Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 20
20 Pagblaðið. Fimmtudagur 13. nóvember 1975. Yfirleitt brotnar minnst ein rúða í viku t húsi Tónabæjar, að Skafta- hlfð 24, eru fjórar verzlanir, Jónsbakari, Fiskúrvalið, Sunnukjör og Mjólkursamsalan. Allar hafa þær orðið fyrir miklu tjóni af völdum gesta Tóna- bæjar. Vart liður svo vika að ekki brotni þar rúður, og þær eru engin smásmiði, — kosta frá 25—60 þús. krónur. Verzlanaeigendunum ber öll- um saman um að ástandið sé óviðunandi. Oft hafi verið læti fyrir utan húsið en upp á siðkastið hafi keyrt um þverbak. Fremur mun vera óal- gengt að krakkarnir fari inn i þessar verzlanir eftir að rúðurnar hafa brotnað, þó hefur eitthvað borið á að stolið sé úr mjólkurbúðinni. Einnig kunni fisksalinn þá sögu að segja að allt hráefni hjá sér hafi verið eyðilagt eina nóttina með þvi að hellt var klór yfir fiskinn. önnur hlið á málinu snýr að ibúum við Skaftahlið. Þeir verða oft á tiðum fyrir miklu ónæði af völdum krakkanna. Til dæmis sagði okkur einn húseigandi að ekki þýddi að hugsa til að leggjast til svefns fyrr en klukkan tvö á föstudags- og laugardagsnóttum. Söngur og óhljóð, svo að ekki sé minnzt á skellinöðrudrunur, sjá fyrir þvi að venjulegt fólk fær ekki svefnfrið. öllu þessu fólki bar saman um að það sé fastur liður á hverju hausti nokkru eftir að skólar hefjast, að ólæti aukist við Tónabæ. Hins vegar sé tiltölu-, lega friðsamt á sumrin ef hægt er að tala um friðsemd i þessu sambandi. Einnig mun tilkoma Fellahellis I Breiðholti nokkuð hafa létt á fólksmergðinni i kringum staðinn. Það skyldi þá ekki vera lausn málsins að dreifa þessum hóp á sem flesta staði, til dæmis i flest hverfi borgarinnar? —AT BYSSUHLAUPK) TÆTTIST SUNDUR Hvað er nú þetta? Það er von að lesendursjái það ekki á augabragði. En þetta er hlaup haglabyssu sem svona tættist að framanverðu er af byss- unni var hleypt, og hólkur næsta skots á undan hafði stiflað hlaup byssunnar. Eigandi byssunnar, sem er af Winchester gerð og sjálf- virk, var á rjúpnaveibum austur i Grimsnesi er atvik þetta átti sér stað. Hann veitti þvi ekki athygli að leyfar skots hrutu ekki frá byssunni og er næsta skot reið af tættist hlaupið eins og myndin sýnir. Byssusérfræðingur Goða- borgar kvaðst aldrei hafa séð atvik sem þetta, enda þarf mikinn kraft til að tæta sterkt hlauprörið svona. Byssa af áðurnefndri gerð kostar nál. 50 þúsund kr. og nýtt hlaup i stað þessa er nálægt helmingi óhappinu en höglin féllu kraft- alls byssuverðsins, eða um 22 laus yfir skyttuna. þús. kr. Ekkert slys hlauzt af ASt. Fólksvagninn var heldur nöturlegur eftir áreksturinn enda var hann i harkalegasta lagi (DB-mynd Asi). ÓNÝTUR BÍLL EN LÍTIL MEIÐSLI Segist vera fró kirkjunni — svíkur fé út úr fólki „Það var velunnari okkar, sem taldi þetta eitthvað undar- legt og spurði okkur hvort mað- urinn væri eitthvað á okkar vegum. Við komum nánast af fjöllum,” sagði Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, er hann hafði samband við blaðið i gær. Maðurinn, sem hann átti við, gekk ihús i Vesturbænum i gær, snyrtilegur.finn