Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Blaðsíða 12
J 2 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Forval
lögmætt
Ákvæði laga um stofnun
Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar hf. eru sérlög og ganga
framar ákvæðum sam-
keppnismála. Þetta er nið-
urstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur sem sýknað
hefur flugstöðina af kröfum
íslensks markaðar í Leifs-
stöð. Héraðsdómur telur að
það sé undir FLE, komið
hvort og að hvaða marki fé-
lagið felur öðrum aðilum
að annast þjónustu við far-
þega í flugstöðinni. Enn-
fremur að FLE sé heimilt að
ákveða hvaða vörur eða
þjónustu boðið sé upp á
þar.
Nýtt og betra
leiðakerfi
„Undirbúningsvinnan er
að mestu að baki og árang-
urinn kynnum við fljót-
lega,“ segirÁsgeir Eiríks-
son, framkvæmdastjóri
Strætó bs. en fljótlega mun
fyrirtækið kynna afrakstur
mikillar grunnvinnu með
mark-
miði að
gjör-
breyta
og bæta leiðakerfi Strætó.
„Núverandi viðskipta-
vinir okkar eru ánægðir
með þjónustuna. Nú stend-
ur til að höfða til allra
þeirra sem telja sig ekki
komast af án bílsins. Fá
fleiri einstaklinga til að nýta
sér þjónustu almennings-
vagnakerflsins."
Evrópusambandið borgar norður-írskum bændum fyrir að fóðra svani þegar þeir
koma yfir hafið frá íslandi um vetur. Bændur í Skaftafellssýslu segja ofQölgun hafa
orðið í svanastofninum og vilja heQa veiðar þegar í stað. Svanaflokkarnir eyði-
leggja tún og líkja bændur þeim við engisprettusveim.
„Svanurinn skilur eftir sig sviðna jörð. Hann
kemur í flokkum, leggur undir sig túnin og eyði-
leggur þau," segir Sveinn Gunnarsson, bóndi í Vík í
Lóni, sem kveðst verða fyrir hundmð þúsund króna
tjóni af völdum gífurlegs fjölda svana í Austur-
Skaftafellssýslu. Evrópusambandið styrkir norður-
írska bændur um tæpar sex þúsund krónur á hverja
ekm sem þeir rækta upp til að fóðra svaninn eftir að
hann kemur frá fslandi á haustin. Bændur fyrir
austan segja þetta valda mikilli röskun í lífríkinu,
þar sem engin lífsskilyrði séu fyrir viðlíka fjölda
svana í héraðinu og nú er orðinn. Einn þeirra er
Sveinn, sem hefur búið á sama bænum í 68 ár og
hefur aldrei orðið var við jafn mikinn fjölda svana
og nú.
„Stofninn er orðinn þrefaldur á við það sem
hann var. Þeim hefur fjölgað svo gífurlega á þessu
svæði að þeir hafa ekki þau h'fsskilyrði sem þeir
þurfa. Þeir hafa lifað á botngróðrinum í Lóninu hér,
en em orðnir svo margir að þeir leggjast á túnin.
Þetta eru fuglar sem skipta tugum eða hundruðum
og ef þeir fá að vera í friði leggja þeir túnin undir sig
og eyðileggja þau. Það gera þeir eins og engi-
sprettusveimur,“ segir hann.
Sveinn gagnrýnir verndaraðgerðir Evrópusam-
bandsins og segir þær skapa ójafnvægi. „Mér líst
ekkert á því að vemda þetta í stórum stfl. Þeir hafa
ekki skilning á þessu. Fuglinn býr ekki við góð lífs-
skilyrði þegar hann kemur yfir til Islands og veldur
okkur miklum vandræðum. Lög í landinu friða
svaninn algerlega, en ég sé ekki að það geti gengið
endalaust."
Síðasta sumar stóð Sveinn í sífelldri baráttu við
að vernda túnin fyrir svönunum, en án árangurs.
