Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 14
-J- 74 SKOÐUN MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER2003 Upphafnýs Alþingi íslendinga kemur saman í dag eftir sumarleyfi. Nýtt þing mætir til starfa eftir kosn- ingarnar í maí, þing sem að vísu sat stutt sum- arþing skömmu eftir kosningar. I upphafi kjör- tímabils gefst tími til undirbúnings stærri mála sem koma á fram næstu fjögur árin. Kjósendur endurnýjuðu umboð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þeir eru því að byrja sitt þriðja kjörtímabil saman í stjórn. Fátítt er að slíkt gerist hér á landi. Eina fordæmið er við- reisnarstjórnin svokallaða, samstjórn Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokksins sem sat við völd í þrjú kjörtímabil, allan sjöunda áratuginn og aðeins fram á þann áttunda. Þingið sem nú kemur saman er merkilegt fyr- ir þær sakir að það er hið síðasta sem Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, situr sem forsætisráðherra, í bili að minnsta kosti. Stjómarflokkarnir gerðu sem kunnugt er með sér samkomulag um að Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, tæki við for- sætisráðherraembættinu um miðjan septem- ber á næsta ári. Samfelldur ferill Davíðs Odds- sonar sem forsætisráðherra er einstakur hér á landi en hann hefur gegnt embættinu frá árinu 1991. Menntamálaráðherraskipti verða um ára- mót þegar Þorgerður Kartrín Gunnarsdóttir tekur við af Tómasi Inga Olrich, sem verður sendiherra. Umhverfisráðherraskipti verða síð- an í september, um leið og forsætisráðherra- skiptin. Embættið færist frá Framsóknarflokkn- um til Sjálfstæðisflokksins. Sigríður Anna Þórð- ardóttir tekur þá við af Siv Friðleifsdóttur. Óvíst kjörtímabils Þingið sem nú kemur saman er merkilegt fyrir þær sakir að það er hið síðasta sem Davíð Oddsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, situr sem forsætisráðherra, í bili að minnsta kosti. er hvernig Framsóknarflokkurinn mun skipa sínum ráðherramálum þá. Talsverð endurnýjun varð í þingkosningun- um í vor. Átján nýir menn voru kosnir til þess að taka sæti á Alþingi. Þeirra á meðal var margt ungt fólk. Meðalaldur þingmanna lækkaði því talsvert. Það er vel enda þarf Alþingi á ungum og röskum mönnum að halda. Vonandi fyigja hinum nýju þingmönnum ferskir vindar og ný sjónarmið. Afleitt er hins vegar að hlutur kvenna á Alþingi versnaði í kosningunum. Það er raunar til vansæmdar hve hægt gengur að fjölga konum á þinginu. í þeim efnum hljóta flokkarnir að taka sig á fyrir næstu kosningar. Konur og karlar þurfa að sameinast um það að hlutfall kynjanna sé sem jafnast á þinginu. Það er í allra þágu að svo sé. Forsætisráðherra mun flytja þjóðinni stefnu- mál hinnar nýju stjórnar við upphaf þings. Fjár- lagafrumvarpinu verður útbýtt til þingmanna síðar í dag. Mikilvægt er að fjármálum ríkisins verði stjórnað af festu. Ekki liggur annað fyrir en hagsældartímabil sé fram undan. Spár gera ráð fyrir góðæri. Samið hefur verið um stórvirki, ; fjárfrekar framkvæmdir sem standa munu næstu ár. Því er mikilvægt að hafa hemil á eyðslu. Hætt er við að spenna geti myndast á vinnumarkaði. Kjarasamningar stórra hópa losna á næstunni eftir langt samningatímabil. Ábyrgð aðila vinnumarkaðarins er mikil. Þeirra er að sjá til þess að þjóðhagslega hagkvæm nið- urstaða náist, niðurstaða sem í senn tryggir af- komu launþega og getu fyrirtækja og atvinnu- vega til þess að standa undir henni. Verðbólga hefur verið lág hérlendis að undanförnu og gengi stöðugt. Þannig verður það að vera | áfram. Jafnvægi og festa er nauðsyn jafnt ein- staklingum sem fyrirtækjum. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa kynnt áherslur sínar fyrir það þing sem hefst í dag. Þeirra er getið annars staðar hér á opnunni. í þeim málum sem þar eru kynnt er eftirtektar- verðust tillaga Samfýlkingarinnar um að lækka virðisaukaskatt á matvælum úr 14% í 7%. Nái sú tillaga fram að ganga lækkar hún matarreikn- inga íslenskra íjöskyldna verulega. Ekki veitir af. Samfylkingin vill breytingar á stjórnarskrá: Tillaga um stórlækkun virð- isaukaskatts á matvælum Samfylkingin vill breyta stjórn- arskrá landsins í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnarinnar. Þá vill flokkurinn m.a. stór- lækka virðisaukaskatt á mat- vælum úr 14% í 7%. Þingflokkur Samfylkingarinnar kynnti í gærmorgun helstu áherslur sínar á komandi þingi. Flokkurinn vill skapa hér gott samfélag, byggt á jafnaðarstefnunni, samfélag þar sem lýðræði, frjáls samkeppni á markaði og jöfn tækifæri fyrir alla eru lykilhugtök. Samfylkingin leggur til lækkun virðisauka- skatts á matvælum