Dagblaðið - 12.09.1975, Síða 11

Dagblaðið - 12.09.1975, Síða 11
Dagblaðið. Föstudagur 12. september 1975. n íþróttir Íþróttir íþróttir íþróttir ] Fyrsti islendingurinn er leikur með atvinnu- mannaliði sínu heima Valur og Celtic leika í Evrópukeppni bikarhafa á Laugardalsvelli á þriðjudag og þá leikur Jóhannes Eðvaldsson gegn sínum gömlu félögum í Val Jóhannes Eövaldsson, landsliðsfyrirliðinn kunni, skrifar nýtt blað í sögu Evrópumótanna á þriðju- Kenny Dalglish, hinn litriki inn- herji Celticliðsins og að sögn Celtic eini leikmaður liðsins nú á heimsmælikvarða. Hann hefur verið fastamaður í skozka iands- liðinu undanfarin ár. daginn, þegar hann hleyp- ur inn á Laugardalsvöllinn sem Celtic-leikmaður og leikur gegn hinum gömlu félögum sínum úr Val. Sem leikmaður Vals, þegar liöiö vann sér rétt til þátt- töku í-Evrópukeppni bikar- hafa með þvi að sigra Akranes í úrslitum í fyrra- haust, varð Jóhannes væntanlegur þátttakandi í Evrópukeppninni — og hann er það. En leikur sem atvinnumaður með fræg- asta félagi Skotlands gegn sinu gamla félagi i keppn- inni. Slíkt er einsdæmi í langri sögu Evrópukeppn- innar í knattspyrnu. Við höfum átt atvinnumenn i knattspyrnu — en annar merkis- atburður verður á þriðjudaginn. „Ég er i góðri æfingu núna og ég ætla aðberja Ali 1151otur — já, vinna allar loturnar 15,” sagði Joe Frazer i Los Angeles skömmu áður en hann fór frá Kaliforniu til ManiIIa á Filippseyjum. ,,Ég vona, að þegar ég kem aftur til U.S.A., þá komi ég með titilinn. Ég hef ekkért á móti Ali, ætla mér aðeins að vinna hann,” hélt Frazier áfram. Það verður i fyrsta skipti, sem is- lenzkur atvinnumaður leikur með hinu erlenda liði sinu á íslandi — þar skrifar Jóhannes nýtt blað i islenzka knattspyrnusögu. Valsmenn hafa verið ótrúlega heppnir með mótherja að þessu sinni i Evrópukeppninni — fær eitt bezta félagslið Evrópu i heimsókn með fyrrum fyrirliða Vals sem eitt aðalnúmer. Það hlýtur að draga áhorfendur að leiknum, þó svo möguleikar Vals séu heldur litlir til að ná árangri gegn þessu fræga liði, Celtic. En Valur á einstaka sögu is- lenzkra liða i Evrópukeppninni — það hefur aldrei tapað leik á heimavelli i Evrópukeppni. Litlir voru möguleikar Vals taldir gegn Benfica hér á árum áður, þegar nokkrir frægustu knattspyrnu- menn heims léku með Benfica á Laugardalsvelli gegn Val. En þó möguleikar Vals væru taldir litlir vann félagið ótrúlegt afrek — náði jöfnu gegn Eusebio og félögum hans hjá portúgalska liðinu. Frazier vann titilinn af Ali i marz 1971, þegar hann vann hann á stigum. Hins vegar var hann eins og mús undir fjalaketti, þegar hann mætti Foreman I janúar 1973 — var sleginn niður i annari lotu. Ali vann svo Frazier 1974 á Madison Square Garden á stigum i tólf lotu keppni — þannig er staðan nú, 1-1. Aðspurður hvað hann muni Tekst Val það nú gegn Celtic? — Þá er einnig athyglisvert atriði á leik Vals og Celtic á þriðjudag — þar leika bræður sem mótherjar Jóhannes hjá Celtic. Atli „litli” bróðir hjá Val. Slikt er sennilega einnig einsdæmi i Evrópukeppni. Leikur Vals og Celtic hefst kl. sex á Laugardalsvellinum — hefst svo snemma vegna birtunn- ar. Forsala aðgöngumiða er hafin — er i Austurstræti i Reykjavik. Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Björns Guðjónssonar leik- ur fyrir leikinn og i leikhléi. Dómaratrióið, sem dæmir leik- inn, er frá Norður-lrlandi. Celtic er mjög sterkt iið, þó álit þjálfara Vals, Skotans Joe Gilroy sé, að það sé ekki eins sterkt og á undanförnum árum. Liðið hafi fjófa snjalla léikmenn i sinum röðum — að áliti Joe — Jóhannes, Dalglish, McGrain og Bobby Lennox — en lið þurfi 5-6 „klassa- leikmenn” til þess að komast langt i keppni sem Evrópukeppn- inni. gera, ef Ali noti sömu taktik á hann og Foreman: nefnilega að draga sig út í kaðlana og þreyta andstæðinginn sagði Frazier. „Ég hef grun um, að haldi Ali sig við kaðlana, sé bezt að leita hans þar eftir keppnina.” „Ali er góður hnefaleikamaður, mér er ekkert illa við hann, en þegar kemur út I bardagann, þá hata ég. ” h.h. Mikið um að vera hjá Golfklúbb Rvíkur Það verður mikið um að. vera hjá félögum Golfklúbbs Reykjavikur um helgina. A laugardag verður Backardi- keppni, 18 holur leiknar með forgjöf. Keppnin hefst kl. 13.00 á golfvellinum i Gra farholti. A sunuudag verður keppni GR við varnarliðið. Keppt verður i holukeppni um veg- legan farandgrip, sem varnarliðsmenn gáfu á sinum tfma. Keppnin hefst kl. 9.30. Kl. 10.00 á sunnudag hefst svo drengjakeppni og verður keppt um Jóns Agnars-bikarinn. Ekki er þar með allt upptalið frá GR á sunnudag. Kl. 13.00 hefst Chrysler- keppnin — opin keppni með 14 og hærra i forgjöf og að síðustu er opin kvennakeppni kl. 14.00 með forgjöf — en hins vegar verður boðs- keppni Flugfélags tslands frestað. Firmakeppni Nú eru knattspyrnumenn farnir að hugsa til hreyfings innanhúss. Hin árlega firmakeppni Gróttu verður haldin tvær siðustu helg- arnar í september. Að venju verður þátttaka væntanlega mikil og skulu þátttökutilkynningar berast til Garðars Guðmundsson- ar fyrir 14. sept. i sima 85471 og 3752C. FRAZIER ÆTLAR SÉR AÐ TAKA HEIMSMEISTARATITILINN AF ALI CELTIC á að baki glœsilegri feril en nokkurt annað knattspyrnufélag á Bretlandi! Glasgow Celtic á að baki glæsilegan feril, glæsilegri en nokkurt annað félagslið á Bret- landseyjum. Það hefur unnið skozku deildakeppnina — þar af 9 sinnum i röð á árunum 1966 — 1974. Aöeins eitt lið í Evrópu getur státað af slíku afreki, CDNA-Sofia frá Búlgariu á árunum 1954 — 1962. Skozka bikarinn hefur félagið unnið 24 sinnum, siðast i vor, er það sigraði Airdrie 3-1 i Hampd- en Park, að viðstöddum 75 þús- und áhorfendum. Einnig vann Celtic deildabik- arinn á siðasta keppnistimabili, sigraði Ilibernian 6-3 i úrslitum. Það var sigur númer 8. Það afrek, sem ber þó hæst er hinn frækilegi sigur i Lissabon 1967. Þá varð Celtic fyrst brezkra félagsliða til að vinna Evrópubikarinn. 1 sögulegum leik vann Celtic Inter-Milanó 2-1.Enn þann dag i dag minnast menn hins glæsi- lega marks Tommy Gemmel. Hörkuskot hans, af 20 metra færi. hafnaði efst i vinstra horn- inu. áður en Sarti hinn frægi markvörður Milanó-liðsins, hafði hreyft sig. Þremur árum seinna var Celtic aftur i úrslitum, en tapaði i fram- lengdum leik fyrir Feyenoord frá Hollandi, 2-1. Celtic hefur mörgum frá- bærum leikmönnum á að skipa. 