Dagblaðið - 03.11.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 03.11.1975, Blaðsíða 1
dagblað ’Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 Aftakaveður gekk yfir Eyrarbakka í nótt: ÞEYTTI 100 TONNA BÁTI UPP Á STÓRSKEMMDAN HAFNARGARDINN Hálfgert neyðarástand rikti á Eyrarbakka I morgun, eftir að óveður sem var nánast sem fellibylur, gekk yfir þorpið. Stór hluti hafnargarðsins skemmdist I óveðrinu, sem einnig kastaði 100 tonna stálbáti, Sólborgu ÁR 15 á land og braut tvo minni báta, 22ja og 12 tonna trillur. Sjórinn gekk upp yfir sjó- varnargarða og flæddi inn i kjallara og um allar götur. Bar hann með sér þang og grjót, en mestar skemmdir urðu við frystihús staðarins, þar sem sjórinn gróf undan úthlið salt- geymslu, með þeim afleiðingum að veggurinn féll og stór hluti þaksins fauk. Vatnslaust var i þorpinu og fél) niður kennsla, auk þess, sem mikið álag á simakerfinu til þorpsins varð þess valdandi, að erfitt reýndist að skipuleggja björgunarstarf. Kváðust Eyrbekkingar ekki muna annað eins óveður og eru þeir þó ýmsu vanir i suðvestan- áttinni. —HP Sjórinn gróf undan útvegg sait- geymslu frystihússins á Eyrar- bakka og féll hann við það sam- an. Þak geymslunnar fauk, eins og sjá má og dreifðust þakplötur um þorpið. Skemmdir urðu viða af sjó, sem flæddi i kjallara, enda braut sjórinn sjóvarnar- hlið á nokkrum stöðum og flæddi óhindrað um þorpiö.-4Qp- Brak úr trillu Skúla fógeta ÁR 185, var á floti f höfninni. Hún brotnaði hreinlega i spón. i (DB-myndir: Björgvin). W Veðurhæðin hefur sennilega veriðein 12—14 vindstig i hvið- unum cnda þeyttist þessi 100 tonna stálbátur upp á hafnar- garðinn. Undir Sólborgu ÁR 15, er 22ja lonna trilla og má sjá brakið úr henni við hlið stál- bátsins. önnur minni trilla brotnaði i veðrinu og dreifðist brak úr henni vestur allar fjörur undan þorpinu. Sögðu menn i björgunarsveitinni Bakki á Eyrarbakka það lán i óláni, að ekki voru fleiri bátar í höfn, þar eð sumir lægju i öðrum höfnum og einn væri i slipp I Reykjavik. ÞETTA VAR í UPP- SIGLINGU í GÆR — segir Veðurstofan Öveðrið, sem skall yfir Eyrarbakka og nánast allt suð- vesturhorn landsins i nótt, var með sem mestum krafti um 5-leytið i nótt. 1 viðtali við Dag- blaðið i morgun, sagði Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, að mesta veðúrhæð, sem mæld- ist hefði verið 12 stig á Stór- höfða, en annars hefði vind- hraðinn verið um 9—11 stig á svæðinu. Mjög djúp lægð, sem nú væri á hreyfingu vestur og norður um land, hefði valdið ó- veðrinu og hrært upp i sjónum i allan gærdag, — þess vegna hefði brimið orðið svona mikið. HP Meira um óveðrið — sjá baksíðu Lítil kaup- hœkkun, — eða engin Frystihús- in á Suður- nesjum loka CARMEN HIN BLÓÐHEITA jfrumsýningar- gestir á !bls. 2 leikdómur á bls. 8-9 Stórleikur Axels og Ólafs með Dankersen — Skoruðu sjö mörk hvor, þegar Dankersen sigraði Phönix Essen i gœr. — sjá bls. 12, 13, 14 og 15

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.