Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 TILVERA 27
KRINGLAN
JI t&Hí .i
IVIATCHSTICK
IVIEM
SAM\BIO
ERjMYERID^a
ALFABAKKI
IVIATCHSTICK
IVIEM
iipii
ðrasSD ®W5sai(?
rmn m
-íanmýf'd vitlaust i v m 1 .
i iagl|
KRINGLAN tS 588 0800
ÁLFABAKKI TS 587 8900
STORMVIÐRI:
Sýndkl. 10.15.
ALEX AND EMMA:
Sýnd kl. 8 og 10.
Breskír
Bíódagar
SWEET SIXTEEN:
Sýndkl.6 BLOODY SUNDAY: Sýndkl.6
ALLOR NOTHING:
Sýndkl. 10.15. PLOTSWITHAV.:
Sýnd kl.6.
THE MAGDALENE SISTERS:
Sýnd kl. 8
STÓRM. GRfSLA: Sýnd m.Isl. tali kl. 3.45 og 6.10
rni
HáSHÚlRDíQ
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.20. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
ONCE UPON ATIMEIN MEXICO:
ITALIAN JOB: Sýnd kl.8 og 10.20
Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10.
PIRATES:
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30.
Sýnd m/ ísl. tali kl. 6.
SINBAD:
Sýnd m. ísl. tali kl.4.
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B.i. 16 ára
ONCE UPON ATIME IN MEXICO:
AMERICAN PIE 3:
Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 12 ára.
STÓRMYND GRfSLA:
Sýnd k!. 3.45,5.30,8 og 10.30.
Sýnd í lúxus VIP kl.5.30,8 og 10.30.
Bíórásin
06:00 Titan A.E.
08:00 Brewster's Millions
10:00 Tango
12:00 Land Before Time:The Myst
14:00 Titan A.E.
16:00 Brewster's Millions Brewster er
arfleiddur að 300 milljónum
dollara en til þess að fá peningana
verður hann að eyða 30
milljónum dollara á 30 dögum.
18:00 Tango Þessi ástríðuþrungna
kvikmynd gerist í Buenos Aires.
Fylgst er með Mario Suarez,
leikstjóra sem vinnur að
metnaðarfullu verkefni, stórmynd
um tangó. Ást, afbrýði og svik eru
grunnþættir þessa vinsælasta
dans allra tfma og gegnsýra bæpi
söguþráð og persónur'
myndarinnar.
20:00 Another Stakeout Það er snúið
verkefni að hafa eftirlit með
grunuðum glæpamönnum og
það er að- eins á færi reyndustu
lögreglumanna. Þvl er hætt við að
allt fari (handa- skolun þegar
leynilöggunum Chris og Bill er
falið verkefni á þessu sviði.
22:00 Pearl Harbor Sannsöguleg
stórmynd sem hlaut
Óskarsverðlaun fyrir tæknibrellur.
Sunnudagsmorguninn 7.
desemberárið 1941 breyttist
gangurseinni
heimsstyrjaldarinnar.
01:00 Outside Providence Tim
Dunphy er ungur maður (
bandarfskum smábæ. Hann er um
margt Kkur jafnöldrum sínum en
hefur mátt þola erfiða æsku.
02:35 Final Destination
04:10 Another Stakeout
Auglýsingac/e/7c/
auglysingar@dv.is
550 5000
FJÖLMIÐLAVAKTIN I
HilmarÞ. Guðmundsson
hilmr@dv.is
Á að treysta fjölmiðlum?
Ég fór á fróðlegan fyrirlestur hjá
virtum breskum blaðamanni um j
daginn. Hann hefur fjallað ftarlega
um stríðsreksturinn í írak í þarlend-
um fjölmiðlum. Fréttaflutningur
var eitt af umræðuefnunum og var
fróðlegt að bera saman vinnubrögð
mismunandi landa. Bandaríkja-
menn voru með fréttamenn í her-
| sveitum sínum sem gerði frétta-
flutning þeirra nokkuð litaðan af
fánalitunum. Bretar fóru svipaða
leið en aðrar þjóðir Evrópu fóru
| meðalveginn. Þessi ágæti blaða- \
maður sagði án þess að segja það
; berum orðum að arabísku stöðv-
arnar hefðu flutt bestu fréttirnar.
