Dagblaðið - 13.10.1975, Page 14
14
Dagblaðið. Mánudagur 13. október 1975.
|
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Markvörður Coventry var
lítill kóngur ó Highbury
Fclög milljónamæringanna
stóru mættust I vesturborg
Lundúna á laugardag — og liöiö
hans Gregory, Queens Park
Rangers vann stórsigur á
Everton, rlkasta félagi Eng-
lands, en þar hefur formaður
getraunafélaganna stóru,
Littlewood og Vernon, sem hafa
aöaibækistöðvar f Liverpool,
lengi haldið um stjórnartaum-
ana — og ekki sparað til fé og
fyrirhöfn. Þetta Liverpool-liö,
Everton, á mun lengri sögu i 1.
deildinni ensku en nokkurt
annað félag — hefur leikið þar
72 leiktfmabii, en næst koma
Aston Villa með 65, Sunderland
63, Liverpool 60 og Arsenal 58
leiktimabil.
Leikmenn Everton hafa
áreiðanlega komið til Lundúna
vongóöir um árangur, þvi i niu
siðustu heimsóknum sinum til
heimsborgarinnar höfðu þeir
ekki tapað leik — unnið þar til
dæmis West Ham laugardaginn
á undan. En á laugardag fengu
þeir heldur betur að kenna á
snillingunum hans Gregory — já
töpuðu 5-0. Eitt versta tap i sögu
þessa mikla félags — það versta
litur betur út á pappirnum, þó
sex marka munur — Totten-
ham—Everton 10-4, 11. október
1958 og einmitt i Lundúnúm,
White Hart Lane.
Áhorfendur voru varla
komnir i sæti sin, þegar skorað
var á Loftus Road á laugardag.
Leikmenn QPR léku beint upp
og eftir 45 sek. lá knötturinn i
marki Everton. Don Givens
skoraði — og mikil spenna var
framan af leiknum. Bob Latch-
ford, dýrasti leikmaður Eng-
lands, átti að jafna á 12. min.
fyrir Everton, þegar hann
komst frir að markinu — en
mistókst illa, og á næstu min.
fékk hann aftur tækifæri, en allt
fór á sama veg. Þá bjargaði
David Webb á marklinu fyrir
QPR áður en Don Masson skor-
aði annað mark Lundúnaliðsins
á 30. min. Eftir það tilheyröi
leikurinn QPR — og þrjú mörk
voru skoruð i s.h.. Það fyrsta
skoraöi Gerry Francis, fyrirliöi
QPR og Englands, eftir frábæra
sendingu Stan Bowles. Dai
Davies kom út úr marki sinu —
Francis lék á hann og sendi svo
knöttinn innanfótar i markið.
4—0 var fimm min. siðar —
Dave Thomas skoraði, og þaö
fimmta kom á 84. min. eftir
mikið einstaklingsfram tak
Francis, sem skoraði.
QPR náði efsta sæti i 1. deild
með þessum stórsigri — en
Manch. Utd. og West Ham hafa
einnig 17 stig eins og QPR, og
sigur Manch. Utd. I Leeds er ef
til vill enn athyglisveröari en
stórsigur QPR. En litum á
úrslitin á laugardag áður en við
förum nánar út i þá leiki.
1. deild
Arsenal—Coventry ...... 5-0
AstonVilla—'Tottenham ... 1-1
Leeds—Manch. Utd....... 1-2
Leicester—Middlesbro.... 0-0
Liverpool—Birmingham ... 3-1
Manch. City—Burnley ... 0-0
Norwich—Derby ......... 0-0
QPR—Everton .......... 5-0
Stoke—Ipswich...........0-1
West Ham—Newcastle...... 2-1
Wolves—Sheff. Utd...... 5-1
2. deUd
Blackburn—WBA...........0-0
Blackpool-Portsmouth'..... 0-0
Bristol City-Charlton . 4-0
Carlisle-Luton......... 1-1
Fulham-Nottm. For...... 0-0
Hull—Bristol Rov....... 0-0
NottsCo.—Oxford........ 0-1
Oldham—YorkCity........ 2-0
Plymouth-Bolton ....... 2-3
Southampton-Chelsea..... 4-1
ttaHH
Brian Kidd, lengst til vinstri, skallar að marki I leik Tottenham og Arsenal.
