Dagblaðið - 03.11.1975, Blaðsíða 18
18
DagblaðiO. Mánudagur 3. nóvember 1975.
Liberzon tók forystuno
—hefur 8 vinningo
Ribli fylgir fast á eftir með 7 1/2
BRAGI
SIGURÐSSON
Eftir venjulegan keppnistima
kl. 19 i gærkvöldi höfðu skákir á
svæðismótinu á Hótel Esju farið
þannig:
Ribli — Ostermayer: 1/2 - 1/2
Poutiainen — Murray: 1—0
Hartston — Liberzon: Bið
Hamann — Timman: Bið
Friörik — Zwaig: 1/2 — 1/2
Van Den Broeck —Jansa: 0—1
Laine — Parma: 0 — 1
Björn Þorsteinsson sat yfir I
þessari umferð.
Biðskákir átti siðan að tefla
kl. 9 i gærkvöldi. Þá mætti
Hartston ekki til leiks við
Liberzon, sem sýnilega þótti
mjög miður. Ekki spurðist neitt
til Hartston, þrátt fyrir
einhverja ef tirg rennsla n.
Hamann og Timman tefldu ekki
af miklu kappi, og sýndist
mönnum jafntefli i jsjónmáli kl.
10. Þá hafði enn ekki heyrzt
neitt frá Hartston og var
Liberzon dæmdur vinningur i
þeirri skák. Ribli haföi hvitt á
móti Ostermayer.
Kóngs-indverskt tafl kom upp,
og hygg ég, að þessi skák hafi
vakið mesta athygli áhorfenda.
Voru mjög skiptar skoðanir um
likleg úrslit skákarinnar, þar
sem hún var skýrð i hliðar-
sölum. Ingvar Ásmundsson
gerði það af myndugleik og
sanngirni. Höfðu bæði skemmra
og lengra komnir mikið gagn af.
Er alveg óhætt að fullyrða, að
góöar skákskýringar á keppnis-
stað gera mótið mun eftir-
s ó k n a r v e r ð a r a fyrir
áhorfendur. Ekki skemma
heldur hnitmiðaðar athuga-
semdir hinna betur kunnandi
meðal áhorfenda. Mikil eftir-
vænting var um það, hvernig
Ribli, sem var með flesta
vinninga, reiddi af gegn
Ostermayer. Þegar
leiknir höfðu verið 40 leikir
sömdu þeir um jafntefli.
Friðrik og Zwaig tefldu
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. ». 10. 11.12. 13.14. 15.
1. Ribli $1 1 li 1 lÁ h 1 'k 1 k 7'k
2. Poutiainen o ■ / o o / 1 o 1 / 5
3. Hartston O oi 0 o 1 o o / / 3
4. Hamann o 1 / '!z o / 'k / 5* ÖID
5. Friflrik '/z 1 1 'lz 'lz 0 / 1 k 6
6. Zwaig 0 O o 1 'h / 'k 'k 1 1 5 'lz
7. Timman 0 o 1 1 'k 'k 1 0 1 5 + Bl O
' 8. Liberzon ’/a 1 1 / 'k '!z k 1 1 1 8
..... ji - 9. Murray O o o 'k 0 'k 1 0 a
10. Ostcrmeyer 'k o 'k k 'k /2 1 .1 1 5'k
11. Jansa 0 'lz 'k 1 /2 1 í 1 6
12. Parma 1 'k '/z '/2 1 Vz k 1 / 6 'lz
13. Bi&rn o 0 'k o 0 ’/z 0 0 0 1
14. Laine 0 ‘lz o o 1 0 0 0 0 0 l'/z
15. Vanden Broeck o o o 'tz o 0 0 1 0 0 ■ r/z.
drottningarbragö og sömdu um
jafntefli eftir 25 leiki.
Van Den Broeck gafst upp
fyrir Jansa eftir 28 leiki. Kóngs-
-indverska vörnin dugði honum
ekki lengur.
Laine hafði hvitt á móti Bruno
Parma. Þeir tefldu
Nimzo-indverskt tafl, sem
Guernsey-maðurinn gaf eftir 27
leiki.
Staða á mótinu er nú þessi:
Liberzon er efstur með 8
vinninga.
Ribli er með 7 1/2 vinning
Parma er með 6 1/2 vinning
Friörik og Jansa eru með 6
vinninga
Zwaig og Ostermayer hafa 5 1/2
vinning
Hamann og Timman hafa 5
vinninga og biðskák sin á milli
Poutiainen er með 5 vinninga
Hartston hefur 3 vinninga
Murray hefur 2 vinninga
Laine og Van Den Broeck hafa 1
1/2 vinning
Bjöm Þorsteinsson er með 1
vinning.
Ahorfendur hafa lfklega
aldrei veriö fleiri á þessu
svæðismóti. Þar kemur til
sunnudagurinn og svo að sjálf-
sögöu sfvaxandi spenna I stór-
móti þar sem um helmingur
allra keppenda hefur ennþá
möguleika til að hljóta sætin,
sem teflt er um, þ.e. tvö efstu
sætin. Þeir, sem þau hljóta fara
áfram til undankeppni á miíli-
svæðamóti um réttinn til að
skora á heimsmeistarann I
skák.
