Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Blaðsíða 8
8 FERÐIR MÁNUDAGUR 2. JÚNI2003 Ferðir Umsjón: Vilmundur Hansen Netfang: kip@dv.is Evrópsk menning áberandi í Boston SKÝJAKUÚFAR í BOSTON: Arkitektúr í Boston er mjög fjölbreyttur. Þar er að finna hverfi með þröngum, hlykkjóttum götum og húsum úr rauðum múrsteini sem minnir á borgir í Evrópu, millistéttarhverfi með klassískum timburhúsum á tveimur hæðum en í miðborg- inni teygja skýjakljúfar sig til himins. Boston, stjórnsetur Massachu- settsfylkis, er sú borg í Bandaríkj- unum sem líkist Evrópu mest og þykir mikil menningar- og sögu- borg enda stundum kölluð Aþena Bandaríkjanna. Borgin, sem stend- ur við mynni Charles-árinnar innst í Massachusetts-flóa, um þrjú hundruð kílómetra frá New York, er á margan hátt spennandi kostur fyrir ferðamenn og býður upp á fjölbreytta afþreyingu árið um kring. Borgin, sem byggðist frá hæðunum Beacon, Forts og Copps, heiur mikið upp á að bjóða fyrir ferðamenn og Qölda áhugaverðra staða til að skoða. Boston er höfuðborg Massachusetts og ein mesta menningarborg Bandaríkj- anna. Nafríið Massachusetts kemur úr máli indíána og þýðir stóra íjall. Borgin er rómuð fyrir náttúrufegurð og óþijót- andi möguleika til útivistar og skemmtunar. Boston er sögufræg hafríarborg og var á sínum tíma þriðja stærsta höfn breska heimsveldisins. Nú er hún blómleg verslunar- og iðn- aðarborg og þar eru fleiri háskólar en í mörgum fylkjum Bandaríkjanna. Frægastir em M.I.T. og Harvard sem eru í tvíburaborginni Cambridge, Litla- Englandi, þar sem íbúamir tala amer- ísku með breskum áherslum og hreim. Boston skipar stóran sess í sögu Bandríkjanna og þar hófst sjálfstæðis- barátta þjóðarinnar. Árið 1783 varð Massachusetts fyrsta fylkið í Bandaríkj- unum til að banna þrælahald vegna góðrar framgöngu þeldökkra her- manna í frelsisstríðinu. Boston er sögufræg hafnarborg og var á sínum tíma þriðja stærsta höfn breska heimsveldisins. Nú er hún blómleg verslunar- og iðnaðarborg og þar eru fleiri háskólar en í mörgum fylkjum Bandaríkjanna. Arkitektúr í borginni er fjölbreyttur. Þar er að finna hverfi með þröngum, hlykkjóttum götum og húsum úr rauð- um múrsteini sem minnir á borgir í Evrópu, millistéttarhverfi með klass- ískum timburhúsum á tveimur hæð- um, stómm garði og tilkomumiklum hlyni fyrir ffarnan húsið en í miðborg- VERSLANIR í RÖÐUM: Helstu verslunar- göturnar eru Tremont og Washington Street, skammt frá Beacon Hill. Við Was- hington Street er að finna Basement-vöru- húsið þar sem hægt er að fá merkjavöru á góðu verði og við Charles Street eru antlkverslanir í röðum. inni teygja glerklæddir skýjakljúfar sig til himins. Fyrsta Scientology-kirkjan var stofn- uð í Boston og í borginni em jafnframt höfuðstöðvar vísindakirkjunnar. í Boston er að finna eitt stærsta pípuorg- elíheimi. Að njóta lífsins Boston er upplögð borg fyrir þá sem vilja njóta lífsins án þess að horfa um of í aurinn því að verðlag þar þykir nokk- uð hátt. í borginni er að finna úrvals- skemmtistaði, leikhús, söngleikjahús, djass- og blússtaði og staði sem bjóða upp á popp- og danstónlist auk þess sem borgin er rómuð fyrir klassíska tónlist. Icelandair flýgur sex sinnum í viku til Boston og býður þriggja nátta ferð frá tæpum fimmtfu og fimm þúsund krónum. Verðið miðast við tvo f her- bergi í þrjár nætur. Innifalið er flug, gisting, flugvallarskattar og þjónustu- gjöld. í boði er sérstök ferð yfir þakkar- gjörðarhátíðina 27. til 30. nóvember. Slík ferð kostar tæpar sextíu þúsund krónur miðað við tvo í herbergi. Inni- falið er flug, gisting í þrjár nætur, „Thanks giving dinner'*, fjögurra tíma skoðunarferð um Boston auk rútu- ferða til og frá flugvellinum í borginni, þjónustugjöld og flugvallarskattar. Boston er tilvalin borg fyrir