Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Blaðsíða 24
24 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003
íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Sextíu óro
Þorgerður Ingólfsdóttir
kórstjóri og tónlistarmaður
Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri
og tónlistarkennari, er sextug í dag.
Starfsferill
Þorgerður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá MR 1963, söngkennara-
prófi og tónmenntakennaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
1963, stundaði nám í kórstjórn og
tónvísindum hjá dr. Róbert A.
Ottóssyni 1963-65 og 1968-74,
stundaði framhaldsnám í tónlist,
tónvísindum og kórtónlist við Uni-
versity of lllinois 1965-67, nám við
guðfræðideild HÍ 1963-65, var í
söngnámi hjá Engel Lund 1970-83,
námi í kórstjórn í Englandi 1971,
1972 og 1973, í New York 1974, í
Sviss 1974 og 1979, í ísrael 1975, í
Noregi 1980, í Englandi 1981 og
1995, og í Vínarborg 1987.
Þorgerður var tónlistarkennari
við Mela- og Hagaskólann í Reykja-
vík 1964-65, kennari við Tónlistar-
skólann í Reykjavík 1967-95,
stjórnandi barnakórs Tónlistar-
skólans í Reykjavík 1967-73 og
1982- 84, kennari við Tónlistarskól-
ann í Kópavogi 1968-69, er tónlist-
arkennari við Menntaskólann í
Hamrahlíð frá 1967, er stofnandi og
stjórnandi Hamrahlíðarkórsins og
framhaldskórs fyrir eldri nemendur
frá 1982. Hún hefur haldið tónleika
með þessum kórum víða um Evr-
ópu og í ísrael, Japan og Kanada og
verið fulltrúi íslands á íjölmörgum
tónlistarhátíðum.
Þorgerður hefur frumflutt tón-
verk fjölmargra íslenskra og er-
lendra tónskálda, sem hafa samið
sérstaklega fyrir hana og Hamra-
hlíðarkórinn.
Þorgerður var sumarbúðastjóri á
vegum Þjóðkirkjunnar 1963-67,
kynnir á skóla- og fjölskyldutón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar fs-
lands 1974-80 og framkvæmda-
stjóri Zukofsky-tónlistarnámskeiða
í Reykjavík 1978-80.
Þorgerður sat í stjórn Bandalags
íslenskra listamanna 1973-85 og
var varaforseti þess 1981-85, sat í
stjórn Kjarvalsstaða 1976-85, í
stjórn Félags íslenskra tónlistar-
manna 1974-78, í stjórn kennarafé-
lags Tónlistarskólans í Reykjavík
1983- 84, sat í ráðgjafanefnd á sviði
tónlistar í Kaleidoscope-verkefni
Evrópusambandsins 1996-2000,
fulltrúi norrænu tónlistarnefndar-
innar NOMUS í Sleipni er sér um
styrki til ungra, norrænna lista-
manna 1997-2001, fulltrúi íslands í
NOMUS frá 2001, kennari á meist-
aranámskeiði í kórtónlist fyrir
stjórnendur barna- og æskukóra í
ísrael 1998, aðalstjómandi
æskukórsins Radda Evrópu, viða-
mesta samstarfsverkefnis menn-
ingarborga Evrópu árið 2000 en
kórinn hélt tónleika í menningar-
borgunum og frumflutti m.a. tón-
verk eftir Arvo Párt sem tileinkað
var aðaistjórandanum, hefur sinnt
ýmsum dómnefndarstörfum, m.a.
verið fulltrúi íslands í dómnefnd
Norrænu barnakórakeppninnar
1978, í norrænni dómnefnd fyrir
Tónlistarhátíð ungra einleikara á
Norðurlöndum 1983-87, í dóm-
nefnd fyrir Tónskáidaverðlaun
Norðurlanda 1987-90, í dómnefnd
alþjóðlegu kórakeppninnar í
Oskarshamn í Svíþjóð 1993-96 og
ólympíuleikanna í kórsöng í Linz í
Austurríki 2000.
