Dagblaðið - 24.11.1975, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 24.11.1975, Blaðsíða 18
18 Dagblaöiö. Mánudagur 24. nóvember 1975. Málverkauppboð í Bredgade í KaupmannahSfn: KJARVAL, ENGILBERTS OG JÓN Stórt málverkauppboð fer fram í Kunsthallen i Bredgade i Kaupmannahöfn á miðvikudag og fimmtudag næstkomandi. Dagblaðið hefur eftir góðum heimildum, að þarna verði boð- in upp málverk eftir islenzka listmálara, meðal annars Kjar- val, Jón Stefánsson og Jón Engilberts. Ekki er blaðinu kunnugt, um hvaða verk þessara islenzku meistara er að ræða. Hins vegar er vitað, að kunnir islenzkir málverkasafnarar verða stadd- ir á uppboðinu eða umboðsmenn — íslenzkir málverka- kaupmenn utan til að bjóða í verkin þeirra. Ekki hafa þó einstakir menn, sem eru á förum til Dan- merkur og liklegir eru til að láta ekki slikt uppboð fara fram hjá sér, viljað staðfesta að er- indi þeirra sé að keppa við Dani um boð i islenzk málverk á áð- urnefndu uppboði. —BS— PLÁSS FYRIR NOKKRAR STEIKURNAR! l>eir taka sig vcl út kokkarnir á Esju. Þeir viröast nú raunar vera aöallega i uppvaskinu þessa stundina, en það þarf vist að gera þaö lika. Mönnum dettur lika ýmislegt i hug viö uppvaskiö og sennilega eru þeir aö bræöa saman inatscöil dagsins. Pönnurnar þeirra eru aö minnsta kosti tiltækar og ekki af smærri gcrðinni. Þær ættu að rúma nokkrar steikurnar — DB-mynd Ragnar Th. BELGÍUMENN VILJA SEMJA Belgiski sendiherrann kom til milnanna. viðræður verið ákveðnar laust landsins i gær. Hann óskar eftir Að sögn Péturs Thorsteins- fyrir hádegið. viðræðum um samninga um sonar ráðuneytisstjóra i utan- —HB veiðar Belgiumanna innan 200 rikisráðuneytinu höfðu engar 55 ERLENDIR STÚDENTAR HÓFU ÍSLENZKUNÁM VIÐ HÁSKÓLANN í HAUST — margir langt að komnir Um 60 erlendir stúdentar leggja stund á islenzkunám við Háskóla íslands i vetur. Þar af eru 55 sem eru að hefja nám. Árlega koma hingað styrk- þegar og eru þeir tólf talsins i ár. Sumir eru langt að komnir, einn alla leið frá Japan, en flest- ir frá Norðurlöndunum, Þýzka- landi og Engandi. Tuttugu og tveir Bandarikja- menn eru i deildinni, þar af eru átta mormónar. Er þetta ó- venjulega há hlutfallstala Bandarikjamanna. Þá eru einn- ig nemendur frá Grænlandi, Malasiu, Kóreu og Filippseyj- um i islenzkudeildinni. Námið er byggt upp sem tveggja ára nám, með átján kennslustundum á viku. Á fyrra ári eru tvö misserispróf. Þá eru kennd undirstöðuatriði i mál- fræði, framburður og beina- grind af bókmenntasögu. A siðara árinu er m.a. kennd hagnýt málnotkun, sagnaritun og isl. nútimamál. Flestir nemendurnir eru á aldrinum 20—30 ára og búa styrkþegarnir á Stúdentagarð- inum. Guðni Kolbeinsson, sem kenn- ir þessum erlendu stúdentum, sagði að þeir væru mjög mis- jafnlega á vegi staddir. Væri á- berandi hve Norðmönnum og Þjóðverjum gengi bezt, enda hefðu þeir yfirleitt einhvern undirbúning. Guðni sagði að algengt væri að nemendur innrituðust i deild- ina á haustin, en margir heltust svo úr lestinni þegar liður á vet- urinn. Hefur deildinni haldizt ó- venjuvel á stúdentunum að þessu