Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Blaðsíða 21
DV Fókus MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 21 Netið er blessun og bölv- un Chuck Norris er ævareiður yfir þessum upplýsingum og ætlar ekki að sætta sig við þetta ástand lengur. Hann hefur fallist á að gerast tals- maður nýs fyrirtækis sem einbeitir sér að síun efnis á Netinu, ásamt leikkonunni Patriciu Heaton úr Allir elska Raymond á SkjáEinum. Fyrir- Chuck Norris Hættur aðleikaí Walker, Texas Rangerenein- beitirsérað bar- áttu gegn barnaklámi og öðrum pervert- isma á Netinu. Klámhundar á Netinu og barnaníðingar ættu að vara sig því sjálfur Chuck Norris er kom- inn upp á móti þeim. „Þegar ég sá hvað börn gátu nálgast á Netinu brá mér mikið. Þetta er hræðilegt," sagði hasarhetjan Norris sem þekkt- astur er fyrir leik sinn í þáttunum Walker, Texas Ranger og gömlum bardagalistarmyndum. Eins og kunnugt er hafa nokk- ur mál sem snerta barnaníðinga komið upp hér á landi ný- verið. Milljón kyn- ferðisglæpa- menn á Net- inu „Við verðum að gera eitt- hvað í því að börnin okkar séu fórnarlömb kláms og barnaperra á Netinu,“ segir Chuck sem á tveggja ára tvíbura, strák og stelpu, ásamt Genu eigin- konu sinni. „Innan fárra ára eiga börnin mín eftir að fara á Netið og ég vil að þau séu varin.“ Og þetta er ekki bara í kjaftinum á honum því þessa dagana vinnur hann hörðum höndum ásamt netfyrirtæki að því að koma í veg fyrir að gráðugir sóða- bósar og pervertar geti skaðað börn. Tölfræðin talar sínu máli. Meðal- aldur þess að börn verði vör við klám á Netinu er 11 ár. Níu af hverj- um tíu börnum sem nota Netið á aldrinum 11-17 hafa óvart farið inn á klámsíður. Það eru um þrjár millj- ónir klámsíðna á Netinu og börnin geta komist á þær með því einfald- lega að smella á músina, þrátt fyrir síur sem foreldrar koma upp. Slíkt efni er þó aðeins hluti af vandamál- inu. Áætlað er að eitt af hverjum fimm börnum sem nota Netið hafi komist í samband við kynferðis- glæpamenn. „Yfir ein milljón kynferðisglæpa- manna notar Netið um allan heim,“ segir Norris og bætir við að 60 milljónir fjölbréfa með klámefni séu sendar daglega. „Þetta er ógnvænlegt. Þegar ég sá þessa tölfræði fékk ég algjört sjokk.“ tækið heitir MAX.com og fullyrðir að ný aðferð þess geti haldið klámefni á Netinu og barnaníðingum frá börn- um. Auk þess að loka aðgangi að óæskilegum vefsíðum segist það geta síað spjall á vefnum, tölvupóst, skilaboðaþjónustu á borð við Messenger og spjallsvæði. „Þegar ég var beðinn að taka þátt í að kynna þessa þjónustu sagði ég að fyrst vandamálið væri svona víð- tækt, væri ég meira en til í að vera með,“ segir Norris sem þiggur þó laun fyrir starf sitt en þau renna til góðra málefna. Og hvert annað en í bardagalistaskóla fyrir börn? Hann sagði að lokum: „Internetið er bless- un og bölvun. Það er gott fræðslu- tæki en á hinn bóginn er siðferðið oft hræðilegt. Við verðum því að finna leið til að stöðva klámhunda og níðinga áður en þeir ná til barn- anna okkar. Ég held að MAX.com sé skref í rétta átt.“ Atomic Kitten með Disney Breska stúlknatríóið Atomic Kitten virðist vera komið í álnir eftir að hafa gert titillagið fyrir Disney-myndina Mulan 2. Atomic Kitten ætti að vera íslendingum að góðu kunn en lög hennar hafa verið spiluð mikið á PoppTíví og víðar. Fyrri Mulan-myndin var afar vel heppnuð og hafa tO að mynda yfir 12 milljón- ir eintaka af henni selst á DVD og myndbandi um heim allan og ffamhalds- rnyndin verður án efa vinsæl þegar hún verður frumsýnd næsta sumar. Lagið sem Atomic Kitten gerði heitir I Want To Be A Girl og er annað lagið sem stelpurnar gera fyrir Disney. Það fyrra var út- gáfa þeirra á lagi Blonde, The Tide Is High, fyrir myndina um Lizzie McGuire. Stelpumar, Liz McClarnon, Jenny Frost og Natasha Hamilton, gætu því horft fram á ansi gleðilega tíma á næstunni. Stjörnuspá Garðar Örn Hinriksson, knattspyrnudómari og söngvari er 32 ára í dag. „Maðurinn þarfnast skilnings um þessar mundirog ef elskhugi eða félagi hans veitir honum alla sína athygli færir hann svo sannar- iega fjöll úr stað fyrir viðkomandi," segur í stjörnuspá hans. Garðar Örn Hinriksson V\ Vatnsberinn (20.jan.