1 markinu er Englendingurinn Peter Latchford. Hann er einn þriggja bræðra. Hinir eru Bob Latchford hjá Everton, dýrasti leikmaður i enskri knattspyrnu, og David markvörður Birmingham. Danny McGrain, einn bezti bakvörður Bretlandseyja. Hann hefur 16 sinnum leikið i skozka landsliðinu, siðast i heims- meistarakeppninni ’74. Andy Lynch, hann var keyptur frá Hearts ’73. Er nú einn af mörgum kantmönnum, sem hafa snúið sér að bakvarð- arstöðunni. Pat McClusky, miðjuspilarinn sterki, sem lenti i ævilöngu keppnisbanni ásamt Bremner eins og frægt er orðið. Hann hefurleikið landsleiki undir 23ja ára. Jóhannes Eðvaldsson. Hann þarf ekki að kynna. Skotar eru geysilega hrifnir af honum og kalla hann „ísmanninn”, manninn sem lagði Skotland að fótum sér. Roddy McDonald, átti að taka við af Billy McNeill en nú hefur Celtic fundið annan! George Connelly. Árið 1973 var hann kjörinn knattspyrnu- maður ársins á Skotlandi. A að baki tvo landsleiki. Paul Wilson, hefur verið nokkuð lengi að vinna sæti i liðinu. Hins vegar sló hann i gegn á siðasta keppnistimabili, þá var hann markahæstur með 26 mörk. Harry Hood, þegar hann var keyptur frá Clyde, 1969, var hann dýrasti leikmaður, sem Celtic hafði keypt. Hefur skorað mikið af mörkum. Tommy Callaghan, var keyptur frá Dunfermeline 1968. Hefur verið fastur maður i liðinu. Ronnie Glavin, dýrasti leik- maður, sein Celtic hefur keypt, kostaði 80.000 pund frá Partick Thistle. Hann var aðalorsök þess, að Partick vann Celtic I eftirminnilegum úrslitaleik i deidabikarnum 1971-72. Úrslit sem komu mjög á óvart, 4-1, Thistle i vil. Kenny Dalglish, frægastur þeirra Celtic-manna. Einn af fáum brezkum knattspyrnu- mönnum i heimsklassa. Hann fór fram á sölu i haust en skiljanlega er Celtic ekki á þeim buxunum að láta hann fara. Jacky McNamara, einn af efnilegri leikmönnum Skot- lands. Bobby Lennox, sá eini, sem er eftir frá liðinu, er vann Evrópu- bikarinn ’67. Mjög ieikinn og skemmtilegur leikmaður, sem skorar mikið af mörkum. Hefur leikiðsjösinnum i landsliðinu. Á laugardaginn skoraði hann þrennu á móti Dundee. Dixie Deans, mikill marka- skorari. sem var keyptur frá Motherwell fryrir 60.000 pund. Hefur leikið með skozka lands- liðinu. Alistair Hunter, varamark- vörður. Hann hefur leikið með skozka landsliðinu og sýnir það ljóslega, að það er valinn maður i hverju rúmi. Já, Celtic hefur frábærum leikmönnum á að skipa, leik- mönnum, sem hafa einokað skozka knattspyrnu siðastliðin 10 ár. En reynslan sýnir, að meira þarf en góða leikmenn. Það þarf mann til að stjórna. Celtic hefur einn slikan. einmitt Jock Stein, hæfasta framkvæmdastjóra á Bret- landseyjum. Frá þvi Jock Stein tók við liðinu, hefur ferill þess verið glæstari en nokkurs ann- ars liðs á Bretlandseyjum. Oftar en einu sinni hefur liðið unniðalla titla, sem hægt var að vinna á Skotlandi. t sumar varð Celtic fyrir mikiu áfaili. Þá lenti Stein i alvarlegu umferðaslysi og slasaðist illa. Hann lá lengi á sjúkrahúsi. Það var þvi mikill fögnuður á Hampden Park á laugardaginn. þegar Stein birtist þar i fyrsta skipti eftir slysið — slikar eru vinsældir Stein hjá áhangendum þessa frægasta liðs Skotlands. — h.h. \

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.