Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Qupperneq 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 Útlönd Heimurinn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Al-Qaeda að baki árásinni Óðinn og Þór viðurkenndir HRYÐJUVERK: Mannskæðar árásir á hótel í eigu ísraela í Mombasa í Kenía fyrir ári, svo og mislukkuð flugskeytaárás á ísraelska farþegaþotu, voru verk liðsmanna al-Qaeda sem hlutu þjálfun sína í nágranna- landinu Sómalíu. Og þar fengu þeir einnig vopnin. Þetta kem- ur fram í uppkasti að skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar vinna að. Að minnsta kosti fjórir meintir hryðjuverkamenn halda enn til í Sómalíu og frekari vopn kunna að hafa verið flutt þang- að með það fyrir augum að nota þau til hryðjuverka í nær- liggjandi löndum. Skýrslan var skrifuð af nefnd sérfræðinga sem er að rann- saka vopnasmygl til Sómalíu. TRÚARBRÖGÐ: Þess verður sennilega ekki langt að bíða að hinirfornu norrænu guðir Óð- inn og Þór njóti opinberrar við- urkenningar í Danmörku, að því er í Kristeligt Dagblad segir. Kirkjuyfirvöld hafa í mörg ár neitað að viðurkenna samtökin Forn Sidr, sem er dönsk útgáfa af íslenska Ásatrúarfélaginu. Svo virðist sem síðasta umsókn ásatrúarmanna hafi fengið já- kvæðari viðtökur og að grænt Ijós hafi verið gefið fýrir viður- kenningu. Opinber viðurkenning hefur það meðal annars í för með sér að trúfélagið fær leyfi til að framkvæma vígslur sem hafa fullt lagalegt gildi. Meira en þúsund ár eru liðin síðan Danir köstuðu ásatrúnni. Skæruárásir ógna uppbyggingunni segir Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra BNA Paul Wolfowitz, aðstoðarvarn- armálaráðherra Bandaríkjanna, viðurkenndi í gær að sífelldar skæruárásir andstöðuhópa í írak væru farnar að ógna upp- byggingarstarfinu í landinu. Wolfowitz kenndi fámennum hópum stuðningsmanna Saddams Husseins, fyrrum íraksforseta, um árásirnar og sagði að ofbeldið væri þegar farið að draga úr árangrinum við heildaruppbygginguna. „Þess vegna er nauðsynlegt að fá fleiri fraka til þess að taka þátt í vörnum landsins," sagði Wolfowitz á blaðamannafundi sem hann boð- aði til í Washington í gærkvöld, skömmu eftir að sprengjuárás hafði verið gerð á aðalstöðvar bandaríska hersins í Bagdad annað kvöldið í röð með þeim afleiðing- um að að minnsta kosti fjórir starfsmenn írösku bráðabirgða- stjórnarinnar slösuðust. Hræðast frelsið mest „Erlendir hryðjuverkamenn eru að reyna að skapa skelfingarástand en frelsið er það sem þeir sjálfir hræðast mest," sagði Wolfowitz sem er nýkominn heim frá írak þar sem hann komst sjálfur í hann krappan þegar flugskeytaárás var gerð á hótelið þar sem hann dvaldi. „Það þarf ekki marga hryðju- verkamenn til þess að standa fyrir árás en alvarlegar afleiðingar þeirra geta hæglega gefið ranga mynd af stöðunni." Wolfowitz, sem af mörgum er talinn helsti skipuleggjandi hern- aðarins í frak, lagði einnig áherslu á að góður árangur hefði þegar náðst í aðgerðunum í frak og fór yfir það sem hann sjálfur kallaði afrekalista Bandaríkjamanna. Hann sagði að takmarkið væri meðal annars að styrkja írösku ör- yggissveitirnar verulega með aukn- um liðsafla, skipa nýja dómsstóla og styrkja frjáisa fjölmiðlun og upp- lýsingaflæði. Ollu engum skemmdum Árásin í höfuðstöðvar Banda- ríkjahers í miðborg Bagdad í gær- kvöld var mjög öflug og sögðu sjón- arvottar að að minnsta kosti þrem- „Erlendir hryðjuverka- menn eru að reyna að skapa skelfingarástand en frelsið erþað sem þeir sjálfir hræðast mest/'sagði Wolfowitz ur sprengjum hefði verið varpað að byggingunni. Byggingar í nágrenn- inu hefðu skolfið og fundist fyrir titringnum alla leið yfir á hinn bakka Tigris-árinnar. „Sprengingarnar voru mjög kröftugar og háværar," sagði sjón- arvottur en að sögn talsmanns bandaríska hersins í Bagdad ollu þær engum skemmdum né meiðsl- um innandyra. Bandarískir hermenn hófu þegar leit að árásarmönnunum í ná- grenni höfuðstöðvanna og með- fram ánni Tigris en án árangurs. Að sögn talsmanns hersins var árásin í gær svipuð þeirri á mánudaginn en þá var einnig varpað þremur sprengjum að höfuðstöðvunum án þess