Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Page 30
30 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003
Aðalsteinn Víglundsson látinn fara frá Fylki eftir stjórnarfund í gær:
„Er alls ekki sáttur"
HAPUNKTURINN: Aðalsteini Víglundssyni var mikið fagnað eftir að Fylkismenn urðu bikarmeistarar árið 2002. DV-mynd
BESTI ÞJÁLFARI FYLKIS
Aðalsteinn Víglundsson er besti þjálf-
ari Fylkis frá upphafi í efstu deild
samkvæmt tölfræðinni en undir hans
stjórn náði Fylkisliðið (58,3% stiga í
boði og vann einn stóran titil - bikar-
meistaratitilinn 2002. Liðið skoraði
þó bæði fleiri mörk og fékk á sig færri
mörk undir stjórn Bjarna Jóhanns-
sonar, fyrirrennara Aðalsteins í starf-
inu.
Besti árangur þjálfara Fylkis:
Þjálfarar I efstu deild:
Marteinn Geirsson 1989
Magnús Jónatansson 1993
Magnús Pálsson 1996
Þórir Sigfússon 1996
Bjarni Jóhannsson 2000-01
Aðalsteinn Víglundsson 2002-03
Hæsta hlutfall stiga í húsi:
Aðalsteinn Víglundsson 58,3%
Bjarni Jóhannsson 55,6%
Þórir Sigfússon 45,5%
Magnús Jónatansson 35,2%
Marteinn Geirsson 31,5%
Magnús Pálsson 14,3%
Flestir sigurleikir þjálfara: Aðalsteinn Víglundsson 19 (af 36)
Bjarni Jóhannsson 17(36)
Magnús Jónatansson 6(18)
Marteinn Geirsson 5(18)
Þórir Sigfússon 4(11)
Magnús Pálsson 1 (7)
Besti sóknarþjálfarinn: (mörk skor- uð að meðaltali í leik)
Bjarni Jóhannsson 1,81
Magnús Pálsson Aðalsteinn Víglundsson 1,71 1,64
Þórir Sigfússon 1,27
Magnús Jónatansson 1,22
Marteinn Geirsson 1,00
Besti varnarþjálfarinn: (mörk feng- in á sig að meðaltali í leik)
Bjarni Jóhannsson 1,08
Aðalsteinn Víglundsson 1,28
Þórir Sigfússon 1,45
Marteinn Geirsson 1,72
Magnús Jónatansson 1,94
Magnús Pálsson 2,00
Árangur Fylkis í efstu deild eftir árum:
1989 18 5 2 11 18-31 17
1993 18 6 1 11 22-35 19
1996 18 5 3 10 26-30 18
2000 18 10 5 3 31-16 35
2001 18 7 4 7 26-23 25
2002 18 10 4 4 30-22 34
2003 18 9 2 7 29-24 29
ooJ.sport@dv.is
Seinni partinn í gær bárust þær
fregnir frá stjórn knattspyrnu-
deildar Fyikis að ákveðið hefði
verið að segja upp þjálfara-
samningi við Aðalstein
Víglundsson sem hefur stýrt
liðinu undanfarin tvö ár. Aðal-
steinn segist ekki vera sáttur
við þau málalok.
„Nei, ég get engan veginn verið
sáttur,“ sagði Aðalsteinn í samtali
við DV Sport í gærkvöld. „Ég hafði
allan hug á að klára það sem við
vorum byrjaðir á en þeir voru
greinilega ekki á þeirri línu og töldu
mig ekki vera rétta manninn til að
stýra liðinu áfram. Þetta var alfarið
þeirra ákvörðun."
Evrópusæti ekki nóg
„Engu að síður geng ég með höf-
uðið hátt frá félaginu enda hef ég
náð besta árangrinum í sögu þess.
Árið í íyrra var það besta og við
„Engu að síður geng ég
með höfuðið hátt frá
félaginu enda hefég
náð besta árangrinum í
söguþess."
náðum að fylgja því eftir með Evr-
ópusæti í ár sem var þó greinilega
ekki nóg, að mati stjórnarinnar."
Aðspurður segir hann það klárt
mál að verið sé að senda hann frá
hálfkláruðu verki. „Þeir hafa sjálf-
sagt sínar ástæður fyrir uppsögn-
inni - einhverjar aðrar heldur en
bara gengið, því það kaupi ég ekki.“
Hann segir þó árin sín tvö í þjálf-
arastarfinu hjá Fylki hafa verið góð
þó svo að á ýmsu hafi gengið, eins
og í öllum störfum.
Metnaðurinn í lagi
Það má lesa úr uppsögninni að
stjórnin hafi ekki verið ánægð með
gengi liðsins á liðnu sumri og að 4.
sætið í deildinni hafi verið ekki það
sem búist var við í vor, þegar tíma-
bilið hófst. Aðalsteinn segir að kraf-
an um titil hafi ekki verið uppi á
borðinu sem slík en engu að síður
sé metnaður hans og leikmanna
liðsins sá að þeir vilji alltaf vera á
toppnum.
„I mínum huga skiptir engu máli
hvað mannskapurinn heitir, ég fer í
hvern einasta leik og mót með það
hugarfar að vinna og að vera í efsta
sæti. Metnaðurinn var vissulega til
staðar og að ástæðan fyrir brott-
rekstri mínum hafi verið metnaðar-
„Metnaðurinn var
vissulega til staðar og
að ástæðan fyrir
brottrekstri mínum hafi
verið metnaðarleysi
samþykki ég aldrei."
leysi samþykki ég aldrei," sagði Að-
alsteinn.
