Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Qupperneq 16
16 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5813-550 5810
Russell Crowe er ekkert hörkutól
Ástralski leikarinn Russell Crowe
segist ekki það hörkutól sem marg-
ir haldi og hafi til dæmis þurft að
takast á við bæði sjó- og loft-
hræðslu þegar hann var við ugp-
tökurá síðustu mynd sinni, The Far
Side of the World, sem byggð er á
sjóferðaskáldsögunni Master and
Commander, en þar fer hann með
hlutverk Jack Aubrey skipstjóra og
hetju sem kann best við sig uppi í
möstrum í ólgusjó. Crowe segir
ótta sinn tengjast því atviki þegar
hann sem barn lenti í hrakningum
úti fyrir ströndum Ástralíu eftir að
bátur hans varð bensínlaus.Til þess
að undirbúa sig fyrir hlutverkið
sigldi Crowe hundruð sjómílna um
Suðurhöf en tókst þó ekki alveg að
vinna bug á sjóhræðslunni. „( upp-
hafi varð ég að taka sjóveikipillur
en var hættur því og orðinn nokk-
uð öruggur með mig þegar upp-
tökurnar hófust. En þá tók loft-
hræðslan við. (eitt skipti ætluðu
þeir að senda aðstoðarleikara upp í
reiðann í stað mín en ég lét mig
hafa það. Það eru gerðar kröfurtil
manns sem leikara og því getur
maður ekki leyft sér að vera með
einhvern aumingjaskap. Maður
verður að taka hlutverkið alvar-
lega," sagði Crowe.
Hryllilega ófyndið
KVIKMYNDAGAGNRÝN!
Hilmar Karlsson
hkarl@dv.is
Setjið The Ring, 8 Miles og Signs
í eina grautarskál og hrærið vel í og
hver skyldi útkoman verða, jú
hræðilega bragðvondur grautur.
Þessi samlíking er jafn gáfuleg og
Scary Movie 3 í heild þar sem þess-
ar þrjár kvikmyndir eru teknar og
skrifað upp úr þeim handrit sem á
að vera fyndið en er verulega
ófyndið.
Hugmyndin um að grínast að
hryllings- og glæpamyndum virk-
aði ágætlega í Scary Movie, var lítt
fyndin í Scary Movie 2 og er orðin
ófyndin í Scary Movie 3. Ekki vant-
ar að þekktum leikurum bregður
fyrir í mörgum hlutverkum og mið-
að við frammistöðu þeirra ættu
þau öll að vera á atvinnuleysisskrá í
Hollywood.
Laugarásbíó/
Regnboginn/Smárabíó
Scary Movie 3
★
Myndin hefst á atriði úr „The
Ring" þar sem ljóskurnar Pamela
Anderson og Jenny McCarthy, sem
báðar voru á sínum tíma „strand-
varðastelpur", eru að fjalla um
myndbandið ógurlega sem drepur,
myndband sem hvað eftir annað er
að skjóta upp kollinum í myndinni.
Atriðið er misheppnað og ófyndið
og brjóstin á Pamelu fá mun meiri
athygli heldur en þau eiga skilið
UNDRANDIOG HRÆDD: Blaðamaðurinn
Cindy Campbell (Anna Faris) og bræðumir
George (Simon Rex) ogTom (Charlie
Sheen) sjá eitthvað óvænt.
vegna þess hversu atriðið er slappt.
Eftir þetta kemur hver aula-
brandarinn af öðrum, brandarar
sem tengjast þremur fyrrnefndum
kvikmyndum. Aðeins einu sinni gat
ég brosað. Það var þegar einn rapp-
arinn sagði við annan í umræðu
um dauðan rappara; að þegar hann
vaknaði um morguninn þá var
hann dauður. Spunnust fjörlegar
umræður um þessa setningu.
Fyrri myndirnar tvær voru í
höndum Wayans-bræðra. Þeir hafa
látið af stjórninni og David Zucker,
sem á árum áður gerði tvær frábær-
ar kvikmyndir, Airplane og Naked
Gun, í þeim sama farsakennda stíl
og Scary Movie 3 er í, virðist vera
búinn að missa taktinn og gerir
vonda eftirlíkingu af eigin mynd-
um.
Leikstjóri: David Zucker. Handrit:
Pat Proft. Kvikmyndataka: Mark
Irwin. Tónlist James L. Venable.
Aöalleikarar: Anna Faris, Charlie
Sheen, Simon Rex, Regina Hall og
Leslie Nielsen.
Heimsfrumsýning
Síðasti
Þá er komið að lokum Matrix-þrí-
leiksins. Hann hófst með miklum
glæsibrag þegar hinir nánast
óþekktu Wachowski-bræður
komu kvikmyndaheiminum í
opna skjöldu með The Matrix fyrir
fjórum árum
Beðið var með eftirvæntingu eft-
ir framhaidsmyndunum tveimur.
