Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR I. OKTÓBER 2003 Tuttugu milljarðar í skattalækkanir Stefnuræðu Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, sem dreift vartil alþingismanna ítrúnaði í gær, var lekið í fréttastofu Stöðvar 2. Ræðan verður flutt á Alþingi á morgun. (ræðu Davíðs kemur meðal annars fram að tuttugu millj- örðum króna verði varið til skattalækkana á kjörtímabil- inu, að því er sagði í frétt Stöðvar 2 í gærkvöld. Útfærsla einstakra skattalækkana liggi hins vegar ekki fyrir. Þá segir í ræðunni - sam- kvæmt fréttinni - að hátekju- skattur verði framlengdur þrátt fyrir að Davíð og Geir Haarde fjármálaráðherra líti svo á að hann eigi samkvæmt lögum að falla niður um næstu áramót. Stjórnarflokkarnir hafi ákveðið að fella hann í staðinn niður í áföngum og samkomu- lag um það verði lögfest. Þá er í ræðunni vikið að nauð- syn þess að ráðast í smíði nýs RÆÐUNNI LEK©: Stefnuræðu Dav- íðs var dreift til þingmanna í trún- aði í gær en komst óðara í hendur fréttastofu Stöðvar 2. varðskips og gera áætlun um endurnýjun á flugflota Land- helgisgæslunnar. Einnig kemur fram að unnið verði að breyt- ingum á lögum um stjórn fisk- veiða þannig að unnt verði að taka upp veiðileyfagjald á næsta ári og einnig línuívilnun. Ekki náðist í forsætisráðherra í morgun vegna málsins. Hópnauðgun fótboltamanna á herbergi 316: Hlógu er þeir komu fram vilja sínum Nýjar höfuðstöðvar Landsbanka íslands: Borgin til viðræðna um málið HÓPNAUÐGUN: Stúlkan varð fyrir miklu áfalli og skelfur þegar hún rifjar atvikið upp. Myndin er sviðsett. Landsbanki íslands hefur ósk- að eftir lóð undir nýjar höfuð- stöðvar í miðborg Reykjavík- ur. Borgarráð Reykjavíkur fjallaði um umsókn bankans á fundi í gær og fól Alfreð Þor- steinssyni, formanni ráðsins, og Steinunni Valdísi Óskars- dóttur, formanni skipulags- og bygginganefndar, að hefja viðræður við fulltrúa bankans. Lóðin sem um ræðir markast af Geirsgötu, Kalkofsvegi og Tryggvagötu, á bílastæðinu norð- austan við pylsusöluna Bæjarins bestu. Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, formanns borgarráðs Reykjavfk- ur, líst honum mjög vel á umsókn Landsbankans og segist sann- færður um að bankinn eigi eftir að reisa glæsilegar höfuðstöðvar í miðbænum sem verði borginni til sóma og styrki starfsemi miðbæj- arins. Alfreð segir að málið hafi verið tekið fyrir á fundi borgar- ráðs í gær; því hafi verið vel tekið og honum og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, formanni skipu- lags- og bygginganefndar, falið að ganga til viðræna við Landsbank- ann um málið. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og bygginga- nefndar, er á sama máli og Alfreð og segir að sér lítist vel á hug- myndina. „Það var ákveðið á fundi borgarráðs að hraða við- ræðunum við Landsbankann eftir megni. Skipulagsmál eru í eðli sfnu viðkvæm og oft erfitt að taka ákvarðanir í dag sem eiga að koma til framkvæmda á morgun." Steinunn segir að borgarráð ætli að taka sér nokkrar vikur til við- ræðnanna og athuga hvort menn nái ekki samkomulagi. „Lóðin er sjö þúsund fermetrar að stærð og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og bygginganefndar. húsið gæti því hæglega orðið fjórar til fimm hæðir. Ég tel mjög ánægju- legt ef bankinn og borgin ná saman í málinu og sýna enn einu sinni hvað möguleikamir í miðborginni em miklir. Saga Landsbankans er samofin sögu miðbæjarins og ég veit að þeir Landsbankamenn ætla sér að standa vel að byggingunni." k/p@dv./s Stúlkan sem hefur kært hópnauðgun fótboltamanna ensku úrvalsdeildarinnar segir mennina hafa hlegið