Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Gaf ömmu
sinni insúlín
fyrir ránið
„Þetta er hörmungarmál
og öll fjölskyldan er í losti
út af þessu," sagði talsmað-
ur fjölskyldu
þeirra Jó-
hanns og
Heimis.
Heimir, sem
býr hjá
ömmu sinni í
Kópavogi, var hjá henni í
fyrradag og hjálpaði henni
að sprauta sig með insúlíni,
en hún er sykursjúk. Þetta
var það síðasta sem
spurðist til hans en að því
loknu fór Heimir með Jó-
hanni frænda sínum og
þeir rændu Bónus með af-
söguðum haglabyssum og
neyddu starfsmennina til
að krjúpa á meðan þeir
rændu búðina.
Foreldrar Heimis eru á
leiðinni heim frá Noregi.
„Ég held að drengirnir hafi
á engan hátt gert sér grein
fyrir alvarleika málsins,"
sagði fjölskyldumeðlimur.
Fæddir'84
Heimir Ingi og Jóhann
Bjarni eru báðir fæddir
1984. Þeir eru systkina-
synir. Þeir hafa játað fyrir
lögreglunni í Kópavogi að
hafa rænt Bónus. Þeir voru
leiddir fyrir dómara í Hér-
aðsdómi Reykjaness síð-
degis í gær. Þeir verða í
gæsluvarðhaldi fram á Þor-
láksmessu.
Jóhann Bjarni Guðjónsson og Heimir Ingi Hafþórsson voru handteknir í fyrrakvöld
eftir vopnað og óvenju bíræfið rán í Bónus við Smiðjuveg. Klukkustund fyrir ránið
hafði Jóhann Bjarni verið að hjálpa föður sínum í málningarvinnu á nýju heimili
þeirra. Sagðist ætla í mat til afa og ömmu en fór þess í stað vopnaður í ránsferð.
Vopnuðrán
Rán þar sem byssum er
beitt eru sjaldgæf á Islandi.
I Landsbankaráninu á
Laugavegi 77 árið 1984 not-
aðist ræninginn við afsag-
aða, hlaðna haglabyssu.
Hann hleypti þar af skoti
sem lenti í bifreið peninga-
flutningamannanna. Annað
dæmi um beitingu hagla-
byssu er bankaránið í Bún-
aðarbankanum við Vestur-
götu í desember 1995. Þar
ruddust þrír grímuklæddir
menn inn í bankann og var
einn þeirra vopnaður
haglabyssu.
Ekki í dópi
Piltamir eru ekki
taldir hafa rænt
Bónus vegna
fíkniefnaskulda
og ekkert bendir
til þess að þeir
séu yflr höfuð í fíkni
efnum. I undirheimum
Reykjavíkur er talað um að
ránið hafl verið éinstaklega
barnalegt þar sem drengirn-
ir voru á bíl sem þekktist
auðveldlega, og sagði heim-
ildarmaður að drengirnir
virtust hafa horft á of marg-
ar bíómyndir um hvernig
fremja eigi rán. Þeir náðust
líka sama kvöld og þeir
frömdu ránið.
Braut
umferðarlög
Samkvæmt upplýsing-
urn frá lögreglunni í
Kópavogi hafa
drengirnir lítið sem
ekkert komið við
sögu lögreglunnar
áður. Annar þeirra hefur
þó brotið umferðarlögin.
Málaði með pabba
klukkan 7 - rændi
Bánus klukkan 8
„Strákurinn var að hjálpa mér að mála hér
heima til klukkan sjö. Svo fór hann og sagðist
ætla í mat til afa og ömmu. Meira veit ég ekki fyrr
en ég heyrði þessi ósköp núna,“ sagði Guðjón
Ingólfsson, rafvirki í Kópavogi, síðdegis í gær á
heimili sínu í Kópavogi. Hann var þá nýbúinn að
fá fréttir þess efnis að Jóhann Bjarni, sonur hans,
hefði verið handtekinn ásamt félaga sínum,
Heimi Inga Hafþórssyni, fyrir vopnað og óvenju
bíræfið rán í Bónus við Smiðjuveg í fyrrakvöld.
Ránið var framið um áttaleytið um kvöldið og því
virðist sem Jóhann Bjarni hafi farið beint úr
málningarvinnunni með föður sínum til fundar
við Heimi Inga og þeir umsvifalaust látið til skar-
ar skríða.
„Mér fannst hann í alla staði eðlilegur þegar
við vorum hér við málningarvinnuna og ég skil
einfaldlega ekki hvernig þetta hefur getað gerst.
Reyndar bjó strákurinn ekki hjá mér heldur hjá
„Þá vaknaði von hjá mér um
að allt værí ílagi og ekki síst
nú fyrír skemmstu þegar
Jóhann fékk vinnu hjá Land-
helgisgæslunni. Hann átti að
fara á varðskipið Ægi og var
ákaflega ánægður með það
og stoltur."
ömmu sinni og afa en móðir hans er búsett í Dan-
mörku. En ég reyndi að fylgjast með honum eftir
mætti og vera í sem bestu sambandi við hann,"
sagði faðirinn og viðurkenndi að um tíma hefði
hann haft sínar grunsemdir um að sonurinn væri
í einhverju rugli. „Ég fékk sakavottorðið hans og
hann fór í lyfjapróf sem ekkert kom út úr. Þá vakn-
aði von hjá mér um að allt væri í lagi og ekki síst
nú fyrir skemmstu þegar Jóhann fékk vinnu hjá
Landhelgisgæslunni. Hann átti að fara á varðskip-
ið Ægi og var ákaflega ánægður með það og stolt-
ur. Það sama gilti um mig,“ sagði Guðjón sem hef-
ur verið að byggja sér einbýlishús f Kópavogi og
gert þar flest sjálfur - með aðstoð sonar síns sem
nú er kominn á bak við lás og slá:
„Þetta er svo mikil kúvending í lífi okkar
beggja. Strákurinn búinn að fá góða vinnu og allt
virtist á réttri leið þegar þetta ríður yfir. það hlýt-
ur eitthvað að búa þarna að baki sem við vitum
ekki í dag. Mér er næst að neita að trúa að þetta
hafi gerst," sagði Guðjón, faðir Jóhanns Bjarna, á
heimili sínu í gær. Þar átti að setja upp jólaljós í
nýju húsi en þess í stað grúfir þar yfir skuggi
ógæfu sem enginn á heimilinu botnar í.