Dagblaðið - 12.09.1975, Síða 7

Dagblaðið - 12.09.1975, Síða 7
Dagblaðið. Föstudagur 12. september 1975. 7 Erlendar f réttir Flotinn rak íbúana burt Öldungadeild Banda- ríkjaþings hefur krafið Ford forseta um skýrslu vegna meintra nauðungar- flutninga allt að 1400 íbúa eyjunnar Diego Garcia. Voru íbúarnir fluttir í burtu, að sögn, svo að Bandaríkjastjórn gæti komið upp aðstöðu fyrir flota sinn á eynni. Eyjan Diego Garcia er í Indlandshafi og tilheyrir Bretum. Það var þingmaðurinn John Culver, sem vakti máls á þessu á þingi. Vitn- aði hann í frétt í Washing- ton Post, þar sem segir að ibúarnir búi nú við sult og seyru í AAáritíus. Áður höfðu embættismenn varnarmálaráðuneytisins skýrt þinginu svo frá, að Diego Garcia væri óbyggð fólki. S-Víetnam: SKORIN UPP HERÖR GEGN BRASKI ÓMAR VALDIMARSSON Stjórn Suður-Víetnam tilkynnti í morgun um nýjar ráðstafanir, sem ætlað er að koma ef nahag landsins á réttan kjöl og binda enda á ólöglega verzlunarhætti. Er þar átt við svartamarkaðs- brask og okur. Opinber tilkynning, sem lesin var í útvarpi og sjónvarpi, fordæmdi einnig „bandarísku heimsvaldasinnana og leppi þeirra" fyrir til- raunir þeirra til að eyði- leggja friðsamlega enduruppbyggingu S-Ví- etnam. Jafnframt því að for- dæma óheiðarlega kaup- sýslumenn bauð tilkynn- ing stjórnarinnar upp á vernd til handa þeim mönnum, er vildu fjár- festa í þágu þjóðarhags. Greinilegt var af til- kynningu byltingar- stjórnarinnar, að mjög hart verður tekið á öllu misferli, en jafnframt var heiðarlegu fólki lofað verðlaunum og allri nauðsynlegri aðstoð. Þúsundir manna fóru í gærkvöldi um götur Sai- gon (Ho Chi AAinh-borg- ar) veifandi fánum og borðum með slagorðum um stuðning við baráttu stjórnvalda. Leiðtogi Búddamunka i borginni rétti fulltrúa byltingarstjórnarinnar bænaskrá, þar sem þess var krafizt, að refsingu yrði beitt gegn „óheiðar- legu verzlunarfólki". AAargir hafa verið handteknir í Saigon að undanförnu vegna brasks af ýmsu tagi, en ekki er vitað með vissu, um hversu marga er að ræða. Dagblaðið FRELSUÐ SAIGON birti þó i gær lista yfir nokkra sltka og voru þar á meðal embættismenn hinnar föllnu stjórnar i Saigon. RÆNINGI l STARFI Myndirnar eru af norskum bankaræningja i starfi. Maður þessi réðst inn i Kredidkassann i Osló i fyrri viku og fór þaðan með 30.000 norskar krónur. Gjaldkeranum tókst að styðja á aðvörunarhnapp, sem setti myndavélarnar i gang. Ræninginn slapp Koma Watergate-samtöl Nixons út ó plötum? öldungadeild Bandarikjaþings ákvað i gær að reyna að gera opinberar segulbandsspólur og ýmsar skýrslur Nixons, fyrrum forseta. Þessi gögn leiddu á sin- um tima til þess að hann neyddist til að segja af sér. Um þessi gögn hefur staðið mikið strið á milli stjórnarinnar og Nixons, sem telur þau sina persónulegu eign. Gögnin eru öll i vörzlu stjórnvalda, samkvæmt lögum, er samþykkt voru skömmu eftir afsögn Nixons. I lögunum eru ýmis ákvæði og tak- markanir á opinberun gagnanna, sem meðal annars banna birtingu skjala, er gætu valdið forsetanum fyrrverandi skömm og vandræð- um. Annað lagaákvæði leyfði sagn- fræðingum aðgang að skjölunum en eftirtökur voru bannaðar. Fjöldi útvarps- og hljómplötu- fyrirtækja hefur sýnt áhuga á að gefa segulbandsupptökurnar út. í samþykkt öldungadeildarinn- ar var þess farið á leit við rikis- stofnunina, sem samdi lögin, að ný reglugerð yrði samin fyrir 10. október. Sérstakur réttur, skipaður þremur dómurum, mun siðar i þessum mánuði taka afstöðu til þeirrar kröfu Nixons, að hann