Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Page 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003
Fúsk virðist áberandi í viðgerðum á tjónbílum sem keyptir
eru á mánudagsuppboðum tryggingafélaganna:
Kaupendurgeta
setið uppi með
dauðagildrur
TJÓN: F.h Jónas Steinarsson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, Stefán
Arngrímsson, starfsmaður F(B og Runóifur Ólafsson, framkvæmdastjóri F(B, virða fyrir sér
tjónbll ásamt fleiri þegar Fræðslumiðstöð bílgreina kynnti könnun sem gerð hefur verið á
viðgerðum á tjónbílum.
Stór hluti bíla sem seldir eru í
mánudagsútboðum trygginga-
félaganna lendir í heimabíl-
skúrum hjá mönnum sem lítt
eða ekki þekkja til réttra
vinnubragða við endurbygg-
ingu tjónbíla né hafa þau verk-
færi, áhöld og efni sem til þarf.
Lappað er upp á bílana þannig
að að útlitinu til virðast þeir í
lagi við fyrstu sýn. Bílarnir eru
svo seldir, gjarnan sem „lítið
eknir, nýsprautaðir og óvenju
fallegir." Kaupendurnir vakna
síðar upp við vondan draum,
uppgötva að þeir hafa keypt
köttinn í sekknum og sitja uppi
með bíl sem getur reynst hrein
dauðagildra.
Þetta er niðurstaða könnunar á
tjónbflum sem Fræðslumiðstöð
bflgreina gerði að beiðni Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda, FÍB. Til-
efni þessarar könnunar var að á
hverju ári fær FÍB til úrlausnar
mikinn fjölda ágreiningsmála sem
tengjast viðskiptum með tjónbfla
sem gert hefur verið við. Aliir tjón-
bflarnir sem skoðaðir voru eru í
eigu félagsmanna FÍB.
í umræddri skoðun
FMB á viðgerðum tjón-
bílum kom í Ijós að
vinnubrögð við þessa
bíla voru allt frá því að
vera mjög góð til þess
að vera algjörlega
óviðunandi og allt þar
á milli.
Niðurstöðumar vom kynntar á
blaðamanafundi sem haldinn var í
gær á vegum FÍB Bflgreinasam-
bandsins og Fræðslumiðstöðvar
bflgreina.
Flestallir bflarnir, sem um ræðir,
höfðu skemmst í umferðaróhöpp-
um. Tryggingafélög höfðu leyst þá
flesta til sín og selt síðan aftur í
vikulegum mánudagsútboðum
sínum. Sumir þessara bfla höfðu
verið skráðir sem tjónbflar í bif-
reiðaskrá en aðrir ekki. Sameigin-
legt var þó með þeim að allir höfðu
skemmst umtalsvert á burðarvirki
og/eða hjólabúnaði en það er for-
senda þess að skrá bfla sem tjón-
bfla í bifreiðaskrá.
í umræddri skoðun FMB á við-
gerðum tjónbflum kom í ljós að
vinnubrögð við viðgerð þessara
bfla voru allt frá því að vera mjög
góð til þess að vera algjörlega
óviðunandi og allt þar í milli.
Sem dæmi um óviðunandi við-
gerðir sem í ljós komu má nefna
að hlutar yfirbygginga höfðu verið
réttir „ólöglega" í stað þess að
skipta þeim út fyrir nýja, hlutar í
burðarvirki (jafnvel krumpusvæði)
höfðu verið hitaðir og réttir í stað
þess að skipta þeim út - þrátt fyrir
blátt bann við slíku í viðgerða-
handbókum. Þá var lega og afstaða
hluta ekki rétt samkvæmt hand-
bókum og frágangur afleitur. Er þá
aðeins fátt eitt nefnt.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, sagði félagið
leggja á það áherslu að ekki væru í
umferð illa viðgerðir og þar með
hættulegir tjónbflar.
„Bflar sem skemmast f umferð-
aróhöppum geta reyndar orðið
jafn öruggir og bflar sem ekkert
hefur komið fyrir. En þá þarf við-
gerð að vera unnin samkvæmt for-
skriftum af kunnáttufólki sem not-
ar rétt tæki og efni og vinnur verk
sín af kostgæfni og samviskusemi.
Á hinn veginn geta illa viðgerðir
bflar reynst hreinar dauðagildrur;“
sagði Runólfur.
Hann sagði félagið hafa um ára-
bil barist fyrir því að ekki væru illa
viðgerðir og háskalegir bflar í um-
ferðinni, bflar sem í sumum tilfell-
um væru hreinar dauðagildrur.
