Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER2003 Útlönd Heimurinn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sími: 550 5829 1 Varar við Schwarzenegger KALIFORNÍA: Arianna Huffington, óháður frambjóð- andi í ríkisstjórakosningunum í Kaliforníu, hefur dregið fram- boð sitt til baka og ætlar að berjast með kjafti og klóm gegn því að umboðið til Grays Davis ríkisstjóra verði afturkall- að í kosningunum í næstu viku. Þá hefur hún varað við þeirri hættu sem hún telur stafa af því að kjósa Arnold Schwarz- enegger sem ríkisstjóra. Ekki er þó víst að Kaliforníubú- ar séu sömu skoðunar því nýjasta skoðanakönnun bendir til að hann muni ná kjöri þann 7. október. Meirihluti kjósenda vill afturkalla umboð Davis rík- isstjóra samkvæmt könnuninni og 40 prósent vilja að leikarinn taki við af honum. Te er hollt HEILSA: Bandarískir vísinda- menn sögðu í gær að svo virt- ist sem svart te lækkaði svo- kallað vont kólesteról, eða LDL, í blóðinu. Rannsókn leiddi í Ijós að kólesteról þetta lækkaði um sjö til ellefu prósent eftir þriggja vikna drykkju á svörtu tei. Ekki er vitað nákvæmlega hvað gerðist.Teið hafði engin áhrif á góða kólesterólið. Embættismannalekinn í Hvíta húsinu: Glæparannsókn hafin á lekanum íhuga frekari múra Ríkisstjórn Israels hittist í dag til að ræða áform um byggingu enn eins hluta umdeilds örygg- ismúrs sem ætlað er að koma í veg fyrir að palestínskir sjálfs- morðsliðar komist inn í Israel frá Vesturbakkanum. Fyrirhugaður múr myndi girða af nokkrar stórar gyðingabyggðir á landi Palestínumanna og einangra tugi þúsunda Palestínumanna frá löndum sfnum á Vesturbakkanum. Stjórnvöld í Washington hafa lýst áhyggjum sínum af því að bygging múrsins muni hafa neikvæð áhrif á friðarferlið. Þá lýstu Sameinuðu þjóðirnar því yfir í skýrslu í gær að múrinn væri ólöglegur og að leggja mætti hann að jöfnu við ólöglega innlimun. Israelsk stjórnvöld segja múrinn nauðsynlega vörn fýrir þegnana. ísraelskir hermenn gerðu áhlaup á flóttamannabúðir nærri borginni Jenin á Vesturbakkanum f morgun og handsömuðu einn leiðtoga samtakanna Heilagt stríð íslams. Að sögn sjónarvotta hafði maður- inn falið sig undir bfl. Leiðtogi þessara sömu samtaka á Gaza hét því að komið yrði fram hefndum fýrir handtökuna. „Óvinurinn mun gjalda þetta dýru verði," sagði leiðtoginn í sam- tali við fréttamann Reuters. Bandaríska dómsmálaráðu- neytið tilkynnti í gær að alls- herjar glæparannsókn væri hafin á ásökunum um að bandarískir embættismenn hefðu lekið nafni starfsmanns leyniþjónustunnartil fjölmiðla í hefndarskyni og að haidið verði opnum þeim möguleika að skipuð verði sérstök rannsókn- arnefnd þegar frekari stað- reyndir málsins liggja fyrir. UPPBOÐ Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að Hiíðarvegi 16, Hvols- velli, miðvikudaginn 8. október 2003, kl. 16.00: Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, miðviku- daginn 8. október 2003, kl. 16.00: KJ-849 MY-733 NV-631 US-828 ZM-249 Einnig verður á sama stað boðin upp D655 AS Stroll, stjörnumúgavél, árg. 2002, nr. 6108547. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á HVOLSVELLI Um er að ræða ásakanir sem fram komu í frétt bandaríska dag- blaðsins Washington Post fyrr í vikunni þar sem ónafngreindur embættismaður fullyrðir að nafni Valerie Plame, eiginkonu Josephs Wilsons, fyrrum sendiherra Banda- ríkjanna í Gabon, hafi verið lekið í ákveðna fréttamenn í hefndarskyni fyrir gagnrýni Wilsons á málatil- búnað Bush-stjórnarinnar vegna stríðsins í Irak, en Plame mun hafa unnið að ýmsum leynilegum verk- efnum tengdum útbreiðslu gjör- eyðingarvopna fyrir bandarísku leyniþjónustuna, CIA. Gagnrýni Wilsons Fyrir Íraks-stríðið hafði eigin- maðurinn, Wilson, fengið það verk- efni að rannsaka ásakanir um að írakar hefðu reynt að kaupa úran- íum í Afríkuríkinu Níger og komist að þeirri niðurstöðu að þær ættu ekki við rök að styðjast heldur byggðar á fölsuðum upplýsingum. Þrátt fyrir það notaði Bush Bandaríkjaforseti ásakanirnar í stefnuræðu sinni í janúar sl. og vísaði þar til upplýsinga frá bresku leyniþjónustunni. Síðar gagnrýndi Wilson málatil- búnað bandarískra stjórnvalda vegna stríðsins í írak í grein í Times og lýsti undrun sinni yfir því að skýrslu hans um úraníummálið hefði verið hafnað. Hann sagði að skýrslan sem lögð hefði verið fram til þess að réttlæta Íraksstríðið hefði verið byggð á rangfærslum og ýkjum. Bush fagnar rannsókninni George W. Bush Bandaríkjafor- seti fagnaði í gær ákvörðun dóms- málaráðuneytisins um að hefja glæparannsókn og hvatti alla þá sem byggju yfir einhverri vitneskju um málið til að stíga fram. „Ég vil að sannleikurinn komi í ljós,“ sagði Bush, en starfsfólki Hvíta hússins var í gær sendur tölvupóstur þar sem tilkynnt var að dómsmála- ráðuneytið hefði ákveðið að hefja glæparannsókn í stað formlegrar rannsóknar sem áður hafði verið ákveðin. Bush Bandaríkjaforseti fagnaði í gær ákvörðun dómsmálaráðu- neytisins um að hefja glæparannsókn í lekamálinu og hvatti alla þá sem byggju yfir einhverri vitneskju um málið til að stíga fram. Starfsfólkinu var skipað að veita rannsóknaraðilum allar nauðsyn- legar upplýsingar sem kynnu að tengjast rannsókn málsins og þar á meðal skrár yfir símtöl og upp- tökur, auk tölvupósts, minnismiða og annarra skjala sem kynnu að varpa ljósi á málið. „Ég hef fyrirskipað starfsliði mínu að sýna fullt samstarf við rannsóknina og ef einhver em- bættismanna Hvíta hússins hefur lekið nafninu þá verður tekið á því af festu," sagði Bush þar sem hann var staddur á fundi með stuðnings- mönnum sínum í Chicago. „Rannsóknin er gott mál og ef einhver starfsmanna minna hefur lekið þá vil ég vita hver það er og ef viðkomandi hefur brotið lög þá verður tekið á því með viðeigandi hætti," sagði Bush. BUSH MEÐAL STUÐNINGSMANNA í CHICAGO: Bush sagði að glæparannsóknin væri gott mál. Einn múslímskur stuðningsmaður hans bað um eiginhandaráritun í Mikka mús-bók. John D. Ashcroft, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að reyndir lögfræðingar gagnnjósna- deildar dómsmálaráðuneytisins hefðu hafið glæparannsókn á meintum ólöglegum leka strax á föstudaginn, ijórum dögum eftir að yfirmaður CIA hafði farið fram á að rannsókn færi fram á hugsanlegu lögbroti embættismanna. Ashcroft sagði að rannsókninni væri stjórnað af saksóknurum dómsmálaráðuneytisins og full- trúum bandarísku alríkislögregl- unnar, FBI. Afgreiðsla smáauglýsingadeildar, Skaftahlíð 24, er opin frá kl. 9-20 mánudaga til fimmtudaga. Tekið er á móti smáauglýsingum í síma 550 5000 til kl.22. Á föstudögum er opið frá kl. 9-18, laugardögum frá kl.9-14 og sunnudögum frá kl. 16-22. Smáauglýsingadeild DV, Skaftahlíð 24. Síminn er 550 5000. Netfang: smaar@dv.is Veffang: www.smaar.is -4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.