Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 DVSPORT 31 Gazza á réttri leið KNATTSPYRNA: Gamla kempan Paul Gascoignetekur miklum framförum hjá Wolves þessa dagana en hann lék annan leik með varaliði félags- ins þegar þeir töpuðu fyrir WBA, 2-1. Mark Wolves var eign Gazza en Artim Sakiri fylgdi eftir glæsilegri auka- spyrnu gamla töframannsins. Gazza lék aftur í 90 mínútur og var í tvígang nærri því að skora fyrir Úlfana. Það skyggði á ánægju Gazza að hann meidd- ist undir lokin og ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru. Dave Jones, stjóri Wolves, hefur ekki lokað á að bjóða Gazza samning ef hann heldur áfram að standa sig vel og því gætu meiðslin komið sér illa fyrirGascoigne. Owen ekki með gegn Steaua KNATTSPYRNA: Michael Owen fór ekki með félögum sínum í Liverpool til Búkarest í gær en þar mæta þeir Steaua í UEFA-bikarnum á fimmtudags- kvöld. „Hann hefði hugsanlega getað Sþilað þennan leik en það hefði verið áhætta og hana er ég ekki tilbúinn að taka," sagði Gerard Houllier, framkvæmda- stjóri Liverpool. Við eigum mikilvægan leikgegn Man. Utd á sunnudag og ég vil geta notað hann í þeim leik." Owen meiddist á ökkla í leik gegn Leeds í lok október og lék ekkert fyrr en hann spilaði 80 mínútur gegn Fulham um síðustu helgi þar sem meiðslin tóku sig upp á ný. Abramovich í vandræðum? KNATTSPYRNA: Roman Abramovich, hinn rússneski eigandi Chelsea, gæti verið í slæmum málum því að með- limur rússneska þingsins hefur farið fram á að olíufyrirtækið Sibneft verði rannsakað vegna ýmissa mála en Abramovich er einn stærsti hluthafi þess. Þingmaðurinn heldur því fram að Sibneft hafi svikið út millj- arða króna á undanförnum ár- um á vafasaman hátt og vill að eignirfyrirtækisins og hluta- bréf verði fryst meðan á rann- sókn stendur. Abramovich hefur verið að selja hluti sína í rússneskum fyrirtækjum undanfarið, sem hefur ýtt undir orðróm þess efnis að hann sé að flýja land varanlega. slátraði Lazio og skoraði - Van Nistelrooy hrökk í gang á nýjan leik ánægða gerði mig mjög glaðan," sagði Ranieri sem var mjög ánægð- ur með markvörðinn Carlo Cudicini. „Carlo hefur gert ein mis- tök á árinu en hver gerir ekki mis- tök? Hann er frábær markvörður og við höfum allir mikla trú á honum." Real komið áfram Real Madrid varð fyrsta félagið til að tryggja sig áfram þegar það gerði markalaust jafntefli gegn Partizan Belgrad. Iker Casillas, markvörður Real, fór á kostum í leiknum. „Ég vil hrósa öllum mínum leik- mönnúm en þó sérstaklega Casillas," sagði Carlos Queiros, þjálfari Real Madrid, að leik lokn- um. „Hann varði oft frábærlega og færði okkur stigið sem vantaði. Okkur ber skylda til þess að standa okkur vel í næstu tveimur leikjum þótt við séum komnir áfram. Við viljum vera efstir í riðlinum og við munum klára þessa leiki með sæmd.“ Þjóðverjinn Lothar Matthaus, þjálfari Partizan, var ánægður með sfna menn. „Ég er ánægður með framlag minna manna en ekki úrslitin. Við fengum tvö góð tækifæri til að klára leikinn en klikkuðum Olilega. Við eigum enn möguleika og ég hef trú á að við komumst áfram." „Ég vil hrósa öllum mínum leikmönnum en þó sérstaklega Casillas. Hann varði oft frábær- lega og færði okkur stigið sem vantaði." Milan í kröppum dansi AC Milan lenti í kröppum dansi gegn Club Brugge. Alessandro Nesta var rekinn af velli um miðjan fyrri hálfleik en brasilíska undra- barnið Kaka bjargaði Evrópumeist- urunum með glæsilegu marki und- ir lokin. „Við vorum mjög óheppnir en svona er fótboltinn," sagði hinn norski þjálfari Brugge, Trond Sollied. „Við