Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Qupperneq 18
18 SKOÐUN MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER2003
Lesendur
Innsendar greinar ■ Lesendabréf
Lesendur geta hringt allan sólarhringinn í slma: 550 5035, sent
tölvupóst á netfangið: gra@dv.is eða sent bréf til: Lesendaslða DV,
Skaftahllð 24,105 Reykjavlk. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af
sértil birtingar.
Skattur, eign okkar allra
Þórdls Árnadóttir skrifar:
Skattur er eign okkar allra sem
byggjum þetta land. Ekki satt?
Hér býrótrúlega mikið affólki
sem á varla til hnífs eða skeiðar,
sumir með fársjúk börn. Frétta-
blaðið skýrir nýlega frá risnu
hinna háu herra sem stýra
þessu landi - 300 milljónir á síð-
asta ári! Þessum peningum væri
betur varið í að hjálpa þar sem
þörfin er mikil, til dæmis hjá
veikum börnum okkar og þeim
sem ala önn fyrir þeim. Mér er
Sþurn, hvað er að í þessu þjóð-
félagi velmegunar? Þið, sem
eigið eftir að fara utan á næst-
unni og ætlið að notfæra ykkur
risnu ríkisins, getið þið sam-
visku ykkar vegna eytt pening-
um okkar í glys og góðgæti?
Dásamleg Dorrit
Haraldur Ólafsson skrifar:
Ég er einn þeirra sem hef haft
miklar mætur á hinni dásam-
legu Dorrit Moussaieff frá því
hún varð heitkona núverandi
forseta íslands. Nú hefur hún
kynnt sig fyrir þjóðinni með
ferðalögum sínum ásamtforset-
anum og henni hvarvetna vel
tekið. Hún hefur lagt sig eftir því
að leggja hinum mjúku málefn-
um lið eins og að heimsækja
sjúk börn, brosa og taka í hend-
ur þeirra. Nú er hún í forsvari,
eða verndari söfnunar Sjónar-
hóls, sem er fyrir aðstandendur
langveikra barna. Ég verð að
segja að við (slendingar meg-
um hrósa happi yfir að hafa
fengið þessa ágætu konu í lið
með okkur í starfi sínu sem for-
setafrú á Bessastöðum.
Nýi pólitíski fjöl-
skylduflokkurinn
Gisli Jónsson skrifar:
Það stóð aldrei á forystu Al-
þýðuflokksins gamla og Al-
þýðubandalagsins að draga dár
að „fjölskyldunum fjórtán" sem
áttu að stjórna landinu og mið-
unum (les: Sjálfstæðisflokkur-
inn og stærstu fyrirtæki lands-
ins á þeim tíma).
Það voru „fjölskyldurnar fjórtán"
sem öllu réðu og þaðan kom líka
óáran og lægð í efnahagslífmu þeg-
ar þannig áraði. Þegar vel áraði og
góðærið var aflsráðandi var það
hins vegar ekki „fjölskyldunum" að
þakka, hvað þá ríkisstjórn sem fjöl-
skyldurnar tengdust, heldur fauna-
stéttunum sem „gáfu eftir" í þjóð-
arsáttarsamningum, og mátti rekja
aftur tif áranna þegar formaður
Framsóknarflokksins fór fyrir þjóð-
arskútunni.
Nú er öldin önnur. „Fjölskyld-
urnar fjórtán" hafa sumar hverjar
ratað af leið, týnt „bréfum" og
misst lykfavöld að musterum vel-
gengninnar og eru í óðaönn að leita
leiða til að halda sætum í lífvænleg-
um fyrirtækjum sem þó hefur líka
snarfækkað. Nú er veðjað á mennt-
un og mannauð, eins og þeir gera á
Akureyri, þar sem háskólaliði er
hrósað í hástert fyrir að vilja vera á
staðnum og tryggja störfin - ekki
endilega arðbær störf heldur bara
störf sem við, almennir skattborg-
arar, greiðum svo skilvísfega í gegn-
um ríkiskassann. - Nú er Isafjörður
líka á höttunum eftir háskólaliði
sem tryggir framtíð staðarins -
þessa fyrrverandi höfuðbóls fisk-
veiða og fiskvinnslu.
Og nú er öldin líka önnur í ranni
vinstri samsteypuflokksins í land-
inu, Samfylkingarinnar. Þar eru
róstur og forystan, sem öll er höf-
uðborgarforysta, beygir nú ótt og
títt fram hjá stærstu hverunum sem
hafa verið að ógna landsfundi Sam-
fylkingarinnar um nýliðna helgi.
Enginn fulltrúi utan höfuðborgar-
svæðisins er í framkvæmdastjórn
og Margrét Frímannsdóttir, fýrr-
verandi varaformaður, sem gaf sæti
sitt eftir fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, fyrrverandi borgar-
stjóra, var umsvifalaust aftengd
þegar hún dirfðist að bjóða sig fram
í framkvæmdastjórn því þar var að
mæta fulltrúa úr nýju fjölskyldunni
sem stjórna á Samfylkingunni,
Stefáni Jóni Hafstein, förmannin-
um - og ekkert má rifta heilögu
samkomulagi milli formanns Sam-
fylkingarinnar, Össurar, og svil-
En einn vetur er langur
tími í pólitík. Jafnvel
einn mánuöur. Svo
geta mál þróast að
sjálfstæðismenn
krefjist þess að þing
verði rofið og kosning-
ar eigi sér stað áður
en framsóknarmenn
taka forystu í þessari
ríkisstjórn.
konu hans, Ingibjargar. Þau eru
sameiginlegt höfuð Samfylkingar-
innar um ókomna tíð. Ef guð lofar.
