Dagblaðið - 04.11.1975, Qupperneq 3
Oagblaðift. Þriðjudagur 4. nóvember 1975.
Slysagildrurnar í Breiðholti:
TIU ARA STRAKUR BJARGAÐI
5 ÁRA DRENG FRÁ DRUKKNUN
„Við vorum bara að leika
okkur þarna, af þvi að það kom
enginn i sunnudagaskólann.
Kristján stóð eitthvað nálægt
vatninu og svo datt hann aftur á
bak úti”, sagði Ásgeir Guð-
mundsson, 10 ára gamall Breið-
holtsbúi, sem með snarræði sinu
bjargaði 5 ára gömlum félaga
sinum frá drukknun i tjörn, sem
myndazt hefur við eitt hornið á
leik fimihúsinu við Fellaskól-
ann, á sunnudagsmorgun.
Kristján litli var hress i .gær, er
við hittum þá félága, en enginn
vafi er á þvi, að illa hefði getað
farið, þegar litið er á tjörnina.
Þetta ersama sagan, vegna ein-
hverra framkvæmda er grafin
hola þarna við eitt hornið á leik-
fimihúsinu, en siðan horfið á
braut án þess að byrgja hana
almennilega. Að visu voru
búkkar settir þarna upp fyrir
skömmu, en þeir eru nú komnir
á flot og er gryfjan þvi óvarin,
Hundruð barna eru þarna að
leik á hverjum degi. Foreldrar
hafa margsnúið sér til yfir-
valda, en litið hefur gerzt i mál-
inu. Það virðist alltaf þurfa
stórslys til þess að þessar slysa-
gildrur séu almennilega b.yrgð-
ar. —Hp
Strákarnir i Breiðholtinu, Ásgeir 10 ára og Kristján 5ára, myndin var tekin af þeim við slysagildruna
sem varð næstum til þess að Kristján litli yrði fyrir slysi. (DB-mynd Björgvin).
N
SÓLARGEISU í HRÁSLAGANUM
— Dagblaðið heimsœkir heppna óskrifendur
„Hún borgar sig sannarlega
áskriftin að Dagblaðinu,” sagði
Jakob Hálfdánarson og hló
ánægjulega þegar Dagblaðs-
menn heimsóttu hann á heimili
hans i gærkvöldi. Fyrr um
daginn haföi nafn Jakobs verið
dregið úr hátt á annað þúsund
lausnum sem bárust vegna
áskrifendagetraunar Dag-
blaðsins.
Það var að vonum glatt á hjalla
að Kleppsvegi 144, en þar býr
Jakob Hálfdánarson, 33 ára
tæknifræðingur hjá Vega-
gerðinni ásamt konu sinni
Margréti Sveinsdóttur og
þremur börnum, Þórnýju Björk
7 ára, Jóni Viðis 5 ára og Hlyni
Sveini 4 ára.
Fjölskyldan var þegar komin i
ferðaskapið, þrátt fyrir kalsann
utan dyra. Fram undan eru sól-
vermdar baðstrendur Hawaii-
eyja og blómum skrýddar Hula
dansmeyjar, sveiflandi sér eftir
fögru hljómfalli polynesa-
söngvanna i skugga pálma-
trjánna.
„Frúin hafði einmitt orð á þvi i
gærkvöldi að liklega hefðum við
ekki hreppt ferðina fyrst engin
upphringing var komin,” sagði
Jakob.
„En það rættist heldur betur úr
þessum hráslagalega degi
Jakob Hálfdánarson og Margrét Sveinsdóttir vinningshafar I áskrifendagetraun Dagblaösins ásamt
börnum sinum, Jóni Viðis, Þórnýju Björk og Hlyni Sveini.
þegar fréttirnar bárust. Siðan
hefur allur timinn farið i ferða
hugleiðingar.”
Rétt svör eru:
1. Canberra, 2. Ottawa 3.
Riyadh, 4. Pretoria, 5. Ankara,
6. Brasilia 7. VVashington, 8.
Delhi.
Dagblaðið óskar þessum
heppnu áskrifendum til
hamingju með væntanlega
ævintýraferð til Hawaii. —AE—
Að leik í pabba bíl...
Þegar litli snáðinn sezt upp i
bilinn hans pabba sins getur
farið illa. Þannig var það i
þessu tilfelli. Fiktað i stjórn-
tækjunum og billinn fer að siga
afturábakog hafnar loks fram af
stalli og niðri i blómabeði. Lik-
lega hefur þeim litla ekki staðið
á sama. Menn ættu að gæta þess
vandlega að læsa bilum sinum,
lika heima við húsin sin,
freistingarnar eru alltaf fyrir
hendi hjá þeim minni, að ekki sé
talað um þá sem ganga um og
stela bilum að næturlagi. (Ljós-
mynd Sig. Jón.)
HOSKULDUR ER RAÐUNEYTISSTJORI
í grein um námslán i blaðinu i Það er ekki rétt. hann er ráðu
gær segir, að Höskuldur Jónsson neytisstjóri þar.
sé fulltrúi i fjármálaráðuneytinu. HP.
IIERBERT: frjáls á ný. DB-
inynd: Björgvin.
HERBERT
HÆTTUR
í PELICAN
Hljómsveitin Pelican er
enn á ný orðin söngvaralaus,
þvi að Herbert Guðmunds-
son sagði upp i gærdag. orð-
inn langþreyttur á þeirri
pressu. sem hefur hvilt á
honum allt frá þeim degi. er
hann gekk i hljómsveitina i
mai i vor.
„Við skildum i mesta bróð-
erni,” sagði Herbert. er við
ræddum við hann i gær-
kvöldi, ..en ég var dálitið
óánægður með að koma ekki
að nokkrum lögum eftir
sjálfan mig, sem ég vildi að
við tækjum. Svo var ég i
rauninni aldrei sérstaklega
ánægður i hljómsveitinni. og
þegar ég var orðinn var við
að nokkur pressa hafði
myndazt innan hljóm-
sveitarinnar um að ég hætti.
þá notaði ég tækifærið og
sagði upp."
Ekki gat Herbert sagt neitt
um það. hvað hann tæki sér
fyrir hendur á næstunni. en
bjóst þó við að hann mvndi
taka sér gott fri i nokkurn
tima. „Nú. og svo getur verið
að ég fari i að taka upp plötu
með lögum eftir sjálfan mig
og einnig nokkrum dægur-
lögum frá fyrri árum." sagði
hann.
Hljómsveitin Pelican er
þegar farin að leita eftir nýj-
um söngvara i stað Herberts.
Ómar Óskarsson kvað einn
ákveðinn mann vera i sigti.
en hann hefði enn ekki gefið
ákveðið svarum. hvort hann
'gengi i hljómsveitina. ..En
þau mál skýrast væntanlega
i dag eða á morgun." sagði
Ómar að lokum.
—AT—