Dagblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 3
Dagblaðið. Föstudagur 12. september 1975.
3
TVENN HJÓN
LEIGJA ÍBÚÐ
VILDU
SAMAN
—og það tókst loksins
með smóauglýsingu
í DAGBLAÐINU
,,Það hvorki gekk. né rak,
þangað til við auglýstum i
DAGBLAÐINU eftir ibúð, sem
hentað gæti fyrir tvenn hjón
með börn til að búa i”. Þetta
sögðu þau Ólafur Sigurðsson og
kona hans. Þau höfðu viða reynt
að auglýsa, en allt án minnsta
árangurs.
Smáauglýsingar Dagblaðsins
hafa reynzt mjög vel, á þvi virð-
ist varla nokkur vafi. Dagblaðið
hefur kannað árangur aug-
lýsinganna holt og bolt hjá ýms-
um þeirra sem auglýst hafa i
blaðinu og ber öllum saman um
mikinn og skjótan árangur
þeirra.
Magnús Guðmundsson heitir
maður, sem auglýsti Volvoinn
sinn til sölu. Svo fór þó að billinn
var seldur áður en auglýsingin
birtist. „Fólk var stöðugt að
hringja og er enn. Ég hef bara
ekki fleiri bila til að selja,”
sagði Magnús.
Það er hreint ekkert gaman að
dúsa með tvo barnavagna i
geymslunni. Guðjón Jónsson
var i þessum sporum og setti
auglýsingu i Dagblaðið. Fyrri
tilraunir höfðu ekki gengið. Nú
loksins var farið að svara hon-
um, og vonandi myndast
heilmikið og gott geymslupláss
hjá Guðjóni, og eitthvað ætti
pyngjan að þyngjast.
Fyrirtæki, einkum verzlanir,
hafa notfært sér smáauglýsing-
ar undanfarin ár. Töskuhúsið
auglýsti eftir lopapeysum, og
sagði Pétur Pétursson, að mikið
hefði verið hringt út af aug-
lýsingunni, ena þótt hann hefði
ekki enn keypt mikið af peysun-
um.
Þá má geta um frimerkja-
safnara, sem kaupir og selur
frimerki. t gærdag kvaðst hann
hafa orðið var við mikinn og
góðan árangur. Hann kvað
greinilegt, að blaðið færi um
land allt, þvi hann var búinn að
fá upphringingu af Tjörnesinu
út af auglýsingunni.
Herbergi er auðvelt að leigja
með smáauglýsingu. Það fann
Unnur Þórðardóttir fljótlega,
eftir aðhún setti smáauglýsingu
i DAGBLAÐIÐ. „Siminn hefur
varla stoppað, ásóknin hefur
verið svo mikil, að ég er i stand-
andi vandræðum að velja úr
leigjanda”, sagði Unnur.
Bergþóra Úlfarsdóttir aug-
lýsti kettlinga, sem hún vildi
alls ekki farga. Smáauglýsing
gerði það að verkum, að þeir
runnu út, rétt eins og heitar
lummur. Hún hefði getað gefið
heila hjörð af kettlingum.
— BH —
HATTERSLEY MARGT
TIL LISTA LAGT
Roy Hattersley, höfuðsmanni
Breta á Islandsvigstöðvum, er
margt til lista lagt. Hann hefur
verið i fremstu röð i Verka-
mannaflokknum um mörg mál.
Þá var hann farandkennari
Harvardháskóla i Bandarikjun-
um ár'in 1971—72, enda kvæntur
skólastýru i stórum gagnfræða-
skóla i Norður-London. Þau
hjón eru barnlaus.
Hattersley er hagfræðingur,
43 ára gamall. Hann komst á
þing árið 1964 fyrir Birmingham
og hefur setið þar siðan. Hann
varð ritari tryggingarmálaráð-
herra og siðan ritari atvinnu-
málaráðherra i stjórn Wilsons,
en gerðist talsmaður stjórnar-
andstöðunnar i utanrikismál-
um, varnarmálum og mennta-
málum, eðan Heath og ihalds-
menn fóru með stjórn. Eftir sig-
ur Verkamannaflokksins og
stjórnarmyndun Wilsons nú sið-
ast varð hann aðstoðarutan-
rikisráðherra i fyrra.
