Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 Fréttir DV Engin neyðar- áætlun Það er ekki til rýmingar- eða björgunaráætlun fyrir Reykjavík og nágranna- sveitarfélög ef náttúruham- farir eða stórslys verða sem ógna lífi íbúa á svæð- inu,“ segirÁsta Ragnheiður Jó- hannesdóttir al- þingismaður á vefsíðu sinni. Hún segir dómsmálaráð- herra hafa staðfest þetta er hann svaraði fyrirspurn hennar á Alþingi í síðustu viku. Hún segir að til séu rým- ingar- og björgunaráætlan- ir fyrir ýmis bæjarfélög, til dæmis Hveragerði, en ekki fyrir höfuðborgina og það séu mjög alvarleg tíðindi. Fleiri fórnar- lömb í sigtinu Þýska mannætan Armin Meiwes segist hafa haft fleiri fórnarlömb í sigtinu þegar lögregla handtók hann. Meiwes er ákærður fyrir að hafa myrt Bernd- Juergen Brandes í mars árið 2001. Meiwes stakk Brandes til bana og kom síðan líkamsleifum hans fyrir í frystikistu. Talið er að Meiwes hafi lagt um 20 kíló af líkinu sér til munns. Meiwes sagði fyrir rétti í gær að hann hefði haft hug á að myrða fleiri í sama til- gangi. Hann sagðist hafa verið í sambandi við mann sem vildi láta „slátra" sér. Meiwes náði sem betur fer ekki til fleiri á yfir höfði sér lífstíðardóm fyrir hið skelfi- lega morð. annatíma Magnús Árni Magnússon, að- stoðarrektor Viðskiptaháskól- ans á Bifröst, segir skólann vera stöðuga uppsprettu áhugaverðra tíðinda.„Við fögnuðum 85 ára afmæli skól- ans með miklum mætti síðast- liðinn föstudag. Hér komu um 500 manns, þar á meðal helm- napnainpi ingurrík- ISíliiilslSilliiliI isráðsins, og fagnaði áfanganum með okkur. I tilefni dagsins tók for- seti Islands skófiustungu að nýju rannsóknar- og þróunar- húsi. Utanríkisráðherra af- hjúpaði styttur aftveim fyrstu skólastjórum skótans, þeim Jónasi frá Hriflu og sr. Guð- mundi Sveinssyni. Um kvöldið hélt Upplyfting, með Magnús Stefánsson í fararbroddi, dansleik og lék frá 9 til 4 um nóttina." En það eru ekki bara hátíða- höld á Bifröst þvi að um þessar mundir er námið í atgieymingi. „Nemendur eru í þann mund að Ijúka svoköiiuðum misseris- verkefnum, en þau eru unnin í nánu samstarfi fyriratvinnulíf- ið. Þegar þeim er iokið þurfa nemendurnir að verja verkefn- in fyrir dómnefnd sem skipuð er afkennurum skólans. Einnig munu meistaranem- endurnir okkar þreyta prófí fyrsta sinn." Sáralítið er um að menn séu að stelast í rjúpnaveiði, fullyrða innflytjendur og selj- endur haglaskota. Margir eru reiðir umhverfisráðherra vegna veiðibannsins og ætla að senda inn falskar veiðiskýrslur til að kollvarpa veiðikortakerfinu. Fleiri í vopnuðum rénum en rjúpnnveiði „Ég hef ekki selt einn einasta pakka af hagla- skotum til rjúpnaveiða. Ef einhverjir eru að stelast eru þeir að nota gamlar birgðir," segir Hjáfmar Ævarsson, verslunarstjóri í Hlaði. Aðrir innflytj- endur og seljendur haglaskota taka í sama streng og fulfyrða að þeir myndu strax verða þess varir ef umfang ólöglegra rjúpnaveiða væri mikið. „Það eru fleiri í vopnuðum ránum en rjúpnaveiði," seg- ir Hjálmar og segist hafa verið hissa á fréttum um að einhverjir hefðu verið teknir fyrir ólöglegar veiðar. Róbert Schmidt, verslunarstjóri í Títan, segir að þeir fáu sem séu að laumast á fjöll hljóti að nota gamlar birgðir af skotum. „Menn birgja sig alltaf talsvert upp og sumir voru búnir að kaupa sér skot áður en bannið kom til.