Manch. Utd. hefur ekki tapað
nema einu sinni I fimm siðustu
leikjum sinum á Elland Road i
Leeds, en ekki var liðiö þó talið
hafa þar mikla möguleika á
laugardag. Það gerði þó allar
hrakspár að engu — og vann
sigur. Rétt er þó að geta þess, að
Peter Lorimer, aðalskorari
Leeds, gat ekki leikiö vegna
meiðsla. Leeds byrjaði vel og
sótti meira fyrstu 20 min.
leiksins, en tókst ekki að skora.
Duncan McKenzie átti þá skot
yfir þverslá úr góðri stöðu — og
svo fóru ungu piltarnir hjá
Manch. Utd. að láta að sér
kveða. Irski landsliðs-
maðurinn., Sammy Mcllroy,
castle eftir aðeins tvær min. og
átti snilldarleik i gegn.
Curbisley átti sendingu á Alan
Taylor, sem skoraði sigurmark
West Ham um miðjan siðari
hálfleik, en áður hafði Pat
Howard jafnað fyrir Newcastle
á 46 min. Þetta var góður leikur,
þótt kalt væri á Upton Park,
Newcastle-liðið alltaf hættulegt,
en West Ham nær að skora fleiri
mörk, en Newcastle að jafna.
Til dæmis átti Clyde Best hörku-
skot i þverslá rétt fyrir leikslok.
Bryan King var litill kóngur i
marki Coventry á leikvelli
Arsenal i Lundunum á laugar-
dag, Highbury. Þessi snjalli
leikmaður, sem lengstum hefur
og Latchford varði snilldarlega
frá honum og Keegan. Þjálfari
Birmingham, Bell, setti þá
Howard Kendall, fyrirliða og
Terry Hibbitt úr liði sinu — og
þóttu það mikil mistök hjá
honum. John Case, sem verið
hefur bezti maður Liverpool að
undanförnu, var borinn af velli
— slasaður — og ekiö á spitala.
Úlfarnir unnu stórsigur á
neösta liðinu, Sheff. Utd. og
mörkin hefðu þar eins getað
orðið tiu. Þó lék Clfaliðið illa
framan af — eins og Sheff. Utd.,
en Flynn kom Olfunum á sporið,
þegar hann lagði knöttinn —
sem stefndi framhjá marki — á
John Richards, sem skoraði.
Og Arsenal vann stórsigur 5-0 — QPR vann
Everton með sðmu morkatölu, en athyglis-
verðastur var sigur Manch. Utd. í Leeds
skoraði á 29. min., gott mark —
og þá skildu leikmenn Leeds að
hætta var á ferðum. Sóttu mjög
lokakafla hálfleiksins, en allt
kom fyrir ekki — Bremner og
Clarke fengu færi, sem þeir
misnotuöu. Þegar fjórar min.
voru af s.h. skoraði Mcllroy
aftur fyrir Manc. Utd. — átti
spyrnu af löngu færi, sem Stew-
art, markvörður Leeds, missti
milli handa sér.
Von i björgun var ekki mikil
þá hjá Leeds — McKenzie var
tekinn út af, Norman Hunter
bókaður, en svo veiktist vörn
Manch. Utd. verulega, þegar
Stewart Houston var borinn af
velli, slasaður. Alan Clarke
tókst að skora fyrir Leeds,
þegar tiu min.voru til leiksloka,
en fleiri urðu ekki mörkin, þrátt
fyrir góða viðleitni Leeds. Hinir
ungu piltar Manch. Utd. stóðu
uppi i lokin sem sigurvegarar —
þeirra bezti sigur á leiktima-
bilinu var staðreynd.