Þorgerður hefur verið stjórnandi
Hamrahlíðarkórsins á eftirtöldum
hljómplötum: Ljós og hjómar,
1978; Öld hraðans, 1982; Haust-
myndir, 1985; Kveðið í bjargi, 1988;
Turtildúfan, jarðarberið og úlfalda-
lestin, 1991; Islensk þjóðlög, 1993;
fslenskir jólasöngvar og Maríu-
kvæði, 1996.
Þorgerður hefur hlotið fjölda
verðlauna og viðurkenninga. Með-
al þeirra eru Bjartsýnisverðlaun
Brostes í Kaupmannahöfn, 1983;
Heiðursstyrkur ungra tónlistar-
manna úr Leonie Sonnings Musik-
fond í Kaupmannahöfn, 1975;
Menningarverðlaun DV, 1979;
riddarakross hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir tónlistarstörf, 1985;
Verðlaun STEFs fyrir flutning ís-
lenskra tónverka, 1992, og stórridd-
arakross hinnar konunglegu
norsku heiðursorðu, 1992. Þá hlaut
Hamrahlíðarkórinn fýrstu verðlaun
í alþjóðlegu kórakeppninni Let the
People Sing 1984.
Fjölskylda
Eiginmaður Þorgerðar er Knut
Arne Odegárd, f. 6.11. 1945, skáld.
Hann er sonur Arne Knutson
Odegárd, f. 15.7. 1911, d. 30.11.
1995, og Sigrid Anne ödegárd, f.
15.5. 1908, d. 25.1. 1999.
Stjúpbörn Þorgerðar eru Mali
Frodis ödegárd, f. 31.7. 1969; Hege
Kristine Knutsdotter ödegárd, f.
28.2. 1973.
Systur Þorgerðar eru Rut Ingólfs-
dóttir, f. 31.7.1945, fiðluleikari; Vil-
borg Ingólfsdóttir, f. 3.6. 1948, yfir-
hjúkrunarfræðingur; Unnur María
Ingólfsdóttir, f. 6.5. 1951, fiðluleik-
ari; Inga Rós Ingólfsdóttir, f. 17.3.
1953, sellóleikari.
Hálfsystkin Þorgerðar, samfeðra:
Eva Mjöll Ingólfsdóttir, f. 22.6.
1962, fiðluleikari; Andri Már Ing-
ólfsson, f. 17.10. 1963, forstjóri;
Árni Heimir Ingólfsson, f. 16.9.
1973, píanóleikari og doktor í tón-
vísindum.
Foreldrar Þorgerðar eru Ingólfur
Guðbrandsson, f. 6.3. 1923, tónlist-
armaður og ferðafrömuður, og
Inga Þorgeirsdóttir, f. 2.2. 1920,
kennari.
Ætt
Ingólfur er sonur Guðbrands, b.
á Prestsbakka á Síðu, bróður Þor-
frnns, afa Ómars Ragnarssonar,
fréttamanns og dagskrárgerðar-
manns. Guðbrandur var sonur
Guðbrands, b. á Hraunbóli og á Or-
ustuvöllum Jónssonar, b. í Efri-Vík
Þorkelssonar. Móðir Jóns var Mál-
fríður Bergsdóttir, pr. á Prestsbakka
Jónssonar, og Katrínar Jónsdóttur,
eldpr. Steingrímssonar. Móðir
Guðbrands á Prestsbakka var Guð-
laug ljósmóðir hálfsystir, samfeðra,
Þuríðar ömmu Valgerðar Dan
leikkonu. Guðlaug var dóttir Páls,
b. í Hörgslandi á Síðu Stefánssonar,
bróður Guðlaugar, móður Jóhönnu
Egilsdóttur verkalýðsfrömuðar,
ömmu Jóhönnu Sigurðardóttur
alþm. Móðir Guðlaugar ljósmóður
var Ragnhildur Sigurðardóttir.
Móðir Ingólfs var Guðrún Auð-
unsdóttir, b. á Eystri-Dalbæ Þórar-
inssonar, og Sigríðar Sigurðardótt-
ur.
