Dagblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 1
M fl BIAÐIÐ v jálst, úháð datfblað mil“l Boggi bitbein £ T* aða /w"\ síða /í „ \ \ t
1. árg. —Föstudagur 12. september 1975 — 5. tbl.
Hva slas iða erin aður mc di átti iður á h stór- ótelið?
83 ARA KONA ALEIN FLJUGANDI AÐ VESTAN
LITFRÍÐ
- OG
UÓSHÆRÐ
,,Ég er að þessu, af þvi að mér
þykir þetta bezta skemmtun,”
sagði 83 ára flugkappinn ungfrú
Marianne Hart. Dagblaðsmenn
komu að henni rétt fyrir
hádegið, þar sem hún var að
gefa flugvallarstarfsmönnum
fyrirmæli um, hve mikla oliu
þeir ættu að setja á flugvélina
hennar og hvernig.
,,Ég er að koma yfir Atlants-
hafið frá Washington. Það er
gott á Islandi, ef ekki er kalt,”
sagði hún og hristi sig litið eitt i
nepjunni. ,,Ég hef flogið i um 30
ár.”
Ungfrú Hart hefur flogið yfir
öll heimsins'höf. Hún hefur áður
komið til Islands, alls sjö sinn-
um.
Hún er ein i véi sinni, svo að
gott er, að konan er hin hress-
asta þrátt fyrir hinn háa aldur,
og lætur sér ekki allt fyrir
brjösti brenna. —HH
Marianne Hart við flugvél sina.
I.ætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna.
Hvaða mikilvægari störfum
hafði þyrla Slysavarnafélagsins
og Landhelgisgæzlunnar að
sinna en að koma stórslösuðum
manni i sjúkrahús? Þetta er
spurningin, sem menn velta
fyrir sér i dag, ekki sizt þeir
Hornfirðingar, sem urðu vitni
að sjúkraflutningum frá
brezkum togara á miöunum þar
út af.
Sá slasaði var sjómaður af
brezka togaranum Falstaff og
hafði fengið griðarlegt höfuð-
högg. Mjög vont var i sjóinn og
hvasst, og ekki þótti vogandi að
flytja hann milli skipa. Læknir
frá eftirlitsskipinu Othello fór
um borð i togarann, og Land-
helgisgæzlan var beðin ásjár.
Þyrlan GNÁ var að taka elds-
neyti á Hornafirði, en fór að þvi
loknu og sótti manninn og
lækninn. Þeim var svo skutlað
upp á hótel á Höfn, en siðan hélt
þyrlan til annarra starfa. Tveim
timum siðar kom litil flugvél aö
sunnan, en karfan komst ekki
inn i hana. Þá var enn beðið i
klukkutima, og þeim slasaða þá
komið suður með Fokkervél frá
Flugfélaginu.
Hjá Landhelgisgæzlunni var
þvi svarað um mikilvægari
verkefni þyrlunnar, að hún hefði
verið ,,á patról og öðru, i tvö-
földu verkefni.” Sagt var. að
umboðsmanni brezkra togara
hefði verið gcrt viðvart og lika
ræðismanni Breta. og þeim falið
að útvega sjúkraflugvél.
En menn spyrja: Var það
nægileg afsökun til þess að
skilja slasaðan mann eftir á
hótelinu, að visu meðlækni. Var
ekki nær að fara á móti væntan-
legri flugvél að sunnan eða
koma manninum örugglega á
sjúkrahús, ef þörf krafði? Hefði
verið farið eins að, ef sjúkiing-
urinn hefði verið islenzkur
sjómaður?
Dagblaðið spurði héraðs-
lækninn á Hófn i morgun. hvað
gert hefði verið við slasaða
manninn á hótelinu, en hann
hafði engin afskipti haft af
málinu, var i sjúkravitjun fram
i sveit, meðan beðið var eftir
flugi fyrir sjúklinginn og þvrlan
var ..á patról". —• —SHH
NÆST Á MÁNUDAG
Hún er ein af þeim, sem
sýningargestir á ljósmvnda-
sýningunni LJÓS '75 l'á að sjá
þessa dagana. Mats Wibe
Lund hitti þessa fallegu
stúlku og festi hana tryggi-
lega á liftfilmu
Vegna mikils álags á prent-
smiðju Blaðaprents hf. verður
ekki unnt að prenta laugar-
dagsútgáfu fyrir Dagblaðið að
þessu sinni. Er þvi margvis-
legt helgarefni i þessu eintaki
Dagblaðsins. Vonandi verður i
næstu viku og framvegis unnt
Þrengsli í
Blaðaprenti
að prenta laugardagsblöð
Dagblaðsins. I þetta sinn kem-
ur næsta tölublað Dagblaðsins
út á mánudaginn.