Þær sýndu báðar hliðar málsins, |
I ekki bara þá sem við „eigum“ að sjá.
Það er leiðinlegt að geta ekki tekið
; mark á kollegum sínum í Banda-
| ríkjunum hvað fréttir af stríði varð-
ar en þeir leika yflrleitt stærsta hlut-
verkið á stríðstímum.
Idol-keppnin er byrjuð á Stöð 2
og ég vissi ekki að svo margir hefðu
skráð sig til leiks. Boðið var upp á
allt sem slíkum keppnum fylgir:
Tár, gleði og gnístran tanna. Eftir að
hafa séð suma þátttakenduma held
ég að kötturinn sem vælir oft úti í
garði heima hjá mér væri frambæri-
legur þátttakandi í keppninni.
Sumir eiga þó fullt erindi í keppn-
ina.
Fram undan eru leikir aldarinnar
í ísienska boltanum þegar litla ís-
land mætir þýska stálinu í Ham-
borg. Ég held að allir sem bera þjóð-
arstolt í hjarta sínu eigi eftir að
horfa á leikinn. Reyndar er ég svart-
sýnn á úrslitin og er búinn að tapa
honum andlega fyrir fram fyrir
hönd fslands. Ég kætist þá bara
þeim mun meira þegar við vinnum.
STJÖRNUGJÖF DV
All or Nothing ★★★★
The Magdalene Sisters ★ ★★'i
BloodySunday ★★★'i
Sweet Sixteen ★ ★★■i
Nói albínói ★★★*
28 Days Later ★★★
Pirates of theCaribbean ★ ★★
Terminator 3 ★ ★★
The Live of David Gale ★ ★<
Sindbað sæfari ★ ★*
The Italian Job ★★
Bruce Almight ★★
LeagueofExtraordinaryCentlemen ★★
Hollywood Homicide ★★
Daddy Day Care ★
Mannæta með vængi
KVIKMYNDAGAGNRÝNI
Hilmar Karlsson
hkarl@dv.is
Jeepers Creepers 2 er enn ein
framhaldsmyndin á þessu fram-
haldsmyndaári og eins og allar þær
myndir ársins sem eru númer 2 í
röðinni þá er hún mun lakari en
frumsmíðin. Hvað varðar Jeepers
Creepers seríuna þá náði fyrsta
myndin upp góðum hrollvekju-
dampi þar sem meðal annars hið
gamalkunna dægurlag, Jeepers
Creepers, hjálpaði til. Því ágæta lagi
hefur nú verið fórnað og ekkert
sem minnir á það nema nafnið.
Regnboginn/Laugarásbíó:
Jeepers Creeper 2
★i
Jeppers Creepers 2 stendur nán-
ast alveg sem sjálfstæð kvikmynd.
Það sem hún á sameiginlegt með
fyrri myndinni er að til staðar er
ógnvekjandi skrímsli sem kemur
upp á yfirborð jarðar á 23 ára fresti
og hefur 23 daga til að mettast og
uppáhaldsfæðan er mannakjöt.
Einnig er hún beint framhald af
fyrri myndinni að því leyti að hún
gerist á 23. degi en fyrri myndin
gerðist hina 22 dagana.
í upphafi fáum við aðeins að
kynnast skrímslinu þar sem það
leggur til atlögu á bóndabæ einum.
í kjölfarið fylgjumst við með rútu,
fullri af skólakrökkum á heimleið.
Þarna ber vel í veiði fyrir mannæt-
una sem hindrar för rútunnar og
byrjar að gæða sér á farþegunum.