Inga er dóttir Þorgeirs, b. og
smiðs á Hlemmiskeiði, bróður Sig-
ríðar, móður Þorsteins Sigurðsson-
ar, dbrm. á Vatnsleysu, formanns
Búnaðarsambands Islands. Önnur
systir Þorgeirs var Þórdís, amma
Gunnars Eyþórssonar fréttamanns,
föður Eyþórs tónlistarmanns. Þor-
geir var sonur Þorsteins, b. á Reykj-
um Þorsteinssonar, b. í Brúnavalla-
koti Jörundssonar, b. í Laug Illuga-
sonar, Skálholtssmiðs Jónssonar.
Móðir Þorgeirs var Ingigerður, syst-
ir Eiríks á Ólafsvöllum, föður Sig-
urðar regluboða, föður Sigurgeirs
biskups, föður Péturs biskups. Ingi-
gerður var dóttir Eiríks, hreppstjóra
á Reykjum Eiríkssonar, ættföður
Reykjaættar Vigfússonar.
Móðir Ingu var Vilborg Jónsdótt-
ir, smiðs á Hlemmiskeiði Jónsson-
ar, og Vilborgar, systur Þórðar,
langafa Guðlaugs Bergmanns og
Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Vil-
borg var dóttir Guðlaugs, b. á Hell-
um Þórðarsonar, b. á Hellum Stef-
ánssonar, b. á Bjalla, bróður Rann-
veigar Filippusdóttur og Jóns á
Brekkum, afa Sólveigar, ömmu Ás-
geirs forseta. Stefán var sonur Fil-
ippusar, pr. í Kálfholti, forföður
ráðherranna Ingólfs á Hellu og
Matthíasar Mathiesen, föður Árna
sjávarútvegsráðherra.
Smá
auglýsingar
500 kr.
fyrir texta-
auglýsingar á dv.is
950 kr.
fyrir smáauglýsingu
með mynd
Merkir íslendingar
Líney Jóhannesdóttir
Líney Jóhannesdóttir rithöf-
undur fæddist á Laxamýri í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu 5. nóvember
1913. Foreldrar hennar voru Jó-
hannes Baldvin Sigurjónsson,
óðalsb. á Laxamýri, og k.h., Þór-
dís Þorsteinsdóttir húsfreyja. Jó-
hannes var bróðir Jóhanns,
skálds og leikritahöfundar. Systir
Líneyjar var Jóna Kristjana, móð-
ir Benedikts Árnasonar leikstjóra.
Önnur systir Lfneyjar var Snjó-
laug, móðir Sigurjóns Sigurðar-
sonar, fyrrv. iögreglustjóra, föður
Jóhanns, forstjóra Hafrann-
sóknastofnunar.
Líney ólst upp á Laxamýri til
ellefu ára aldurs en fór þá, eftir lát
móður sinnar, í fóstur til Páls
Stefánssonar, stórkaupmanns frá
Þverá, og Hallfríðar Proppé Stef-
ánsson. Lfney lauk prófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík og
stundaði síðan nám í félagsfræði
hjá ölvu Myrdal í Stokkhólmi.
Líney starfði m.a. hjá Raforku-
málastofnun og við mæðraeftirlit
á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
auk húsmóðurstarfa. Hún stund-
aði ritstörf um árabil og samdi
m.a. eftirfarandi barnabækur:
Æðarvarpið, útg. 1961; í lofti og
læk, útg. 1962, og Síðasta sumar-
ið, útg. 1969. Þá skráði hún,
ásamt Þorgeiri Þorgeirssyni,
æviminningar sínar, Eitthvað
sem eingin veit, útg. 1975. Auk
þess samdi hún skáldsögurnar
Kerlingaslóðir, útg. 1976, og
Aumingja Jens, útg. 1980. Margar
smásögur birtust eftir hana í
blöðum og tímaritum auk þess
sem hún stundaði þýðingar.
Líney lést 18. júlí 2002.
Stórafmæli
95 ára
Sigríður Gísladóttir,
Hornbrekku, Ólafsfirði.