og strokinn, og kvaðst vera að safna peningum til hjálparstarfs kirkjunnar. Guðmundi Einarssyni var ekki kunnugt um hvort maðurinn hefði farið viða, né hvort hann hefðisafnað miklu fé á þessum forsendum. „Það er engin söfnun á okkar vegum i gangi núná,” sagði Guðmundur, „enda auglýsum við allar okkar safnanir það vel fyrirfram, að slikar herferðir fara ekkert fram hjá fólki.” —ÓV Mjög harður árekstur varð kl. 23.10 i gærkvöldi á mótum Kleppsvegar og Langholtsveg- ar. Fjórir menn, tveir úr hvor- um bil, voru fluttir i slysadeild. Þeir reyndust litið slasaðir og má það ótrúlegt kallast miðað við útlit bilanna eftir árekstur- inn, þvi annar þeirra má teljast ónýtur. Lada-bifreið var á leið austur Kleppsveg, er Volkswagenbif- reið var ekið eftir Langholtsvegi og eiginlega beint á hina bifreið- ina. Lada-bifreiðin er stór- skemmd á hægra framhorni og reyndar á allri hægri hlið, en um horn eða hliðar er vart lengur hægt að tala um á Volkswagen- bifreiðinni. Framrúður beggja bilanna brotnuðu. Hlutu þeir er i bilunum voru sár af glersallan- um en sluppu óbrotnir og litt sem ekki meiddir. ASt. Til sölu Tandberg TV-4-2 sjónvarp, i læstum skáp á hjólaborði til sölu. Upplýsingar i sima 13387. Poppkornsvél til sölu. Óska eftir að kaupa vegg- kæli. Uppl. i simum 41303 og 40240. 2ja hólfa stálvaskur meb borði til sölu-Upplýsingar i sima 12080 eftir kl. 6 i kvöld. Kvikmyndatökuvél tilsölu Keyston Super 8 mm. Simi 19264 næstu kvöld. Góður miðstöðvarketill til sölu, verð kr. 8 þús. Uppl. i. sima 42998. Bensinmiðstöð i VW til sölu, einnig sófasett og sófaborð. Uppl. i sima 50170 eftir kl. 6. Mótatimbur til sölu 1x6 ca 1000-1500 m. Uppl. i sima 75539. Leikjateppin með bilabrautum til sölu að Nökkvavogi 54. Simi 34391. Hring- ið áður en þér komið. Megið korna eftir kvöldmat. Rafmagnsorgel til sölu. Vörusalan Laugarnes- vegi 112. Nýlegur 12 tonna Bátalónsbátur til sölu. Fæst i skiptum fyrir fasteign eða gegr fasteignaveði. Simi 30220. Vélbundið hey til sölu. Simi 43147. Óskast keypt Óska að kaupa fataskáp með hengi og hillum og/eða skúffum, barnabilstól með öryggisbeltum og háan barnastól. Simi 27638 eftir kl. 17. Notuð eldhúsinnrétting óskast. Uppl. i sima 51704 og sima 52554. Heitavatnskútur. Ca 200 1 rafmagns-hitakútur og 80-100 1 kútur óskast. Uppl. i sima 44309. Góð bújörð fyrir sauðfé óskast til kaups. Simi 30220. Hljómplötur — Kaupum litið notaðar og vel með farnar hljómplötur. Móttaka kl. 10 til 12 f.h. Safnarabúðin, Lauf- ásvegi 1, simi 27275. Rafmagnsorgel og sjónvarpstæki óskast. Simi 30220. Islenzku jólasveinarnir 13. Plakatið enn á gamla verðinu. Vesturfarar og aðrir, sendið tim- anlega fyrir jól. Simi 99-4295. Pósthólf 13, Hveragerði. Við getum boðið upp á hannyrðir á hagstæðu verði: Ullarjavapúða, löbera, veggteppi, smyrnateppi. Tizku- prjónagarnið frá Leithen með is- lenzkum uppskriftum, einnig mikið úrval af heklugarni C B, Bianca lagon, Merci, Smaragat. 