu ffamboði. Því munu þessir flokkar krefjast skýrslu um framkvæmd kosninganna í vor. hkr@dv.is Alþingi íslendinga sett í dag Fjárlagafrumvarpi útbýtt við framhald þingsetningarfundar Setning Alþingis, 130. löggjaf- arþings, hefst í dag, 1. október 2003, kl. 13.30 með guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni. Séra Ólafur Jóhannsson, sókn- arprestur í Grensásprestakalli, predikar og þjónar fyrir altari ásamt biskupi íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dóm- kirkjunnar, Marteinn H. Friðriks- son, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við at- höfnina. Að guðsþjónustu lokinni verður gengið til þinghússins. Forseti ís- lands setur þingið og að því loknu tekur aldursforseti þingsins við fundarstjórn, en það er Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra. Mun hann stjórna kjöri forseta Al- þingis. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16 en á meðan halda þingflokkar fundi. Þegar þingsetningarfundi verð- ur fram haldið verða kosnir vara- forsetar og kosið verður í fasta- nefndir Alþingis og til íslands- deilda þeirra alþjóðasamtaka sem Alþingi er aðili að. Að síðustu verður hlutað um sæti þing- manna, annarra en ráðherra og forseta Alþingis. Fjárlagafrum- varpi verður útbýtt kl. 16 við fram- hald þingsetningarfundar. hkr@dv.is Árni Magnússon. Birgir Ármannsson. Guðjón Hjörleifsson. Birkir Jón Jónssori. Guðlaugur Þór Þórðarson. Sigurður Kári Kristjánsson. Bjarni Katrín Benediktsson. Júlíusdóttir. Sigurjón Magnús Þór Þórðarson. Hafsteinsson. Dagný Björgvin G. Jónsdóttir. Sigurðsson. Anna Kristín Gunnarsdóttir. Jón Gunnarsson. Örlygsson. Ágúst Ólafur Ágústsson. Helgi Hjörvar. Mörður Árnason. nýir þingmenn Átján Átján nýir þingmenn hafa verið kjörnir til að taka sæti á Alþingi í dag. Einhverjir þeirra munu verða fjarverandi vegna veik- inda, að sögn skrifstofu Alþing- is, og einn getur ekki verið við- staddur vegna afplánunar dóms. Nýir þingmenn Sjálfstæðisflokks eru: Birgir Ármannsson (D), 11. þing- maður Reykjavíkurkjördæmis suð- ur. Bjami Benediktsson (D), 11. þingmaður Suðvesturkjördæmis. Guðjón Hjörleifsson (D), 8. þing- maður Suðurkjördæmis. Guðlaugur Þór Þórðarson (D), 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Sigurður Kári Kristjánsson (D), 10. þingmaður Reykjavíkurkjör- dæmis norður. Nýir þingmenn Framsóknarflokks eru: Ámi Magnússon (B), 11. þing- maður Reykjavíkurkjördæmis norður. Hann er nú félagsmálaráð- herra. Birkir J. Jónsson (B) 9. þingmaður Norðausturkjördæmis. Dagný Jónsdóttir (B), 8. þing- maður Norðausturkjördæmis. Nýir þingmenn Samfylkingar eru: Anna Kristín Gunnarsdóttir (S), 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis. Ágúst Ólafúr Ágústsson (S), 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður. Björgvin G. Sigurðsson (S), 7. þingmaður Suðurkjördæmis. Helgi Hjörvar (S), 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Jón Gunnarsson (S), 10. þing- maður Suðurkjördæmis. Katrín Júlíusdóttir (S), 9. þing- maður Suðvesturkjördæmis. MörðurÁrnason (S), 7. þingmað- ur Reykjavíkurkjördæmis suður. Nýir þingmenn Frjálslynda flokksins eru: Gunnar öm Örlygsson (F), 10. þingmaður Suðvesturkjördæmis. Magnús Þór Hafsteinsson (F) 9. þingmaður Suðurkjördæmis. Sigurjón Þórðarson (F) 10. þing- maður Norðvesturkjördæmis. Hvert á að leita? Til að leita að þeim sem hæst töluðu um nauðsyn þess, að Haf- skip hyrfl af vettvangi ættu menn að lesa þingtíðindi frá þeim átakatímum, ekki síst ræð- «1 ur Ólafs Ragnars Grímssonar, eða fö Helgarpóstinn sáluga. ^ Björn Bjarnason dómsmálaráö- Sherra á heimasíðu sinni um átökin I Islensku viðskiptallfi. D Undarleg ráðstöfun Þetta er undarleg ráðstöfun þvl að hún takmarkar rannsókn- arfrelsi fólks, án þess að fyrir þvl liggi gild rök. Hvers vegna mega ekki aðrir bókmenntafræðingar skoða þessi bréf til jafns við þau Halldór og Helgu? Og auðvitað hljóta allir að spyrja sig að þvf hvers vegna Hannes Hólmsteinn Gissurarson má ekki líta á bréfin, þar sem hann hefur lýst þvl yfir að hann vinni nú að ritun á ævisögu skáldsins. PállHitm- arsson og Sverrir Jakobs-f sonáMúrnumf um ákvörðun fjölskyldu Hall-j| dórs Laxness að loka bréfasafni skáldsins. Orkuátak borgarstjóra Þórólfur Árnason borgarstjóri er farinn að koma fram I sjón- varpsauglýsingum og lýsa því yfir að hann hafi ákveðiö að taka þátt I einhverju sem er kallað „orkuátak”. Því miðurtekur hann ekki fram I hverju framlag hans er fólgið, en sjálfsagt má giska á að hann hyggist leggja til heitt vatn, ollu og bensfn á hagstæðu verði. Andríki/vef-Þjóðviljinn setur hlutina I samhengi með sínum hætti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.