Fyrir nokkm slasaðist hann við reksturinn, þegar
hann rann til á túni og féll. Hann hefur gengið til
sjúkraþjálfara síðan. Hann segir ú'ma til kominn að
affriða svaninn og hefja skotveiðar á honum. „Ég er
í sífelldri baráttu að reyna að halda þeim frá. Ég
reyni að reka þetta burtu og hleypi af skotum úr
haglabyssu í átt að þeim til að hræða þá. Svo em
þeir komnir aftur um hæl. Það er tímabært að leyfa
veiðar á svaninum til að halda honum í skefjum. Ég
hef smakkað svan og hann bragðast eins og hver
annarfugl."
Sveinn ber kvíðboga fyrir næsta vori, þegar
svanurinn kemur fljúgandi í flokkum frá Evr-
ópu. Hann telur tímabært að Bændasamtökin
beiti sér í málinu og að vakin sé athygli Evrópusam-
bandsins á því tjóni sem það veldur með vemdun-
araðgerðum si'num.
Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands,
segir málið vandasamt, en það sé ekki til bóta að
Evrópusambandið styrkir norður-írska bændur í að
fóðra álfúr áður en þær koma
hingað til lands. „Ég skil ekki af
hverju þeir gera þetta. Bændur
hafa hvorki vilja né getu til að
fóðra álftir, nema kannski
Evrópusambandið vilji
styrkja okkur líka.“
Bændasamtökin
hafa leitað eftir
samvinnu við Siv
Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra um
að stemma stigu við
ágangi álftar. „Annað
hvort verður að halda
henni í skefjum með
vopnavaldi eða að hrekja
hana. En ef verið er að
hrekja hana af túnum er
bara verið að hrekja hana
annað,“ segir Ari.
jontrausti@dv.is
Vandræðasvanir Svanaflokkarhafa valdið
miklum skemmdum á túnum fyrir austan.
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna, undrast að
Evrópusambandið skuli styrkja
norður-írska bændur til að fóðra
álftina á veturna áður en hún
kemur til íslands.
„Það er timabært
að leyfa veiðar á
svaninum til að
halda honum í
skefjum."
rf
ér
mssem
Éngin bid
Borðaði kalkún með hermönnum
Bush heimsótti írak
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, fór í óvænta heimsókn til
Bagdad í gær í tilefni þakkargjörð-
arhátíðarinnar. Hann þakkaði
bandarískum hermönnum fyrir að
vera í írak og taka þátt í því að
vernda Bandaríkin fyrir hryðjuverk-
um.
Bush borðaði hinn hefðbundna
þakkargjörðarkalkún með rúmlega
600 hermönnum sem voru ákaflega
ánægðir en jafnframt hissa yfir
óvæntri heimsókn forsetans. Hann
eyddi tæpum þrem t-ímum með
hermönnunum. Forsetinn lék á alls
oddi í viðurvist hermannana og fór
nteð gamanmál. Hann sagði við
lendingu að hann hafi stoppað við
til að vita hvort að það væri eitthvað
að borða þarna. Bush var líka óþol-
inmóður í röðinni í messanum og
vildi fá að fara fremst þar sem að
hann væri valdamestur þeirra sem
þarna voru. En alvarleikinn var ekki
langt að baki og Bush réttlætti
stríðið í írak og þakkaði hermönn-
unum fyrir vel unnin störf.
Með þessari ferð fetaði Bush í
fótspor föður síns, en hann heim-
sótti bandaríska hermenn í Sádí-
Arabíu rétt áður en Íraksstríðið
braust út.
Gríðarleg leynd var yfir ferð
Bush. Blaðamönnum sem voru í
flugvél forsetans var sagt að ef þau
létu einhvern vita um ferðina á
meðan henni stóð yrði flugvélinni
samstundið snúið við. Forsetinn
átti von á foreldrum sínum í mat á
búgarð sinn í Texas en þau fengu
ekki að vita um ferðir hans fyrr en
að vélin var kominn aftur til Banda-
George Bush Fetaði I fótspor föðursins
með heimsókn sinni.
ríkjanna. Þetta er í fyrsta skipti sem
bandarískur forseti ferðast til
landsins.