sinni. A.Bj. Fuglaverndarfélagiö Næsti fræðslufundur Fuglavernd- arfélagsins verður i Norræna húsinu miðvikudaginn 26. nóvem- ber kl. 20.30. Árni Waag flytur erindi með lit- skuggamyndum um náttúru- vernd. Myndirnr eru af ýmsum stöðum á landinu, af blómum, fuglum og gróðri sem ógnað er af ytri ástæðum, og' lögð áherzla á að ekki má rjúfa hina viðkvæmu lifskeðju i náttúrunni án þess að gera sér ljósar afleiðingar sem af þeim aðgerðum gela hlotizt. Árni er þekktur fyrirlesari um nátt- úruvernd , kunnur fyrir ágæta og skýra framsetningu og einstakan skilning á islenzkri náttúru. Öllum heimill aðgangur. Hiö íslenzka náttúrufræðifélag Næstkomandi mánudag, 24. nóv- ember 1975, kl. 20.30 heldur Ölaf- ur Karvel Pálsson fiskifræðingur fyrirlestur i stofu 201, Árnagarði. Fyrirlesturinn fjallar um rann- sóknir á lifnaðarháttum þorsk- fisksungviðis i Isafjarðardjúpi. Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum. Húsnæðismála- ráðstefna Sjálfstæðisflokkurinn mun efna til ráðstefnu laugardag 6. des. og sunnudag 7. des. nk. um húsnæð- is- og byggingarmál. Fundarstaður: Skiphóll, Hafn- arfiröi. A ráðstefnunni verður fjallað um stöðu húsnæðis- og bygg- ingarmála i dag, helztu vanda- mál, hugsanlega þróun og mark- mið. Dagskrár verður nánar getið siðar. Þátttöku þarf að tilkynna til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins fyrir þriðjudag 3. des. nk. Kvenfélag Laugarnessóknar. Jólaföndrið verður næstkomandi þriðjudagskvöld, 25. nóvember kl. 8.30 i kjallara kirkjunnár. Endurhæfingarrað. Hæfnis- og slarfspi ul'anir lara fram i Hálúni 12 alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Simi 84848. ' Fótsnyrting fyrir aldrað fólk i i Mosfellssveit. Kvenfélag Lágafellssóknar verður með fót- snyrtingu fyrir aldrað fólk að Brúarlandi. Timapantanir i sima 66218. Salome frá kl. 9—4, mánu- daga—föstudaga. Fundartimar AA- samtakanna. Fundartimar AA-deildanna i Reykjavik eru sem hér segir: Tjarnargata 3c mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 9 e.h. Safnaðarheimili Langholtssafn- aðar föstudaga kl. 9 e.h. og laugardaga kl. 2 e.h. Muniö frimerkjasöfnun Geð- verndar (innlend og erlend). Pósthólf 1308 eða skrifstofa fe- lagsins, Hafnarstræti 5, Reykja- vik. Simavaktir hjá ALA-NON. Aðstandendum drykkjufólks skal bent á simavaktir á mánudögum kl. 15—16 og fimmtudögum kl. 17—18, simi 19282 i Traðarkots- sundi 6. Fundir eru haldnir i Safn- aðarheimili Langholtssafnaðar alla laugardaga kl. 14. MiR-salurinn: Svning a (flir- prentunum sovézkra veggspjalda frá styrjaldarárumnn 1941 45 og veggspjöldum. sem vnru gel'in úl i Sovétrikjunum á þessu ári lil kynningar á kvikmvndum um styrjöldina og athurði, er þá gerðust, er opin i MiRsalnum Laugavegi 178. Sýningin er opin laugardaginn 8. nóv. kl. ni- m ()g sunnudaginn ki. 14- 16. Eltir það á skrifstofutima MIR a þriöju- dögum og fimmturiögum kl 17.30—19.30. öllum lieimill að- gangur. Veðrið Austan og norðaustan gola og léttskýjað, en þykknar fljdtlega upp með austan og suðaustan kalda. Dálitil snjókoma i dag, en léttir til með norðan og norðaustan kalda i nótt. Frost verður 1—4 stig. Hitabreytingar verða litlar á næstunni. Asmundur Eiriksson, trúboði og forstöðumaður Fila- delfiusafnaðarins, lézt i Landa- kotsspitala 12. nóvember. Otför hans fór fram frá kirkju Fila- delfiu siðastliðinn laugardag. — Asmundur fæddist 2. nóvember 1899 að Reykjarhóli i Fljótum. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Magnúsdóttir og Eirikur Ás- mundsson. Asmundur lagði fyrir sig búfræðinám, en varð - að hverfa frá sökum veikinda. Árið 1932 fór hann i bibliuskóla i Stokk- hólmi og er hann kom til baka gekk hann i Hvitasunnusöfnuð- inn. — Hann var forstöðumaður þess safnaðar i 22 ár. Asmundur var skáld gott, og orti bæði og þýddi sálma og bækur. Kona Ásmundar var Þórhildur Jóhannesdóttir. Þau giftust árið 1932. Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri i Vestmanna- eyjum, lézt i Eyjum 15. nóvem- ber. Útför hans fór fram sl. laug- ardag. — Sighvatur var fæddur á Stokkseyri 27. október 1903. For- eldrar hans voru hjónin Arnlaug Sveinsdóttir og Bjárni Jónasson. Árið 1925 flutti Sighvatur til Vestmannaeyja og árið eftir eign- aðist hann sinn fyrsta bát. Brátt urðu bátarnir fleiri. Arið 1959 lét Sighvatur af skipstjórnarstörfum og gerðist þá framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Undir hans handleiðslu óx fyrirtækið og dafn- aði. Sighvatur var fyrst kosinn i bæjarstjórn Vestmannaeyja árið 1942 og átti þar sæti um árabil. Hann var þegar kosinn i hafnar- nefnd og átti þar sæti til dauða- dags. Kona Sighvats var Guðmunda Torfadóttir. Þau eignuðust átta börn, og eru sjö þeirra á lifi. Kctill Brandsson, lézt að Elliheimilinu Grund 11. nóvember sl. og var jarðsunginn frá Eyvindarhólakirkju siðastlið- inn laugardag. — Ketill var fædd- ur 16. janúar 1896 að Krókvelli undir Austur-Eyjafjöllum. For- eldrar hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir og Brandur Ingimund- arson bóndi. Ungur missti Ketill móður sina og fór þá i fóstur til föðursystur sinnar Kristinar Ingi- mundardóttur og manns hennar Una Unasonar. Ungur fluttist Ketill til Vestmannaeyja og bjó þar alla ævi eða allt þar til nátt- úruhamfarirnar þar gengu yfir árið 1973. Hann vann lengst af sem netamaður. Árið 1971 fór hann á Elliheimilið i Vestmanna- eyjum, en eftir að gosið hófst dvaldi hann á Elliheimilinu Grund allt þar til hann andaðist. Valgerður Þorvaröardóttir, Miklubraut 78, verður jarðsungin frá Háteigskirkju á morgun kl. 13.30. Jón Gislason, verzlunarmaður frá Siglufirði, lézt 16. nóvember. útför hans fer fram frá Fossvogskirkju i dag kl. 15. Jóliann Bjarni Jósefsson, vistmaður á Hrafnistu, lézt i Landakotsspitala 21. nóvember. Útför hans fer fram frá Fossvogs- kirkju á morgun kl. 10.30. Ingibjörg Felixdóttir, fyrrum húsfreyja á Blámýrum i ögurhreppi, lézt 13. nóvember. Útför hennar hefur farið fram. Jón Björnsson verkstjóri, Fornósi 10, Sauðár- króki, lézt 13. nóvember. útförin hefur farið fram. Adolf Kcrdinand Jónsson. lézt i Sjúkrahúsi Isafjarðar 20. nóvember.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.