West Ham er einnig með 17
stig — og hefur tapað fæstum
stigum liðanna i 1. deild. Á
Upton Park á laugardag sló
ungur framherji, fyrrum enskur
landsliðspiltur, Alan Curbisley,
i gegn i sinum fyrsta heila leik
með West Ham. Hann skoraði
fyrsta mark leiksins gegn New-
leikið fyrir Lundúnaliðið Mill-
vall, átti hörmungarleik, þegar
hann kom á ný til Lundúna —
leikur, sem hann reynir
áreiðanlega að gleyma sem
fyrst. Hann var orsök þess, að
Arsenal, sem aðeins haföi
skorað 10 mörk áður 110 leikjum
og ekki unnið i átta siðustu
leikjum sinum, skoraði nú fimm
i einum leik. Alec Cropley og
Brian Kidd skoruðu tvivegis
fyrir Arsenal — Alan Ball eitt-
mark. Eitt hiö bezta, sem hann
hefur skorað á löngum ferli —
þrumufleygur af 30 m færi.
Staðan i hálfleik var 4-0 — Kidd
skoraði eina markið i s. h.
Ahorfendur voru aðeins 19.234,
sorglegt á Highbury, og sá
minnsti hjá Arsenal i haust.
Aðeins meiri en nokkru sunnar i
Lundúnum, hjá Crystal Palace,
sem þó leikur i 3. deild.
A Anfield i Liverpool voru
aðeins 36 þúsund og það er lítið
þar, en áhorfendur fengu að sjá
einn bezta leik Liverpool-liðsins
á leiktimabilinu. Það lék-sér að
Birmingham, en vann þó ekki
nema 3—1. John Toshack skor-
aðiöll mörk Liverpool i leiknum
á 13.60 og 87 min., en Bob Hatton
skaut inn einu fyrir Birm-
ingham á 80. min. Þá átti
Toshack tvivegis skot i þverslá
Það var á 25. min. og Ken Hibb-
itt skoraði annað mark Olfanna
fyrir hlé. Flynn minnkaði
muninn i 2-1 i byrjun s.h. en eftir
það var um algjöra einstefnu á
mark Sheff. Utd. að ræða.
Richards, Hibbitt og Willie Carr
skoruðu — Richards átti stang-
arskot, og vörn United var
hörmuleg. Jimmy Brown þó
frábær I marki, og það bjargaði
miklu. Currie meiddistog haltr-
aði um á vellinum, svo enn auk-
ast vandræði Sheff. Utd.
Um aðra leiki er það að segja,
að Ipswich vann óvænt i Stoke,
þar sem heimaliðið sótti miklu
meir, en tókst ekki að skora.
Eina mark leiksins skoraði
Hamilton eftir góðan undir-
búning Johnson og Viljoen. Það
var á 30. min. Meistarar Derby
áttu i vök að verjast i Norwich i
fyrri hálfleik, en Boulton átti
stórleik i marki og varði allt. í
siðari hálfleiknum snerist þetta
við. Þá varð Kevin Keelan að
taka á honum stóra sinum i
marki Norwich til að halda
marki sinu hreinu. Það tókst
honum — og njósnarar Real
Madrid, sem leikur við Derby i
Evrópubikarnum, hafa fengið
ýmislegt til að hugsa um i
sambandi við leik Derby.
Terry Naylor hjá Tottenham
var rekinn af velli á 64. min. á
Villa Park i Birmingham, en
samt náði Tottenham jafntefli
. þar 1—1. Andy Gray, sem lék
hér með Dundee Utd. gegn
Keflavik á dögunum, skoraði
eina mark Villa i leiknum.