sælkera því að þar er að finna mikið af úr- valsveitingastöðum með kræsingar í boði frá öllum heimshomum. Það má finna marga góða veitingastaði á Charles Street við Beacon Hill, í leik- húshverfinu sunnan við Boston Common, á Newbury Street við Back Bay og við bakka Charles-árinnar í nánd við Cambridgeside Galleria Mall. Einnig er gaman að fara á P.F. Chang’s og fá sér salatvefju eða appelsínu- kjúkling. Staðurinn býður upp á góðan mat á góðu verði og stemningin þar getur verið mjög sérstök. Þjónamir í gallabuxum, hvítum skyrtum, með hvítar svuntur ffarnan á sér og í hvítum strigaskóm. Þeir sem vilja geta skoðað matseðilinn á www.pfchangs.com/ cuisine/menu-main.jsp og ákveðið réttinn fyrir fram. Enginn ætti heldur að sleppa því að borða humar á notalegu veitingahúsi við höfriina eða risarækju á lidum, lát- lausum og ódýmm stað í Kínahverfinu. Almenningssamgöngur Helsti sjarminn við elsta hluta borg- arinnar er að hann var byggður fyrir tíma bílaumferðar. Götur em því þröngar og auðvelt að komast allra sinna ferða fótgangandi. Elsta neðanjarðarlest Bandaríkjun- um er í Boston og fyrsta neðanjarðar- lestastöðin sem byggð var þar í landi er við Park Street, opnuð 1897. Park Street stöðin er helsta skiptistöð fyrir neðan- jarðarlestir í borginni og allar lestir merktar „inbound" em á leið þangað. Neðanjarðarlestir í Boston bmna eftir fjórum „línum" - rauðri, blárri, grænni og appelsínugulri - og em án efa besti kosturinn þegar ferðast á um borgina. Lestakerfið þykir nokkuð ömggt fyrir ferðamenn og lítið um rán nema þá helst á nokkmm stöðum við appel- sínugulu línuna. Þeir sem ekki vilja ferðast neðan- jarðar geta tekið sporvagninn á styttri leiðum en strætisvagn eða leigubfl ef ferðast á milli borgarhluta. Mikill fjöldi safna Meðal áhugaverðra staða í Boston og nágrenni em Boston Athenaeum sem er eitt elsta bókasafn landsins og gríðarlega stórt, á fimm hæðum; Frels- isbrautin eða Freedom Trail göngu- leiðin um miðbæinn og sögustaðurinn Beacon Hill. Gestir í borginni ættu ekki heldur að láta John F. Kennedy bóka- og listasafnið fram hjá sér fara en Kennedy var fæddur í Boston. Unn- endur málverka ættu hiklaust að lfta inn í Museum of Fine Arts, sem var stofnað 1870, en þar er meðal annars hægt að skoða á fimmta tug málverka eftir Monet. í Boston er reyndar þvflflc- ur fjöldi safna að aðeins er hægt að minnast á nokkur þeirra. Safn Harvard-háskólans, Arthur M. Sackler Museum, Fogg Museum og Busch- Reisinger Museum em öll merkileg. Isabella Stewart Gardner safríið er sagt ævintýri lflcast fyrir fagurkera; yndisleg- ur blómagarður og myndlist á þremur hæðum. Áhugamenn um sögu geta farið í Salem-úthverfið og gengið um slóðir frægasta galdrafárs í sögu Bandaríkj- anna, nomaveiðanna í Salem 1692, og skoðað safn f Disney-stfl, tileinkað þeim. Fárið spannst út frá veikindum tveggja prestsdætra og leiddi til þess að nítján karlar og konur enduðu ævina í gálganum, einn karlmaður var kram- inn til dauða og sautján til viðbótar lét- ust í fangelsi. Helsm verslunargömmar em Tremont og Washington Street, skammt frá Beacon Hill. Við Was- hington Street er að finna Basement- vömhúsið, þar sem hægt er að fá merkjavöru á góðu verði, og við Charles Street em antíkverslanir í röð- um. Þeir sem vilja aftur á móti kaupa bækur ætm að skreppa á Harvard Square í Cambridge. Helsti sjarminn við elsta hluta borgarinnar er að hann var byggður fyrir tíma bílaumferðar. Göt- ur eru því þröngar og auðvelt að komast allra sinna ferða fótgangandi. Daginn eftir þakkargjörðardag byrja frábærar útsölur í Boston og liefð er fyrir því að verslanir séu opnaðar eldsnemma um morguninn, yfirleitt um sex- eða áttaleytið, og hafa þá jafn- an myndast langar raðir af fólki, stað- ráðnu í að gera góð kaup. Hjátrú íbúar