fái skj öl sin til baka. Allt þykir benda til þess, að málið fari þó alla leið til hæstaréttar. Úrskurðar hans er ekki að vænta fyrr en á riæsta ári. TYRKIR FINNA GAS Oliufélag tyrkneska rikisins til- kynnti i Ankara i gærkvöldi, að fundizt hefðu miklar og góðar gaslindir nærri Nusaybin i austurhluta landsins. Talsmaður félagsins sagði, að frekari rannsóknir yrðu gerðar á svæðinu, til að kanna hversu mikið gas væri um að ræða. Sagði talsmaðurinn, að æðin, sem þegar hefði fundizt, gæfi af sér 708 kúbikmetra af gasi daglega. Eþíópía: 55 lótnir lausir Herforingjastjórnin i Eþiópiu hefur látið lausa 55 pólitiska fanga, þar af marga, sem voru háttsettir embættismenn i stjórn Haile Selassie, fyrrum keisara. Frá þessu var skýrt i Addis Ababa i gærkvöldi. Sakaruppgjöfin kemur til um leið og Eþiópar fagna nýju ári, en þar er enn notast við júlianskt timatal. Fjórir fyrrverandi ráðherrar eru meðal þeirra, sem látnir voru lausir, þar á meðal utan- rikisráðherrann. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um fjölda pólitiskra fanga i landinu, en á listanum yfir þá, sem látnir foru lausir i gær- kvöldi, voru nöfn margra þeirra hæstsettu, sem lifðu af aftöku- herferðina i nóvember sl. 1 tilkynningu stjórnarinnar um sakaruppgjöfina sagði, að mennirnir 55 hefðu hlýtt á fyrir- lestur fulltrúa bráðabirgða- stjórnar hersins, áður en þeir urðu frjálsir. Fulltrúinn lét i ljósi þá ósk, að þeir myndu framvegis þjóna landi sinu dyggilega. Utanrikisráðherrrann fyrr- verandi, dr. Menassie Haile, er sagður hafa svarað fyrir hópinn og sagt þá ekki aðeins hamingjusama vegna endur- heimts frelsis, heldur og vegna þess, sem áunnizt hefði i Eþiópiu siðan keisaranum var steypt af stóli. Hann mun einnig hafa talað um mannúðlega meðferð i fangelsinu. Keisarinn, Ljónið af Saba, lézt i lok ágúst. Nokkrir háttsettir fyrrum sam- starfsmenn Ljónsins af Saba hafa nú verið látnir lausir. Lýstu þeir ánægju sinni með þær framfarir, sem orðið hafa siðan keisaranum var vikið frá. SPÍNÓLA HVETUR TIL AF- SAGNAR HERFORINGJANNA Antonio de Spínóla, fyrrver- andi forseti Portúgals, hvatti núverandi leiðtoga lands sins i Paris i gærkvöldi til að afsala sér þegar völdum i hendur stjórnmálalegra fulltrúa ibúa landsins. t viðtali við franska sjónvarp- ið, sem er i rikiseigu, sagði Spinóla: „Þeir (herforingja- stjómin) verða þegar i stað að snúa aftur til herbúða sinna og afsala sér völdum i hendur lög- lega kjörinna fulltrúa alþýðunn- ar.” Spinóla sagði einnig, að fast- setja yrði dagsetningu nýrra kosninga og sakaruppgjafar pólitiskra fanga. Hvatti hann til myndunar stjórnar „heiðarlegra manna”. Það eitt gæti orðið til að setja Portúgal ofar persónulegri met- orðagirnd núverandi valdhafa. — Spinóla kom til Parisar frá Braziliu i siðustu viku. Byltingarráð hersins i Portú- gal kom saman til fundar i morgun. Tveggja vikna stjórn- arkreppa er enn óleyst. Aðalefni fundarins i morgun var að ræða vfðtækar neitanir dagblaða að virða nýju ritskoðunarreglurn- ar, sem settar voru i vikubyrj- un. Einnig átti að reyna að kom- ast til botns i þvi, hvers vegna viðræður Costa Gomes, forseta, og Jose Pinheiro de Azavedo, hins nýja forsætisráðherra, við stjórnmálaleiðtoga um myndun nýrrar rikisstjórnar hafa ekki borið árangur. Costa Gomes og Azavedo höfðu áður hætt við myndun samsteypustjórnar og tala nú um þjóðstjórn, þar sem ráð- herrar þjónuðu á persónulegum grundvelli, en ekki i þágu flokka sinna.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.