Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 Fréttir 0V Rafmagnið út á land Yfirstjórn Rafmagns- veitu ríkisins verður flutt út á landsbyggðina frá 1. janú- ar, samkvæmt nýjum raf- orkulögum. Ein stjórnstöð verður á Akureyri, önnur á Suðurlandi og sú þriðja á Austurlandi. Starfsemin í Reykjavík verður minnkuð en þar verða höfuðstöðv- arnar áfram. Vara við fjársöfnun Alnæmissamtökin á ís- landi vilja taka fram að fjár- söfnun sem nú stendur yfir í nafni HlV-info er samtökunum alls óviðkoman- di. Birna Þórðar- dóttir, formaður Alnæmissam- takanna, segir í yfirlýsingu að þetta sé ítrekað vegna fjölda fyrirspurna. Hún segir jafnframt rétt að geta þess að Alnæmissam- tökin stóðu að fjársöfnun nýverið vegna útgáfu tíma- ritsins Rauði borðinn. Hagnaður ánesi Rekstarafgangur verður af bæjarsjóði Seltjarnarness samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsá- ætlun bæjar- ins. Afgang- urinn verður upp á150 milljónir króna og er þetta aukn- ing á rekst- arafgangi um 12% frá síðasta ári. Tekjurnar verða ríflega 1300 miljónir króna en gjöldin 1150 millj- ónir. Jónmundur Guðmars- son bæjarstjóri segir að fjárhagsáætlunin endur- spegli ráðdeild í rekstri bæjarfélagsins. Al Qaeda maður hand- tekinn Breska lögreglan hefur handtekið mann sem grun- aður er um að hafa tengsl við A1 Qaeda samtökin. Maðurinn var handtekinn í Gloucester. Lögregla er að rannsaka hugsanleg tengsl mannsins við Richard Reid sem var handtekinn eftir að hann reyndi að sprengja bandaríska farþegaþotu í ioft upp yflr Atlantshafinu með sprengju í skónum. Reid var dæmdur í lífstíðar- fangelsi. Júdasarsilfrið Ef silfurpeningarnir sem Júdas fékk fyrir svik sín hefðu verið settir í banka, væri silfrið nú þyngra en jörðin öll, miðað við 3% vexti, segir á Vísindavef Há- skólans. Talið er líklegt að silfurpeningarnir hafi vegið 14 grömm hver. Hefði það magn vaxið um 1% á ári í 2000 ár væri það nú hátt í 200 þúsund tonn. Það er álíka mikið og allur þorskafli íslendinga árið 2002. Fjórir ráðherrar ákveða að halda húsnæðislánum hjá íbúðalánasjóði. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins fengu ekki að vita af ákvörðuninni og eru ósáttir við niðurstöðuna. Sjálfstæðismenn á máti ráðherrunum Sigurður Kári Kristjánsson „Ég er og hefalltafveríð þeirrar skoðunar að það eigi að fela bönkunum þessa lánastarfsemi". Gunnar Birgisson „Þetta gengur þvert á minar skoðanir, og mér þykir þetta skrýtin ákvörðun”. Hækkun á íbúðalánum upp í 90% af íbúðar- verði verður framkvæmd innan vébanda íbúða- lánasjóðs, en ekki bankakerfisins. Þetta er nið- urstaða félagsmálaráðherra, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem kynnt hefur verið í ríkisstjórn. Ákvörðun verður tekin íyrir áramót um hámarksfjárhæð lánanna og í hvaða áföngum hækkunin verður innleidd. Árni Páll Árnason, sérfræðingur í Evrópu- rétti, gerði lagalega úttekt fyrir ráðherrana, og komst að þeirri niðurstöðu að þetta fyrirkomu- lag bryti ekki í bága við EES-samninginn. Ef framkvæmd lánanna yrði hinsvegar færð til bankanna, fæli það í sér ríkisaðstoð, sem væri líklega brot á samningnum. Stjórnvöld hafa til- kynnt fyrirhugaðar breytingar til Eftirlitsstofn- unar EFTA til að eyða allri óvissu, og er búist við úrskurði innan 6 mánaða. Guðjón Rúnarsson, fórmaður Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, segir þetta dapur- lega niðurstöðu. „Okkur finnst þetta mjög mið- ur. Ráðherra boðaði það strax í sumar að hann vildi eiga gott samstarf við hagsmunaðila, og skipaði sérstakan samráðshóp. Hann var ein- ungis tvisvar kallaður saman, og okkur finnst öll vinnan bera þess merki að það var aldrei ætlun- in að hafa neitt raunverulegt samráð". Málið er líklegt til að valda ágreiningi innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins, enda margir þeirra mjög