Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 18
18 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003
Ræktun lýðs og lands
Umsjón: Páll Guðmundsson
Netfang: palli@umfi.is
Sími: 568 2929
LANDBMÓT
LEIPTOGA
SKOUNN
Ungt fólk í Evrópu:
Viltu stuðla að betri heimi?
„Ungt fólk í Evrópu er styrkja-
áætlun á vegum Evrópusambands-
ins,“ segir Eyrún Einarsdóttir, verk-
efnisstjóri hjá Ungu fólki í Evrópu,
„og veitir styrki til verkefna sem
stuðla að því að minnka fordóma
og auka umburðarlyndi." Að sögn
Eyrúnar getur allt ungt fólk á aldr-
inum fimmtán til tuttugu og fimm
ára sótt um styrk. „Þetta er tækifæri
sem ungt fólk getur nýtt sér til að
auka þekkingu sína, þroska og
sjálfstraust um leið og það kynnist
fólki frá öðrum löndum."
UNNIÐ GEGN FORDÓMUM: Ein leið til að vinna gegn fordómum og stuðla þar af leiðandi að umburðarlyndari og betri heimi er að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum og
kynnast fólki frá öðrum löndum. Á myndinni eru Sigurður Guðmundsson og Ársæll Jónsson úr Keflavfk.
Sjáifboðaliðastarf
Styrkjaáætlunin Ungt fólk í Evr-
ópu styrkir verkefni af ýmsu tagi og
má þar nefna ungmennaskipti,
sjálfboðaþjónustu, frumkvæðis-
verkefni og stuðningsverkefni. Sem
dæmi um ungmennaskiptaverkefni
nefnir Eyrún að hópur frá félags-
miðstöðinni Árseli fór til Svíþjóðar í
júní 2002. „Verkefnið var kallað
Fjölþjóða-Svíþjóð og vildu ung-
mennin fræðast um stöðu innflytj-
enda og auka skilning sinn á stöðu
þeirra til að fyrirbyggja fordóma en
hluti ungmennanna sem tóku þátt í
Svíþjóð voru innflytjendur. Einnig
var markmið verkefnisins að kynn-
ast því hvernig unglingar eyða frí-
tíma sínum og að upplifa menn-
ingu annars lands.“
Eyrún segir að Ungt fólk í Evrópu
standi einnig fyrir ýmiss konar
sjálfboðaliðastarfi, til dæmis í SOS
barnaþorpi í Casciago á Norður-
Ítalíu. „Börnin í barnaþorpinu eru
ýmist munaðarlaus eða hafa búið
við erfiðar fjölskylduaðstæður. Til-
gangurinn með bamaþorpunum er
að auðvelda börnunum aðlögun að
samfélaginu. Þau ganga í almenna
skóla og kynnast öðmm börnum.
Sjálfboðaliðinn fýlgir bömunum í
skóla og hjálpar þeim við heima-
nám. Að auld tekur hann þátt í
heimilisstörfum og aðstoðar starfs-
fólk barnaþorpanna."
Eyrún segir að sérstakar reglur
gildi um verkefnin og verða þau að
falla að reglum áætlunarinnar.
„Umsóknarfrestur er fimm sinnum
á ári en allar nánari upplýsingar er
að finna á www.ufe.is."
Norræna æskulýðsnefndin
Norræna æskulýðsnefndin (Nor-
diska ungdomskomittén - NUK)
var stofnuð árið 1976 og veitir í um-
boði Norrænu ráðherranefndar-
innar norrænum barna- og æsku-
lýðssamtökum, félögum og hópum
styrki til æskulýðsstarfa. í nefnd-
inni sitja tveir fulltrúar frá hverju
landi og einn fulltrúi frá hverju
sjálfstjórnarsvæði. Fulltrúar Is-
lands tímabilið janúar 2003 til des-
ember 2005 em Líney R. Halldórs-
dóttir, fulltrúi menntamálaráðu-
neytisins, og Valdimar Gunnars-
son, fræðslustjóri UMFÍ, sem full-
trúi félagasamtaka.
Valdimar segir að markmiðið
með styrkveitingum sé að styrkja
norræna sjálfsvitund - með því að
efla þátttöku, skilning og áhuga hjá
börnum og unglingum í málefnum
er varða menningu, stjórnarhætti
og félagslega þætti á Norðurlönd-
unum.
„í janúar 2002 tóku gildi nýjar
reglur um styrkveitingar Norrænu
æskulýðsnefndarinnar. Umsóknar-
frestur er fjómm sinnum á ári: 1.
febrúar, 1. apríl, 1. september og 1.
nóvember. Ef sótt er um hærri upp-
hæð en sjötíu og fimm þúsund
krónur danskar em umsóknirnar
afgreiddar á fundum nefndarinnar
í maí og nóvember en aðrar em af-
greiddar af stjórnarhópi sem kem-
ur oftar sarnan."
Að sögn Valdimars veitir Nor-
ræna æskulýðsnefndin einnig
styrki til landssamtaka á sviði
æskulýðsmála. „Umsóknarfrestur
er til 1. október ár hvert." Umsókn-
areyðublöð fást hjá menntamála-
ráðuneytinu en einnig er hægt að
nálgast þau á vef ráðuneytisins og á
heimasíðu Norrænu ráðherra-
nefndarinnar, www.norden.org.
UNGMENNIKYNNAST: Styrkjaáætlunin Ungt fólk (Evrópu styrkir verkefni af ýmsu tagi og má þar nefna ungmennaskipti, sjálf-
boðaþjónustu, frumkvæðiverkefni og stuðningsverkefni.
Finnst þér leiðinlegt að hlusta
á fordóma, verða vitni að mis-
munun og finna fyrir andúð á
útlendingum hjá fólki? Vildir
þú óska þess stundum að fólk
hefði meiri skilning á öðrum
menningarheimum og væri
ekki með sleggjudóma um
önnur lönd? Eða finnst þér
kannski jafnvel að þú sjálf(ur)
hefðir gott af því að læra
meira um aðra menningar-
heima? Ein leið til að vinna
gegn fordómum og stuðla þar
af leiðandi að umburðarlynd-
ari og betri heimi er að taka
þátt í alþjóðlegum verkefnum
og kynnast fólki frá öðrum
löndum.
Alltaf ódýrast
á www.flugfelag.is
FLUGFÉLAG ÍSLANDS