Dagblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 9
Pagblaðið. Laugardagur 15. nóvember 1975. 9 ER HÆGT AÐ LÆRA BRIDGE AF BÓKUM? Á þeim árum sem ég var að byrja að spila bridge hjá Bridgefélagi Reykjavikur var álitið af mörgum góðum bridge- spilaranum að ekki væri hægt að læra bridge af bókum. Það átti allt að koma með þvi að sitja við spilaborðið og spila, og spila sem mest. Ef einhver ætlar sér að læra bridge t.d. á skömmum tima eða bæta við kunnáttu sina til að ná árangri, þá eru það min ráð að ná sér i allar hugsanlegar bækur um bridge. Það er ekki aðeins af bókum, sem maður lærir kerfin, heldur er hægt að fá bækur um úrspil, vörn og eiginlega hvað sem er um bridge. Nú langar mig i framhaldi af þessu að leggja fyrir ykkur nokkur dæmi — lesendur góðir — og ég vona að þið hafið gaman af að leysa þau og lærið um leið eitthvað af þeim. Þið fáið 10 stig fyrir hverja rétta lausn. hjartaniu. Hvernig spilar þú spilið? Dæmí 4. Vestur Austur 4 ÁKG92 4 75 V 54 ¥ ÁK32 ♦ 54 ♦ AK32 4 D765 * Á32 ÞU ert að spila fjóra spaða i vestur. Norður spilar út hjarta- drottningu. Hvernig spilar þú spilið? Dæmi 1. Spilar hjartakóng i þriðja slag og gefur niður lauf. 10 stig. Dæmi 2. Þú trompar fyrsta tigulinn lágt en trompar siðan tvo tigla með ás og kóng i hjarta með þvi að spila blindum inn á tromp tvivegis, ferð inn á spaðakóng og tekur siðasta trompið (öfugur blindur). 10 stig. Dæmi 3. Hvað, stendur spilið ekki alltaf? Nei, það er ein hætta á ferðinni. Útspilið, hjartanian gæti verið einspil. Þvi tökum við ás og drottningu i laufi og köstum hjartakóng i áður en við spilum trompi. 10 stig. Dæmi 4. Drepum hjarta- drottningu á ás. Tökum tvo efstu i spaða. Spilum tvisvar tigli og trompum tigul, förum inn á hjartakóng og trompum hjarta og að lokum inn á laufaás og trompum si'ðasta hjartað. 10 stig. Fékkstu 40 stig. Frábært. 20 stig i meðallagi, en ef þú færð minna þá er bara að halda áfram að æfa og æfa. Þriðja umferð hjá Bridgefélagi Reykjavikur var spiluð s 1. miðvikudag. Úrslit urðu þessi: Einar Guðjohnsen-Stefán Guðjohnsen 11-9 Hjalti Eliasson-Gylfi Baldursson 20-r2 Helgi Jóhannesson-Benedikt Jóhannsson 12-8 Ölafur Valgeirsson-Jón Hjalta- son 20-í-4 Gunngeir Pétursson-Gisli Hafliðason 15—5 Lárus Hermannsson-Alf reð Alfreðsson 16—4 Þórir Sigursteinsson-Birgir Þorvaldsson 6—14 Ester Jakobsdóttir-ólafur H. Ólafsson 10—10 SiMON SiMONARSON Þórður Sigfússon- Gissur Ingólfsson 16—4 Staðan eftir þrjár umferðir er þessi hjá efstu sveitunum. 