Boston eiga sína hjátrú eins og aðrir. Þar í borg segja menn að ef hand- klæði dettur í gólfið komi ókunnugur í heimsókn, ef menn missa skeið sé von á bami í heimsókn, konu ef gaffall dett- ur í gólfið og karlmanni ef það er hníf- ur sem fellur úr hendi. Þegar fólk miss- ir kartöflu í gólfið lítur einhver kær- kominn óvænt inn. Afkomendur írskra innflytjanda, sem flykktust í stómm stfl til Boston eftir að kartöflumygla kom upp í heimalandinu árið 1847, segja að álfamir hirði hálfar eggjaskumir og noti þær sem báta til að sigla á yfir haf- ið til írlands. Bara það besta Boston sameinar margt af því besta í bandarískri menningu, auk þess að hafa á sér evrópskt yfirbragð. Á söfríun- um er hægt að glöggva sig á sögu Bandarflcjanna og skoða muni frá öll- um tímabilum listasögunnar. Íþróttalíf í borginni er einnig heillandi og áhuga- vert fyrir áhugamenn um slflct enda hægt að fylgjast með frægum banda- rískum liðum f íþróttagreinum á borð við amerískan fótbolta, hafríabolta og körfubolta keppa í stómm og glæsileg- um íþróttahöllum þar sem stemningin er engu lflc. BEÐIÐ EFTIR LEIK: Hafnabolti er mjög vinsæll í Boston og nágrenni og gaman að skreppa í göngutúr í Boston Common garðinum og fylgjast með innfæddum spila. ÁHUGAVERÐIR TENGLAR Leikhús, verslun, tónlist, golf... - boston.msn.citysearch.com Museum of Fine Arts - www.mfa.org/home.htm Salem Witch Museum - www.salemwitchmuseum.com/ Harward Square - www.harvardsquare.com Boston Common og garöamir - www.pps.org Vefur borgarráös Boston - www.ci.boston.ma.us FeröamálaráÖ í Boston - www.bostonusa.com Tímarit um Boston á Netinu - www.bostonmagazine.com Bestu veitingastaöimir í Boston - www.wheretoeatboston.com Boston online - www.boston-online.com Söfii í Boston - www.boston-online.com/museums íþróttiríBoston - www.boston-online.com/sports Upplýsingar Frommer's um Boston - www.frommers.com Safn fyrir bömin - www.bostonkids.com ísambýli við sveitalubba Að vera sveitó hefur alltaf verið hall- ærislegt. Fágaðir heimsborgarar, eins og margir fbúar höfuðborgarsvæðisins, tala gjaman um hvað sé fallegt í sveit- inni en líta um leið niður til fólksins sem þar býr. Sveitalýðurinn er gjaman menningarsnauður, tollir ekki í tísk- unni og þekkir ekki nýjustu „trendin". í bókinni At Home in the Heart of Appalachia er fjallaö á áhugaverðan hátt um svipaðan hugsunarhátt Bandaríkjamanna gagnvart íbúum Appalachia. Höfundurinn John O’Bri- an segir að í huga margra Bandaríkja- manna séu fjallabúarnir undarlegir og heimskir sveitalubbar með lifríaðar- hætti sem þóttu við hæfi fyrir hundrað ámm. Borgarbúar gera sér jafnvel upp rómatískar hugmyndir um saklaust náttúmfólk, líkt og frumbyggja, ein- hvers staðar í frumskógum Affflcu eða Suður-Amerflcu sem réttast væri að friða. I bókinni segir höfundur frá því þeg- ar hann flytur til Appalachia-fjalla þangað sem hann á ættir að rekja. Fað- ir hann skammaðist sín fyrir uppmna sinn og reyndi að brjótast undan hon- um með því að flytja burt en gat þó aldrei borið höfuðið hátt. O’Brian lýsir því hve hann skammaðist sín fyrir uppmna sinn framan af aldri og hvem- ig hann reynir að koma skikki á sam- band sitt við föður sinn. Inn í söguna fléttar hann sögu sveitarinnar og fólks- ins sem þar býr og leggur til atlögu við fordómafúllar sögusagnir. Bókin renn- ur þægilega í gegn án teljandi hnökra .og það kom mér reyndar á óvart hve höfríndi tekst að gera efnið áhugavert með jafrí átakalidum stfl. Helsti galli bókarinnar er hversu sjálfhverfur höf- undurinn er. Á köflum fannst mér óþægilegt hversu margt sem hann seg- ir frá á sér hliðstæðu á Islandi. At Home in the Heart of Appalachia kostar 1995 krónur og fæst í Bókabúð Máls og menningar við Laugarveg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.