Dagblaðið - 24.11.1975, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 24.11.1975, Blaðsíða 3
Pagblaðið. Mánudagur 24. nóvember 1975. 3 Giftusamleg björgun ferðalanga á Reykjaheiði Stórhríð á Húsavík um helgina Eftir hádegið á laugardag lögðu fjórir ungir menn frá Húsavik i kynnisferð upp á Reykjaheiði. Veður var ekki beinlinis til slikrar ferðar fallið þar sem stórrigning var og veg- ir blautir. Endaði með þvi að piltarnir festu farartæki sitt, sem var Landrover-jeppi, er þeirkomu fram að Þeistareykj- um. —■ Gátu þeir ekki meö nokkru móti losað bilinn og lögðu þvi af stað heimleiðis gangandi. Þeir héldu sig á veginum all- an timann, þvi mikil þoka var á heiðinni. Ekki er nema klukku- tima akstur fram að Þeista- reykjum frá Húsavik undir venjulegum kringumstæðum, en ferðalangarnir komu ekki til Húsavikur fyrr en komið var undir miðnætti. Tveir þeirra höfðu gefizt upp á göngunni og lagzt fyrir uppi á heiði. Þá var skollin á linnulaus stórhrið. Gerður var út hjálpar- leiðangur til að bjarga mönnun- um tveim og bilnum. Fór lög- reglumaður ásamt manni úr hjálparsveitinni i Landrover jeppa, fundu mennina tvo og björguðu bilnum. Mennirnir voru orðnir hold- votir og kaldir er aö þeim var komið, en varð að öðru leyti ekki meint af. Leiðangursmenn komu kl. 4 á sunnudagsmorguninn heim til Húsavikur heilu og höldnu. Þótti mikil mildi að ekki tókst verr til. Lögreglan gat þess að færð i bænum væri furðanlega góö og hvergi ófært, aöeins jafnfallinn snjór. Ekki var útlit fyrir að lát yrði á snjókomunni. A.Bj. Óeinkennisklæddir lögreglumenn telja dansgesti f Sigtúni, —en þeir reyndust öllu fleiri en leyfilegt er. (DB-mynd Björgvin). Gestirnir voru fleiri en leyfilegt er: TALIÐ ÚT ÚR SIGTÚNI Þeir voru rétt yfir markinu, sagði Grétar Norðfjörð lög- reglumaður, þegar við spurðum hann um „úttalninguna” úr Sig- túni s.l. laugardagskvöld. Það var ekki opið i öllum samkomuhúsum borgarinnar á laugardagskvöldið og mátti þess vegna búast við miklum fjölda gesta i Sigtúni. En engum var hleypt inn i húsið eftir klukkan ellefu. Þá biðu nokkur hundruð manns fyrir utan. — Við talninguna kom i íj’ós að tála gesta i húsinu var aðeins hærri en leyfilegt er, sagði Grétar Norðfjörð. A.Bj. Hálko á Hellisheiði einn valt Fljúgandi hálka var á veginum yfir Hellisheiði um helgina, en umferð var ekki mjög mikil. Einn Vegna fréttar i blaði yðar á föstudag um eldsvoða i báti á Seyðisfirði vil ég gjarna að eftir- farandi komi fram. Slökkvistarfið gekk mjög greið- lega og ekkert fum eða flaustur átti sér stað i upphafi, heldur gekk óvenju fljótt fyrir sig að koma tækjunum fyrir og senda reykkafara meö slökkvitæki ofan i bátinn. Um það að sprautað hafi verið bensini á eldinn i stað létt- froðu er staðhæfulaust með öllu og reyndar rakalaus lygi. Það skal að visu viðurkennt, að það hefði getað farið illa vegna þess að froðuefnið er geymt á plast- brúsum og nærri lá að bensin- bill valt, var það jeppabifreið úr Reykjavik. Engan sakaði að sögn lögreglunnar á Selfossi. A.Bj. brúsi, sem ekki var nægjanlega auðkenndur frá kvoðubrúsunum, yrði tekinn i misgripum. Sem betur fer er eldsvoði ekki daglegur viðburður hér en vekur eðlilega mikla athygli þegar hann ásérstað. Þessi athygii torveldar ávallt slökkvistarfið vegna þess að alltaf er viss hópur áhorfenda sem lætur svona atvik æsa sig upp. Dæmi eru til að fullorðið fólk leikur hreina trúða við slik tæki- færi. Fréttaskáldið ÓJ frá föstu- deginum er einmitt ágætt dæmi um slikt. Theodór Blöndal slökkviliðsstjóri á Seyðisfirði. Óútfylltum en undir- rituðum tékkum stolið á Siglufirði Aðfaranótt s.l. miðviku- dags var