ósáttir. „Ég er og hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það eigi að færa húsnæðislánakerfið frá Ibúða- lánasjóði og fela bönkunum þessa lánastarf- semi“, segir Sigurður Kári Kristjánsson. „Með þessari hækkun upp í 90% lán er verið að ríkis- Einar Oddur Kristjánsson „Mér kemur þetta á óvart, ég hefði ekki taiið það sjáif- gefið að þetta yrði svona". Bjarni Benediktsson „Húsnæðisiánum er betur borgið i bankakerfinu en hjá ríkinu". Pétur Blöndal „Ég er ekkert hoppandi hrif- inn afþessu og hefði viljað fara aðra leið". Guðmundur Hallvarðsson „Það er ekki eðlilegt að færa þessi lán yfir til bankanna". væða fasteignamarkaðinn enn frekar en nú er‘‘. Gunnar Birgisson segir þetta koma sér mjög á óvart. „Þetta gengur þvert mínar skoðanir, og mér þykir þetta skrýtin ákvörðun. Ég hef verið þeirrar skoðunar alla tíð að ríkið eigi að draga úr umsvifum sínum, og þessi lán ættu heima í bankakerfinu“. „Mér kemur þetta á óvart, ég hefði ekki talið það sjálfgefið að þetta yrði svona“, segir Einar Oddur Kristjánsson, þingmaöur Sjálfstæðis- flokks. „Ég hef alls ekki verið þeirrar skoðunar að íbúðalánum sé best borgið innan Ibúðalána- sjóðs. Hinsvegar hefur þetta ekki verið kynnt fyrir okkur í þingflokknum, svo ég veit ekki for- sendurnar ennþá, svo það er best að segja sem minnst“. Bjarni Benediktsson segir þetta ekki hafa komið beint á óvart. „Ég hef hinsvegar alltaf ver- ið þeirrar skoðunar að afgreiðslu húsnæðislána sé betur borgið í bankakerfinu en hjá ríkinu“. Pétur Blöndal segir þessa ákvörðun þvert á vilja sinn. Ég er ekkert hoppandi hrifinn af þessu og hefði viljað fara aðra leið. Það hefði vel mátt færa þetta yfír til bankakerfisins eins og gert er í Bandaríkjunum og hefur gefist vel. En það er okkar samstarfsflokkur sem fer með þessi mál, og í samsteypustjórn verða menn að lúta því að ná ekki öllum sínum stefnumálum fram“. Eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem DV náði tali af og var ekki á móti þessum fyrir- ætlunum, er Guðmundur Hallvarðsson. „Ég set spurningamerki við hvort það væri eðlilegt að færa þessi lán yfir til bankanna, í ljósi þeirra vaxta sem þar eru í boði". brynja@dv.is Á blaðsíðu 86 Svarthöfði er í öngum sínum þessi dægrin. Þegar hvassviðrið skall á um daginn var hann á ferðinni yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar og skyndilega ætlaði hann um koll þegar ein vindhviðan feykti pappírsbunka í andlit hans og það engum smáræðis pappírs- bunka. Svarthöfði er þó engin smá- smíði og stóðst að lokum áhlaupið en sá þá að pappírsbunkinn var hvorki meira né minna en handritið að fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes H. Gissurar- son. Hugði nú Svarthöfði gott til glóðarinnar að lesa þessa umtöluðu bók og komast að öllum þeim leynd- armálum um líf Nóbelskáldsins sem hallelúja-söfnuðurinn hefur haldið leyndum gegnum árin og áratugina. Svarthöfði flýtti sér því heim, fékk sér maltöl úr fsskápnum og settist Svarthöfði við lesturinn. Bjóst hann þegar við krassandi lýsingum á ævi Laxness, aflijúpunum á skítlegu eðli hans, al- mennri ónáttúru og steliþjófnaði frá öðrum rithöfundum. En því miður reyndist fátt slíkt að finna f þeim hluta handritsins sem Svarthöfði er búinn að lesa. Þegar þessi orð eru skrifuð er Svarthöfði kominn á blaðsíðu 86 og hefur enn ekki fundið nothæft hneyksli. Hall- dór er að vísu ekki orðinn,mjög aldr- aður á blaðsíðu 86 en einhvern veg- inn læðist að Svarthöfða sterkur grunur um að þetta muni lítið breyt- ast þótt á bókina líði. Hún er nefni- lega þannig skrifuð að jafnvel þó að einhver hneyksli væri að flnna í ævi Laxness, og væntanlega er hann ekki ur löngu sofnaður þegar að því syndlaus maður fremur en aðrir, þá hneyksli kemur. er Svarthöfði viss um að hann verð- Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.