Til að lesendur geti áttað sig á því
hvernig skrímslið, sem krakkarnir
þurfa að verjast, hagar sér má segja
að það sé Jaws með vængi, það er
að segja það kemur með eldingar-
hraða að bráðinni sem á sér enga
vörn og rífur hana í sig. Skrímslið er
ódrepandi og eitt geðslegt atriðið er
þegar það endurnýjar höfuðið eftir
að hafa misst annan helminginn af
því gamla.
Það er ekki mikið á bak við
Jeepers Creepers 2, tónlist og hljóð
gera sitt til að ýta við ímyndunarafl-
inu og ekki veitir af því að oftar en
ekki myndast vandræðalegt tóm
þar sem ákaflega slakir ungir leikar-
ar reyna að sýna okkur hvemig það
er að verða ofsahræddur. Þegar
upp er staðið og aðeins hugsað til
baka er Ijóst að klaufalega hefur
verið haldið á spöðunum þegar
reynt var að útrýma skrímslinu.
Það er jú ódauðlegt en það varð að
ganga svo frá hnútunum að ein-
hverjir lifðu af ósköpin og að auð-
velt yrði að taka upp þráðinn og
gera Jeepers Creepers 3. Því miður
tókst aðeins það síðarnefnda. Við
megum því búast við mannætunni
enn einu sinni.
Lelkstjóri og handritshöfundun Victor
Salva. Kvikmyndataka: Don E.
FauntLeRoy. Tónlist: Bennett Salvay.
Aðallelkaran Ray Wise, Jonathan
Breck,Travis Schiffner, Eric Nenninger
Nicki Lynn Aycox og Lena Cardwell.
HRÆÐSLA: Reynt að verjast skrímslinu í skólarútunni.
Lífið .eftir
vinnu
Grófarhús: Sýning á ljós-
myndum Magnúsar Olafssonar
er í Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Grófarhúsinu í Tryggvagötu.
Myndirnar varpa ljósi á tfmabil-
ið frá aldamótunum 1900 fram
undir miðbik 20. aldar og bregða
upp svipmyndum frá tímabili
sem einkenndist af þjóðfélags-
breytingum.
Salurinn: Landsliðið í ópem-
söng - þau Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir, Gunnar Guðbjörnsson, Krist-
inn Sigmundsson og Jónas Ingi-
mundarson - hafa slegið ræki-
lega í gegn á stórtónleikum,
bæði í Salnum og úti á landi
undanfarna daga. í kvöld verða
þau í Salnum á aukaaukatón-
leikum sem hefjast kl. 21.
Hádegisfundur: Rabbfundur
Rannsóknastofu í kvenna- og
kynjafræðum verður í stofu 301 í
Árnagarði kl. 12.05-13.00 á
morgun, fimmtudaginn 2. októ-
ber. Guðrún H. Eyþórsdóttir
mannfræðingur verður með er-
indi sem hún nefnir „Forsendur
breytuvals f krabbameinsrann-
sóknum: Hin kynbundna nálgun
í skjóli hlutleysis".
Akureyri: Fyrirlestur verður á
vísindatorgi í dag kl. 16.30 í Þing-
vallastræti 23, stofu 14. Hann
nefnist „Samfélag og heilbrigði -
heilsufélagsfræðilegt sjónar-
horn“. Hermann Oskarsson fé-
lagsfræðingur íjallar um merk-
ingu heilbrigðishugtaksins og
kenningar um heilbrigði og
kynnir efni úr væntanlegri bók
sinni um tengsl félagslegra þátta
og heilbrigðis.
Gaukurinn: Styrktartónleikar
verða haldnir fyrir Götusmiðj-
una. Þeir sem fram koma eru
Dark Harvest, Sóldögg, Centaur,
Fæbbblarnir, Dúndurfréttir og
leynigestur. Kynnir verður Stein-
dór Andersen. Húsið opnað kl.
20.30.
Næsti bar: Dúettinn Súkkat
skemmtir gestum í kvöld. Hann
hefur leik kl. 22.
Pólitík: Vinstri hreyfmgin -
grænt framboð heldur aðalfund
á Græna hattinum, Hafnarstræti
96, Akureyri kl. 20.30 í kvöld.