Dagblaðið - 24.11.1975, Blaðsíða 7
Pagblaðiö. Mánudagur 24. nóvember 1975.
7
Erlendar
fréttir
OMAR
VALDIMARSSON
1
REUTER
I
Monopoly-meistari
Hálfþritugur irksur fast-
eignasali, John Mair, varð
heimsmeistari i „monopoly” i
Washington i gær.
Hann þakkar sigur sinn
„hreinni hæfni, snilli minni —
og gin og tónik.”
Mair stóð sig afburðavel all-
an timann, en hætti þó titlin-
um þegar hann missti tening-
inn i ginglasið sitt. Hann sigr-
aði siðan Belgann Roger
Hendrickson, sem varð í öðru
sæti, Norðmanninn Cato Wallo
og Bretann Ken Jones.
Ástralía
„KOSIÐ UM FRAMTÍÐ
MNGRÆÐISINS
— sagði Whitlam í morgun
II
Gough Whitlam, hinn brott-
rekni forsætisráðherra Ástraliu,
hóf i morgun formlega Kosrimga
baráttu Verkamannaflokksins
og hvatti landsmenn til að bæta
úr þvi mikla ranglæti, sem orðið
hefði er stiórn hans var vikið
frá.
Whitlam sagði á fundi með 30
þúsund stuðningsmönnum sin-
um i Sydney i morgun, að þeir
ættu að gefa þingræðislegu lýð-
ræði sanngjarnt tækifæri til að
sanna ágæti sitt.
„Þessar kosningar snúast um
sjálft þingið,” sagði hann. „Þær
snúast um framtið þingræðis-
ins.”
Whitlam var rekinn út starfi
af landstjóranum Sir John
Kerr, 11. þessa mánaðar vegna
þess að hann hafði neitað að
boða til kosninga þótt þingið
vildi ekki samþykkja fjárlaga-
frumvarp hans óbreytt.
Whitlam sagði, aö stuðnmgur
við landstjórann i þessu máli
þýddi það eitt, að sami hlutur-
inn gæti gerzt aftur og aftur þar
til þingræðisfyrirkomulaginu
væri endanlega komið fyrir
kattarnef.
„Það væri rangt gagnvart
áströlsku þjóðinni, gagnvart
ástralskri sögu og gagnvart
framtið Ástraliu,” sagði Whit-
lam á fundinum og fögnuðu
fundarmenn vel og lengi.
Talið er að Whitlam njóti
stuðnings meirihluta þjóðarinn-
ar en það fæst að sjálfsögðu ekki
endanlega staðfest fyrr' en i
kosningunum 13. desember.
Gougli Whitlam: kosningabar-
áttan liafin.
Yelena Sakharov
tekur við Nóbels-
verðlaunum í Osló
— í stað manns síns
Yelena Sakharov fer til Oslóar i
næsta mánuði til að veita viðtöku
friðarverðlaunum Nóbels fyrir
hönd manns sins, sovézka kjarn-
eðlisfræðingsins Andreis Sakhar-
ovs, að þvi er vinir hennar sögðu i
Flórens á ítaliu i gærkvöldi.
Frú Sakharov mun fara i fylgd
þriggja vina sinna. Einn er vinur
hennar, sem hún hefur dvalizt hjá
i Flórens, annar er túlkur hennar
og sá þriðji læknirinn, er skar
hana upp við gláku i Siena.
Yelena hefur verið á ttaliu sið-
an i ágúst vegna augnveiki sinn-
ar. Hún fékk nýlega framleng-
ingu á dvalarleyfi sinu utan
Sovétrikjanna. Hún hafði gert sér
vonir um að fá að fara með manni
sinum til Oslóar til að taka við
verðlaununum.
Saharov hefur hins vegar ekki
fengið leyfi sovézkra yfirvalda til
að fara úr landi, þar sem hann
byggi yfir vitneskju um rikis-
leyndarmál.
Bæði Sakharov og Yelena kona Nú hefur hún ákveðið að fara ti)
hans hafa visað þessum fullyrð- Oslóar fyrir hönd manns sins og
ingum Sovétstjórnarinnar á bug taka við verðlaununum.
Andrei og Yelena Sakharov á heimili sinu i Moskvu i apríl sl.
Spínóla segist œtla að frelsa Portúgal
António de Spinóla, fyrrum
forseti Portúgal, segist ætla að
frelsa land sitt úr höndum
„marx-leninista stjórnarinnar
sem þar er við völd. Spinóla
sagði þetta á fundi með frétta-
mönnum i Toronto i Kanada i
gærkvöldi.
Hershöföinginn sagð frétta-
mönnum, að portúgölsk yfirvöld
sköpuðu stjórnleysi og ringul-
reið, sem gæti endað með vopn-
aðri uppreisn.
Spinóla, sem er 65 ára, flýði til
Braziliu fyrir rúmu ári eftir að
honum mistókst að steypa
vinstristjórninni i Lissabon af
stóli. Hann verður handtekinn ef
hann snýr aftur til Portúgal.
