Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Page 22
22 MÁNUDAGAR 17. NÓVEMBER 2003 Síðast en ekki síst DV Rétta myndin mmsm Gallharðir í golfinu í golunni. Hafsteinar blásnir af Bæjaryfirvöld á fsafirði hugðust á fimmtudag í síðustu viku halda mikla veislu vestra til þess að halda [TK] uppá 150 ára fæðingaraf- SjJuU mæli Hannesar Hafstein. Fjöldi fólks hafði verið stefnt í fögn- uð í Frímúrarahúsinu á ísafirði, eða rétt tæplega 90 manns. Það var svo tveimur dögum fyrir hátíðina, sem hún var blásin af. Að sögn kunnugra var hvergi gert ráð fyrir þessari hátíð í fjárhagsáætlun ísafjaðrarbæjar, en skotið er á að kostnaður hefði numið um tveimur milljónum króna. Gestalisti veislunnar sem aldrei varð er nú kom- inn á flot, en á honum eru allir ráðherrarnir tólf og þingmenn Norðvesturkjör- dæmisins, ásamt mökum. Samanlagt áttu að koma að sunnan um 50 manns. Út- valdir heimamenn voru á fjórða tuginn, svo sem bæj- arfulltrúar og fleiri slíkir. Meðal gesta sem einnig eru nefndir til sögunnar eru frændurnir Júlíus Haf- stein, sem fer fyrir nefnd þeirri á vegum forsætisráðuneytis- ins sem skipuleggur 100 afmæli heimastjórarinnar og Pétur Kr. Haf- stein, hæstaréttardómari, áður sýslumaður á ísafirði og forseta- frambjóðandi. Óvænt úrslit Skák Á þakkargjörðarhátíðinni í Bandaríkjunum er sem endranær haldin sterk helgarskák- mót þar í landi. Hér eiga óvænt úrslit sér stað, stórmeistarinn Sergei Kudrin tapar fyrir óþekktum landa sínum. Þessi staða er ágætt dæmi um hvernig á að vinna með drottningu á móti hrók, hvítur er hér lentur í leikþvingun! Svartur á leik! Hvítt: Sergei Kudrin (2542) Svart: Michail Belorusov (2300) Philadelphia (5), 30.11.2003 71. -Dxe3 72.fee3 Kd3 73.KE2 Kd2 • Skrúfað hefur verið fyrir að Halldór Jónssson blaðamaður á Bæjarins besta á ísafirði skrifi frekar um bæjarmál þar vestra. Halldór hafði að sögn kunnugra skerpt áherslur blaðsins í þessum málaflokki og þá ekki síður vefsetur þess sem er á slóðinni bb.is. Þetta Síðast en ekki síst mun hafa pirrað Halldór Halldórs- son bæjarstjóra og ekki síður Bimu Lárusdóttur, forseta bæjar- stjórnar. Nú hefur Halldóri svo verið tilkynnt af þeim Halldóri Sveinbjömssyni og Sigurjóni J. Sigurðssyni ritstjóra að hann muni ekki skrifa meira um bæjarmál að sinni. Munu bæjarstjóri og ritstjóri hafa haldið sáttafund vegna máls- ins, enda hagsmunir í húft. • Það virðist vera orðin einhvers konar endurvakn- ing í uppistandi hérlendis. Hver keppnin í uppi- standi rekur aðra og uppistands- kvöld em fastur liður í skemmtanaflórunni. I kvöld verður einmitt eitt slíkt á Kringlu- kránni og er það óvenju vel mann- að. Þórhallur Sigurðsson, Laddi, konungur íslenskra grínista, kem- ur fram og hefur son sinn Þórhall með í för, en sá kemur fram í fyrs- ta sinn. Auk þeirra feðga koma fram Bjami töfra- maður og háðfugl- inn Hjálmar Hjálmarsson ekkifréttamaður. Uppistandið hefst klukkan 21 og kostar skitinn þús- undkall inn... ANTÓNIÓ! > ÍSLENÖINGAR ERU BYRJAÖIR AÐ ÖREPA V HVALIAFTUR! > ÉG TRUI ÞVÍEKKH? MIKIB ROSALEGA ERUPETTA BLOÖPVRSTIR FJANÖAR, MAÖUR! Um næstu helgi verða á skemmtistaðnum Nasa við Austur- völl tvennir tónleikar með hljóm- sveitinni