“ Ásgeir Halldórsson, eigandi Sportvörugerðarinnar, segir að hann myndi strax verða þess var ef ólögleg rjúpnaveiði færi af stað en það væri fullljóst af sölutölum að bannið væri virt nánast hundrað prósent. Þessir þrír aðilar flytja inn og framleiða 90% haglaskota og hafa því gott yfirlit yflr sölu- hreyfingar. Allir eru sammála um að talsvert sé um sögur af mönnum sem pukrist í rjúpuna, að- allega til að eiga í matinn um jólin. „En þetta er eins og ölvunarakstur," segir Róbert Schmidt í Títan, „það eru örugglega einhverjir sem stelast en ég held að þetta séu mest sögusagnir." Ef marka má héraðsfréttablöð falla menn helst í freistnina austur á landi. „Fjöldi manns á rjúpu," slærAusturglugginn upp í sínu síðasta tölublaði en samkvæmt heimildum blaðsins gengur stór hópur manna til rjúpna þrátt fyrir veiði- bannið. Sömu heimildarmenn telja einnig að lítið sé af rjúpu og vilja að hluta til kenna því um að ekki hafl verið grisjað nægjanlega í minnka- og refastofnin- um. menn sem ég hef heyrt í segjast hafa séð meira af ref en nokkru sinnið áður. Ef refastofninn telur tíu þúsund og hver refur étur eina rjúpu á mánuði, drepa refirnir fleiri rjúpur en allir veiðimenn hafa gert. Það er bara refurinn sem fær rjúpnajól," seg- ir Hjálmar sem á nokkra fugla í frystikistunni frá í fyrra og telur það bjarga jólunum. Aflir þeir sem DV hefur talað við og tengjast veiðiskap staðfesta sterkar raddir um að gremja veiðimanna vegna rjúpnaveiðibannsins muni fá útrás í því að fölskum veiðiskýrslum verði hér eft- ir skilað inn og færri fuglar skráðir en veiddir. Veiðimenn líti svo á að veiðikortakerfið hafi verið notað gegn þeim án haldbærra raka. Hjálmar í Hlaði bendir á að Náttúrufræðistofnun sé búin að fá 45 milljónir vegna sölu veiðikorta og hafi pen- ingarnir átt að renna til rannnsókna á rjúpunni en stofnunin viti þó ekkert um stærð stofnsins. „Veiðikortin verða fölsuð því alltof margir segjast ætla að skila skýrslum með minni veiði en reynd- in er, þvf það er alltaf unnið úr þessu á einn veg. Alltaf veiðimönnum í óhag.“ Seljendur veiðibún- aðar sem DV ræddi við mæla þó gegn því að menn standi að fölsun veiðikorta. Slíkt komi í bakið á veiðimönnum síðar. „Sveiattan, Siv!" Gremja veiðimanna beinist einna helst að Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra sem stóð að rjúpnaveiðibanninu. „Framsóknarmenn em ekki að vinna sér stuðningsmenn meðal veiðimanna núna,“ segir HjálmarÆvarsson og bendir á nýlega skoðanakönnun Refir sitja einir að jólarjúpu „Það þarf að taka til í tófustofninum," segir Róbert og því er Hjálm- ar sammála: „Það er misreiknað af veiði- stjóra að refa- stofninn sé á niðurleið. Allir veiði- einhverjar náttúmperlur og ákveða svo jólamatinn fyrir okkur hin. Annars bý ég svo vel að eiga rjúpur í kistunni." Eggert gagn- rýnir einnig að það virðist ekki skorta fé tU löggæslu til að eltast við rjúpna- skyttur. „Nú vantar ekki peninga til löggæslu. Flugvélar em notaðar í eftirlit og menn eru hund- Eggert Skúlason „Ég segi eltir eins og kókaínsmygl- nú bara við Siv:Sveiattan!" arar.“ Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðu- neytinu fá löggæsluembættin engar sérstakar fjárveitingar til eftirlits með rjúpnaveiðimönnum. Tveir hafa verið handteknir til þessa fyrir ólögleg- ar rjúpnaveiðar. ,/það er óþolandi að sjúkralið- ar sem aldrei hafa stigið út í náttúruna skuli þykjast vera einhverjar náttúruperlur og ákveða svo jólamatinn fyrir okkurhin Gallups fyrir Skotvís en þar kom fram að 64% þjóðarinn- ar vildu rjúpnaveiðar með tak- mörkunum. Eggert Skúlason, sem hefur gert fjölda sjón- varpsþátta um skotveiði, er ekkert að skafa utan af því: „Ég segi nú bara við Siv: Sveiattan," segir Eggert og vísar til menntunar umhverfisráðherrans. „Það er óþolandi að sjúkraliðar sem aldrei hafa stigið út í náttúr- una skuli þykjast vera Robert Schmidt, versl- unarstjóri í Títan: „Það • er bara refurinn sem fær rjúpnajói." Réttarhöldum yfir Steini Ármanni Stefánssyni lauk í gær. Dómkvaddur geðlæknir segir Stein ósakhæfan Ákærði kemur í réttarsal Réttarhöldum imáii Steins Stefánssonar, sem ákærður er fyrir manndráp, lauk i gær. Steinn var fjarstaddur. „Ég tel hann hættulegan," sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir þegar Hjördís Hákonardóttir hér- aðsdómari spurði um geðheilbrigði Steins Stefánssonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Steinn er ákærður fyrir að hafa banað Braga Ólafssyni á heimili hans að Klapparstíg í Reykja- vík í september árið 2002. Deilt hef- ur verið um sakhæfi Steins og ber geðlæknum ekki saman um hversu sjúkur ákærði er á geði. Geðlæknirinn var annar tveggja dómkvaddra matsmanna sem verj- andi Steins, Guðrún Sesselja Arnar- dóttir héraðsdómslögmaður, kallaði til. Helgi Garðar sagði fyrir dómi að Steinn væri að sínu mati ósakhæfur; hann væri alls ófær um að stjórna gerðum sínum og ekkert benti til annars en svo hefði verið kvöldið af- drifaríka þegar hann réðist á mann- inn á Klapparstíg. Helgi Garðar telur að Steinn hafi verið ósakhæfur frá árinu 1992 en þá var hann dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir stórfellt fíkni- efnabrot, glæfraakstur og líkamsárás á lögreglumann. Mat Helga á geðheilbrigði Steins er ekki á sömu lund og geðlæknis sem kom fyrir dóminn í fyrradag. Þá sagðist Sigurður Páll Pálsson geð- læknir telja að Steinn væri sakhæfur og ekkert benti til að hann hefði þjáðst af geðröskunum daginn sem hann framdi morðið. Það var að heyra á vitnisburði Helga að fangelsi væri ekki rétti staðurinn fyrir Stein enda þyrfti hann lyfjameðferð undir 'hand- leiðslu heilbrigðisstarfsfólks og stuðning vegna sjúkdóms síns. Steinn Stefánsson hefur setið á Litla Hrauni síðastliðna 16 mánuði og mestan þann tíma verið í ein- angrun vegna agabrota. Málið var dómtekið í gær að loknum málflutn- ingi sækjanda og verjanda. Dómur fellur líklega í byrjun næsta árs og þá kemur væntanlega í ljós hvort Steinn verður vistaður í fangelsi eða að Sogni í Ölfusi. arndis@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.