1. Hjalti Eliasson 52 st. 2. Einar Guðjohnsen 45 st. 3. Stefán Guðjohnsen 44 st. 4. Ólafur Valgeirsson 42 st. 5. Helgi Jóhannsson 38 st. 6. Gunngeir Pétursson 37 st. 1 næstu umferð spila saman allar efstu sveitirnar, það er að segja. Hjalti-Einar, Stefán- Ölafur, og Helgi-Gunngeir. Dæmi 1. Vestur A KD87652 ¥------- ♦ K32 4 K32 Austur A G1094 VKG . ♦ 54 4 A8765 Norður opnar á einu hjarta, en þú ert að spila fjóra spaða i vestur. Norður spilar út spaðaás og meiri spaða. Hvernig spilar þú spilið? Dæmi 2. Vestur A 432 V ÁK432 ♦------1 4 ÁDG103 Austur 4 AK5 ^DGIO ♦ 65432 4 K2 Þú ert að spila sjö hjörtu i vestur. Norður spilar út tigulás. Hvernig spilar þú spilið? Dæmi 3. Vestur Austur 4 D1098765 4 KG4 V ÁK V 854 ♦ K32 ♦ ÁD54 4 K 4 AD ÞU ert að spila sex spaða i vestur. Norður spilar út Óskhyggja Allvel lægi á mér þá og allan laus við dofa. Ef ég mætti Imbu hjá öðru hverju sofa. Gömul minning Stundum vermist hugur hryggur, ef hönd er lögð á kaldan stein. Þar sem gróin gata liggur, gömul minning ratar ein. Huldukona. Kastljós Einsogfyrr var Gunnar æði góður, en greinilega orðinn ellimóður. Ég eiginlega kunni ekki við Kiljan á köflum átti ég erfitt með að skilj’ann Mér fannst sem upp i honum væri vala sem varnaði honum eðlilega að tala. Aldrei flugið eiginlega tók hann, á ýmsa vegu báðurn höndum skók ’ann. Við hefðum gjarnan þurft að heyra það sem honum ekki tókst að koma að. Sálmaskáldið tók allt föstum tökum, og treysti ræðu sina föstum rökum. Austanáttin enn er rik i honum, eins og mörgum landsins beztu sonum. í vestrið Matti varaðist að lita. Við verðum ýmsum formúlum að hlita. Ekki Jónas af þvi dró að vanda ótrauður hann hjó til beggja handa, þyngstu höggin dundu á Matta minum en maðurinn á skjöld i fórum sinum. Þvi kraftaskáld er karlinn talinn vera við karla slika er litið hægt að gera. Illt er við Jónas að eiga þras. Illa brást Kiljan vonum minum. Mikið skáld er hann Matthias. Mér finnst að hann skáki nafna sinum. Vilhjálmur Hallgrimsson vanta sig lét, verið það gat ekki minna, þegar að burtu skal fáein fet fara til örna sinna. Kristinn Magnússon. RAC RALLY 1975 Norðurlandamenn lík legir sigurvegarar Enska RAC-rallýið hefst þ. 22. nóv. nk. Rallý þetta er einn af heimsviðburðum, vinsælt og mjög mikilvægt fyrir bilaiðnað- inn og þróunina i heild. Þrátt fyrir hækkandi bensin og bila- verð á heimsmarkaðinum sækja framleiðendur að þvi með bila sina eins og mý að mykjuskán ogfólk flykkist að hvaðanæva úr heiminum til að verða vitni að sigrum og ósigrum. Keppnin hefst i York, leiðin er 2.880 km og um 480 km af henni eru um erfiðustu skógarvegi Englands, Skotlands og Wales. Sigurvegarinn frá i fyrra, Timo Makinen, 37ára Finni sem ekur nýjum 16 ventla Ford Es- * cort ásamt aðstoðarmanni sin- um, Henry Liddon, sem okkur er að góðu kunnur fyrir heim- sókn sina hingað sem ráðgjafi fyrir F.l.B.