85 ára
Halldór Friðriksson,
Steinholtsvegi 12, Eskifirði.
Jóhanna M. Jónsdóttir,
Álftamýri 14, Reykjavík.
Jóhanna Sigriður Hinriksdóttir,
HKðarhúsum 3, Reykjavík.
80 ára
Guðrún Elln Kristinsdóttir,
Seilugranda 1, Reykjavík.
Ragnhildur Árnadóttir,
Selbraut 38, Seltjarnarnesi.
75 ára
Ásdls Auður Ingólfsdóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Brigitte Björnsson,
Nesgötu 13, Neskaupstað..
Magnús Sigurðsson,
Úlfsstöðum, Egilsstöðum.
Margrét Stefánsdóttir,
Víðigrund 2, Sauðárkróki.
Sigrlður Aðalsteinsdóttir,
Suðurmýri 36, Seltjarnarnesi.
70ára
Aöalsteinn Haraldsson,
Stillholti 6, Akranesi.
Bolli Davfðsson,
Austurbrún 2, Reykjavík.
Eyjólfur Jónas Sigurðsson,
Staðarbakka 6, Reykjavík.
Gunnar Kristmundsson,
Engjavegi 36, Selfossi.
Hrólfur Marteinsson,
Hálsi, Húsavík.
Indriði Sigurjónsson,
Hvíteyrum, Varmahlíð.
Ragna Einarsdóttir,
(rabakka 14, Reykjavík.
Unnur Sólveig Vilbergsdóttir,
Lækjasmára 6, Kópavogi.
60 ára
Edward Scott,
Höfðabraut 5, Akranesi.
Fanney Ingvarsdóttir,
Fjallalind 42, Kópavogi.
Hinrik Sigurðsson,
Faxabraut 76, Keflavík.
Lárus Ágústsson,
Núpalind 4, Kópavogi.
María B. Árelfusdóttir,
Lynghaga 17, Reykjavík.
Sigurður Hjálmarsson,
Stekkjarkinn 7, Hafnarfirði.
össur Kristinsson,
Sæbólsbraut 42, Kópavogi.
50 ára
Aðalbjörg Anna Stefánsdóttir,
Bæjargili 113, Garðabæ.
Erling Þór Pálsson,
Lindási, Akranesi.
Guðmundur Guðmundsson,
Miðengi 16, Selfossi.
Gyða Sigurlaug Haraldsdóttir,
Þingholtsstræti 17, Reykjavík.
Hjördís Vilhjálmsdóttir,
Hákotsvör 2, Bessastaðahreppi.
Ingibjörg Sigurmundsdóttir,
Kirkjubraut 20, Njarðvík.
Júlfus Valdimar Óskarsson,
Áshamri 16, Vestmannaeyjum.
Slgurður Jakob Arnórsson,
Miðvangi 117, Hafnarfirði.
Valgeröur Sigurðardóttir,
Hamrabyggð 32, Hafnarfirði.
Þorkell Ingimarsson,
Húnavöllum, Blönduósi.
örn Jóhannsson,
Búðasíðu 5, Akureyri.
40 ára
Jórunn Ella Þórðardóttir,
Barmahlíð 44, Reykjavík.
Malgorzata Bilska,
Strandgötu 39, Tálknafirði.
Marslbil Fjóla Snæbjömsdóttir,
Hrafnagilsstræti 10, Akureyri.
Ninia Onoon Maguicay,
Barónsstíg 39, Reykjavík.
Ólafur Birgisson,
Smáratúni 16, Keflavík.
Páll Andrésson,
Þórufelli 2, Reykjavík.
Pétur Vilberg Guðnason,
Lóuási 8, Hafnarfirði.
Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Húnabraut 18, Blönduósi.
Sigmundur Sigmundsson,
Hlíðarvegi 46, Siglufirði.
Sigríður H. Ingólfsdóttir,
Ásvöllum 6b, Grindavík.
Sigurður Pétursson,
Urðarbraut 5, Kópavogi.