Sunderland heldur enn
forustu i 2. deild — vann Orient
3—1 á laugardag með mörkum
Towers, viti, Hughes og Robson,
en Queen, sem lék með Þórólfi
Beck hjá St. Mirren, skoraði
eina mark Orient, litla
Lundúnaliðsins. I leiknum leið
yfir dómarann, Keith Styles, og
var hann borinn af velli, og
annar linuvarðanna tók við
hlutverki hans. Sunderland
hefur einu stigi meira en Bristol
City, sem vann stórsigur á
Charlton. Fulham er i 3ja sæti,
en náði ekki að skora gegn
Nottm. Forest — liði Brian
Clough — þó svo fyrirliði Forest,
Bob Chapman væri rekinn af
velli á 35. minútu. I 3. deild
hefur Crystal Palace eins stígs
forustu eftir 3-0 sigur gegn
Grimsby á laugardag — og i 4.
deild er Lincoln komið i efsta
sætið ásamt Tranmere með 16
stig.
Þeir skora
flest mörk
Markahæstu leikmenn i ensku
knattspyrnunni eftir leikina á
laugardag eru:
1. deild
15 — Ted McDougalI, Norwich.
12 — Peter Noble, Burnley.
9 — Penis Trueart, Manch. City.
8 — Alan Gowling, Newcastle,
Peter Loriemer, Leeds, Mal-
colm McDonald, Newcastle og
Joe Royle, Manch. City.
2. deild
9— Paul Cheesley, Bristol City.
8 — Mick Channon,
Southampton.
7 — George Jones, Oldham,
Mick Walsh, Blackpool, og Roy
Greenwood, Hull.
3. deildd
9 — Pavid Kemp, Crystal
Palace
8 — Fred Binney, Brighton,
Peter Silvester, Southend, og
Ray Treacy, Preston.
4. deild
12 — John Ward, Lincoln.
10 — Ronnie Morre, Tranmere
Staðan er nú þannig:
1. deild
QPR 12 6 5 1 21-8 17
Manch.Utd. 12 7 3 2 20-10 17
WestHam 11 7 3 1 18-11 17
Liverpool 11 6 3 2 18-10 15
Derby 12 6 3 3 16-15 15
Leeds 11 6 2 3 16-12 14
Middlesbro 12 5 4 3 12-10 14
Manch. City 12 5 3 4 18-10 13
Everton 11 5 3 3 16-16 13
Norwich 12 4 4 4 20-20 12
Stoke 12 5 2 5 13-13 12
Aston Villa 12 4 4 4 12-16 12
Arsenal 11 3 5 3 15-11 11
Coventry 12 4 3 5 13-15 11
Ipswich 12 4 3 5 10-12 11
Newcastle 12 4 2 6 22-20 10
Bumley 12 2 5 5 14-20 9
Tottenham 12 1 6 4 14-17 8
Birmingh. 12 3 2 7 17-22 8
Wolves 12 2 4 6 12-19 8
Leicester 12 0 8 4 10-19 8
Sheff.Utd. 12 1 110 6-27 3
Sunderland 12 8 2 2 20-9 18
Bristol City 12 7 3 2 25-13 17
Fulham 11 6 3 2 17-8 15
Bolton 11 6 3 2 22-12 15
Notts. Co. 11 6 3 2 11-9 15
Southamptonio 6 2 2 20-10 14
Oldham 10 5 3 2 16-13 13
Blackpool 11 5 3 3 12-12 13
Bristol Rov. 10 3 5 2 11-9 11
Hull Citv 11 4 2 5 8-10 10
Luton 10 3 3 4 12-10 9
Cheisea 12 2 5 5 11-17 9
Charlton 10 3 3 4 8-16 9
Plymouth 10 3 2 5 9-13 8
Orient 11 2 4 5 7-11 8
Oxford 11 3 2 6 11-18 8
WBA 10 1 6 3 6-14 8
Blackburn 10 2 3 5 9-11 7
York City 10 2 3 5 10-13 7
Nottm. For. 10 2 3 5 9-12 7
Carlisle 11 2 3 6 10-17 7
Portsmouth 9 15 3 6-13 7