spiluðum mjög vel og áttum í það minnsta annað stigið skilið." Carlo Ancelotti, þjálfari Milan, var ekki byrjaður að fagna farseðli í næstu umferð enda er riðillinn galopinn. „Það eru tveir leikir eftir og 6 stig í pottinum. Við verðum að vera vel einbeittir ef við ætlum okkur áfram. Brugge voru mjög erfiðir mótherjar og spiluðu mjög vel og eiga án efa góðan möguleika á að komast áfram." Fjör hjá Celta og Ajax Það var mikið fjör í leik Celta Vigo og Ajax en Spánverjarnir höfðu betur að lokum, 3-2. „Þessi sigur var mjög mikilvægur fyrir sjálfstraustið hjá Celta-liðinu," sagði Miguel Angel Lotina, þjálfari Celta. „Ef við hefðum verið aðeins heppnari í síðustu leikjum værum við komnir áfram." Ronald Koeman, þjálfari Ajax, sagði að betra liðið hefði sigrað. „Þetta var opinn og skemmtileg- ur leikur. Þótt Celta byrjaði mjög vel þá stjórnuðum við leiknum. En miðað við heildarframmistöðu þeirra áttu þeir sigurinn skilinn." Góður sigur Besiktas Besiktas vann mjög mikilvægan sigur gegn Sparta Prag og þjálfari þeirra, Mircea Lucescu, var bjart- sýnn á framhaldið eftir leikinn. „Við stefnum á að ná stigi gegn Lazio og þessi sigur í kvöld gefur okkur góða von um að komast áfram. Ég vil óska öllum mínum leikmönnum til hamingju því þeir léku reglulega vel." Sparta á næst fyrir höndum ferð til Chelsea og þeir voru ósáttur við að fara stigalausir frá Tyrklandi. „Okkar taktík gekk mjög vel upp og það eru mikil vonbrigði að fara stigalausir heim," sagði Jiri Kotrba, þjálfari liðsins. henry@dv.is E-riðill: Man. United-Rangers 3-0 1-0 Diego Forlan (6.), 2-0 Ruud Van Nistelrooy (43.), 3-0 Ruud Van Nistelrooy (60.). Panathinaikos-Stuttgart 1-3 1-0 Michalis Konstantinou (59.), 1-1 Panagiotis Fissas, sjm. (68.), 1-2 Kevin Kuranyi (74.), 1-3 Andre- as Hinkel (76.). Staöan: Man. Utd 4 3 0 1 10-2 9 Stuttgart 4 3 0 1 8-4 9 Rangers 4 1 1 2 3-6 4 Panathin. 4 0 1 3 2-11 1 F-riðill: P. Belgrad-Real Madrid 0-0 Porto-Marseille 1-0 1-0 Dmitri Alenitchev (21.). Staðan: R. Madrid 4 3 1 0 8-3 10 Porto 4 2 1 1 6-6 7 Marseille 4 1 0 3 7-8 3 P. Belgrad 4 0 2 2 1-5 2 G-riðill: Besiktas-Sparta Prag 1-0 1-0 Ronaldo Guiaro (82.). Lazio-Chelsea 0-4 0-1 Hernan Crespo (15.), 0-2 Eiður Smári Guðjohnsen (70.), 0-3 Damien Duff (75.), 0-4 Frank Lampard (80.). Staðan: Chelsea 4 3 0 1 7-3 9 Besiktas 4 2 0 2 4-4 6 S. Prag 4 1 1 2 4-5 4 Lazio 4 j 1 2 5-8 4 H-riðill: Celta Vigo-Ajax 3-2 1-0 Peter Luccin, víti (25.), 2-0 Savo Milosevic (38.), 2-1 Wesley Sonck (53.), 3-1 Rogerio Vagner (62.), 3-2 Rafael Van Der Vaart (81.). Club Briigge-AC Milan 0-1 0-1 Ricardo Kaka (85.). Staðan: AC Milan 4 2 1 1 2-1 7 Ajax 4 2 0 2 5-4 6 CeltaVigo 4 1 2 1 4-4 5 Cl. Brúgge 4 112 2-4 4 1 . D E I L D ENGLAND Úrslit: Gillingham-Sunderland ZM 1-3 Preston-Watford 2-1 Sheff. Utd-Crewe 2-0 Walsall—I Mott. Forest 4-1 Staðan: Wigan 17 9 6 2 26-13 33 WBA 16 10 2 4 23-13 32 Sheff. Utd 17 9 4 4 28-18 31 Norwich 16 9 4 3 24-16 31 Sunderl. 17 9 4 4 22-12 31 West Ham16 7 7 2 19-11 28 Ipswich 17 8 3 6 32-26 27 Millwall 17 7 6 4 21-16 27 Preston 17 8 2 7 25-20 26 Cardiff 16 6 6 4 27-16 24 N. Forest 17 7 3 7 29-23 24 Reading 16 7 3 6 23-19 24 Crewe 17 7 3 7 18-21 24 Walsall 17 6 4 7 22-20 22 Coventry 15 5 5 5 22-22 20 Burnley 16 5 5 6 24-29 20 Watford 17 5 4 8 18-22 19 Gillingham17 5 4 8 19-29 19 Stoke 16 4 5 7 19-22 17 C. Palace 16 4 4 8 «0-29 16 Derby 17 3 5 9 16-31 14 Rotherh. 17 2 7 8 10-26 13 Bradford 16 3 3 10 15-27 12 Brynjar Björn Gunnarsson var á bekk Nottingham Forest en kom ekki við sögu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.