Meðal áhorfenda i gær voru
þessir: Ólafur Friðriksson,
faðir Friðriks, Sigurgeir
Gfslason, Hafnarfirði.
Sófus Hólm, verkamaður, Sig-
tryggur Sigtryggsson,blaða-
maður, Grimur Thorarensen,
bflakaupmaður, Magnús
Sigurjónsson, forstöðumaður,
Haukur Gunnlaugsson, verka-
maður, Jónas Kristjánsson, rit-
stjóri, Guðmundur Agústsson,
Sigurður Árnason Hjá Foss-
berg, Einar S. Einarsson,
bankamaður, Bjarni Guðnason,
prófessor, Eirikur Bergsson,
verkamaður, Ragnar
Björnsson, dómkantor, Sigfús
Jónsson, tollvörður, Kristján
Oddsson, bankastjóri, Reynir
Þórðarson, verkamaður,
Sverrir Einarsson, tannlæknir,
Ingólfur Isebarn, Jóhann
Friðriksson f Kápunni, Kristján
Jónsson, kaupmaður f Kidda-
búð, Ólafur Stephensen, tann-
læknir, Jón Barðason, kennari,
Arni Björnsson, lögmaður,
Ólafur Ólafsson, veitinga-
maöur, Anton Sigurösson,
skólastjóri, Þráinn Guð-
mundsson yfirkennari, Jakob
Hafstein, Jóhannes Eiríksson,
prentari, og að sjálfsögöu fjöldi
annarra manna.
11. umferð verður tefld i dag.
Hefst hún kl. 5 og eigast þá við
hvitur talinn fyrr):
Jansa — Ribli
Ostermayer — Poutiainen
Murray — Hartston
Liberzon — Hamann
Timman — Friðrik
Parma — Van Den Broeck
Björn — Laine
Zwaig á fri f þessari umferð.
Guðmundur gerði jof ntefli við Rodulov
— staða efstu manna óljós
Guömundur Sigurjónsson
geröi jafntefli við Radulov i 8.
umferð svæðismótsins i
BUlgarfu og er þá með 5
vinninga ásamt a.m.k. tveim
öðrum. Að öðru leyti er staðan i
mótinu mjög óljós, þar sem
allmargar biðskákir eru
ótefldar og aðeins hálfur til einn
vinningur skilur að efstu menn
og flesta aðra keppendur.
Vísitalan
á nippinu"
Kouphœkkun
1. des. lítil eða engin
Visitala framfærslukostnaðar
er ,,á nippinu”, og gert ráð fyr-
ir, að kauphækkun 1. desember
verði litil eða engin. Samkvæmt
samningum skal kaup hækka, ef
visitalan hefur farið fram úr 477
stigum, eftir að hækkun á
launalið bónda og áfengi og tó-
baki hefur verið tekin út úr
dæminu.
Visitalan mun alveg vera við
þessi mörk, að þvi er kunnugir
töldu i morgun. Hagstofan er
um þessar mundir að reikna
dæmið, og verður ekki vitað um
útkomuna, svo að áreiðanlegt sé
fyrr en nokkuð liður á mánuð-
inn.
Mörkin eru við 488-489 stig, ef
launaliður bóndans i verðlags-
grundvelli landbúnaðarafurða
og hækkun á áfengi og tóbaki
eru höfð með i dæminu.
Samningar verkalýðsfélag-
anna almennt eru til áramóta,
og skal segja þeim upp með
mánaðar fyrirvara, það er að
segja fyrir 1. desember. 1
morgun höfðu Vinnuveitenda-
sambandinu ekki borizt neinar
uppsagnir. Gert er ráð fyrir, að
öll verkalýðsfélögin muni segja
upp samningum, enda hefur
kauphækkunin frá siðastliðnu
vori étizt upp i verðbólgunni.
Vinnuveitendur segjast hins
vegar ekki geta greitt hærra
kaup.
— HH
Bílar skemmdir
og barn í sjúkrahús
Smákrakki varð fyrir bifreið á
Norðurgötu á Akureyri á sunnu-
daginn. Barnið var flutt i sjúkra-
hús, en ekki talið að meiðsli þess
væru alvarlegs eðlis.
Nokkrir árekstrar urðu á Akur-
eyri um helgina. Sá harðasti varð
i gærkvöldi inni við gömlu tunríu
verksmiðjuna við Höffners-
bryggju. Þar stórskemmdust
tveir bilar, en slys urðu ekki á
þeim, sem i þeim voru.
ASt.
Slysagildrur
í Breiðholti
Lögreglan i Arbæ hefur óskað
eftir þvi að varúðarráðstafanir
verði gerðar við ýmsar gryfjur og
skurði i grennd við Fellaskóla.