Tilkynnt var um sprengju i
samkomusalnum, þar sem
Spinóla ávarpaði Kanadamenn
af portúgölskum ættum. Það
reyndist gabb. Um 200 manns
mótmæltu Spinóla fyrir utan
samkomuhúsið á meðan hann
flutti mál sitt.
Efnahagur heimsins
að rétta úr kútnum
segir Newsweek
Á næstu tveimur árum munu
Bandarikin veita efnahagsleg-
um bata forystu um allan heim.
Heimsverzlunin eykst og verð-
bólgan minnkar, að þvi er segir
i timaritinu Newsweek i dag.
Timaritið gerði úttekt á efna-
hagsmálum heimsins i félagi
við efnahagsstofnun Pennsyl-
vaniu háskóla. 1 niðurstöðunum,
sem birtar eru i timaritinu i dag
segir að heimsverzlunin — sem
minnkað hefur um rúmlega 6
prósent á þessu ári — muni auk-
ast um rúmlega 5% á næsta ári
og um nærri tiu prósent 1977.
Heimsframleiðslan ætti að
aukast um að minnsta kosti
fjögur prósent á næsta ári, segir
timaritið, og 1977 ætti
hún að aukast upp i sex prósent.
Verðbólgan verður aöeins sex
prósent eða jafnvel minna 1977.
Miðað við „eðlilegar” aðstæð-
ur, segir Newsweek, þá bendir
allt til þess, að næsta ár verði
hagstætt efnahagslifi heimsins.
Fangauppreisn
í New York
Nokkur hundruð fangar á
Rikers eyju i New Island-sundi i
New York gerðu uppreisn
snemma i morgun og halda
fimm fangavörðum i gislingu.
Engin meiðsli hafa verið til-
kynnt og virðist allt vera tiltölu-
lega kyrrt i fangelsinu.
Það munu vera um 300 fang-
ar, sem tóku völdin i morgun og
voru flestir „vopnaðir” kústum
og sópum.
Ekki er vitað hverjar kröfur
fanganna eru, né heldur hvað
kom uppreisninni af stað.
Aðeins er uppreisn á tveimur
göngum i fangelsinu, þar sem
fangar eru nokkur þúsund.
Leikkono fœddi
barn ó sviðinu
Leikkona á Formósu (Tai-
wan) fæddi barn á sviðinu er hún
tók þátt i sýningu á óperunni
„Litli drekinn", að þvi er segir i
fréttum frá höfuðborg eyjarinn-
ar.
Ahorfendur stóðu i þeirri trú, að
fæðingin væri frábærlega vel leik-
ið atriði þangað til barnið fór að
gráta hraustlega. Þá rigndi gjöf-
um yfir sviðið. Leikhúsgestir
voru á einu máli um. að barn.
sem fæddist á þennan hátt, ætti
gifturika framtið.
Óperan „Litli drekinn” var
frumsýnd i tilefni af nýju upp-
skeruári.
Stanzlaust fjölskylduboð
hjú skrímslinu í Loch Ness
Skrimslið i Loch Ness i Skot-
landi er sprelllifandi og liður
vel. Það lifir lifi sinu i dimmu
djúpinu ásamt nærri fimmtiu
ættingjum sinum, að þvi er virt-
ur brezkur náttúrufræðingur,
Sir Peter Scott, skýrði frá um
helgina.
Sir Peter fékk i hendurnar
myndir, sem teknar voru i vatn-
inu fyrir skömmu, og sagði þá
að svo virtist, sem fjöldi
skrimsla, er áætlað hefði verið
að hefðu dáið út fyrir 70 milljón
árum, synti um i Loch Ness
Visindamenn við háskólann i
Boston i Bandarikjunum tóku
myndirnar.
Að sögn Sir Peters sýna
myndirnar hálslangt skrimsli,
fiskætu, allt að þrettán metra
langt.
Rúmlega hundrað visinda-
menn hvaðanæva úr heiminum
munu koma saman til fundar i
Edinborg i næsta mánuði til að
ræða málið og kanna það nánar.
Stjórn Chile leitar
eftir „nýju lýðrœði".
Forseti Chile, Augusto Pino-
chet, sagði i Madrid á Spáni i gær,
að engir pólitiskir fangar væru i
Chile.
„Aftur á móti eru til i Chile
pólitiskir útlagar innanlands,”
sagði Pinochet, „en þeir eru að-
eins fimm hundruð.”
Pinochet forseti tók viö völdum
i september 1973, þegar Allende
forseta var steypt af stóli og hann
myrtur. Hann sagði i gær, að
stjórn sin leitaði „nýs lýðræðis1'' i
Chile, þar sem venjulegt lýðræði,
bæði i Chile og annars staðar,
væri „mengað” af marx-leninist-
um.
Er Pinochet var spurður hvern-
ig þetta nýja lýðræöi væri, sagði
hann: „Stjórnmálaflokkar eiga
aðeins að verða upplýsingamiðl-
andi. Þeim er ekki ætlað að hafa
árásarvald og mega ekki verða
þannig.”