að valda skaða. Þá féll einn bandarískur hermað- ur auk þess sem tveir aðrir særðust þegar jarðsprengja sprakk undir herbfl í Bagdad í gær og er tala fall- inna bandarískra hermann í frak þá komin í 252 síðan stríðið hófst í mars. í gær staðfesti breska hermála- ráðuneytið svo að einn breskur hermaður hefði fallið í átökum á föstudaginn og er tala fallinna breskra hermanna þá komin í 52 frá upphafl stríðsins. Spánverjar fluttir á brott Á sama tíma og bandarísk stjórn- völd reyna allt til þess að koma á stöðugleika í frak ákváðu spænsk stjórnvöld, sem dyggilega hafa stutt stríðsrekstur Bandaríkjamanna í írak, að kalla heim sex af 26 manna starfsliði sendiráðs sfns í Bagdad. Að sögn Önu Palacio, talsmanns spænska forsætisráðuneytisins, var ákveðið að flytja sendiráðsmenn- ina úr landi af öryggisástæðum eft- ir sprengjuárásina á höfuðstöðvar Rauða krossins og þrjár lögreglu- stöðvar í Bagdad sem urðu að minnsta kosti 35 manns að bana. Að sögn Palacio stendur alls ekki til að loka sendiráðinu og flytja háttsetta sendiráðsmenn á brott. „Þessir sex sem fluttir verða á brott hafa unnið við hjálpar- og þróunar- störf og munu aðeins dvelja tíma- bundið í Amman í Jórdaníu á með- an unnið er að því að finna fyrir þá öruggara húsnæði í frak," sagði Palacio. UPPBOÐ Eftirtaliö lausafé verður boöið upp aö Hlíöarvegi 16, Hvols- velli, miðvikudaginn 12. nóvem- ber 2003 kl. 16.00: D655AS Stroll, stjörnumúgavél, árg. 2002, nr. 6108547.________ Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp- boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á HVOLSVELLI UPPBOÐ Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins aö Austurvegi 6, Hvolsvelli, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Geitasandur 8, Hellu, þing. eig. Sig- urður K. Sveinbjörnsson, gerðarbeið- endur fbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður starfsm. rík. B-deild, Rangaárvalla- hreppur og Vátryggingafélag íslands hf., miðvikudaginn 12. nóvember 2003 kl. 11.00. Núpur H, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Sigrún Kristjánsdóttir, gerðar- beiðendur Bifreiðaverkstæðið Klettur ehf., Lánasjóður landbúnaðarins og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, miðviku- daginn 12. nóvember 2003 kl. 11.00. SÝSLUMAÐURINN Á HVOLSVELLI Forsetinn á Sri Lanka búinn að lýsa yfir neyðarástandi Forseti Sri Lanka lýsti yfir neyðarástandi í landinu í morgun, daginn eftir að hún rak þrjá lykilráðherra úr embætti og sendi þingið heim. Chandrika Kumaratunga forseti rak þrjá ráðherra f gær og leysti upp þingið. Ranil Wickramesing- he forsætisráðherra brást æfur við og sagði að óvæntri ákvörðun for- setans væri beint gegn tilraunum manna til að brúa bilið milli ólflcra kynþátta á Sri Lanka. Þá sagði for- sætisráðherrann að ákvörðunin myndi hafa í för með sér „ringul- reið og stjórnleysi". Of mikil eftirgjöf Kumaratunga sakaði rflcis- stjórnina, í ávarpi til þjóðarinnar í gær, um að gefa of mikið eftir í viðræðum við uppreisnarmenn tamfla, svokallaða Tígra. Flokkur forsetans, sem er í stjórnarandstöðu á þinginu, lýsti HERMENN Á VERÐI: Hermenn voru sendir að mörgum helstu stjórnarbyggingunum í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, í gær eftir að forsetinn rak þrjá ráðherra úr embætti og sendi þingmenn til síns heima til 19. nóvember. áhyggjum sínum af tillögum tamfla um sjálfstjórn í norðaust- anverðu landinu. Nýjustu tillög- urnar gera ráð fyrir mun meira sjálfstæði en stjórnvöld hafa hing- að til viljað veita þeim. Þær verða þó grundvöllur nýrra friðarvið- ræðna sem hefjast eiga snemma á næsta ári. Vopnahlé heldur Ráðgjafl forsetans sagði í gær að vopnahléssamningurinn, sem Norðmenn höfðu milligöngu um að yrði samþykktur í febrúar 2002, myndi halda. Wickramasinghe forsætisráð- herra, sem er í heimsókn f Was- hington, sagði að forsetinn hefði stefnt í voða tilraunum til að binda enda á langvarandi borg- arastríð á Sri Lanka. Kumaratunga ítrekaði að hún væri staðráðin í að vinna að lausn átakanna við Tígrana sem hafa kostað þúsundir mannslífa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.