Dagblaðið - 03.11.1975, Síða 7
Dagblaðið. Mánudagur 3. nóvember 1975.
7
Valdabarátta Washington kemur upp á yfírborðið
SCHLESINGCR OG
COLBY RIKNIR
- KISSINGtR
HALASTÝFÐUR
Talsmenn Hvíta hússins munú aö líkindum í dag til-
kynna meiriháttar breytingar á þremur mikilsverðum
og viðkvæmum stöðum innan stjórnarinnar. Talið er að
ástæðan sé bitur valdabarátta á æðstu stöðum.
Víðtækar sögusagnir í Washington í gær hermdu, að
James Schlesinger varnarmálaráðherra hefði verið rek-
inn úr starfi, Henry Kissinger sviptur stöðu formanns
öryggisráðs þjóðarinnar og yfirmaður leyniþjónustunn-
ar CIA, William Colby, látinn hætta.
bað var öldungadeildarþing-
maðurinn Henry „Scoop” Jack-
son sem fyrstur sagði frá
breytingunum á stjórninni og
valdabaráttunni að baki hennar
Lýsti hann Schlesinger sem hin-
um sigraða i valdabaráttu
stjórnarinnarog sagði, aö skyndi-
leg brottvikning hans benti til
þess, að rikisstjórnin þyldi ekki
andstæðar skoðanir við hina opin-
beru linu.
Ummælunum um valdabaráttu
var greinilega beint að dr.
Kissinger, sem vitað er að var
ósammála Schlesinger um
varnarmál.
Vitað er aö varnarmálaráð-
herrann hefur verið hlynntur
harðari stefnu gegn Sovétrikjun-
um en utanrikisráðherrann, sem
fús hefur verið til að hliðra meira
til fyrir Rússum vegna „detent”-
stefnu sinnar.
Diplómatiskar heimildir Reut-
ers herma einnig, að djúpstæður
VOPNAHLÍ í ANGOLA
Hinar þrjár striðandi frelsisfylkingar Angola
hafa komizt að samkomulagi um vopnahlé, að sögn
portúgaiskra yfirvalda i Luanda.
Tilgangur vopnahlésins, sem
hófst I dögun I gær, er að veita
ráðrúm fyrir samningaviðræður
um friðsamlega lausn deilunnar
um framtiðarstjórn portúgölsku
nýlendunnar. Angola fær sjálf-
stæði eftir 500 ára nýlendustjórn i
næstu viku.
Svo virðist sem Einingarsam-
tök Afriku hafi átt sinn þátt i
vopnahléinu, þvi fulltrúar
fylkinganna þriggja, MPLA,
FNLA og UNITA, eru i Kampala
til viðræðna við fulltrúa samtak-
anna.
Vopnahléið þýðir i raun, að
engin fylkinganna þriggja getur
sótt framar en þær stóðu i gær-
morgun.
Erlendar
fréttir
REUTER
skoðanaágreiningur hafi verið á
milli Fords forseta og Schlesing-
ers sl. laugardagskvöld á fundi i
Hvita húsinu, þar sem hernaðar-
aðstoð USA við Israel var til um-
ræðu.
Dr. Kissinger hefur mætt
hraðri gagnrýni að undanförnu,
sérstaklega frá þinginu, þess
efnis að hann sé allt of valdamik-
ill. Auk þess að vera utanrikis-
ráðherra er hann öryggismála-
ráðgjafi forsetans og formaður
öryggisráðsins. Sem slikur hefur
hann daglegt samband við forset-
ann. Kissinger er einnig formað-
ur hinnar svokölluðu „40 manna
nefndar”, sem veitir heimildir til
allrar starfsemi leyniþjónustunn-
Enn hafa talsmenn Hvita húss-
ins ekkert viljað um málið segja,
en búizt er við tilkynningu þaðan i
dag, eins og áður segir.
Óperudraugur
í Sidney
Ástralskir hljómlistarmenn
og tónlistarunnendur velta nú
vöngum yfir miklu undri —
eða draug — i Óperuhúsinu i
Sidney.
Tilvist draugsins hefur vitn-
azt vegna sérkennilegs banks,
sem heyrzt hefur i miðju
hljómleikahaldi nokkra
undanfarna mánuði.
Ein kenningin er sú, að þar
sé á ferðinni afturganga
hottintottans Bennelongs, sem
uppi var á 18. öld, en sá hluti
hafnarinnar i Sidney er óper-
an stendur við, var nefndur
eftir Bennelong.
Hljóðið, sem heyrist i hús-
inu, er sagt vera skarpt,
skyndilegt og truflandi.