Nú bíða flokksmenn eftir því hve
langt þau geta sveigt Samfylking-
una til hægri, að stefnu Heimdallar,
að stefnu ráðherra heilbrigðismála
og að stefnu sjálfstæðismanna í
ESB-málinu. Að minnsta kosti þar
til næst verður kosið svo að Sam-
fylkingin hafi möguleika á að
SAMEIGINLEGT HÖFUÐ SAMFYLKINGARINNAR: Ekkert má rifta heilögu samkomulagi í
nýjum pólitískum fjölskylduflokki.
mynda stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. í þeim efnum vonast
Samfylkingin þó til að nýr formað-
ur verði kominn að Sjálfstæðis-
flokknum því ekki mun ganga sam-
an með núverandi forsætisráð-
herra og varaformanni Samfylking-
arinnar að óbreyttu.
En einn vetur er langur tími í
pólitík. Jafnvel einn mánuður. Svo
geta mál þróast að sjálfstæðismenn
krefjist þess að þing verði rofið og
kosningar eigi sér stað áður en
framsóknarmenn taka forystu í
þessari ríkisstjórn. Þá kann svo að
fara að Davíð verði áfram sjálfskip-
aður formaður og forsætisráð-
herraefni í nýrri ríkisstjórn. - með
Össuri en án Ingibjargar Sólrúnar.
Engar samráðsrannsóknir?
Guðjón Guömundsson skrifar:
Það verður að teljast til tíðinda
að nýfallinn dómur Hæstaréttar
skuli árétta að vart sé að finna
alvarlegri samkeppnistakmark-
anir en þegar fyrirtæki komi sér
saman um verð, álagningu og
um hvaða afslátt skuli veita við-
skiptavinum.
Þetta átti við einstaklinga í svo-
nefndu grænmetismáli sem snerti
fyrirtækin Sölufélag garðyrkju-
manna, Ágæti og Mata. Dómur
Hæstaréttar gerir það mögulegt og
jafnframt nauðsynfegt að lögreglu-
yflrvöld taki málið upp á ný. En þá
stekkur ríkissaksóknari á svið og
segir að dómur Hæstaréttar gefi
ekki tilefni til lögreglurannsóknar. -
Ekki nú.
í raun virðast ríkislögreglustjóri
og ríkissaksóknari sammála um að
aðhafast ekkert í máli þessu. Byggt
á þeirri skoðun að Samkeppnis-
stofnun hafi ekki, þegar rannsókn
stóð yfir á sínum tíma, talið málið
rannsóknar vert og því ekki leitað
Á GRÆNMETISMARKAÐNUM: Varla alvarlegri samkeppnistakmarkanir en samráð um verð, álagningu og afslátt, segir Hæstiréttur.
til lögreglu. Nú sé málið einfaldlega
fyrnt.
Það sýnist þó fremur vera ríkis-
lögreglustjóri sem hafi dregið fæt-
urna í því að rannsaka hve alvarleg
þessi brot voru, þar sem ríkissak-
sóknari sendi hinum fyrrnefnda
beiðni um að hann kannaði hve al-
varleg brotin þættu. - En niður-
staðan var sú að engin rannsókn
hófst hjá ríkislögreglustjóra!
Niðurstöður Hæstaréttar núna
segja þó skýrt að málið komi til
kasta lögreglunnar. Almenningur
er sannarlega orðinn langeygur eft-
ir því að réttlátir dómar séu kveðn-
ir upp yfir þeim einstaklingum og
fyrirtækjum sem eru ber að
fjársvikum og/eða samráði í verð-
lagningu þegar sekt hefur verið
sönnuð. Hér er um að ræða fjár-
drátt, réttara sagt þjófnað, frá al-
menningi. Almennir neytendur í
landinu bíða því eftir að ríkissak-
sóknari fyrirskipi rannsókn á
meintum brotum um samráðið
milli grænmetisfyrirtækjanna
þriggja-
Nú varð ég hissa, Karl Steinar
Margrét Njálsdóttir, amma, skrifar:
Ekki gat ég ímyndað mér að sjálfur
forstjóri Tryggingastofnunar ríicisins
léti sér detta í hug að við Ásdís Jóns-
dóttir, dóttir mín, værum að deila á
barnalækna TR eða aðra hjá stofnun-
inni, eins og þú lést að liggja í viðtali
við DV sl. fimmtudag. - Það dytti okk-
ur aldrei í hug. Okkar hugsun er að
hinn almenni fslendingur fái að sjá
hvað fólkið hjá TR vinnur rosalega vel
miðað við hvað því eru settar þröngar
skorður, og hvað við búum við gott
heilbrigðis- og tryggingakerfi.
Þetta með trúnaðinn hjá ykkur,
Karl Steinar, þú skalt engar áhyggjur
hafa af honum. Öll bréf frá ykkur í
sambandi við mál Birkis Emils, vegna
Goldenhar-sjúkdóms hans, liggja hjá
blaðamanni DV. Þannig að þú getur
tjáð þig af hjartans lyst.
Það væri meira að segja mjög gott
ef þú upplýstir hvers vegna þið greið-
ið fyrir tvo fylgdarmenn með sumum
börnum sem em að fara í læknisað-
gerðir erlendis, en ekki neitt hættu-
legri aðgerðir heldur en Birkir Emil.
Ég get nefnt nöfn ef þú vilt. Er það
kannski af því að þau hafa verið látin
njóta vafans?
Það var mjög sætt af þér að taka
líka upp hanskann fyrir félagsþjón-
ustuna í Mosfellsbæ. Það kann jú að
vera betra að róa með tveimur brotn-
um ámm heldur en einni.