Að lokum sagðist Aðalsteinn ekki
vilja útiloka neitt hvað varðaði
framtíð sína í íslenskri knattspyrnu
en að dagvinnan sín, sem hefði
undanfarið setið á hakanum vegna
fótboltans, fengi nú fyrst og fremst
athygli sína.
„En það er ekki hægt að útiloka
neitt komi eitthvað til."
Hagur félagsins
Ásgeir Ásgeirsson, formaður
meistaraflokksráðs Fylkis, sagði í
samtali við DV Sport í gær að
ákvörðunin, um að rifta samningn-
um við Aðalstein hefði ekki verið
auðveld en hún hefði verið tekin
með hag félagsins fýrir brjósti.
„Þetta var mjög erfið ákvörðun
enda Aðalsteinn góður drengur og
félagi. Hann er hæfur þjálfari og
hefur gert margt gott á þeim tveim-
ur árum sem hann hefur stjórnað
liðinu en það var samt sem áður
einróma samþykkt innan stjómar-
innar að binda enda á þetta sam-
starf. Það var ekki hægt að tengja
tilfinningar við þessa ákvörðun -
hún var eingöngu hugsuð út frá hag
félagsins.
Margir þættir spiluðu inn í
Aðspurður sagði Ásgeir að það
væm margir þættir sem spiluðu inn
í þá ákvörðun stjórnarinnar að rifta
samningnum við Aðalstein. Þegar
hann var spurður um hvaða þættir
það hefðu verið þá vildi hann engu
svara og sagði óþarfa að fara út í
smáatriði.
„Það vom margir þættir sem
spiluðu inn í, þættir sem vom ekki
lagi en það er óþarfí að fara nánar
út í þá að svo stöddu. Það sem eftir
stendur er að ákvörðunin var tekin
eftir langa yfirlegu og var farsælust
fyrir félagið."
Tökum okkur tíma
Ásgeir sagði að nú myndu menn
beina kröftum sínum í að finna nýj-
an þjálfara sem fyrst.
„Við munum hefja leitina að nýj-
um þjálfara strax á morgun [innsk.
blm. í dagj. Við emm hins vegar á
þannig tímapunkti að við getum
flýtt okkur hægt. Við stefnum að því
að vera búnir finna þjálfara fyrir
mánaðamótin og munum leita út
fyrir landsteinana ef þess gerist
þörf. Það eina sem skiptir okkur
máli er að finna þjálfara sem getur
haldið Fylki í toppbaráttunni í efstu
deild og byggt upp farsælt lið.
Ásgeir neitaði því jafnframt að
Fylkismenn hefðu verið búnir að
setja sig í samband við Loga
Ólafsson og Eyjólf Sverrisson um
að taka við þjálfun liðsins.
„Þetta em hæfir menn en við
höfum aldrei talað við þá um
þjálfarastarfið hjá Fylki." •
eirikurst@dv.is/oskar@dv.is
Skúli „Tyson" Vilbergsson:
í atvinnumennskuna?
síðar í mánuðinum en ég gæti
beðið með að tilkynna ákvörðun
mína fram í desember þannig að
„í rauninni stendur lítið
í vegi fyrirþví að ég
taki þessu tilboði.
Þetta er einfaldlega
stór ákvörðun því efég
færi til Bandaríkjanna
yrði ekki aftur snúið."
ég ætla að hugsa mig vel um.“
Skúli er 19 ára og nemur í
Framhaldsskóla Suðurnesja.
Hann er þar á 3. ári en segist
myndu klára skólann, hvort sem
hann færi utan eða ekki.
„Eins og dæmið lítur út núna
færi ég út og yrði hjá honum í 4-5
mánuði áður en ég færi að keppa í
maí á næsta ári. Ég myndi þó alltaf
vera með annan fótinn héma
heima.“
Hann segir það frábært ef hann
fengi tækifæri í bandaríska
hnefaleikaheiminum enda það
sem hann hefur stefnt að í
áraraðir. „í rauninni stendur lítið í
vegi fyrir því að ég taki þessu
tilboði. Þetta er einfaldlega stór
ákvörðun því ef ég færi til
Bandaríkjanna yrði ekki aftur
snúið. Þannig að ég mun hugsa
mig vel um á næstu vikum," sagði
þessi stórefnilegi hnefaleikakappi.
VlGALEGUR: Skúli „Tyson“ Vilbergsson íkeppnisham.
Hnefaleikakappinn Skúli Vil-
bergsson er með í höndunum
tilboð frá umboðsmanni í
Bandaríkjunum um að gerast
atvinnumaður í íþróttinni
vestra. Skúli sagði í samtali við
DV Sport í gær að slík tilboð
kæmu aðeins einu sinni á lífs-
tíð.
DV-mynd E.ÓI.
„Það er í raun þannig að þessi
maður vill fá mig út til sín og
myndi ég vera á launaskrá hjá
honum. Hann yrði allt í senn
þjálfari minn og umboðsmaður og
fengi í staðinn tekjur af þeim
bardögum sem ég myndi
hugsanlega taka þátt í,“ sagði
Skúli.
„Ég býst við að svara honum