Dagblaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 14
14
X"
Hagblaðið. Þriðjudagur 4. nóveniber 1!)75.
Hann líkist
föður
sínum
í einu og öllu
Sonur Clark Gable fœddist 5
mónuðum eftir lót föður síns
Kay var hvött til þess að skira soninn Clark, en faðir hans hafði tal-
að uni það fyrir dauða sinn að nafnið gæti orðið honum fjötur um fót
siðar meir.
©
Úrvals kjötvöru r
og þjónusta
ÁVALLT EITTHVAÐ
GOTTÍ MATINN
Stigahlið 45-47 Sími 35645
TOYOTA vetrarskoðun
1. Vélastilling
2. Stilltir ventlar
3. Hreinsun á blöndung
4. Skipt um kerti
5. Hreinsuö loftsia [
6. Fyllt á rúðusprautu (frostvari)
7. Mældur frostlögur
8. Rafgeymir mældur,
hreinsuö
9. Viftureim skoðuð
10. Stillt kúpling.
geymissambönd
Verð með sölusk. kr. 5500—6500 eftir gerðum.
Innifalið i verði: Kerti, platínur, ventlaloks-
pakkning, frostvari á rúðusprautu, vinna.
TOYOTA þjónustan
Ármúla 23. — Sími: 30690 —
John Clark Gable ásamt möður sinni, Kay Spreckles. Hann fæddist
5 inánuðum eftir lát föður sins, hins fræga Clark Gables.
— Ég var bæði óhamingju-
söm og einmana þegar Clark dó,
segir ekkja Clark Gable,
Kathleen Spreckles, nýlega i
blaðaviðtali. — Ég var ákveðin i
þvi þá að gifta mig ekki aftur
og ég hef heldur ekki gert það.
Ég hef heldur ekki haft neina
þörf fyrir það, þvi ég á John
Clark. Mér þykir vænt um að sjá
hann stækka og likjast föður
sinum æ meir.
10 dögum eftir að töku mynd-
arinnar ,,The Misfits” lauk i
nóvember 1960 lézt aðalleikari
hennar, Clark Gable, af hjarta-
slagi. Var miklu álagi við töku
myndarinnar um kennt að
svona fór.
Fimm mánuðum seinna fædd-
ist fyrsti og eini sonur hans,
John Clark Gable. Þykir John
Clark, sem núna er 14 ára gam-
all, likjast föður sinum mjög i
einu og öllu.
Ekkja Clarks, Kay, hefur sagt
að jafnvel augnaráð þeirra sé
hið sama, — þetta sé alveg með
ólikindum.
Kay hefur tekizt að vernda
son sinn furðu vel fyrir forvitn-
um fréttamönnum i þessi 14 ár,
en hún hefur verið i stöðugum
ótta um að honum yrði rænt eða
gert rnein á einhvern hátt.
Þegar John Clark var aðeins 6
mánaða gamall hringdi lögregl-
an til hennar ,,til þess ab vara
mig við en þeir höfðu fengið
upphringinu þar sem einhver
hótaði að ræna John Clark,”
segir Kay.
— Ég hleypti ekki lögreglunni
inn til min fyrr en þeir höfðu
fullvissað mig um að þeir væru
örugglega frá lögreglunni.”
Kay hefur ekki hleypt blaða-
mönnum og ljósmyndurum inn
til sin. Hún vildi helzt ekki láta
neinn vita um hvar þau mæðgin
héldu sig.
Hún komst að samkomulagi
við lögregluna um að fá nætur-
vakt til þess að gæta hins rúm-
lega 80 ferkilometra landseturs
þar sem hún bjó áður ásamt
syni sinum, i Californiu.
Landsetur þetta keypti Clark
Gable á sinum tima handa
fjórðu eiginkonu sinni, Carole
Lombard.
Kay býr nú i Beverly Hills og
hefur látið koma fyrir sérstöku
viðvörunarkerfi i húsi sinu og er
það i tengslum við lögreglustöð-
ina i hverfinu til varnar gegn
mannræningjum.
Margir af aðdáendum Clark
Gable hafa spurt hvort John
Clarke eigi eftir að feta i fótspor
föður sins. Kay hefur svarað
þeirri spurningu á þá leið að
Clark Gable hafi verið á þeirri
skoðun að nóg væri að hafa einn
leikara i hverri fjölskyldu, — og
hún væri á sömu skoðun.
— En vel má vera að það fari
á aðra leið heldur Kay áfram.
John Clark likist föður sinum i
fleiru en útlitinu. Hann er
ástriðufullur, bliður og óhefl-
aður i sömu andrá, alveg eins og
faðir hans. Hann hefur mikla
hæfileika, — er alveg eins og
faðir hans hefði helzt kosið — og
með þessi augu sin hlytur hann
að verða kvennagull.
Clark Gable lék alls i 67 kvik-
myndum og hafði aðalstjörnur
Hollywood sem mótleikara.
M.a. má nefna Gretu Garbo,
Helen Hayes, Jean Harlow,
Vivian Leigh, Lönu Turner,
Myrnu Loy, Claudettu Colbert
og Marilyn Monroe.
Clark Gable og Marilyn Monroe kveðjast eftir að töku myndarinn-
ar „Tlie Misfits” lauk. lOdögum siðar var Clark Gable dáinn.
iBIABIB
er smóauglýsinga
blaðið
SOLUMAÐUR
VANUH. GÓDUR. IIÁTT KAUF.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf sendist Dagblaðinu fyrir 8. nóv. nk.
merkt „SÖLUMAÐUR 234”.