Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Síða 32
M
3
<>
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
550 55 55
Við tökum við fréttaskot-
umallan sólarhringinn.
Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri
viku greiðast 7.000 kr.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
H-Laun
©
... ekki sætta þig viö minna!
TÖLVUMIÐLUN
sími: 545 5000 • www.tm.is
MARKI FAGNAÐ I RÓM: Eiður
Smári Guðjohnsen fagnar hér
markt sínu gegn Lazío í gær
ásamt Oamien Duff.
Allt um meistaradeildina bls. 30-31
Eiður Smári Guðjohnsen var á
skotskónum í Róm í gærkvöld
þegar Chelsea vann stórsigur,
4-0, á Lazio í meistaradeildinni.
Eiður Smári skoraði annað mark
Chelsea á 70. mínútu eftir að
hafa komið inn á sem varamað-
ur þremur mínútum áður. Þetta
var fyrsta mark hans í meistara-
deildinni á þessu tímabili en
með sigrinum náði Chelsea
þriggja stiga forystu í G-riðli og
er nánast öruggt með sæti í 16-
liða úrslitum keppninnar.
Eiður Smári sýndi enn eina ferð-
ina að hann er framherji í fremstu
röð en hann átti einnig þátt í fjórða
marki liðsins sem Frank Lampard
skoraði. Lampard fylgdi þá eftir
skoti Eiðs Smára sem Matteo Sereni
varði. Félagi hans, Argentínumað-
urinn Hernan Crespo, komst í sögu-
bækurnar þegar hann skoraði fyrsta
mark leiksins. Hann varð fyrsti leik-
maðurinn í sögu meistaradeildar-
innar til að skora mark með fjórum
mismunandi liðum; Parma, Lazio,
Inter Milan og Chelsea, á
undanförnum árum
Van Nistelrooy vaknaður
Hollenski markahrókurinn Ruud
Van Nistelrooy vaknaði til lífsins á
nýjan leik á Old Trafford í gærkvöld
þegar Manchester United vann ör-
uggan sigur á Rangers, 3-0, í „Bar-
Crespo varð fyrsti leik-
maðurinn ísögu meist-
aradeildarinnar til að
skora mark með fjórum
mismunandi liðum;
Parma, Lazio, InterMil-
an og Chelsea.
áttunni um Bretland". Van Nistel-
rooy, sem hafði ekki skorað í mán-
uð, skoraði tvö marka liðsins og
virðist vera kominn á beinu braut-
ina á nýjan leik.
Real Madrid fyrst áfram
Real Madrid varð í gær fyrsta liðið
til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslit-
um keppninnar eftir markalaust
jafntefli gegn Partizan Belgrad.
Leikmenn Real Madrid náðu sér
engan veginn á strik í leiknum og
geta þakkað markverði sínum, Iker
Casillas, fyrir stigið.
„Við spiluðum ekki vel í þessum
leik en fengum stigið sem okkur
vantaði. Við getum þakkað Casillas
það,“ sagði Carlos Queiros, þjálfari
Real Madrid, eftir leikinn í Belgrad.
Stuttgart sterkt
Stuttgart gefur ekkert eftir í bar-
áttunni í E-riðli og er komið með
mjög góða stöðu ásamt Manchester
United eftir sigur á gríska liðinu
Panathinaikos, 3-1, í Aþenu. Stutt-
gart lenti undir en kom sterkt til
baka síðasta hálftímann í leiknum.
„Ég er afskaplega ánægður með
það hvernig leikmenn mínir brugð-
ust við þegar þeir lentu undir. Þeir
eru sannir sigurvegarar," sagði Felix
Magath, þjálfari Stuttgart, eftir leik-
inn. oskar@dv.is
Veðríð á morgun
Vaxandi suðlæg átt sunnan til. Skúrir vestan til en annars þurrt að kalla. Hiti
vfða 2 til 8 stig að deginum en vægt frost í innsveitum norðaustan til.
Sólarlag Sólarupprás
í kvöld á morgun
Rvík 17.00 Rvík 9.29
Ak. 16.58 Ak.9.11
Síðdegisflóð
Rvik 17.07
Ak. 21.30
Árdegisflóð
Rvík 04.53
Ak.9.30
Veðriðídag
Veðrið kl. 6 i morgun
Akureyri snjóél -6
Reykjavík alskýjað 5
Bolungarvík hálfskýjað 2
Egilsstaðir alskýjað 1
Stórhöfði skúr 7
Kaupmannah. þokumóða 6
Ósló súld 3
Stokkhólmur 1
Þórshöfn skýjað 11
London mistur 13
Barcelona NewYork súld 12
París alskýjað 11
Winnipeg alskýjað -6
550 5000 £