Félagar i Sinfóniuhljóm-
sveit Sidney kvarta einnig yfir
draugalegum hljóðum. Stjórn
í hússins, sem vigt var til
J notkunar 1973, kannar nú
I hvort þessi hljóð séu af þess-
í um heimi eða öðrum.
PASOLINI
MYRTUR í RÓM
I.eifar kjálkabeina og tanna af mannveru, scm talin er hafa verið
uppi fyrir nærri 4 milljónum ára, hafa fundizt I Tanzaníu. Neðri
myndin er af kjálka úr fullorönum manni en sú efri úr barni. A
miðri þeirri mynd má sjá hvar fullorðinstönn er að ýta barnatönn-
inni i burtu.
— of pilti, sem ekki
vildi þýðast hann
ttalski kvikmyndagerðarmað-
urinn Pier Paolo Pasolini var
myrtur nærri Rómaborg í gær.
Sautján ára gamall piltur hefur
játað á sig morðið og sagt leik-
stjórann hafa reynt að fá sig til
við sig.
Pasolini var yfirlýstur kynviil-
ingur. Iila leikið lik hans fannst á
sandströnd nærri Ostia nokkrum
klukkustundum eftir að pilturinn
hafði verið handtekinn fyrir bil-
þjófnað. bá var hann á bil Paso-
linis.
Hann játaði á sig morðiö eftir
að likið fannst. Að sögn lögregl-
unnar hafði Pasolini, sem var 53
ára, tekið piltinn upp i bil sinn við
umferðarmiðstöð Rómar um 11-
leytið I fyrrakvöld. Fóru þeir sið-
an á veitingahús til að borða og
þar á eftir ók Pasolini ásamt pilt-
inum i áttina til Ostia, þar sem
hann bjó.
Pilturinn sagði að Pasolini
hefði ekið með sig á afskekktan
stað og þar hefðu þeir báðir farið
út úr bilnum. „Hann vildi hafa
kynmök við mig,” er piltúrinn
sagður hafa sagt, „en ég kærði
mig ekki um það. Við rifumst
heiftarlega. Hann tók upp prik og
barði mig i höfuðið.”
Siðan sagðist pilturinn hafa tek
ið upp prik sjálfur og barið leik-
stjórann til jarðar. 1 skelfingu
sinni ók hann burtu á bil leikstjór-
ans — og fór yfir hann i leiðinni.
Orfáum minútum siðar var
hann stöðvaður fyrir gáleysisleg-
an akstur. Pilturinn hefur verið
ákærður fyrir morö.
Bírœfið kirkjurán í Köln
Vegfarendur hrópuðu g amanyrði
að þjófum með poka á bakinu
þegar þeir klifruðu niður kirkjuturninn
Lögreglan i Köln i Vestur-
býzkalandi leitar tveggja þjófa,
sem komust undan með
ómetanlega dýrgripi úr
dómkirkju borgarinnar.
Erkibiskupinn i Köln hefur
boðið 50.000 mörk i fundarlaun
fyrir gripina. Meðal þeirra eru
gull- og silfurgripir frá 17. öld
ásamt perlum, demöntum,
gullkrossum, hringum og öðrum
skartgripum.
Að sögn lögreglunnar klifu
ræningjarnir tveir niður eftir
norðurhlið kirkjuturnsins, sem
er 44 metra hár, og notuðu til
þess venjulegan fjallgöngu-
útbúnað. Siðan tróðu þeir sér
inn um þröngt loftræstiop á fjár-
sjóðsherberginu i turninum.
Undrandi Kölnarbúar sáu
mennina tvo siðan klifra niður
kirkjuveggina með poka á
bakinu, en engum datt i hug að
stöðva þá eða kveðja til
lögreglu.
„betta er ótrúlegt,” sagði
einn lögreglumaðurinn, sem
vinnur að rannsókn málsins.
„Sumir nærstaddra hrópuðu
alls konar gamansamar
athugasemdir að mönnunum,
þegar þeir voru á leið niður með
skröltandi pokana.”
Ræningarnir skildu öll verk-
færi sin eftir, þ.á m. járn-
klippur, sem þeir notuðu til að
ná gulli og demöntum af
styttum og öðrum helgigripum.
Lögreglan kom til sögunnar
eftir að næturvörðurinn, 71 árs
gamall, heyrði undarleg hljóð út
úr kirkjunni. Áður en komizt
varð inn þurfti þó að sækja
lyklana til meðhjálparans og
það dúgði þjófunum til að
komast undan.
Allir gripirnireru tryggðir, en
það þykir kirkjunnar mönnum
að vonum litil huggun og óttast
þeir nú, að ræningjarnir hafi
þegar brætt gullið og silfriö til
sölu.