Dagblaðið - 13.11.1975, Síða 1

Dagblaðið - 13.11.1975, Síða 1
1. árg. — Fimmtudagur 13. nóvember 1975 — 55. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 ENN STOLIÐ FRÁ GAGN- FRÆÐA- SKÓLA . KEFLAVÍKUR: «FJÁR$JÓÐI" stouð — og gífurlegar skemmdir unnar í innbroti í nótt A annað hundrað þúsund krónum var stolið i Gagnfræöa- skóla Keflavikur i nótt og jafn- framt unnin gifurieg skemmdar verk á húsi og húsmunum svo að kosta mun hundruð þúsunda að lagfæra. Sá eöa þeir sem verknaðinn frömdu hófu aðgerðir i handa- vinnustofunni aðallega til að ná sér i verkfæri. Með þau i hönd- um héldu þeir til skrifstofa skólans á annarri hæð. Þar brutust þeir inn i læstan skjala- skáp með eldvarinni hurð og notuðu til þess meitla og hamra. En verkið tókst og úr skápnum voru teknar nokkuð á annað hundrað þús. kr. sem þar voru geymdar eftir bókasölu. Siðan voru hurðir skemmdar, skápar brotnir upp, simaborð mölbrotið, rótað i skúffum og hirzlum, bleki hellt hér og þar og i fáum orðum sagt gifurlegar skemmdir unnar. Virðist helzt að hér hafi einhverjir um farið fullir hefndarhugar. Málið er i rannsókn. ASt. , Námslónin: „Býst við afgreiðslu málsins á ríkisstjórnar- fundi í dag" „Málið verður tekið fyrir á fundi i dag og ég vona, að það fái einhverja endanlega af- greiðslu,” sagði Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamála- ráðherra, i viðtali við blaðið i morgun, um það hvað liði námslánamálum. ,,Ég vona, að minar tillögur verði sam- þykktar.” Tillögur Vilhjálms eru i samræmi við kröfur náms- manna um óskert lán og nýtt endurgreiðslu-kerfi auk þess, sem lánin verði verð- tryggð. „Heldurðu, að tillögur þin- ar mæti andstöðu innan rik- isstjórnarinnar?” „Hvað er þetta drengur, — heldurðu að við séum ein- hverjir dólgar, eða hvað?” HP. Við getum ekki hugsaö okkur lif án bóka, blaða og prentaðs máls. Til voru þeir timar er slikt var óþekkt. Saga prentlistar er órðin löng. Helztu þróunarpunktar hennar eru nú sýndir á sýningu, sem helguðer Jóhanni Gutenberg ogstendur yfir til 27. nóvember aö Kjarvalsstöðum. Þar sýnir þessi prentari i sparifötum prentun á þann hátt sem hún var unnin er prentlistin hófst á æðra stig. STÓRLEIKUR JÓHANNESAR í AYR - íþróttir í opnu — Skoraði þrjú mörk í 7-2 sigri Celtic BYSSU- HLAUPIÐ TÆTTIST SUNDUR - bls. 20 ÞESSI BILL HEFUR FJÓRUM SINNUM ■ VERIÐ SKOÐAÐUR Á 2 VIKUM — Grundartangamenn og bifreiðaeftirlitið — bls. 2 1LATINN LAUS ÚR FLJÚGANDI DISKI Erl. fréttir bls. 6-7 Tónninn orðinn falskur í bjöllum íslandsmeistaranna. Valur sigraði Víking 28-18 í 1. deild — íþróttir í opnu

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.