Todmobile, sem fullyrða má að sé ein vinsælasta hljómsveit síðari ára á íslandi. Þessi skemmtun heyrir vissulega til nokkurra tíðinda, því sveitin hefur ekki leikið í sinni upprunalegu mynd á hefðbundnum tónleikum í tæpan áratug. Alveg ofboðslega gaman Um miðjan nóvember voru haldnir í Laugardalshöll tónleikar Todmobile og Sinfóníuhljómsveitar Sellóleikarinn „Þá strax vorum við komin með réttu tilfinninguna i puttana," segir Ey- þór Arnalds, sellóleikarinn geðþekki. „Þettavaralveg ofsalega gaman og í framhaldi afþessu ákváðum við að taka taka eitt gigg íslands. Þeir lukkuðust vel og gestir vom um 3.000. „Þetta var alveg ofsa- lega gaman og í framhaldi af þessu ákváðum við að taka eitt gigg, svona þegar eftir því var leitað. En þetta er af okkar hálfu undantekning fremur en þetta eigi að verða regla," segir Eyþór Arnalds sem kveðst hlakka mikið til þessara tónleika. Sem fyrr er Todmobile skipuð sellóleikaranum Eyþóri, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson leikur á gítar og söngkonan er Andrea Gylfadóttir. Þau hafa síðustu daga verið að æfa fyrir tónleikana helgainnar - en Ey- þór getur þess þó að eftir tónleikana með Sinfóníuhljómsveitinni hafi þau engu að síður verið komin í góða æftngu. „Þá strax vorum við komin með réttu tilfinninguna í puttana," segir Eyþór, sem kveðst ekki hafa komið nálægt poppmúsík í meira en áratug og sáralítið leikið á Krossgátan Lárétt: 1 nöf, 4 ger- legt, 7 lélegir, 8 báð- lega, 10 úrgangur, 12 miskunn, 13 tusku, 14 ánægju, 15 kraftur, 16 dæld, 18 tóm, 21 gleði, 22 fjöldi, 23 ferill. Lóðrétt: 1 hávaði, 2 armur, 3 skákar,4 trassa- fenginn, 5 heiður, 6 tæki, 9 styrkir, 11 fátæk, 16 Ijúf, 17 hætta, 19 muldur, 20 óhróður. Lausn á krossgátu •giu 0? jujn 6 L 'u6o l l 'jæ6 91 'Qneus u 'jiya 6'1919 'njse g 'sne| -ngjig f 's|jeiuueiu £'u|o z'sAcj L '6915 íz'suej ZZ 'ujne|6 iz'ugne 81 'goj6 91 '|je Sl 'geun yi 'in|>| e l 'Q?u 21 jsnj oi 'uuas 8'J|>ie| z'lðæg y'ujgjcj 1 :»ajen Todmobile tekur lagið Hljómsveitin vinsæla. Myndin var tekin þegar sveitin naut sem mes- tra vinsælda fyrir tæpum áratug. sellóið sem hann hafði forðum fantagóð tök á. Fimm breiðskífur Á því tímabili, þegar Todmobile reið á öldufaldi vinsælda og frægðar, það er á árunum 1989 til 1993, gaf sveitin út alls fimm breiðskífur. Á tónleikunum um helgina verða nokkur þessara laga leikin, svo sem Betra en nokkuð annað, Ég heyri raddir, Stúlkan og Stelpurokk - og er þá fáein nefnd. Það er tónleikafyrirtækið Concert sem stendur að tónieikunum á laug- ardaginn. Forsala aðgöngumiða hófst strax á þriðjudaginn og eru miðar seldir á NASA. Einnig verður forsala á Selfossi og í Keflavík, en frekari upplýsingar fást á skrifstofu Concert sem er við Bankastræti í Reykjavík. Einar Bárðarson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins segir mikinn heiður að halda tónleika með sveitinni og heiður sé af því að hafa fengið hana samstarfs. Tod- mobil fólkið hafi verið tregt til tón- leika fyrst í stað, en þegar því svo hafi borist gott tilboð frá Concert hafi þau ákveðið að slá til - og því fagni efalítið býsna margir. sigbogi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.