Fyrir tilstilli félagsins hafa verið
settar reglur um meðferð tjónbfla
og viðgerðir á þeim og félagið
hefði ýtt á alla sem að tjónbflum
koma til að standa við skyldur sín-
ar. Runólfur sagði reglurnar hafa
verið til bóta en í þeim þættu enn
of margar smugur fyrir óprúttna
aðila að lauma illa viðgerðum,
hálfónýtum og háskalegum bflum
á markaðinn.
Mánudagsbílar
Runólfur sagði stærstu smug-
una vera hjá sjálfum tryggingafé-
lögunum, „þeim aðilum sem síst
skyldi".
„Á hverjum mánudegi allan árs-
ins hring standa tryggingafélögin
fyrir útsölu á bflum sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum. Þetta
eru í flestum tilfellum bflar sem
tryggingafélögin hafa leyst til sín
eftir tjón og ekki svarar kostnaði
fyrir þau að láta gera við. Þessir
bflar lenda oftar en ekki inni í bfl-
skúrum hjá mönnum sem hafa
það sem aukagetu eða lifibrauð að
lappa upp á tjónbfla við ófull-
komnar aðstæður og án þess að
hafa til þess nauðsynlega þekk-
ingu og tækjabúnað.
Þessir bflar eru svo seldir á al-
mennum markaði eftir að búið er
að sminka þá upp þannig að
grandalaus kaupandi sér ekki neitt
athugavert við bflinn, sér ekki fyrr
en of seint að bfllinn er háskaleg-
ur, kannski skakkur, f hann vantar
mikilvægan öryggisbúnað - örygg-
isbúr bflsins er stórlega veiklað
Þessir bílar lenda oftar
sem gæti haft alvarlegar afleiðing-
ar ef bfllinn lenti aftur í umferðar-
óhappi. Bflar af þessu tagi ættu
með réttu alls ekki að vera í um-
ferð. Þeir eru hættulegir, sannkall-
aðir mánudagsbflar. Til að vara-
samir og illa viðgerðir tjónbflar
komist ekki í umferð þarf að fram-
fylgja þeim reglum sem þegar eru í
gildi. Skerpa þarf á vinnureglum
og vinnubrögðum þeirra aðila sem
að þessum málum koma, þ.e.a.s.
lögreglu, tollgæslu, starfsmanna
tryggingafélaga og Skráningar-
stofu," sagði Runólfur.
Vont fyrirkomulag
Hjá Fræðslumiðstöð bflgreina
ítreka menn að framfylgja þurfi
reglum um skráningu tjónbfla bet-
ur og bæði lögregla og þeir sem
koma að slysum og umferðartjóni
þurfa að ganga hiklaust fram í
þessum efnum, þ.e.a.s. ijarlægja
númer af bflflökum og skrá þau
sem tjónbfla eins og reglur mæla
fyrir um. „Eins og nú háttar er
þrýstingur af hálfu tryggingafélaga
á þessa aðila að gera þetta ekki
nema vera vissir í sinni sök að
skemmdir séu nægjanlegar til að
réttlæta slíkt. Vera kann að megin-
ástæða þessa sé sú að bfll sem
skráður hefur verið sem tjónbfll í
opinbera bifreiðaskrá er verri
söluvara á eftirmarkaði en sá sem
aldrei hefur fengið slika skrán-
ingu,“ segir í fréttatilkynningu
fræðslumiðstöðvarinnar.
lOrticyii
kynnir f samvinnu vi8 Mitsubishi & RásZ:
U 1
M*ð »»«loí (:i n*ft4Ugi 2
•" T i Li
LLL_^-----------------------
Eftir langan og strangan leiðangur um landið
eru þeir komnir á suðvesturhornið
! ILLLL LLLuíL
Fimmtudagskv. 2. október: Hafnarborg, Hafnaarfirði
Föstudagkv. 3. október: Bíóið, Akranesi,
Laugardagskv. 4. október: Austurbær, Reykfavík
lo. október: Stapinn, Reykjanesb
eyl
11. október Hnáfsdalur, Isafjörð
X
MITSUBISHI
MÖTORS
en ekki inni í bílskúrum
hjá mönnum sem hafa
það sem aukagetu eða
lifibrauð að lappa upp
á tjónbíla við ófull-
komnar aðstæður og
án þess að hafa tilþess
nauðsynlega þekkingu
og tækjabúnað.