-i8. tebrj ------------------------------------------------ Fólk í merki vatnsberans ætti að setja sér það markmið að gefa ná- unganum ávallt af sér. Ef þú ert ekki í sambandi við eigin tilfinningar um þessar mundir ættir þú að gefa þér tíma til að huga að eigin löngunum. F\skm\r (19. febr.-20. marsl H Þú ættir að fara að öliu með gát í fjármálum næstu vikur og á sama tíma er þér ráðlagt að leggja þig fram við að meta það sem þú átt nú þegar og upplifir. Mundu, að of mikið af hinu góða getur orðið leiðinlegt ef ástina vantar og ekkert gefandi verður á vegi þínum. CV5 Hrúturinn (21.mrs-19.aprH) Hér er boðaður kátur félags- skapur og jafnvel gifting eða trúlofun. Hér er fyrirboði um að áætlanir standist ef þú hugar betur að þvi sem minnstu máli skiptir en jákvætt er framhaldið vissulega. NaUtíð (20. april-20. wai) Ö Hér birtist tákn gæfu og geng- is þegar merki nautsins er annars vegar. Hamingja, velferð og ekki síður jákvæð spenna einkennir líðan þína um þessar mundir og verkefni sem tengist þér óbeint virðist eiga hug þinn allan. Tvíburarnir (21. mai-21.júni) n Fólk í merki tvíbura ætti að gefa maka sínum eða félaga tíma sinn óskertan og opna hjarta sitt fyrir við- komandi. Það er eitthvert viðkvæmt mál sem hefur ekki verið rætt til hlítar hérna. Þér mun líða betur ef þú leggur spilin endanlega á borðið. KrMm(22.júni-22.júli) Q-*' Ekki láta hindranir koma í veg fyrir drauma þína því ef þú ætlar þér innst í hjarta þínu að láta dýpstu iang- anir þínar móta framtíð þína, verða þær að veruleika innan tíðar. LjÓnÍð (2S.júlí- 22. ágúst) Tl$ Ef einmanaleiki háirþér ættir þú ekki að örvænta því aðstæður fara batnandi og þú ert um það bil að kynn- ast góðhjartaðri manneskju sem mun gefa lífi þínu gildi. Meyjan (23. ágúst-22. septj Hjarta þitt er á réttum stað en rétt er að minna þig á að huga að eigin þörfum í iok hvers dags því stundum átt þú það til að gleyma eigin þrám og draumum. Ef þú gefur þér tíma til að skapa og móta það sem veitir þér ánægju munu hlutirnir fara eins og þú óskar. Q y^in (23. sept.-23. okt.) ““ Þúættiraðtakaþérdágóðan tíma og horfa til fortíðar og skilgreina hvaðan þú kemur og hvernig þú hefur tekist á við hindranir lífsins. Ef þú hefur það á tilfinningunni að hafa ekki sinnt hlutverki þínu innan veggja heimilisins getur þú ávallt tekið til hendinni og bætt úr því. Tli Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.) Flutningar einhvers konar koma hér fram. Orka, metnaður og skipulag einkenna þig og hegðun þína gagnvart starfi þínu eða skóla. Þú ert á réttri braut. Mundu, að meðalvegurinn er bestur. Bogmaðurinn f22.ndr.-21.tej Reyndu eftir besta megni að losna við þá þörf að verja stöðugt til- finningar þínar og skoðanir. Fólk fylgir þér ef þér sýnist svo með krafti þínum, húmor og þori. Ekki gleyma þeim sem vilja þér vel.Taktu hlutunum eins og þeir eru á þessari stundu. Steingeitin f22.dg.-i9.jmj Smávægileg vandamál ættu ekki að eyðileggja annars gott and- rúmsloft á meðal félaga þinna. Það virð- ist einhver nákomin/n þér vera í starfi ráðgjafa þegar kemur að ákvarðana- töku hjá þér. /f\ Sl '\.\1.\! >1 IMS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.