þegar þeir komu fram vilja sínum. Breska dagblaðið Sun greinir frá þessu í dag. Þar segir að stúlkan hafi viðurkennt fyrir fjölskyldu sinni að hafa farið í fylgd fótbolta- manns á Grosvenor House-hótelið síðastliðið föstudagskvöld. Hún kveðst hafa kynnst manninum á bar og fallist á að fylgja honum á hótelið. Þau hafi verið í ástaratlot- um í herbergi 316 þegar sjö leik- menn mddust inn í herbergið og hópnauðgunin hófst. Hún segist aðeins hafa þekkt einn hinna sjö með nafni enda sé hann leikmaður knattspyrnuliðs sem hún sfyður. Lögregla hefur ekki gefið upp nöfn leik- mannanna né hvaða knattspyrnuliðum þeir tilheyra. „Hún varð fyrir miklu áfalli og skelfur þegar hún rifjar upp atvik- ið,“ sagði heimildarmaður The Sun. „Hún segir að þrír eða fjórir mannanna hafi nauðgað sér gróf- lega,“ sagði heimildarmaðurinn. Einn mannanna mun hafa haft það hlutverk að halda stúlkunni niðri á meðan á ósköpunum stóð. Stúlkan segir mennina hafa hegðað sér dýrslega og þegar nauðgunin var afstaðin hafi hún yfirgefið herberg- ið við hlátrasköll leikmannanna. Hún komst út af hótelinu af eigin rammleik og tók síðan leigubil heim. Umfangsmikil rannsókn Lögreglurannsókn stendur yfir og herbergi 316 hefur verið innsigl- að. Tæknimenn rannsaka nú rúm- fatnað, handklæði, glös og aðra muni í herberginu. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum og mikið er lagt upp úr nákvæmni rannsóknarinnar. Stúlkan gaf skýrslu hjá lögreglu í gærdag og tók skýrslutakan átta klukkustundir. Öryggismyndbönd hótelsins eru auk þess til rannsóknar og standa vonir til að þau geti varpað ljósi á mannaferðir í herbergi 316. Lögregla hefur ekki gefið upp nöfn leikmannanna né hvaða knattspyrnuliðum þeir tilheyra. Dagblaðið Mirror greinir frá því í dag að einn mannanna sé stjörnu- leikmaður. Hann hefur hins vegar neitað í sök í málinu, segist hafa verið á veitingastað ásamt kærustu sinni umrætt kvöld. Hann hafi ekki komið á hótelið fyrr en daginn eftir, þ.e. á laugardeginum. Hann ásamt hinum sjö má búast við að verða kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglu. Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Impregilo í strandí gærkvöld: Kunna hvorki vinnubrögð né mannasiði Samskipti verkalýðshreyfingar- innar og ítalska verktakafyrir- tækisins Impregilo sigldu í strand á fundi í gærkvöld þar sem fulltrúi fyrirtækisins kvaðst vera án umboðs til samninga. Sagðist hann verða að bíða eft- ir lögfræðingum fyrirtækisins sem væru væntanlegir frá Milanó. Þessir menn kunna hvorki vinnubrögð né mannasiði," sagði Þorbjörn Guðmundsson, fulltrúi launamanna í samráðsnefnd um virkjanaframkvæmdir við Kára- hnjúka, þegar DV ræddi við hann í morgun. „Það hefur enga þýðingu að tala við umboðslausa menn; þeir eiga að vera heima hjá sér,“ sagði hann enn fremur og vísaði þá til ummæla fulltrúa Impregilo á fundinum í gærkvöld. Þar hafði verið ætlunin að ræða fyrirliggjandi ágreiningsefni aðila og freista þess að ná samkomulagi. Þorbjörn sagði að fulitrúinn hefði tjáð sér á fundinum að hann gæti ekki rætt málið fyrr en lög- fræðingarnir kæmu frá Mflanó, sem yrði eftir 8-9 daga. „Ég hef á tilfinningunni að þessi ferð lögmanna Impregilo til íslands verði ekki sú síðasta á komandi árum," sagði Þorbjörn. „Mér sýnist að þeir eigi fyrir höndum tíðar ferð- ir til landsins í framtíðinni." Fyrirhugað var að Þorbjöm mætti á miðstjómarfund ASÍ sem hófst kl. 11 í morgun. Þar ætíaði hann að fara yfir stöðu mála ásamt miðstjórninni og vildi bíða með yf- irlýsingar um næstu skref þar til eftir þann fund. -jss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.