Þeir bræður tóku sér langan tíma,
enda mynduðu þeir The Matrix
Reloaded og The Matrix
Revolutions saman og var fyrri
myndin tekin til sýningar fyrr á ár-
inu og nú er stóra stundin runnin
upp. The Matrix Revolutions verð-
ur frumsýnd á sama tíma um allan
heim í dag og það í orðsins fyllstu
merkingu. Spurningarnar hafa ver-
ið margar og íþyngjandi í fyrri
TRINITY: Carrie-Anne Moss leikur Trinity sem fylgir Neo í síðasta
leiðangurinn.
SMITH: Hugo Weaving er Smith, illmennið sem fjölfaldar sig.
Jazzhátíð Reykjavíkur:
Formleg opnun Jazzhátíðar
Reykjavíkur verður í dag í Ráð-
húsi Reykjavíkur kl. 17. Um er
að ræða einstaklega glæsilega
djasshátíð þar sem fjölbreytnin
er mikil.
Formleg opnun Jazzhátíðar
Reykjavíkur verður í dag í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 17. Um er að ræða
einstaklega glæsilega djasshátíð
þar sem fjölbreytnin er mikil. Borg-
arstjórinn í Reykjavík mun setja há-
tíðina og fjórar sveitir koma fram
og gefa sýnishorn af því sem í
vændum er það sem eftir liflr viku.
Tvennir tónleikar verða í kvöld og
eins á fimmtudag og föstudag.
Fernir tónleikar eru á laugardag,
þar með talinn hinn vinsæli hádeg-
isdjass og sérstakur djasshátíðar-
dansleikur og fernir tónleikar á
sunnudag, þar með taldir kirkju-
tónleikar í Breiðholtskirkju og hinn
sívinsæli „Pönnukökudjass" um
eftirmiðdag. Lokatónleikarnir
verða svo í Austurbæ, gamla Aust-
urbæjarbíói, á sunnudagskvöld.
Alls konar djass
Það verða ekki færri en 60 djass-
leikarar og söngvarar sem koma
fram á Jazzhátíð Reykjavíkur þetta
árið frá níu þjóðlöndum, Banda-
rfkjunum, Kanada, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyj-
um, Hollandi og svo auðvitað Is-
landi. Þarna verður boðið upp á
hefðbundinn djass, norræna ástar-
óði, þjóðlegan djass, byggðan á'
forníslenskum hefðum, gítardjass,
orgeldjass, sunginn djass og
nýdjass
Hápunktur hátfðarinnar í ár eru
tónleikar með Grammy-verðlauna-
höfum New York Voices sem syngja
með hinni frábæru Stórsveit
Reykjavíkur undir stjórn Darmons
MARTHA BROOKS: Kanadísk djasssöng-
kona sem syngur á tónleikum í NASA á
föstudagskvöld.
Meader á lokatónleikunum. Fjöldi
erlendra tónleikagesta hefur aukist
ár frá ári og þetta árið má búast við
verulegri aukningu á .aðsókn er-
lendis frá þar sem Icelandair og
skrifstofa Ferðamálaráðs í New
York settu í gang víðtæka auglýs-
ingaherferð fyrir hátíðina beggja
vegna Atlantshafsins.
Tónleikar dagsins
NASA: ISFO: fsland-Færeyjar:
Edvard Nyholm Debess, bassi, Sig-
urður Flosason saxófónleikari og
Kjartan Valdemarsson píanóleikari.
Færeyski bassaleikarinn Edvard
Nyholm Debess leiðir ISFO, fær-
eyskt-íslenskt tríó, með Sigurð
Flosason og Kjartan Valdemarsson
innanborðs. Tónleikar þeirra eru
hluti af tónleikaferð um Norður-
löndin og Shetlandseyjar. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30.
NASA: My Favorite Things: Tríó
Thomasar Clausens, píanó, Jespers
Lundgaards, bassa, og Peters
Danemos, trommur. Tríóið leikur
frumsamið efni eftir Thomas ásamt
vel þekktum djassstandördum, allt
leikið á hinn sérstæða hátt Thom-
asar sem er í stöðugri þróun í átt að
frjálslegri leik. Rekja má stílblæ
tríósins til tríós Bills Evans en jafn-
framt gætir áhrifa frá tríóum Pauls
Bleys og Keiths Jarrets og frá kvin-
tett Miles Davis á miðjum sjöunda
áratugnum með Herbie Hancock
og Tony Williams. Tónleikararnir
hefjast kl. 22.00.
WIJNENA/VINTER/THOR: Andrés Þór Gunnlaugsson, Bob Wijnen og Rene Winter skipa
tríóið sem leikur á tónleikum á NASA annað kvöld.