Hattersley á sæti i ráði því,
sem oft er á isienzku nefnt
„leyndarráð”, sem mun rang-
nefni, en ráð þetta, „Privy
Council” er ráðgefandi rikis-
stjórn og drottningu um margs
konar málefni en ekkert sér-
staklega heimullegt. —HH
Okkur er hált á víxlunum:
ÞINGFESTUM
MÁLUM FJÖLGAR
UM ÞRIÐJUNG
„Hér i bæjarþinginu voru þing-
fest 116 mál siðastliðinn fimmtu-
dag”, sagði Sigriður ólafsdóttir,
fulltrúi borgardómara, I viðtali
við DAGBLAÐIÐ. „Þetta eru að
langmestu leyti vixilmál,” sagöi
Sigriður, „en að fjölda til held ég,
að þau séu með flesta móti á ein-
um þingdegi. Yfirleitt eru tals-
vert fleiri mál þingfest á fimmtu-
dögum en þriöjudögum. Frá þvi
að ég byrjaði hjá embættinu i
fyrra, hefur málum, sem þingfest
eru farið jafnt og þétt fjölgandi.”
Friðgeir Björnsson, borgar-
dómari, þingfesti 92 mái siðast-
liðinn þriöjudag, sem var fyrsti
bæjarþingsdagur eftir réttarhlé.
Friðgeir sagði, að það væri nokk-
urn veginn lögmál, að dómsmál-
um fjöigaði, þegar harðnaði i ári.
Fjölgun mála, sem þingfest hafa
veriö hér i bæjarþinginu, hefur
ekki verið eins mikil frá þvi i
hrinunni, sem kom eftir árin 1967-
68.
3.750 dómsmál voru þingfest i
bæjarþingi Reykjavikur fyrir
réttarhlé, sem hófst 1. jdli sl. Er
þetta fjölgun þingfestra mála um
36.4% miðað við réttarhlé i fyrra,
en þá höfðu á sama tima vcrið
þingfest 2.749 mál.
— BS —
83322 Beinar línur: 85112 - 85119 Ritstjórn
Ritstjórn 22078 Afgreiðsla — óskriftir
Afgreiðslo 22050 Auglýsingar
Áskriftir Notið beinu línurnar
Auglýsingor þegar 83322 er ó tali
Bílvelta í Oddsskarði:
LÁN í ÓLÁNI HJÁ TVEIM
UNGUM STÚLKUM
Friðjón Þorleifsson /
Neskaupstað i gær:
Lftill fóLksbill með tveim
ungum stúlkum i valt Eski-
fjarðarmegin i Oddsskarðinu kl.
11 i gærmorgun. Stúlkurnar
sluppu litið meiddar, en billinn er
talinn gerónýtur.
Ungu stúlkurnar voru á leið frá
Neskaupstað no.rður i land. Voru
þær komnar i Kinnina Eski-
fjarðarmegin i skarðinu, þegar
bíllinn lét allt i ei.nu ekki lengur að
stjóm. Lenti biliinn á nokkurri
ferð út af veginum til hægri og
niður i skurð. ÞeV.ta var lán i
óláni, þar sem snarbratt er niður
af vinstra megin og þarf ekki að
leiða neinum getun? að þvi,
hvemig farið hefði, ef bíllinn
hefði tekið þá stefnu sfjórnlaus.
Þegar litiö er til fjalla I
grennd viö Reykjavik, má sjá
að veturinn er á næsta leiti.
Fjailatopparnir skarta hvitu
og það andar köldu, jafnvel
um miðjan dag. Norðar á
landinu hafa ferðamenn lent I
hávaða snjóbyljum og ófærö.
Þessa mynd af Esjunni {
haustskrúða tók Björgvin
Pálsson, einn af ljósmyndur-
um Dagblaösins. Myndin er
tekin frá Grandagarði i gær.
HALFNUÐ ÞRAUT
— og þá erum við í Tyrklandi
Jæja, þá erum við
meðlesendur okkar í
Tyrklandi, — og spurt er
hver sé höfuðborg lands-
ins, Istanbul, Ankara eða
Izmir.
Getraunin er annars
hálfnuð, þegar þessi
fjórði hluti birtist, —
f jórar eru eftir og birtast
í næstu viku. Munið að
halda nú til haga öllum
seðlunum. Dagblaðið
selst svo vel að erfitt
getur reynzt að ná í seðla
ef þeir tapast.
1 B££-
5. Hvað heitir höfuðborgin i
Tyrklandi?
A: Istanbul
B: Ankara
C: Izmir