-rallýið i fyrra, munu gera sitt ýtrásta til að vinna þessa árlegu keppni i 3ja sinn, en félagi og landi Makin- ens, Hannu Mikkola ásamt Frakkanum Jean Godt, láta ekki sitt eftirliggja tilað hreppa hnossið á 240 ha. Toyota Celica gt. coup., ásamt Svianum Ove Anderson sem einnig ekur Toy- ota. Sá 3. á Toyota er C. Sclater, á T. Corolla Levin coup. Toyota-menn eru harðir á þvi, þeir hafa þegar eytt um 60.000 st. pundum i keppnina og bili TBar^ Sialiiif® Ari Vatanen á Opel Timo Makinen og Henry Liddon á Ford Escort RS 1600 eitthvað eða brotni á erfiðum leiðarhlutum biður þyrla reiðu- búin til flugtaks með varahluti og viðgerðarmenn sem gera við á augabragði. Einn af liklegum til að sýna þeim Finnum tennurnar er sænski bóndinn Björn Walde- gaard sem 6 sinnum i röð hefur þreytt RAC-rallýið. Hann ekur nú hinni litlu og álitlegu Lancia Stratos sem er með Ferrari V6 vél, staðsetta i miðjum bilnum. Annarri Lanciu Str. ekur Italinn Sandro Munari sem varð 3. i fyrra, og þeirri 3. ekur Sviinn P. Inge Walfridsson sem i ár leiddi alþjóðl. skozka rallýið þar til bill hans bilaði. Englendingurinn Roger Clark sem vann árið 1972, mun ásamt Tony Mason aka Escort. Þeir þekkja ensku vegina eins og fingurna á sér og eru af öllum enskum þátttakendum taldir liklegastir til sigurs. Ari Vatan- en, hinn 23ja ára ljóshærði Finni, mun i fyrsta sinn keppa fyrir bilaframl. i Englandi og aka Ford Escort. Sviarnir Stig Blomquist og Per Eklund munu báðir aka hinum framhjóla- drifnu Saab 96s og þykja nokkuð liklegir, sér i' lagi versni færð vegna isingar eða snjóa sem varla verður þó á þessum árs- tima. Þjóðverjinn Walter Roe- hril og Finninn Rauno Aaltonen koma einnig til greina og aka báðir Opel Kadett. Það er margreynt að Norður- landabúar, þá aðallega Svfar og Finnar, standa framarlega i þessari skemmtilegu og spenn- andi iþrótt og að áliti margra er það vegna þess hvað akstursað- stæður i heimalandi þeirra eru slæmar, svo sem vegna veðurs, landslags o.fl. Flestir islenzkir ökumenn ættu samkvæmt þvi að vera gjaldgengir og efnilegir byrjendur i rallýi, en þó aðeins byrjendur. Eins og er um allar aðrar iþróttir krefst rallýakstur mikillar æfingar til að meistar- inn skapist, bæði fyrir ökumann og aðstoðarmann (co-driver). Rallý æfingar mega aldrei fara fram á opnum fjölförnum þjóðvegum. Hver sá, er iökar slikt, misskilur hrapallega hvað um er að ræða. Hverjum dytti .svo sem i hug að æfa sprett- hlaup niðri i Austurstræti? Fél. isl. bifreiðaeigenda hefur tekið, þennan þátt bilaiþróttanna upp á sina arma og á þar heiður skil- inn. Þeir héldu fyrsta rallý á Is- landi og vonandi ekki það sið- asta. • • UMFERÐARLOG Ljósalimi: Timinn l'rá hálfri klukkustund eftir sólaiiag til liálfrar klukkustundar lyrir sólarupprás. Akvæði laganna um Ijósatima gilda EINNIG, þótt á öðrum tima sé, i þoku og við önnur svipuð hirtuskilvrði. Knúinn af sólarorku Þótt þessi litli bill eigi liklega litið erindi til Islands er hann ef til vill lausnin á méngunar- vanda stórborganna. Hann er knúinn af sólarorku, en smiðin er á tilraunastigi hjá Lucas verksmiðjunum i Englandi og teikningarnar liggja þvi ekki á glámbekk. Kannski stóru oliufé- lögin kaupi þær vægu verði. Litli sólargeislinn

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.