brotizt inn i Lag- metisiðjuna Siglósild á Siglufirði. Var stolið þaðan litlum peningakassa og skjalatösku. Ekki var vitað hve miklir peningar voru i kassanum en i skjalatösk- unni voru ýms skjöl og tékk- hefti á Landsbankann i Reykjavik og var búiö að undirrita nokkra tékkana. — Taskan hefur nú fundizt úti á viðavangi, en i henni var einungis reykjarpipa og stimpill Lagmetisiðjunnar, hitt var allt horfið. Er nú unnið að rannsókn málsins. A.Bj. SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN VILL EKKI VIÐUR- KENNA BENZÍNGUSUNA Linnulaus snjókoma fyrir norðan og vestan Verulegt úrkomumagn á Reykjanesvita og í Reykjavík Aðfaranótt sunnudags byrjaði að snjóa á Norðurlandi og Vest- fjörðum. Var linnulaus snjó- koma þar á sumum stöðum i gær. Vindur á landi var ekki mjög sterkur, norðan kaldi en allhvasst eða hvasst á miðun- um, einkum á Vestfjarðamið- um. Sunnanlands var mun minni úrkoma, aðeins él og viða var þurrt á Suðurlandi. Veðurstofan sagði að ástæðan fyrir þessu veðri væri að lægð- armiðja fór yfir landið aðfara- nótt sunnudags. Olli hún veru- lega mikilli rigningu á öllu Norður- og Vesturlandi. Þegar lægðin var komin yfir breyttist úrkoman i snjókomu. Frá þvi kl. 18 á laugardags- kvöld og þar til kl. 9 á sunnu- dagsmorgun mældist mest úr- komumagn 25 mm á Reykjanes- vita og 22 mm i Reykjavik. A.Bj. Þungfœrt á götum Siglufjarðar Mikil snjókoma var á Siglu- firði um helgina. Kyngdi þar niður snjó, en veður var kyrrt. Skyggni var ekki nema 3—400 metrar. Færð var nokkuð þung, vegna þess hve blautt var undir snjónum. Ekki höfðu orðið nein slys i umferðinni er við höfðum samband við lögregluna á Siglu- firði i gær. A.Bj. Hálka og ófœrð á ísafirði Stórhrið var á Isafirði i fyrri- nótt og kyngdi niður snjó. Færð spilltist i bænum og mikil hálka myndaðist. Ekki varð samt nema einn árekstur þar i gær og hann mjög smávægilegur. Tveir smábátar, sem höfðu verið á sjó, leituðu vars á tsafirði vegna óveðursins. Sæmilega gott veður var komið i gær, bjart yfir og engin úrkoma. A.Bj. Braut rúður og grindverk og sleit upp hríslur Mikill erill og þvarg var hjá lögreglunni i Reykjavik er liða tók á föstudaginn. Urðu útköll lögreglunnar alls 84 og i flestum tilvikum var það út af ölvun og afleiðingum hennar. Fanga- geymslur lögreglunnar fylltust snemma kvölds. Einn hinna ölóðu gekk ber- serksgáng i Skipasundi skömmu eftir miðnætti aðfaranætur laugardags. Gekk maðurinn þar milli húsanna frá 56 til 64.Braut hann rúður viða. sparkaði sund- ur grindverki og reif upp hrislur i görðum. Var lögreglan til kvödd og hinn ölóði var settur bak við lás og slá. ASt. 11 teknir ölvaðir við akstur — og tveir á sama reiðhjólinu Sjö voru teknir ölvaðir við akstur bifreiða hér i Reykjavik á föstudaginn og fjórir bættust i þann hóp á laugardaginnAEinn hinna seku var þar að auki á stolnum bil. Var hann stöðvaður i ökuferð sinni á niunda timan- um á laugardagsmorguninn. Sjaldgæfara er að menn séu ölvaðir á reiðhjólum. En við slikan „akstur” voru tveir pilt- ar teknir i Nóatúni á laugar- dagskvöld. Hjólinu höfðu pilt- arnir stolið við Tónabæ og tvi- menntu þeir siöan á þvi niður i Nóatún. þar sem lögreglan batt enda á ökuferðina. ASt. Lét ölvunarœði sitt bitna á kyrrstœðum bíl Bifreið frá Guðmundi Jónas- syni var illa leikin i fyrrinótt er ölvaður maður réðst að henni. Lögreglan var til kvödd um kl. 3 á sunnudagsnótt og kom að manninum við iðju sina. Hafði maðurinn gengið berserksgang i bilnum og stórskemmt hann, brotið og rifið. Maðurinn var ölvaður og fékk gistingu i fanga- gevmslum lögreglunnar. ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.