Dagblaðið - 13.10.1975, Blaðsíða 7
Oagblaðið. Mánudagur 13. október 1975.
7
Nixon hyggur á endurkomu
Newsweek segir Nixon hafa
sagt gesti, sem nýlega var i San
Clemente, að hann myndi
gjarnan vilja verða virkur á ný i
utanrikismálum lands sins ef til
vill hjálpa til við „samningavið-
ræður og svo framvegis.”
Annar gestur forsetans fyrr-
verandi sagði Nixon hafi kvart-
að yfir þvi, að aðrir stjórnmála-
menn — sérstaklega fornir fé-
lagar i Repúblikanaflokknum —
reyni að halda sig i hæfilegri
fjarlægð frá honum opinber-
lega.
,,Ef þeir vilja mig, þá er það
ágætt” er haft eftir Nixon. ,,Ef
þeir vilja mig ekki, þá er það
lika ágætt. Ég vildi bara óska,
að þeir héldu sér saman um það.
Það er ástæðulaust að vera si-
felltað tala um það.”
Richard Nixon hefur i hyggju
að flýta fyrir endurkomu sinni
til opinbers lifs og gæti þegið
boð um ferðalög utanlands eftir
forsetakosningarnar i USA á
næsta ári, segir fréttatimaritið
Newsweek International.
Hefur ritið eftir vini forsetans
fyrrverandi, að Nixon sé nú
mjög ákafur i að hefja sig upp i
pólitiskt sviðsljös aftur. Annar
vinur hans segir, að Nixon muni
horfast i augu við Watergate-
hneykslið i endurminningum
sinum, sem hann vinnur nú að.
„Hann veitýsegir þessi vinur
Nixons, „að heimurinn mun
ekki láta sér nægja frá honum
ásakanir um að hann hafi verii
fórnarlamb þess, sem allir aðrir
voru að gera. Hann mun taka á
vandamálinu framan frá og
taka á sig fulla ábyrgð.”
Nixon ásamt David Frost sjónvarpsmanni, sem keypt hefur réttinn að viðtölum við Nixon fyrir 600
þúsund dollara. Eru þau viðtöl — sem tekin verða upp eftir forsetakosningarnar — hluti af áætlun
Nixons um að snúa aftur tibopinbers lifs. Ekki þykir öllum það jafn góðhugmynd.
USA sendir Indlandi
úraníum í níu
kjarnorkusprengjur
Erlendar
fréttir
Arabískur
ráðherra-
fundur
um
Líbanon
Átta Arabariki hafa orðið
sammála um að halda fund ut-
anrikisráðherra sinna i Kairo
á miðvikudaginn til að finna
lausn á vandamálum
Libanons, sagði talsmaður
stjórnar Kuwait i gærkvöldi.
Talsmaðurinn vildi ekki
nefna löndin með nafni. Hann
lét þessa getið eftir fund
stjórnarinnar, þar sem
vandamál Kuwait var rætt. An
efa á stjórn Kuwait frumkvæði
að þessum fundi, þvi fyrir
fjórum dögum siðan hvatti
stjórnin til fundar af þessu
tagi.
Bandarískur fulltrúar-
dei Idarþingmaður, Les
Aspin, hvatti í gærkvöldi til
þess, að þegar í stað yrði
sett bann á útflutning
kjarnorku til Indlands, þar
til stjórnin í Nýju Delhi
hefði skrifað undir alþjóð-
legan sáttmála um tak-
mörkun á útbreiðslu kjarn-
orkuvopna.
Aspin á sætiínefnd full-
trúadeildar þingsins, sem
fjallar um málefni herafl-
ans. Hann sagði að 50 þús-
und pund af fullunnu úr-
aníum hefðu verið send til
Indlands síðan kjarnorku-
sprengja var sprengd þar í
maí á síðasta ári.
Úraníummagnið er nóg
til að framleiða níu kjarn-
orkusprengjur, sagði þing-
maðurinn.
Ródesía — S-Afríka:
VORSTCR HAFNAR
ÁSÖKUNUM SMITHS
Ungir fjárkúgarar
teknir á Ítalíu
Lögreglan i Vigevano á Norð-
ur-ltaliu hefur haft hendur i hári
fimm barna á aldrinum 8—13
ára, sem reyndu að kúga 12
milljón lirur (3 Vnillj. isl. kr.) út
úr iðnjöfri i borginni.
Lögreglan var kvödd til, eftir
að iðnjöfurinn hafði fengið hót-
un um „hræðilega atburði”ef
hann borgaði ekki.
Ekki þarf að fara mörgum
orðum um skelfingu lögreglu,
þegar i ljós kom, að i gildru
hennar höfðu gengið börn, en
ekki forhertir glæpamenn, eins
og við var búizt.
Eitt barnanna hélt á poka með
bréfsnifsum, sem sett höfðu
verið þar i stað peninganna.
„Sjáðu hvað ég fann undir stein-
inum,’sagði barnið er lögreglan
birtist.
Börnin eru öll of ung til að
sæta refsingu.
Forsætisráðherra S-Afriku,
John Vorster, neitaði i gærkvöldi,
að hann bæri ábyrgð á þvi, að
friðarviðræður blakkra og hvitra
i Ródesiu hefðu farið út um þúfur.
Forsætisráðherra Ródesiu, Ian
Smith, sakaði'Vorster um þetta i
brezku sjónvarpsviðtali i gær.
Olli það miklu uppnámi i S-
Afriku.
Nefndar viðræður áttu sér stað
að frumkvæði Vorsters i járn-
brautarvagni á brú yfir Viktoriu-
fossum. Viðræðurnar leiddu ekki
til neinnar lausnar á 10 ára
vandamálum Ródesiu.
Smith sagði i viðtalinu við
brezku sjónvarpsstöðina „London
Weekend Television” „Ég geng
svo langt að halda þvi fram, að ef
þetta frumkvæði Vorsters hefði
ekki komið til, þá værum við nú
búnir að leysa vandamálið.’
Múmfur
fínnast
í Chile
Smurðar leifar suður-
ameriskra Indiána, sem dóu
þremur öldum fyrir fæðingu
Krists, hafa nýverið fundizt i
Andesfjöllum Chile nærri
landamærum Bóliviu i norðri,
að sögn tveggja mannfræð-
inga i Arica i Chile.
Mannfræðingarnir tveir,
Gonzalo Ampuero og
Guillermo Focacci, sögðu
fréttamönnum, að þeir hefðu
einnig fundið jarðneskar leifar
Indiána, sem virtust yngri.
Svo liti út, sem þeir Indiánar
hefðu snúizt til kristni eftir
innrás Spánverja. Þeir
fundust bundnir við trékrossa
og höfðu verið grafnir þannig.
-J
Tvrkland:
Demirel
bœtir
við sig
Hægri stjórn
Suleyman Demirels í
Tyrklandi virðist hafa
styrkt stöðu sína í kosn-
ingum til öldunga-
deildarinnar í gær. Er
talið, að Demirel hafi
unnið allt að 54 þingsæti
og hlotið 29% greiddra
atkvæða í þessum kosn-
ingum, sem eru þær
fyrstu, er haldnar eru,
síðan stjórn hans kom til
valda fyrir 6 mánuðum.
Endanlegar niðurstöður
kunna að leiða í Ijós, að
Demirel hefur þing-
meirihluta, sem myndi
nægja honum til
stjórnar allt til 1977, því
er talning var langt
komin á veg i gærkvöldi
var talið, að Demirel
myndi hafa vinninginn
yfir sósíaldemokratann
Ecevit, sem þó átti
miklum framgangi að
fagna í þessum
kosningum.