1 Ljósmyndun Ný 16 mm, sjálfþræðandi EIKI kvikmynda-sýningarvél til sölu, sem ný. Uppl. i sima 85018 eftir kl. 8 á kvöldin. Ljósmyndavörur Heurtir Super 8 standard sýning- arvél með tali og tón, nýleg á hálfvirði. Polaroid XX70, ný vél, til sölu. Upplýsingar i sima 30709. 8 mm sýningarvélaleigan. Polaroid ljósmyndavélar, lit- myndir á einni minútu, einnig sýningarvélar fyrir slides. Simi 23479 (Ægir). Til bygginga Mótatimbur til sölu 1x4 og 1x6. Uppl. i sima 12371. Byggingarvörur. Blöndunartæki, gólfdúkar, gólf- flisar, harðplastplötur, þakrenn- ur úr plasti, frárennslisrör og fitt- ings samþykkt af byggingafulltr. Reykjavikurborgar. Borgarás Sundaborg simi 8-10-44. Bilskúrshurðir. Hinar vinsælu og léttu bilskúrs- hurðir úr trefjaplasti fyrir- liggjandi i brúnleitum lit. Straumberg h.f. Brautarholti 18. Simi 27120 Fatnaður i Til sölu karlmannsrúskinnsjakki, rauður, stærð 52. Simi 19264 næstu kvöld. Falleg mokkakápa, stærð 16—18 og nýr hálf-vatterað- ur frakki úr bómull og polyester, stærð 36, til sölu. Simi 23609. Brúðarkjóll (hvitur) ásamt siðu slöri til sölu. Uppl. i sima 74122 frá kl. 19 næstu daga. Það eru ekki orðin tóm að flestra dómur verði að frúrnar prisi pottablóm frá Páli Mich i Hveragerði. Blómaskáli Michelsens. Hnýtið teppin sjálf. 1 Riabúðinni er borgarinnar mesta úrval af smyrnateppum. Veggteppi i gjafaumbúðum, þýzk, hollensk og ensk. Pattons teppi I miklu úrvali og mörgum stærðum, m.a. hin vinsælu „bænateppi” i tveim stærðum. Niður klippt garn, teppabotnar i metratali og ámálaðir. Pattons smyrnagarn. Póstsendum. Ria- búðin, Laufásvegi 1. Simi 18200. Dömur athugið. Erum búin að fá úrval af loðjökk- um, höfum einnig loðsjöl (capes) húfur, trefla og alls konar skinn á boðstólum. — Skinnasalan Laufásvegi 19. Mikið úrval af jólavörum, vegg- myndir, strengir, löberar, metra- vara á kr. 521 metrinn. Opið til kl. 7 föstudaga og 12 á laugardögum. Hannyrðaverzlunin Grimsbæ við Bústaðaveg, simi 86922. Rýmingarsala á öllum jólaútsaumsvörum verzl- unarinnar. Við höfum fengið fall- egt úrval af gjafavörum. Vorum að fá fjölbreytt úrval af nagla- myndunum vinsælu. Við viljum vekja athygli á að þeir sem vilja verzla i ró og næði komi á morgn- ana. Heklugarnið okkar 5 teg. er ódýrasta heklugarnið á Islandi. Prýðið heimilið með okkar sér- stæðu hannyrðalistaverkum. Ein- kunnarorð okkar eru „ekki eins og allir hinir”. Póstsendum. Simi 85979.— Hannyrðaverzlunin Lilja Glæsibæ. Herrabuxur, drengjabuxur og bútar. Peysur, skyrtur og fleira. Búta- og buxnamarkaðurinn Skúlagötu 26. I Vetrarvörur Til sölu litið notuð Fischer skiði, 2 metrar á lengd, Marker öryggisbindingar. Uppl. i sima 82198 eftir kl. 19.30. Til sölu Kawasaki. Uppl. i sima 37090. Til sölu Suzuki TS 400 ’74. Skipti möguleg á bil. Uppl. I sima 71428 eftir kl. 6.' Suzuki árg. ’74 til sölu. Uppl. I sima 93-1149. 1 Fyrir ungbörn i Barnavagn italskur, blár, rauður að innan til sölu. Verð kr. 9 þús. Honda Dax 50 til sölu, gott verð ef samið er strax. Staðgreiðsla. Uppl. í sima 43991. tíarnarimlarúm óskast. Uppl. i sima 53142. r 1 Dýrahald Naggrisir, hamstrar og finkur til sölu. Sanngjarnt verð. Uppl. i sima 42561.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.