úr 14% í 7%. Slík lækkun kemur öll- um til góða. Þingflokkurinn leggur fram fjölda nýrra mála á þessum vetri og eru fjögur þeirra kynnt sérstaklega hér. Þar ber fyrst að nefna þings- ályktunartillögu um breytingar á stjórnarskrá íslands í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnarinnar. Þar er lagt til að gerðar verði tillögur um endurskoðun á ýmsum ákvæð- um stjórnarskrárinnar, s.s. um það hvernig tryggja megi í stjórnarskrá sameign þjóðarinnar á náttúruauð- lindum, hvort auðvelda eigi fram- sal ríkisvalds til alþjóðasamtaka sem vinna að friði og frelsi í við- skiptum þjóða, að landið verði gert að einu kjördæmi, að landsmenn geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál og leitað verði annarra leiða til að auka réttindi og áhrif einstaklinga og kjósenda. Einnig verði athugað hvort tímabært sé að endurskoða samband ríkis og kirkju. Fyrsti flutningsmaður tillög- unnar er Össur Skarphéðinsson. Lækkun virðisaukaskatts Þá leggur þingflokkurinn fram tillögu um lækkun virðisaukaskatts á matvælum úr 14% í 7%. Sú tillaga er í samræmi við þær hugmyndir sem Samfylkingin kynnti í kosn- ingabaráttunni. Slfk lækkun kemur öllum til góða, ekki síst þeim sem hafa úr litlu að spila. Talið er að með helmingslækkun virðisauka- skatts á matvælum megi lækka matarreikninga íslendinga um fast að 5 milljarða. Fyrsti flutningsmað- ur er Össur Skarphéðinsson. Samkeppnislögum breytt Þingflokkurinn leggur fram til- lögu um breytingu á samkeppnis- lögum. Gerðar eru tillögur um að skýrari verkaskiptingu verði komið á milli Samkeppnisstofnunar og ríkissaksóknara þannig að stofnun- in rannsaki brot fyrirtækja en ríkis- saksóknari brot einstaklinga. Þá er lagt til að Samkeppnisstofnun verði heimilað að leita á heimilum stjórnenda fyrirtækja og þannig fetað inn á þá braut sem farin hefur verið í Evrópu. Þá eru gerðar tillög- ur um hertar refsingar vegna brota á lögunum. Fyrsti flutningsmaður er Lúðvík Bergvinsson. Að lokum er kynnt tillaga um átak til eflingar iðn-, verk- og list- náms. Skipaður verði starfshópur er vinni tillögur með það að mark- miði að draga úr brottfalli úr fram- haldsskólum og eyða úreltri að- greiningu milli bóknáms og verk- náms. hkr@dv.ii LÆGRI SKATTAR; Samfylkingin mun leggja fram tillögu um lægri virðisaukaskatt á matvælum þegar þing kemur saman. “““ Bélwftj i fc * m ; » £' l m. ■ bjjr- 1 $ wF' j •• fStt.i' ."ffl »-u'ij j ' S : i 4 Hver verður forstjóri? Flestir og þá ekki síst starfs- menn Eimskips, reikna með því að Ingimundur Sigurpálsson, for- g stjóri Eimskips, óski eftir því að ks láta af störfum innan skamms. O Ingimundur var ráðinn af Bene- JJJÍ dikt Sveinssyni þegar Hörður Sig- TJj urgestsson hætti sem forstjóri, en g mikil og náin vinátta er á milli Ingimundar og Benedikts. Þar (/I með losnar einn feitasti bitinn I íslensku viðskiptalffi. Sagt er að Björgólfur Guðmundsson og Landsbankinn hafi sérstakt dá- læti á Kristni Geirssyni, fram- kvæmdastjóra (slenska sjón- varpsfélagsins sem á og rekur Skjá einn. Kristinn er vel kunnug- ur flutningastarfsemi en hann var einn mikilvægasti maðurinn í endurreisn Samskipa á sínum tíma og vann þá náið með Lands- bankamönnum. Hvert fer Ingimundur? (framhaldi af þessu hafa mikl- ar vangaveltur verið um framtíð Ingimundar Sigurpálssonar. Eins og greint var frá hér í Sandkorni í gær er almennt búist við því að Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár- Almennra og bróðir Benedikts Sveinssonar, verði kjörinn for- maður bankaráðs (slandsbanka á næsta aðalfundi félagsins sem væntanleg verður haldinn í febr- úar næstkomandi. Kristján Ragn- arsson, núverandi formaður, hef- ur lýst því yfir aðþann dragi sig þá í hlé. Ekki síst þess vegna er talið öruggt að þeir Sjóvá-bræður bjóði Ingimundi starf sem for- stjóri Sjóvár-Almennra sem verð- ur eitt dótturfyrirtækja fslands- banka. Forkaupsrétturinn (desember næstkomandi mun draga til tíðinda meðal hluthafa Skeljungs. Steinhóiar, sem er í helmingseigu Kaupþings Búnað- arbanka á móti Eimskip og Sjóvá- Almennum sem eiga fjórðungs- hlut hvort félag, á Skeljung. Milli hluthafanna er hins vegar sér- stakt samkomulag um kauprétti. Sjóvá og Eimskip eiga kauprétt á Kaupþing Búnaðarbanka en einnig sölurétt.Talið er öruggt að félögin muni nýta sér söluréttinn, enda mun Einar Sveinsson hafa sagt það í þröngum hópi við- skiptafélaga. Þannig mun Kaup- þing Búnaðarbanki eignast Skelj- ung að fullu. Og ekki ætlar bank- inn að reka olíufélag heldur vill selja félagið. Kaupandinn bíður við dyrnar, að því er sagt er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.