Stafa þessar slysagildrur, sem nú
eru fullar af vatni, ýmist af
margs konar framkvæmdum við
hús eða eru holur fyrir nýja hús-
grunna. Sumt af þessum slysa-
gildrum er svo bratt að ætla má
að börn ættu erfitt meö að krafla
sigupp dr, ef þau féllu þar ofan i.
ASt.
TRILLA
SÖKK í
HAFNARFIRÐI
Trillubátur sökk i Hafnarfjarð-
arhöfn i nótt. Er hér um 6—8
tonna bát að ræða, sem lá við nýju
uppfyllinguna. A flóðinu undir.
morguninn nuddaðist báturinn
harkalega við uppfyllinguna með
þeim afleiðingum að hann sökk.
—ASt.
Þrír bútor
á reki í
Friðarhöfn
Þrir bátar sem lágu bundnir
hver utan á öðrum niður undan
Vinnslustöðinni i Friðarhöfn i
Vestmannaeyjum, slitnuðu upp I
nótt og rak upp undir bakkana á
móti. Lögregla gerði lóðsbátnum
viðvart og komu þeir bátunum,
sem héldust saman bundnir á ör-
uggan stað. Ekki munu þeir hafa
orðið fyrir skemmdum þvi þarna
er sandbotn og aðstæður góðar.
Vatnsveöur var mikið umhelg-
ina i Eyjum og aðstoðaði lögregl-
an óvenjumarga við að komast
leiðar sinnar. ölvun var i lág-
marki í Eyjum um þessa helgi.
ASt.
Andlát
Friðdóra Friðriksdóttirfrá Ólafs-
vik, lézt i Landakötsspitalanum
27. október sl. Hún var fædd i
Ólafsvik 7. desember 1892. Korn-
ung var hún tekin i fóstur af
Guðriði Einarsdóttur á Arnar-
stapa, en er hún lézt, tók sonur
hennar Sigurgeir Arnason við
barninu, og hjá fjölskyldu hans
ólst hún upp. Arið 1917 giftist
Friðdóra eftirlifandi manni sin-
um Ara Bergmann Einarssyni.
Eignuðust þau þrjú börn, sem öll
eru á lifi.
Valdimar Kr. Guðmundsson,
prentari, Asvallagötu 11, lézt i
Landakotsspítalanum 25. október
sl. Útför hans fer fram frá Foss-
vogskirkju á morgun kl. 10.30.
Sigurrós Jónasdóttir, Sæviðar-
sundi 32, lézt 27. október sl. og
verður jarðsungin frá Laugarnes-
kirkju á morgun kl. 13.30.
Jdna Kristinsdóttir, fyrrverandi
ljósmóðir I Vestmannaeyjum,
lézt 27. október. Kveðjuathöfn um
hana verður i Fossvogskapellu i
dag ki. 15, en útförin verður gerð
frá Landakirkju, Vestmannaeyj-
um, laugardaginn 8. nóvember.
Svavar Helgason, framkvæmda-
stjóri, Fornuströnd 5, Seltjarnar-
nesi, lézt af slysförum 26. október
sl. útför hans fer fram frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 5. nóv-
ember kl. 13.30.
Sigriður Guðmundsdóttir, kenn-
ari, Lokastig 20A, lézt i Landspit-
alanum 26. október sl. og verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju á
morgun kl. 13.30.
Guðbrandur Gislason, frá
Kambsnesi, Skúlagötu 58, and-
aðist 31. október.
Dóra Margrét Björnsdóttir, lézt
af slysförum 31. október.
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h.,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. Á
fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð-
ingur FEF til viðtals á skrifstof-
unni fyrir félagsmenn.
Frá Kvenfélagi
Laugarnessóknar
Fundur verður haldinn mánudag-
inn 3. nóvember kl. 8.30 i fundaji*
sal kirkjunnar. SpurningaþáttijP
gott kaffi. Stjórnin.
Fundartimar AA-
samtakanna.
Fundartimar AA-deildanna i
Reykjavik eru sem hér segir:
Tjarnargata 3c mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 9
e.h.
Safnaðarheimili Langholtssafn-
aðar föstudaga kl. 9 e.h. og
laugardaga kl. 2 e.h.
Bingókvöld Eldborgarfélaga
Kiwanisklúbburinn Eldborg i
Hafnarfirði, sem nýlega gaf tvö
sjúkrarúm — svokölluð veltirúm
— ásamt náttboröum i eina
sjúkrastofu St. Jósepsspitala i
Hafnarfiröi, ráðgerir að halda
bingó reglulega i vetur. Tilgang-
urinn er að safna fé i styrktarsjóð
klúbbsins, en hlutverk hans er að
vinna að liknar- og velferðarmál-
um.
Eldborgarfélagar hafa á und-
anförnum árum farið i árlegar
skemmtiferðir með aldraða
Hafnfirðinga. Einnig hafa þeir —
eins og segir hér at framan —
stutt með gjöfum og f járframlög-
um Styrktarfélag aldraðra i
Hafarfirði, Sólvang og St.-Jósefs-
spitala.
Fyrsta bingókvöld vetrarins
verður þriðjudagskvöldið 4.
nóvember kl. 20.30.
—óv